Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C/D 219.TBL.84.ÁRG. FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rúmlega 30 fórust með DC-3 Dakota-vél Flugstjóri tilkynnti um bilun í hreyfli Den Helder. Reuter. ALLIR, sem um borð voru, í 55 ára gamalli DC-3 Dakota flugvél, fórust er hún steyptist í Norðursjó um miðjan dag í gær. Skömmu áður tilkynnti flugstjóri hennar um bilun í hreyfli. Um borð voru 32 menn, 26 farþegar og 6 manna áhöfn. Flugstjóri vélarinnar sagði að bilun væri í einum hreyfli vélarinn- ar og hugðist reyna nauðlendingu á herflugvellinum í De Kooy en tókst ekki að koma í veg fyrir að vélin steyptist í sjóinn. Seinnipart- inn í gær sást í nokkur Iík farþega sem voni spennt í sæti sín en í gærkvöldi voru öll líkin fundin. Einn maður lifði slysið af en lést skömmu eftir komuna á sjúkrahús. Eigandi vélarinnar var hol- lenskt félag áhugamanna um Da- kota-vélar og var hún eina vél sinnar tegundar í Hollandi í flug- hæfu ástandi. Var hún aðallega notuð til útsýnisflugs. Vélin var á leið til Amsterdam úr stuttri skemmtiferð til eyjarinnar Texel, skammt undan strönd Hollands. Um 11.000 Dakota-vélar voru smíðaðar á árunum 1935-1948 og er talið að um 1.000 þeirra sé enn flogið. Ákveðið að gera aðgerð á Jeltsín i. Reuter. HJARTASÉRFRÆÐINGAR ákváðu í gær að gera hjartaaðgerð á Borís Jeltsín Rússlandsforseta en frestuðu aðgerðinni jafnframt um sex til átta vikur. Frestunin eykur enn á pólitísk- an óstöðugleika vegna valdabaráttu innan Kremlar og efasemda um þvert raunverulegt vald forsetans sé. I gær bættist Míkaíl Gorbatsjov, fyrrver- andi Sovétleiðtogi, í hóp þeirra sem krefjast þess að forsetinn segi af sér sökum heilsubrests. Hjartalæknarnir kváðust í gær fresta aðgerðinni á Jeltsín til að aúka Uppskurði frestað um 6-8 vikur möguleika hans á því að komast til heilsu á ný eftir hana. Sagði Andrej Vorobíjov, sem fer fyrir læknaráðinu, að hið mikla vinnuálag, sem verið hefði á forsetanum í sumar, hefði „leitt til erfiðleika sem gerðu aðgerð nú lítt fýsilega". Ljóst er að Jeltsín verður frá störfum í að minnsta kosti þtjá mánuði til viðbótar, þar sem reiknað er með því að hann verði upp undir tvo mánuði að jafna sig eftir aðgerðina. Spá stjómmálaskýrendur því að nú taki við tími stöðnunar, þar sem fjölmörgum mikilvægum ákvörðunum verður frestað. Óstoðugleikinn í rússneskum stjórnmálum kom skýrt fram í gær er Alexander Lebed, yfirmaður Or- yggisráðs Rússlands, varaði við því að uppreisn í hernum kynni að vera yfirvofandi, vegna þess að hermenn hefðu ekki fengið Iaun sín greidd. ■ Varar við hættu/23 Reuter BJÖRGUNARMENN leita í flaki DC-3 Dakota-vélarinnar sem kom niður á sandrifi í Norðursjó, skammt undan ströndum Hollands. Allir sem um borð voru, 26 farþegar og 6 manna áhöfn, fórust. Ólga í Armeníu Skotið á andstæðinga forsetans Jerevan, Reuter. Morgunblaðið. TIL átaka kom við forsetahöllina 1 Jerevan í Armeníu í gærkvöldi er þúsundir stuðningsmanna Vazgen Manukyan, annars frambjóðenda í forsetakosningunum um síðustu helgi, gerðu aðsúg að höllinni. Lögregla skaut viðvörunarskotum yfir höfuð fólksins, sem mótmælti yfirlýsingum um að Levon Ter-Petr- osyan, forseti landsins, hafi sigrað í kosningunum. Sögðu yfirvöld að enginn hefði látið lífið í átökunum. Islenskir skákmenn, sem keppa á Ólympíuskákmótinu í Jerevan, urðu skothríðarinnar varir, þar sem þeir voru staddir á veitingahúsi skammt frá er hún hófst. ■ Mikil reiði/31 Mannskæð átök á V esturbakkanum Jerúsalem. Reuter. Próf til að greina kúariðu Los Angeles. Reuter. BANDARÍSKIR vísindamenn hafa þróað próf til að greina kúariðu í lifandi dýrum. Kann þessi uppgötvun, sem kynnt er í The New England Journal of Medicine, að koma í veg fyrir að tugþúsundum nautgripa verði slátrað í Bretlandi til að hefta útbreiðslu veikinnar. Vísindamennirnir komust að því að ákveðið prótein myndast í líkama manna, nautgripa og annarra dýrateg- unda sem sýktar eru af kúa- riðu eða sjúkdómum skyldum henni. Prótein þetta myndast ekki þegar um aðrar tegundir hrörnunarsjúkdóma er að ræða. Hingað til hefur ekki verið hægt að greina kúariðu nema með því að kryfja heila dýra sem talið er að hafi verið sýkt. ÍSRAELSKIR hermenn skutu að minnsta kosti fjóra Palestínumenn til bana og særðu rúmlega 300 þeg- ar átök blossuðu upp á Vesturbakk- anum í gær. Þrír þeirra sem biðu bana voru palestínskir lögreglu- menn. Þetta eru alvarlegustu átök ísraela og Palestínumanna frá því ísraelar hófu brottflutning her- manna frá Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu í maí 1994. Átökin minntu mjög á intifada eða uppreisn Palestínumanna gegn ísra- elum á árunum 1987-93, en eini munurinn er sá að nú eru 30.000 vopnaðir palestínskir lögreglumenn á sjálfstjórnarsvæðunum. Palestínu- mennirnir voru að mótmæla nýjum jarðgöngum nálægt helgum stað múslima í Jerúsalem og köstuðu grjóti og flöskum að ísraelsku her- mönnunum í varðstöð við útjaðar Palestínskir lög- reglumenn falla í bardaga við ísra- elska hermenn Ramallah, norður af Jerúsalem. Þá kom einnig til átaka í Betlehem. Hermennirnir svöruðu árásinni með skothríð. Að sögn sjónarvotta komu þá palestínskir lögreglumenn og skutu á hermennina. Israelskt herlið var síðar sent inn á sjálfstjórn- arsvæðið til að reyna að binda enda á átökin og palestínskir lögreglu- menn reyndu að koma í veg fyrir frekai'i árásir á varðstöð hermann- anna. Yasser Arafat, leiðtogi sjálfstjórn- arsvæðanna, hafði hvatt Palestínu- menn til að mótmæla jarðgöngunum og óeirðir blossuðu upp í Austur- Jerúsalem og á nokkrum stöðum á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. „Vísvitandi blekkingar" Moshe Katzav, staðgengill Benj- amins Netanyahus, forsætisráðherra Israels, sagði að stjórnin hefði haft samband við leiðtoga sjálfstjórnar- svæðanna til að freista þess að draga úr spennunni. Netanyahu var í París og sagði að svo virtist sem átökin hefðu bloss- að upp vegna villandi upplýsinga og kvað ekkert hæft í ásökunum Ara- fats um að Israelar hefðu svívirt helgan stað múslima með jarð- göngunum. „Ég tel að hér sé um að ræða villandi upplýsingar og vís- vitandi blekkingar - tilraun til að æsa fólk upp án nokkurs tilefnis." Router ÍSRAELSKIR lögreglumenn handtaka Palestínumann í austurhluta Jerúsalem.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.