Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINMINGAR___________________ ÖRN GUNNARSSON heymarlausra og kennsluferillinn hjá báðum hartnær fjörutíu ár. Það segir sína sögu um viðhorf nemenda í skólanum til Amar að hann hafði sama tákn og hugtakið „karlmaður". Þó kynjahlutföllin í skólanum hafi ef til vill sumpart ráð- ið nafngiftinni mátti öllum ljóst vera að Orn var „maðurinn" - virðulegur fríður karlmaður með foma ímynd karlmennskunnar við höndina: píp- ustertinn. Hann var maður hæglátur og kunni því best að láta lítið fyrir sér fara, vinsæll kennari, hlýlegur og samviskusamur, fáorður og bjó yfir mikilli hugarró. Eftir að Óm sagði skilið við kennslu fyrir tíu árum hélt hann áfram að starfa ofurlítið fyrir skól- ann. Hann tók að sér að rækta garð skólans, hélt áfram að láta lítið á sér bera, og átti æ auðveldara með það eftir því sem gróðurinn dafnaði í höndum hans. Við tókum oft tal sam- an að vori og hausti þegar hann kom með klippumar og önnur garðverk- færi. Hann spurði hvorki um skóla- stefnu né hugmyndafræði, sem ein- lægt voru að breytast, en var þess áhugasamari um nemendur, núver- andi og fyrrverandi, hvort ég hefði af þeim spurnir og hvernig þeim farn- aðist í lífínu. Ég fann að honum var annt um þá og veit hann gerði sér far um að fylgjast með mörgum þeirra úr fjarlægð. Ég votta aðstandendum innilega samúð mína og þakka fyrir tækifær- ið að hafa kynnst Erni Gunnarssyni. Blessuð sé minning hans. Gunnar Salvarsson. t Útför eiginmanns mins, föður, sonar og afa, ÓLAFS BJÖRNSSONAR prentara, Ljósalandi 3, sem andaðist 20. september sl., fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 27. september kl. 15. Elínborg Jónsdóttir, Inga María Ólafsdóttir, Eyþór Osterby, Jón Arnar Ólafsson, Elisabet Jónsdóttir og barnabarn. + Örn Gunnarsson fæddist á Krónustöðum í Eyjafirði 4. mars 1920. Hann lést í Landspít- aianum 15. september síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Laugarneskirkju 25. september. Annar tveggja fyrstu íslending- anna sem hélt utan til framhalds- náms í því augnamiði að verða kenn- ari heyrnarlausra barna var Örn Gunnarsson. Hinn var Brandur Jóns- son fyrrverandi skólastjóri. Nú eru báðir þessir frumheijar fallnir frá. 'Ævistarf þeirra beggja var í þágu Erfidiykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÖTEL LÖFTLEIÖIH t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, GUÐBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Skarðsbraut 15, Akranesi. Ingibjörg Rafnsdóttir, Guðlaugur Ketilsson, Erna Björg Guðlaugsdóttir, Hörður Sigurbjarnason, Rafn Hafberg Guðlaugsson, Lísa Greipsson, Birkir Guðlaugsson, Lilja Benónýsdóttir, Katla Guðlaugsdóttir, Magnús Þorsteinsson, María Jakobsdóttir og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS T. VILHJÁLMSSONAR, Bólstað, Garðabæ. Guðmundur T. Ólafsson, Vilhjálmur S. Ólafsson, Maria Ólafsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Alda Hauksdóttir, Soffía V. Tryggvadóttir Sveinn Jónsson, Gunnar Á. Arnórsson, Logi Olafsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Guðlaug Ingvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson TVÆR fimm manna dómnefndir hafa starfað á heimsmeistaramótum til þessa. Á þessu verður breyt- ing og munu nú aðeins þrír skipa hverja dómnefnd. Meðfylgjandi mynd var tekin á HM í Hollandi 1993 af hluta þeirra sem hönd lögðu á plóg við kynbótadóma en þeir eru frá vinstri talið Veerle de Koninck Belgiu, Per Kolnes Noregi, Bruno Podlech Þýskalandi, Marcel Jensen Sviss, Eric Christ- ensen, Víkingur Gunnarsson sem nú er ræktunarfulltrúi í stjórn FEIF, Anne Marie Quarles Hol- landi, Kristinn Hugason og Marian Timmermann Hollandi. Nýjum áfanga í samræm- ingn kynbótadóma náð HESTAR Dusscldor f AÐALFUNDUR ALÞJÓÐA- SAMBANDS EIGENDA fS- LENSKRA HESTA Mikil vægur áfangi náðist í samræm- ingu kynbótadóma á islenskum hrossum á alþjóðlegum vettvangi þegar aðalfundur FEIF, alþjóðasam- tök eigenda íslenskra hesta, sam- þykkti nýlega að íslenski stigunar- kvarðinn skuli notaður við einkun- nagjöf. ÞAÐ er ekki síður gleðiefni að það skuli vera íslensk fyrirmynd sem fyrir valinu verður sem er enn ein staðfestingin á forystu hlutverki íslands á þessum vettvangi. Sam- þykktin var gerð með megin þorra atkvæða en Þjóðverjar voru á móti ásamt Austurríkismönnmum. Þjóðveijar hafa verið að einangrast meir og meir í ræktunarmálum og staðfestir þessi niðurstaða þá stöðu vel. Skiptar skoðanir í Þýskalandi Kristinn Hugason hrossa- ræktarráðunautur sem sat fundinn ásamt Guðmundi Jónssyni for- manni L.H. sagði að þarna hafí verið stigið mjög mikilvægt skref í samræmingu. Hann sagðist þess fullviss að þjóðveijar myndu áður en langt um liði hverf á sveif með öðrum löndum innan FEIF. Innan Þýskalands eru tvær fylkingar sem eru á öndverðu meiði um margt er víkur að stefnu í ræktun og reglum þar að lútandi. Annarsveg- ar eru þeir sem vilja fylgja íslandi og öðrum aðildarlöndum FEIF. Þessi armur er á móti rýmilegum fótabúnaðarreglum meðal annars og vilja að stefnan sé sniðin eftir eftir íslenskum reglum. Svo er hinn armurinn sem vill leyfa þyngri fótabúnað, hafa dómara aðskilda, gefa einkunnir með spjaldaupp- réttingum svo dæmi sé tekið. Þessi armur hefur haft yfírhöndina í Þýskalandi til þessa og hefur það endurspeglast í afstöðu Þýska- lands á fundum FEIF um ræktun- armál. Auk þess hafa þýskir dóm- arar margsinnis lent upp á kant við meðdómendur sína á alþjóleg- um mótum. Er þar skemmst að minnast fjaðrafoksins á síðasta HM í Sviss þegar íslensku dómar- amir neituðu að skrifa undir dó- mana þegar þeim hafði ofboðið framkoma eins þýska dómarans. Búist er við að fyrmefndi armur- inn muni ná undirtökunum áður en langt um líður en slíkt mun auðvelda mjög samræmingu kyn- bótadómanna. Þótt þýsku fulltrú- amir hafí verið trúir sínu vegar- nesti á fundinum nú fannst öðrum fulltrúum lítill hugur fylgja máli af þeirra hálfu. Ekki var á þeim að sjá að það ergði þá nokkuð þótt þeir yrðu undir hvað eftir annað í atkvæðagreiðslum á fund- inum. Þrír dómarar hafi samráð En það var fleira samþykkt á þessum sögulega fundi. Fundar- menn virtust ekki hrifnir af nýju fyrirkomulagi sem tekið var upp við kynbótadóma á Islandi í vor þegar dómarar vora skildir að bæði í bygginga- og hæfileika- dómi. Á fundinum var samþykkt að dómurum á alþjóðlegum mótum skuli fækkað úr fimm í þijá og skuli þeir starfa saman að því leiti að hver þeirra gefur einkunn og síðan samráð ef einhveiju munar. Rökstyður þá hver sína einkunn og ef ekki næst samkomulag um eina tölu gildir meðaltal þriggja einkunna. Þetta vinnulag virðist skynsamlegra en alger aðskilnaður og kemur frekar í veg fyrir að dómarar gera mistök. Þá geta dómarar hyglað að einstökum hestum án afskipta en það er í daglegu tali kallað hlutdrægni. Þjóðverjar vildu koma að fullum aðskilnaði dómara en þeirri tillögu var vísað frá og hið fyrrnefnda samþykkt með megin þorra at- kvæða. Kristinn kvaðst einkar ánægður með þessa niðurstöðu því þetta væri það fyrirkomulag sem hann lagði til að notað yrði á ís- landi í vor og sumar. „íslenskur" fótabúnaður á alþjóðamótum Reglur um fótabúnað kynbóta- hrossa í dómi var einnig breytt til samræmis við íslensku reglurnar og meira að segja gengið aðeins lengra hvað varðar lengd hófa. Hér hefur verið leyfð hámarks- lengd 105 m.m. en samkvæmt FEIF reglum er það 95 m.m. Krist- inn gerði ráð fyrir að þessu yrði breytt hér á landi til samræmis við FEIF reglumar og sagði það reyndar sína skoðun að annað kæmi ekki tl greina. Sömuleiðis vaknar sú spurning hvort ekki liggi vel við að banna í íslenskum regl- um pottun eða harðsuðu á skeifum til samræmis við það sem er í FEIF reglunum. Kvaðst Kristinn því eindregið fylgjandi því lokatak- markið hlyti að vera sömu reglur í öllum aðildarlöndum samtakanna. Af öðrum samþykktum fundar- ins er þess og að geta að reglur um keppni unglinga á alþjóðlegum vettvangi fengu brautargengi. Mikil þörf var orðin á slíkum regl- um því keppni hestamanna í þess- um aldursflokki á alþjóðlegum vettvangi vex og dafnar með aukn- um vinsældum og útbreiðslu ís- lenska hestsins. Skipan í stjórn samtakanna er með sama hætti og var fyrir fund- inn. Formaður er Lasse Eklund frá Svíþjóð, Susan Kraus Winkler Austurríki er gjaldkeri, Freddy Lehr Sviss er fjölmiðlafulltrúi, Fi Pugh Englandi er ritari, Víkingur Gunnarsson íslandi er ræktunar- fulltrúi, Tone Kolnes Noregi er íþróttafulltrúi, Nils Jacobsen Dan- mörku er fulltrúi útreiðarmanna og Eva Marie Gerlach er æskulýðs- fulltrúi. Kristinn Hugason sagði að rekstur samtakanna hafi gengið vel undanfarið og sé ljárhagurinn góður um þessar mundir. I ljósi þess verður starfsemin aukin og elfd eftir því sem fjárhagur leyfir. Valdimar Kristinsson Vel heppnuð kynning Senn lýkur kynningarferð Sam- einingarnefndar LH og HIS og sagði formaður nefndarinnar Sigurður Magnússon í samtali við Morgunblaðið vel hafa til tekist. Segir hann fundarmenn yfír- leitt ánægða með störf nefndar- innar og niðurstöðu af starfi hennar sem lagt hefur verið fram á fundunum. Að sjálfsögðu séu sjónarmið mismunandi eins og gengi en ekki hafí komið fram efnisleg mótstaða. „Hinsvegar höfum við fengið margar góðar ábendingar sem munu gagnast í frekari umræðu“ sagði Sigurð- ur._ í gær var haldinn fundur á Selfossi með sunnlenskum hesta- mönnum og í kvöld verður fund- ur haldinn í Reiðhöllinni í Glað- heimum í Kópavogi. Síðasti fundurinn verður á mánudaginn n.k. í félagsheimili Fáks og hefst hann klukkan 20.30 en ekki 18 eins og kynnt hafði verið. Sigurð- ur vildi undirstrika að hér væri um að ræða fundi opna öllum. hestamönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.