Morgunblaðið - 26.09.1996, Side 30

Morgunblaðið - 26.09.1996, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 31 fttorginiiMitfci STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ÞARFIR ÞÝZKS FISKMARKAÐAR ATHYGLISVERÐAR ábendingar til íslenzkra fisk- seljenda komu fram hjá Hartmut Perschau, sem fer með efnahagsmál í stjórn sambandsríkisins Bremen í Þýzkalandi, þegar hann var hér á dögunum. í viðtali við Morgunblaðið lagði Perschau áherzlu á nauðsyn þess, að Islendingar sæju þýzkum markaði fyrir ferskum fiski jafnhliða frosnum. Ástæðan sé sú, að neyzla fersk- fisks sé hefðbundin þar í landi og grunnur góðrar ímynd- ar fisks í hugum neytenda sé mjög tengdur ferska fiskin- um og útliti hans. Góður ferskfiskur sé lykillinn að markaðnum. Ráðherrann benti á, að hefðir í fiskneyzlu í Þýzka- landi séu allt aðrar í þessum efnum en t.d. í Banda- ríkjunum. Þjóðverjar séu ekki eins hrifnir af skyndibita- menningunni og fólk vilji fullvissa sig um, að varan sé ný og fersk. „Ef þið drægjuð of mikið úr framboði á ferska fiskinum gæti orðið erfiðara að selja afurðirnar í innhéruðum landsins. Markaðurinn myndi minnka sjálfkrafa. Það væri þvi ekki mjög skynsamlegt.“ Perschau bendir á, að miklir möguleikar séu um þess- ar mundir á sölu fiskafurða í Þýzkalandi, því æ fleira fólk dragi úr kjötneyzlu, en til að notfæra sér þá stöðu til markaðssóknar þurfi að bjóða upp á ferskan fisk. Nauðsynlegt sé að hafa á boðstólum ákveðið lágmark af ferskum og óunnum fiski, 15-20% af heildarmagn- inu, en afgangurinn geti verið frosinn. Mikil áherzla hefur verið lögð á það hér á landi undan- farin misseri að fullvinna fiskinn, bæði til að draga úr atvinnuleysi, en einnig til að auka verðmæti afurðanna. Fiskseljendur mega þó ekki gleyma því, að nauðsynlegt er að rækta markaðina með því að bjóða vöru, sem neytendur vilja fá. Það kemur íslenzkum sjávarútvegi til góða til langs tíma litið. Þess vegna er gagnlegt að kynnast sjónarmiðum þýzka ráðherrans frá Bremen. MERKIR MENNTASKÓLAR MENNTASKÓLINN á Akureyri tók í vikunni nýja skólabyggingu í notkun, Hóla. Með nýja húsinu tvöfaldast kennslurými skólans. Eins og Tryggvi Gísla- son skólameistari minnti á í ávarpi sínu við skólasetning- una rekur Menntaskólinn á Akureyri sögu sína til Möðru- vallaskóla og hins forna Hólaskóla, sem stofnaður var snemma á 12. öld. Nafngift hins nýja og vel búna húss er því skemmtilega táknræn fyrir skóla, sem vill leggja rækt við það gamla, en horfa jafnframt fram á veginn og stuðla að framförum, líkt og skólameistari rakti í ræðu sinni. Menntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn í Reykja- vík, sem á upphaf sitt að rekja til stofnunar skóla í Skálholti á 11. öld, eru rótgrónar stofnanir, sem báðar hafa haldið í gamlar og góðar hefðir og tryggt ákveð- inn stöðugleika og skjól fyrir vindum tízkunnar, sem blásið hafa snarpt um menntakerfið á undanförnum áratugum. Þessir skólar hafa staðið af sér tízkusveiflur í kennsluháttum og varðveitt hið gamla bekkjakerfi. Þeir hafa viðhaldið aga og gert strangar kröfur til nem- enda sinna og þannig búið þá vel undir nám og störf í framtíðinni. Þessari þjóð er mikilvægt að eiga slíkar menntastofn- anir og hlúa vel að þeim, þótt nýjungarnar þurfi að sjálfsögðu einnig sitt rúm. Meirihluti framhaldsskóla í landinu er nú rekinn með öðru og nýrra sniði en MA og MR, þótt nýrri skólarnir hafi reyndar enn ekki sýnt fram á betri árangur en hinir grónu menntaskólar. Um leið og Menntaskólanum á Akureyri er óskað til hamingju með hið nýja skólahús, er ástæða til að minna á brýna þörf fyrir sambærilegar úrbætur í húsnæðismál- um Menntaskólans í Reykjavík. Löngu er kominn tími til að húsnæðisvandi skólans verði leystur til frambúðar með myndarlegum hætti. Fjöldafundur sljórnarandstæðinga 1 Jerevan vegna umdeildra forsetakosninga Reuter STUÐNINGSMENN Manukyans ganga um stræti Jerevan. Ter-Petrosyan forseti hefur skipað hersveitum að standa vörð um helstu stj órnarbyggingar. rm ’Æ f i «. M ''Æ 'Æ? Pt'Hfi / ||||||||| ! wpfofrjpj fiBF v Cyv wiil £ l Mikil reiði en flestir sýndu stillingu Mikil ólga er í Armeníu vegna úrslita forsetakosninga um síðustu helgi. Levon Ter- Petrosyan hefur lýst yfir sigri en andstæðing- ur hans, Vazgen Manukyan, sakar forsetann um víðtækt kosningasvindl. Illugi Jökulsson fylgdist með fjölmennum útifundi stuðnings- manna Manukyans í höfuðborginni Jerevan en honum lyktaði með því að hleypt var af skotum við forsetahöllina. LOFT var lævi blandið á fundi stuðningsmanna Vazgens Manukyans, forsetafram- bjóðanda í Armeníu, sem haldinn var á Óperutorginu í höfuð- borginni Jerevan. Allt að hundrað þúsund manns sóttu fundinn og var mörgum heitt í hamsi í kjölfar kosn- inganna um helgina. Sögðust margir líta á kosninganiðurstöðumar sem valdaránstilraun af hendi fallins for- seta, Levons Ter-Petrosyans. Og vissulega var stuðningsmönnum Manukyans mikið niðri fyrir. Það sem einkenndi fundinn var þó fyrst og fremst stilling og yfirvegun. Vazgen Manukyan, sem ávarpaði fundinn, hvatti stuðningsmenn sína til að gef- ast ekki upp fyrr en Ter-Petrosyan hefði verið komið frá völdum en lagði þó um leið ríkt á við fólk að grípa hvorki til ofbeldis né annarra ólýðræð- islegra aðferða. Fyrrum samherjar Þeir Levon Ter-Petrosyan og Vazg- en Manukyan eru gamiir samheijar í baráttunni gegn yfirráðum Sovétríkj- anna í Armeníu og eru á svipuðum aldri, eða rúmlega fimmtugir. Þeir sátu báðir í Karabakh-nefndinni, sem Armenar komu á fót til að gæta hags- muna landa sinna sem búa í héraðinu Nagorno-Karabakh, sem telst til ná- grannaríkisins Azerbaidsjan. Eftir að Armenar öðluðust sjálfstæði árið 1991 og Ter-Petrosyan varð forseti var Vazgen Manukyan um tíma forsætis- ráðherra hans. En hann lét af völdum fyrir fáeinum árum og hefur síðan verið í fararbroddi stjórnarandstöð- unnar í landinu. Ennfremur eiga þeir Manukyan og Ter-Petrosyan það sameiginlegt að vera fræðimenn. Ter-Petrosyan er málvísindamaður og sérfræðingur í fornum handritum en Manukyan stærðfræðingur og háskólakennari. Til fundarins var boðað vegna þess að stuðningsmenn Manukyans telja augljóst að Ter-Petrosyan og menn hans hafi haft rangt við í forsetakosn- ingunum síðastliðinn sunnudag. Taln- ing hefur gengið seint og iila en í fyrrakvöld tilkynnti sjónvarpið í Armeníu að Ter-Petrosyan hefði sigr- að með 58% atkvæða. Nokkru seinna var sú tala komin niður í 52%. Stuðn- ingsmenn Manukyans halda því fram að tölur þær sem sjónvarpið birti séu falsaðar. Vill hægari umbætur Það fyrsta sem vakti eftirtekt á fundinum var að hann virtist sækja annað fólk en það unga, fallega og vel klædda fólk sem mest ber. á í miðbænum, þar sem hótel íslenska liðsins á Ólympíuskákmótinu er stað- sett. Vissulega var slíkt fólk þarna innan um en yfirgnæfandi meirihluti var miðaldra og greinilega af iægri stigum þjóðfélagsins. Þetta fólk hafði marga fjöruna sopið á Sovéttímanum en hafði nú hiotið sín réttindi og ætl- aði ekki að láta þau svo léttilega af hendi. Manukyan hefur haldið því fram að of hratt hafi verið farið í efnahagslegar umbætur og að margir standi uppi slyppir og snauðir af þeim sökum. Eitt kosningaloforða hans var að hækka laun og eftirlaun verulega. Ter-Petrosyan hefur á móti haldið því fram að veikburða efnahagur landsins bæri ekki slíkar hækkanir og mikil- vægasta verkefnið væri að efla stöð- ugleikann í landinu. Það virtist hins vegar ekki vera vonin um hærri laun er dró fólk á Óperutorgið heldur reiði yfir misrétti, sem það taldi sig vera beitt af stjórn- völdum. Fjölmargir fundarmenn gáfu sig á tal við okkur íslendingana á fundinum og leitaðist við að útskýra málin fyrir okkur. Talað var um að kosningabaráttan hefði verið óheiðar- leg af hálfu Ter-Petrosyans og félaga og sums staðar hefði borið á ofbeldi þótt það hefði að vísu hvorki verið umfangsmikið né alvarlegt. Segja framkvæmd kosninga í handaskolum Þá hefði aðgangur Manukyans að fjölmiðlum verið takmarkaður og Ter- Petrosyan beitt ríkisvaldinu sér til framdráttar. Umfram allt hefði þó framkvæmd kosninga farið í handa- skolum. Sums staðar hefðu stuðnings- menn Ter-Petrosyans bætt kjörseðl- um í kjörkassana og engin leið hefði verið að koma í veg fyrir það. Nokkr- um fulltrúum Manukyans í kjörnefnd- um hefði verið ógnað og sumir jafn- vel barðír. „Ter-Pet.rosyan verður að fara frá,“ sagði ungur maður, sem ég ræddi við á Operutorginu. „Þetta mál snýst ekki um laun eða eftirlaun heldur um sjálfa framtíð þjóðarinnar. Við erum ungt ríki, þótt við stöndum á gömlum grunni, og við höfum ekki efni á að hefja feril okkar sem lýðræðisríki með óþokkabrögðum af þessu tagi. Ef þetta verður látið Iíðast þá er aldrei að vita hvað gerist næst þegar Ter- Petrosyan telur sér ógnað. Þar að auki hefur hann verið vondur forseti. Hann segir sífellt að stöðugleikinn sé fyrir öllu og að við verðum að gæta að stefna ekki sjálfstæðinu frá 1991 í hættu. Landið er hins vegar nú þeg- ar að staðna, margir búa við sult og seyru en Ter-Petrosyan er aftur á móti í nánum tengslum við glæpasam- tök.“ Þessi maður var í hópi hinna her- skáustu á Óperutorginu og þegar við spurðum hann hvað bæri að gera kreppti hann einfaldlega hnefann og brosti. Aðrir voru friðsamari þótt al- varan leyndi sér ekki í fasi þeirra og svip. Vill endurtalningu eða nýjar kosningar Vazgen Manukyan sjálfur mætti á torgið, undir dynjandi ættjarðarlögum úr hátölurum. Hann er lágvaxinn maður, sköllóttur og ber það nánast utan á sér að vera háskólamaður. Hann hélt alllanga ræðu og rakti hvað væri athugavert við kosningaúrslitin eins og þau hefðu verið kynnt. Nefndi hann meðal annars að í einni kjör- deild hefði Ter-Petrosyan fengið 200 atkvæði, sem hlyti að teljast einkenni- legt í ljósi þess að ekki ættu nema um það bil hundrað manns rétt á að greiða atkvæði í kjördeildinni. Manukyan lýsti því yfir að hann hefði óskað eftir fundi með Ter-Petr- osyan síðar að deginum, þar sem hann ætlaði að krefjast þess að forsetinn segði af sér og hann sjálfur tæki við, enda hefði hann hlotið fleiri atkvæði en Ter-Petrosyan. Að vísu var Manukyan svo hógvær að hann full- yrti varla berum orðum að hann hefði unnið kosningarnar, heldur heimtaði einungis að talning atkvæða færi fram á heiðarlegum grunni. Að öðrum kosti yrði Ter-Petrosyan að boða til nýrra kosninga, svo fljótt sem verða mætti, og þá undir auknu alþjóðlegu eftirliti. „Ef Ter-Petrosyan sigrar í þeim kosningum þá munum við sætta okk- ur við það,“ sagði Manukyan. „En við getum ekki sætt okkur við þetta, þessa valdníðslu og ofbeldi af hálfu Ter-Petrosyans. Lýðræðið skal fá að sigra í Armeníu." Fundargestir fögnuðu Manukyan vel og lengi eftir þessa ræðu og tóku margir aðrir til máls að því búnu og veltu fyrir sér ýmsum kostum í stöð- unni. Meðal annars flutti ræðu kona, sem á bróður er handtekinn var í fyrradag eftir fyrstu mótmæla- gönguna, sem farin var í Jerevan eft- ir að Ter-Petrosyan lýsti yfir sigri. Alls munu tólf hafa verið handteknir og fékk þessi tiltekni maður hjarta- áfall í vörslu lögreglunnar. Það jók reiði fólks vegna þessa atburðar að maðurinn er stríðshetja úr bardögum Armena og Azera um héraðið Nag- orno-Karabakh og vildu sumir nú storma til forsetahallarinnar og beija á Ter-Petrosyan. Stillingin náði hins vegar yfirhöndinni á ný og kom í stað- inn upp sú hugmynd að fólkið hefði varðstöðu á Óperutorginu, þar til Ter- Petrosyan léti undan og heiðarleg talning atkvæða færi fram. Nokkrir lögreglumenn voru á vappi á fundinum en sá eini sem amaðist við því að fólkið talaði við okkur ís- lendingana var ungur maður í silki- jakkafötum með demantshring á hveijum fingri. Sagði hann málefni Armena ekki koma útlendingum við. Skothríð við forsetahöllina Mótmælagangan frá fundinu fylgdi Manukian að forsetahöllinni þar sem hann hugðist reyna að ná fundi Ter- Petrosyans. Síðla kvölds var hleypt af skotum við forsetahöllina og til- kynnti innanríkisráðherra landsins í sjónvarpsávarpi að lögregla hefði gert það til að dreifa mannfjöldanum sem hefði látið ófriðlega. Enginn hefði lát- ið lífið en fólk var hvatt til að halda kyrru fyrir heima. Atburðurinn virðist þó ekki talinn alvarlegur hér því allt gengur sinn vanagang eftir sem áður. íslensku skákmennirnir sem búnir voru að tefla snemma í gær heyrðu skothríðina þar sem þeir voru staddir á veitingahúsi en héldu að um flugelda væri að ræða. RIÐUVEIKI í SAUÐFÉ Verndandi erfðaeinkenni finnast ekki á Islandi Morgunblaðið/Ámi Sæberg DR. STEFANÍA Þorgeirsdóttir frumulíffræðingur og dr. Ástríður Pálsdóttir sameindalíffræðingur. Nýjar rannsóknir á ís- lensku sauðfé hafa leitt í ijós að í stofninn vantar verndandi erfðaeinkenni gegn riðuveiki sem finnast í erlendu sauðfé. Áhættuþáttur í erfðaefni stofnsins hefur aftur á móti fundist en skiptar skoðanir eru um hvort rækta eigi hann úr fénu. VIÐ rannsóknir á erfðafræði- legum skýringum riðu í sauðfé erlendis hafa fund- ist erfðaeinkenni í svo- nefndu príongeni sem teljast vemd- andi. Sauðfé með þetta einkenni í erfðaefni er mun ólíklegra til að fá riðu en annað fé. Rannsóknir sem dr. Ástríður Pálsdóttir sameindalíf- fræðingur og dr. Stefanía Þorgeirs- dóttir frumulíffræðingur hafa stund- að síðustu fimmtán mánuði á Til- raunastöðinni í meinafræði á Keldum benda til þess að verndandi einkenn- ið finnist ekki í íslensku sauðfé. Þessi niðurstaða gæti tafið fyrir því að að leið finnist til að rækta riðuna úr stofninum. Þær Ástríður og Stefanía útiloka þó ekki að annað verndandi einkenni finnist síðar í ís- lenskum kindum, en á öðrum stað í sama geni. Ein arfgerð príongensins sem fundist hefur í sauðfé erlendis er sterkur áhættuþáttur fyrir riðusmit. Rannsóknir Ástríðar og Stefaníu sýna að hún finnst einnig í íslensku fé. Sauðfé með þessa arfgerð er mun líklegra til að fá riðu en annað. Ástríður og Stefanía telja að hægt sé að draga úr líkum á riðu með því fjarlæga fé, sem er með áhættuþátt- inn, úr stofninum. Þær hafa þegar leitað að áhættuþættinum í um hund- rað kynbótahrútum hér á iandi. Hann fannst í um 20% þeirra. Ónæmi eða síðbúin einkenni Jón Viðar Jónmundsson, ráðunaut- ur hjá Bændasamtökunum, telur ekki fullljóst að besta leiðin í baráttunni við riðuna sé að útrýma fé með áhættuþáttinn. „Það eru deildar meiningar um það hvort fé með önn- ur erfðaeinkenni sýkist síður af rið- unni eða hvort einkennin séu einfald- lega lengur að koma í ljós. Ef hið síðara reynist rétt ber það fé smitið lengur. Markmiðið hér á landi hefur verið að útrýma riðunni algerlega. Það má velta þvi fyrir fyrir sér hvort þá sé ekki jafngott að hafa fé sem er fljótt að sýna einkenni. Þá vitum við fyrr en ella af því ef ekki hefur tekist að útrýma riðunni á ákveðnu svæði.“ Jón Viðar segir rannsóknir á erfða- efninu mjög gagnlegar og gott að upplýsingar um erfðaeinkennin fylgi kynbótahrútum. Hann telur þó rétt að bændur ráði því sjálfir hvort þeir nota hrúta með áhættuþáttinn til kynbóta meðan ekki liggja fyrir ein- dregnari niðurstöður. Enginn marktækur munur á aldri við fyrstu einkenni Ástríður segir það rétt, að enn sé ósannað hvort fé með áhættuþáttinn smitist síður eða hvort það sé lengur að sýna einkenni. „Til þess að fá fullvissu um þetta þyrfti að gera sýkingartilraun, þ.e.a.s. að smita sauðfé með mismunandi erfðaein- kenni og kanna hversu lengi einkenn- in væru að koma í ljós. Sú tilraun yrði umfangsmikil og tæki 7-10 ár. Bráðabirgðaniðurstöður úr mínum rannsóknum benda þó til þess að enginn marktækur munur sé á því á hvaða aldri einkenni riðu koma í ljós á sauðfé með áhættuarfgerð og öðru fé sem smitast.“ Áhættuþátturinn er fundinn með greiningu á blóðsýni. Rannsóknir á hveiju sýni taka tvær vikur, en hægt er að vinna með þó nokkur sýni í einu. Verið er að þróa aðferðirnar og gera þær hraðvirkari en Ástríður segir það margra ára verkefni að útrýma áhættuþættinum úr íslensku fé. „Það er í sjálfu sér framkvæman- legt og ekki dýrt miðað við það fé sem fer í riðuvarnir, til dæmis í girð- ingar milli landshluta,_ og í bæti#t vegna niðurskurðar. Ágæt byijun væri að rannsaka það fé sem er flutt inn á svæði sem hafa verið hreinsuð eftir riðutilfelli.“ Ástríður segir að ekki sé öruggt að komist verði fyrir riðuna þótt stærsti áhættuþátturinn verði fjar- lægður. „Það er líka til riðusýkt fé með aðra arfgerð. Við vitum ekki af hveiju sumt af því fé er í riðuhópn- um en annað ekki.“ Ástríður og Stefanía eru þó bjart- sýnar á að einhvem tíma takist að útrýma riðunni hér á landi, með hjálp rannsókna þeirra og annarra og þeim aðferðum sem hingað til hefur verið beitt gegn sjúkdómnum. Rannsóknir þessar eru eitt þeirra þriggja sviðot. sem megináhersla er lögð á í framtíð- arstefnu Tilraunastöðvarinnar að Keldum, sem kynnt var í gær. Framtíðarstefna Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði kynnt , Morgunblaðið/Ásdís DR. ÓLAFUR S. Andrésson lífefnafræðingur, dr. Guðmundur Georgsson forstöðumaður Tilraunastöðvarinnar og dr. Eggert Gunnarsson dýralæknir. * Onæmiskerfi þorska meðal rannsóknarefna TILRAUNASTÖÐ Háskólans í meinafræði að Keldum kynnti í gær stefnu sína í rannsóknum til næstu ára. Tilraunastöðin mun leggja áherslu á rannsóknir á þremur sviðum. Hið fyrsta eru rannsóknir á hæggengum smit- sjúkdómum, svonefndum príon- sjúkdómum, einkum riðu. Annað svið eru rannsóknir á ónæmis- og sjúkdómafræði sjávarfiska og hið þriðja beiting erfðatækni við þróun og framleiðslu bóluefnis og vinnslu verðmætra lífvirkra efna úr náttúrunni. Meðal þess sem nú er unnið á þessum sviðum er rannsókn á áhrifum hitastigs sjávar á ónæm- iskerfi þorska. Mengun getur valdið sveiflum í hitastigi sjávar og vitað er að breytingar á um- hverfi geta haft mikil og slæm áhrif á ónæmiskerfi ýmissa fisk- tegunda. Ónæmiskerfi þorsks er að ýmsu leyti óvenjulegt og lítið er vitað um hvaða áhrif un- hverfisbreytingar hafa á það. í rannsókninni er kannaður hæfi- leiki þorsks til að mynda sérvirkt ónæmissvar og vörn gegn sýk- iogu við mismunandi hitastig. Á sviði erfðatækni er unnið að þróun og framleiðslu bóluefna gegn sauðfjársjúkdómum. Þessar rannsóknir hafa verið umfangs- miklar í starfsemi Tilraunastöðv arinnar frá upphafi. Nú er von- ast til að endurbæta fram- leiðsluaðferðir, meðal annars með hjálp erfðatækni. Með fram- leiðslu á hagkvæmara og betur skilgreindum bóluefnum er með- al annars horft til þess að geta markaðssett þau erlendis. Nefnd skipuð dr. Guðmundi Georgssyni forstöðumanni, dr. Ólafi S. Andréssyni lífefnafræð- ingi og dr. Eggert Gunnarssyni dýralækni hefur undanfarið ár unnið að úttekt á rannsóknar- starfi stofnunarinnar síðastliðin 5-6 ár og mótað stefnuna til fram- tíðar með hliðsjón af niður- stöðunum. Þörf á að fjölga starfsfólki Sljórn stofnunarinnar telur æskilegt að sérfræðingum og öðru föstu starfsfólki stofnunar- innar verði fjölgað, enda sé hún að of miklu leyti rekin með fólki sem er á tímabundnum styrkjum. Stjórnin telur að fjölga þurfi sér- fræðingum á sviði sameinda- erfðafræði um þrjá, sérfræðing- um í líffærameinafræði um einn og sérhæfðu aðstoðarfólki um þrjá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.