Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Lýs milda ljós ÞEGAR öldinni er að ljúka og ekki verður þverfótað fyrir umræð- um um hlutabréf, síld- argróða (þennan sem kemur og fer), smugu- veiðar og jarðgöng und- ir sjó og landi, að við- bættri launþegahreyf- ingunni, sem ætlar að grípa tuttugu þúsund á mánuði út úr efnahags- lífinu um áramótin til að efla vísitölubundna v^gbólgu sem fór svo vel með okkur á átt- unda tugnum. Allt er þetta mjög ofarlega í hugum fólks. Það er jafnvel hætt að tala um Hólasand í bili, sem ekki má rækta nema með „spesíal" grösum. Við vöknum kannski hinum megin við aldamótin. Þá verður komið í ljós að hlutabréf átti enginn að kaupa vegna þess að stóreignaaukningin var bara bók- haldsæfing sægreifa, sem varðar meira um veðrið á Canarí og Florida en Halamiðum. Á endanum borgar sú veðrátta ekki hlutabréfín. Nú skilst manni að enginn vilji kaupa þorsk lengur, svo tímatal okk- a*>fer að miðast við þá breytingu, þegar allir fjármunir spruttu af þorski og síld. Sagt verður um næstu kynslóðir að þær hafi fæðst 6 árum e.þ. (eftir þorsk) eða það stendur í minningargrein, að Jón Jónsson hafi kvænst 57 árum f.þ. Þannig eru bókfest mikil slys sögunnar. Hitt er svo annað mál, að þótt framtíðin muni hafa týnt sínum þorski og hlutabréfin misst sína undirstöðu, erum við samt sem áður sem þjóð glöðust allra manna. Það skín alls s(Mar út úr verkum okkar, þar sem s'Tð® að segja allir eru farnir að skemmta öllum, eða slá hver annan út í miklum fínönsum. Er þá sleppt hinum miklu erlendu sigrum, sem fréttastofur eru stundum að segja að hent hafi smalamann utan af Is- landi. Strax í bytjun þessarar aldar og raunar nokkru fyrir þann tíma, unnu menn verfræðileg stórvirki á Vestur- löndum. Áður höfðu verið reist svo Indriði G. Þorsteinsson kölluð sjö furðuverk veraldar og sómdu þau sér vel í ævintýraheim- um fjarlægðar. Svo var um Svifgarða Babylon- ar, múrinn í Kína og píramídana í Egypta- landi. Á Vesturlöndum reis ekkert furðuverk og engar stórar fram- kvæmdir fyrr en fór að líða svolítið á öldina. Samt byggðu menn Súez-skurðinn og Pa- nama-skurðinn. Þeir sem bjuggu nyrst í Evr- ópu eða Ameríku og börðust a.m.k. einu sinni um heimsyfirráð, ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5112200 Áhrifarík heilsuefni Bio-Qinon Q10 ^kur orku og uthald Bio-Biloba skerpir athygli og einbeitingarhæfni Bio-Selen Zink er áhrifaríkt ái’niiöa andoxunarheilsuefni BIO-CAROTEN BIO-CHRÓM BIO-CALCIUM BIO-GLANDÍN-25 BIO-E-VÍTAM. BIO-FIBER-80. BIO-HVÍTLAUKUR BIO-ZINK BIO-MAGNESÍUM BIO-MARIN Fæst í mörgum heilsubúðum, apótekum og mörkuóum. þ.e. 1914-1918, byggðu engin stór- virki. Að vísu komu Norðmenn upp Björvinjarbrautinni árin 1905-1907 og þóttust hafa unnið þrekvirki, Frakkar og Bretar komust loksins undir Ermarsund fyrir skömmu, og Danir og Svíar ganga gneipir til þess verks að grafa göng frá Sjálandi yfir til Svíþjóðar. Við, 260 þúsund ofurmenni, gröfum okkur undir Hval- fjörð - ekki til að samaneína tvær vinaþjóðir, heldur til að koma smá- þorpi á allan heimsmælikvarða í að- eins beinna vegasamband. En menn eiga að vera fylgjandi öllum og öllu af því þá komast þeir í himnaríki. Og víst er gott fyrir skoplítið samfélag að geta allt. Stærri þjóðir en íslendingar hafa ætlað sér mikla hluti og ekki tekist. En ýmislegt í barna- og unglinga- fræðslu okkar elur upp þörfina fyrir viðurkenningu og er sama á hvaða vettvangi hún er. Við lærum í bókum um hungursneyðir, sem forfeður okkar urðu að þola. Okkur er kennt að ekkert af þeim hafi verið okkur að kenna eða eldfjöllum og gæfta- leysi fyrir árabáta sem var skipa- stóllinn. Danir gerðu okkur þetta allt. Þess vegna er alltaf góður tími að vera reiður stjórnvöldum. Næst þegar yfir dynur síldarleysi og þor- skinn vilja menn ekki nýta, að við- bættu þv! þegar hlutabréfakúrfurnar verða öfugar, er gott að geta kennt ríkisvaldinu um eins og í danska daga. Svo vel hefur tekist til, að ísland er íjallaland. Allar ökuleiðir liggja ýmist eftir dölum, utan í snarbrött- um hlíðum eða heiðum og á skörðum uppi. Verktakar þurfa því ekkert að óttast í bráð. Enn er dijúgt pláss Mikill þungi, segir Indriði G. Þorsteins- son, er lagður á sem skrautlegasta vegagerð um þessar mundir. fyrir jarðgöng, eins og til dæmis á Austfjörðum. Víða má finna stakan klettahrygg til að smjúga í gegnum vegna þess að kaupíeigufyrirtækin þurfa að tilkynna góða útkomu. Áður vorum við látnir fara yfir þessa klettahryggi, eða þangað til fjár- mögnunarfyrirtækin komu til sög- unnar. Það hefur svo sýnt sig á allra síðustu árum, að landslag á íslandi virðist ekki alveg nógu hentugt fyr- ir kaupleiguna. Engu að síður eru verktakar að kaupa dýrustu vinnu- vélar í von um að þessum vélum leggist eitthvað til. Við eigum ágæt- an flugflota svo engum datt í hug að byggja svona eins og eina brú. Skip okkar ferðast ofansjávar. Einn hlekk vantar í tækniundrin. Við eig- um enn þá enga kafbáta. En lausnin er fundin. Við getum stundað enda- lausa gangagerð fyrir ljármögnun- arféð sem birtist okkur svo fallega í gróðaljóma sínum. Þess ber að geta að okkur var kennt í barna- skóla að Island væri mjög vogskor- ið. Þvílíkt lán. Af framangreindu má sjá að mik- ill þungi er Iagður á sem skrautleg- asta vegagerð um þessar mundir. Sömu göngin eru kannski opnuð tvisvar eða þrisvar eftir því hvernig stendur á vatni í þeim. Reikna má fastlega með að næstu jarðgöng verði grafin á Austfjörðum og þá ofansjávar. Umræður eru farnar af stað um að lýsa Keflavíkurveg og verður því áreiðanlega hrundið í framkvæmd bráðlega. Samþykkt þingsályktunartillaga liggur týnd og grafin í skjalasafni Alþingis um lýs- ingu þjóðvegar yfir Hellisheiði. Egg- ert Haukdal, fyrrverandi þingmaður, flutti þessa tillögu og hafði töluvert fyrir því að fá hana samþykkta. En Eggert var seigur þingmaður og gafst ekki upp við að fá ljósin á Hellisheiði samþykkt. Það hafa nokkuð undarleg örlög svifið yfir Hellisheiði í aldanna rás. Þar utan bílvegar liggja grónar götur í tuga- vís og þar blasa vörður við augum vegfarenda. Það var Ingólfur Jóns- son frá Hellu, áður samgöngumála- ráðherra sem reið á vaðið með veg- inn austur. Öndvert við Keflavíkur- veg og veggöng á Vestíjörðum er Hellisheiði upphafið á hringveginum. Hellisheiðarvegur er helsti tengiveg- ur milli Reykjavíkur og Suðurlands allt til Hornaijarðar. Hellisheiðar- vegur er aðalvegur og ber að þjón- usta hann sem slíkan. Þótt engin ástæða sé til þess að andmæla ljósum á Keflavíkurveg og þau verði að teljast sjálfsögð, er ekki á sama tíma hægt að sleppa Hellisheiðarvegi. Ráðamaður, sem var spurður um lyktir þessa ljósa- máls á Hellisheiði, sagði í fullri vin- Hvenær linnir þessari aðför að eldri borgxtrum? LIFEYRISKERFI það sem við búum við í dag er tvíþætt, ann- arsvegar sú grunn- trygging, sem al- mannatryggingar veita og hinsvegar greiðslur lífeyrissjóða, sem mið- ast við þau réttindi, er menn hafa öðlast vegna greiðslu iðgjalda af at- vinnutekjum. Þetta tvennt átti að skapa mönnum öryggi í ell- inni, þannig að þeir gætu lifað eins áhyggjulaust ævikvöld og unnt væri. En hver hefur árang- urinn orðið? Að vísu fáum við tilskil- in eftirlaun úr lífeyrissjóðum, en nærri 42% eru tekin í staðgreiðslu, nái samanlögð eftirlaun og ellilífeyr- ir ákveðnum skattleysismörkum, sem nú eru aðeins rúmar 58 þús. kr. mánuði. Ellilífeyririnn hefur auk þess ekki fylgt verðlagsþróun og er hann nú kr. 13.373 á mán. hjá ein- staklingum, en ætti að vera miklu hærri. I stað þess hefur tekjutrygg- ingin hækkað, sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert og er hún óskert kr. 24.605 á mán., en hana fá að- eins þeir sem hafa lágmarkstekjur. Að vísu greiðist skert tekjutrygging þeim, sem hafa miðlungstekjur úr lífeyrissjóðum, en þá skerða 45% af eftirlaununum hana, svo alls getur skerðingin ásamt skattgreiðslum orðið nálægt 80%. Þetta eru svokall- aðir jaðarskattar. Með setningu laga um almanna- tryggingar árið 1946 og þróun þeirra gegnum árin vorum við Islendingar búnir að skipa okkur sess sem vel- ferðarþjóðfélag, en á undanförnum 4 árum hefur hver lagasetningin á fætur annarri skert verulega bætur almannatrygginga, þannig að nú eru margir þeirra, sem velferðarkerfið átti að hjálpa, komnir á vonarvöl. Margrét Thoroddsen Árið 1992 var byijað að skerða ellilífeyrinn, sem allir 67 ára og eldri áttu óskoraðan rétt á án tillits til tekna og eigna. Fyrst var hann skertur um 25% við ákveðin tekjumörk, en nú er skerðingin orðin 30%. Þó hefur fyrst kastað tólfunum á síðustu 2 árum. Þar ber hæst af- tenging tryggingabóta við laun og verðlags- þróun í landinu en í stað þess skyldi ákveðið í fjárlögum hvers árs hvort og hve mikið bætur hækka. Það er verið að gera okkur aldraða að ölmusufólki, sem fær greiðslur samkvæmt geðþótta- ákvörðunum alþingismanna. Þetta öryggisleysi og óvissa um framtíðina hvílir mjög þungt á öldruðum. Sparnaðarráðstafanir mega ekki, segir Mar- grét Thoroddsen, bitna öðrum fremur á öldruðum og sjúkum. Árum saman hefur verið rætt um það óréttlæti að margskatta eftir- Íaun úr lífeyrissjóðum. Að vísu hefur ein skattlagningin verið afnumin, sem verið hefur í gildi síðan stað- greiðslan komst á 1988, en það er skattlagning iðgjalda í lífeyrissjóð. Það kemur samt ekki þeim til góða, sem hættir eru að vinna. Eftir stend- ur samt tvísköttun bæði af eftirlaun- um og skerðing tekjutryggingar, sem er í sjálfu sér dulbúin skattlagn- ing. Eftir mikil blaðaskrif og mótmæli frá félagssamtökum aldraðra um allt land var ákveðið í fjárlögum 1995 að draga mætti 15% af eftir- launum úr lífeyrissjóðum frá áður en þau væru skattlögð. Þessu var mjög fagnað, en það var skammgóð- ur vermir, því ári seinna var þessi lagagrein máð út með einu penna- striki, þó upphaflega væri gert ráð fyrir að hún stæði í 5 ár. Hvernig farið er með eftirlaun úr lífeyrissjóð- um er með öllu óskiljanlegt og svo hörmulegt að engu tali tekur. Reglugerð um skerta uppbót vegna lyfjakostnaðar og mikillar umönnunar sá dagsins ljós í maí sl. Nú skyldu þessar bætur falla niður hjá þeim, sem höfðu meira en 75 þús. kr. í tekjur á mán. (að meðtöld- um tryggingabótum) eða höfðu nurl- að saman 2,5 millj. í sparifé. Nú er það svo, að þótt þessir einstaklingar hafi 75 þús. kr. í tekjur fá þeir ekki útborgaðar nema um 68 þús. kr., því tæp 7 þús. eru dregin frá í stað- greiðslu. Margt af þessu fólki hefur gífurlegan lækna- og lyfjakostnað. Manni fyndist ekki ofrausn, fyrst á annað borð var nauðsynlegt að ná inn nokkrum kr. hjá þessum aldurs- hópi, að miðað væri við nettótekjur. Svo er það fjármagnstekjuskatt- urinn, sem er réttlætanlegur að sumu leyti, þannig að jafnræði gildi í skattalegu tilliti milli þeirra, sem fá eftirlaun úr lífeyrissjóðum og hinna, sem ávaxtað hafa peninga sína í verðbréfum eða verðtryggðum reikningum. Þó var fjármálaráð- herra búinn að fullyrða að vextir af lágmarksinnstæðu myndu verða skattfijálsir, en sú er ekki raunin. Lögin um fjármagnsskatt ganga ekki í gildi fyrr en 1. jan. 1997, en það óheyrða gerist, að Alþingi ákveður að vextir skuli skerða tekju- tryggingu frá 1. sept. 1996. Þetta er enn ein aðförin að eldri borgurum, sem njóta tryggingabóta. 1. jan. 1997 verða því vaxtatekjur eldri borgara tvískattaðar, þar sem þær skerða einnig tekjutryggingu, svo semd að alltof dýrt yrði að leggja götuljós yfir heiðina. Þá var ekki farið að slá tölum undir kostnaðinn við göngin á Vestfjörðum. Þá var ekki farið að minnast á ljósin á Keflavíkurvegi. En þá hafði þings- ályktunartillaga Eggerts Haukdals verið samþykkt. Hvað er dýrt á tíma jarðganga og ganga undir sjó? Menn ættu að tala sem minnst um kostnað við upplýsingu á vegum. Svo vikið sé aftur að barnafræðslunni, þar sem Danir voru vondu karlarnir og ís- lendingar þjakaðir af óstjórn þeirra, sýnist nú sem Danir annist gleymdu málin á Alþingi á meðan Sunnlend- ingar taka að sér hlutverk lands- manna á Danans tíð. Að lokum langar einn bílstjóra til að beina orðum sínum til annars bílstjóra, sem kynni að eiga leið um Hellisheiði í sjókomu og tíu vindstig- um og nokkru frosti. Vegur og jörð eru eiginlega jafnhvít. Þú reynir að setja upp polaroid-gleraugu á Sand- skeiðinu til að freista að sjá betur. Þér líður að minnsta kosti betur með gleraugun. Stundum kemst þú ekki nema fetið og varla það. Þegar þú finnur að bíllinn sígur niður öðru- megin að framan þá verðurðu að stoppa og þoka þér aftur upp á veg- inn. Götuljós myndu ekki leysa neinn þennan vanda nema hvað þú þyrftir ekki að vera að fara út af. En á daglegum ferðum þínum yfir heið- ina, þessa myrku leið eins og hún er í dag, myndi þér finnast að þú vær- ir ekki endilega kominn upp undir Hofsjökul þegar þú horfðir út í inyrkrið heldur á einhvern stað órafj- arri mönnum. Vegagerðin veit hvað margir ferðast daglega fram og til baka um Hellisheiði. Hún er stund- um eins og Laugavegurinn. Við hér í vaxandi byggðum fyrir austan heiði vonum að þingsályktunartillaga Eg- gerts Haukdals, fyrrum þingmanns, finnist á háalofti Alþingis fyrr en seinna. Höfundur er rithöfundur. þeim einum er ætlað að greiða tvö- faldan fjármagnstekjuskatt. Þegar ég starfaði hjá Tryggingastofnun ríkisins á árunum 1979-91 var al- mannatryggingakerfið oft talið heill frumskógur. Sífellt hefur verið talað um að einfalda kerfið og ótal nefnd- ir skipaðar í því augnamiði, en þrátt fyrir það verður það sífellt flóknara með tugi nýrra reglugerða á hveiju ári, sem almenningur botnar hvorki upp né niður í og varla starfsfólkið sjálft. Þetta væri þó sök sér, ef þess- ar sífelidu breytingar væru til góðs, en því miður stefna þær flestar að því að skerða bætur almannatrygg- inga. Nú situr enn ein Ijölmenn nefnd á rökstólum og vonandi tekst henni betur en hinum. Að lokum vil ég beina orðum mín- um til háttvirtra alþingismanna: Nú er mál að linni. Þó aldraðir liggi vel við höggi erum við ekki dauð úr öll- um æðum, þó aldurinn færist yfir okkur. Það er a.m.k. ekki búið að afnema kosningarétt okkar ennþá við ákveðin aldursmörk. Það er ekki nóg að gylla hlutina fyrir kosningar í þeirri trú, að við séum búin að gleyma loforðunum, þegar næst verður kosið. Það er mikill uggur meðal okkar fólks. Margir, sem kosið hafa annan hvorn stjórnarflokkinn í síðustu kosning- um, segjast alls ekki muni kjósa eins næst, bæti þeir ekki ráð sitt, og jafn- vel hafa komið fram uppástungur um sérframboð eldri borgara. Nú brosið þið kannski, en 67 ára og eldri eru 10% af þjóðinni og 13,5% af þeim, sem voru á kjörskrá í síðustu kosningum. Látum það ekki spyijast um okk- ur íslendinga, að í sparnaðarráðstöf- unum ríkisins sé fyrst skertur réttur eldri borgara og þeirra, sem minnst mega sín. Þessvegna skora ég á ykkur, alþingismenn, að beita ykkur fyrir því við næstu fjárlagagerð, að ellilífeyrir verði hækkaður í sam- ræmi við það sem hann ætti að vera, aftenging bóta afnumin og að skatt- prósentan á eftirlaunum úr lífeyris- sjóðum verði lækkuð. Höfundur er viðskiptafræðingur og vartiformaður Landssambands aldraðra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.