Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. SEFfEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veitustofnanir kaupa Hvammsvík af Lögreglufélagi Reykjavíkur
Kaupverð jarðarinnar
26,2 milljónir kr.
FULLTRÚAR meirihluta R-listans
samþykktu á stjórnarfundi Veitu-
stofnana Reykjavíkurborgar í gær
að kaupa land Hvammsvíkur í Kjós-
arhreppi af Lögreglufélagi Reykja-
víkur að tillögu hitaveitustjóra.
Kaupverðið er 26,2 milljónir kr.
„Standa í samkeppni við
einstakling um kaupin“
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
stjórninni sátu hjá við afgreiðsluna
og skiluðu bókun þar sem lýst er
vanþóknun á hvernig staðið var að
kaupunum. Reykjavíkurborg hafi
engan augljósan ávinning af því að
standa í samkeppni við einstakling,
sem gert hafði kauptilboð í jörðina,
um kaup á þessu landi, og í ljósi
þeirrar gagnrýni sem margir full-
trúar R-listans hafi látið falla þegar
borgin keypti jarðhitaréttindi ájörð-
inni af lögreglufélaginu á sínum
tíma, séu kaupin á landinu nánast
óskiljanleg.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Veitustofnana, segir að
Fulltrúar
Sjálfstæðisflokks
gagnrýna við-
skiptin harðlega
hálfgerð pattstaða hafi verið í
Hvammsvíkurmálinu undanfarin
þrjú ár eða síðan Hitaveitan keypti
jarðhitaréttindin af Lögreglufélag-
inu. Jarðhitaréttindin hafí ekki nýst
Hitaveitunni, ekki sé fyrirsjáanlegt
að þau muni nýtast í náinni fram-
tíð og þau séu óseljanleg ein og
sér. Því hafi margt mælt með því
að jörð og jarðhitaréttindi væru
sameinuð á ný.
Um er að ræða jarðirnar Hvamm
og Hvammsvík, sem í daglegu tali
kallast Hvammsvík. Lönd jarðanna
iiggja saman og mynda samtals 600
hektara lands. Á landinu eru tvö
íbúðarhús, hesthús og hlaða,
áhaldaskemmur og tvö minni hús.
Þá er þar skáli sem í er veitingaað-
staða og aðstaða fyrir veiðimenn
og kylfinga en á svæðinu er 9 holu
golfvöllur, veiðitjörn, flotbryggja og
skipulagt sumarbústaðaland fyrir
44 sumarbústaði.
Sala eða nýting til útivistar
I bókun fulltrúa R-listans segir
að fulltrúar hans hafi hvatt Lög-
reglufélagið til að selja jörðina öðr-
um aðila. Ekki hafí hins vegar
gengið saman með félaginu og þeim
einstaklingi sem falaðist eftir jörð-
inni og þá hafi félagið enn á ný
óskað eftir viðræðum um kaup
Hitaveitunnar á jörðinni. Að athug-
uðu máli hafi verið talið rétt að
kaupa jörðina sama verði og Lögre-
glufélaginu hafi boðist.
Rökin eru m.a. sögð að til greina
komi að selja Hvammsvík ásamt
jarðhitaréttindunum í einu lagi en
einnig komi til greina að nýta jörð-
ina sem útivistarsvæði fyrir al-
menning. Hyggst meirihluti stjórn-
arinnar beita sér fyrir skipan starfs-
hóps til að gera tillögur um framtíð-
arafnot Hvammsvíkur.
Hofsjökull
lengsta
skipið í
flotkvína
Akureyri. Morgunblaðið.
HOFSJÖKULL, flutningaskip
Jökla hf. er í flotkvínni við
Slippstöðina á Akureyri, þar
sem unnið er við viðgerðir og
viðhald á skipinu. Hofsjökull
er lengsta skip sem tekið hef-
ur verið í flotkvína, alls um
120 m að lengd og er þetta í
annað sinn sem skipið er tek-
ið upp.
Viðgerð og málningarvinnu
verði lokið um helgina
Vinna við skipið hófst síð-
astliðinn mánudag en stefnt
er að því að henni ljúki um
næstu helgi.
Allur botn Hofsjökuls er
málaður og síðurnar að hluta.
Unnið er að viðgerð á skrúfu
skipsins og lögnum í frysti-
kerfi, auk þess sem verulegur
hluti háþrýstilagna á þilfari
Hofsjökuls er endurnýjaður.
Uppboð í
Kaupmannahöfn
Fótbolta-
mennirnir
á fjórar
milljónir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FÓTBOLTAMENNIRNIR, högg-
mynd eftir Siguijón Ólafsson, var
slegin á 345.000 d.kr. á uppboði hjá
Bruun Rasmussen uppboðshúsinu í
Kaupmannahöfn í gær. Matsverð
Fótboltamannanna var 400.000 d.kr.
eða um 4,6 milljónir ísl. kr.
Önnur tveggja módelmynda
Gunnlaugs Blöndal sem voru á upp-
boðinu var slegin á 48.000 d.kr. en
matsverð var 50-75.000 d.kr. Hin
módelmyndin var metin á 125.000
d.kr. Fjórða íslenska verkið, íslenski
grísinn þinn, eftir Svavar Guðnason,
seldist á 38.000 d.kr. Matsverð var
50.000 d.kr.
Uppboðshúsið vildi í gærkvöldi
ekki gefa upp hvort íslenskir kaup-
endur hefðu keypt myndirnar. Yfir-
leitt seldust verkin á uppboðinu á
verði um eða rétt aðeins yfir mats-
verði. I dag og á morgun verða boð-
in upp verk eftir Axel Einarsson,
Ásgrím Jónsson og Ragnar Jónsson.
Morgunblaðið/Golli
Þijú alvarleg árásarmál tilkynnt lögreglu sama kvöld
Fólk varað við afskiptum
af líklegum óróaseggjum
ÞRJÚ árásarmál þar sem unglingar
áttu í hlut voru tilkynnt Iögreglunni
í fyrrakvöld. Sýnu alvarlegust var
árás sem tilkynnt var til lögreglu
um klukkan 22.40 og átti sér stað
við Langarima í Grafarvogi. Lög-
reglan bendir fólki á að varast af-
skipti af líklegum óróaseggjum.
Þess í stað eigi umsvifalaust að
hafa samband við lögreglu.
Orsök rakin
til afbrýðisemi
í atvikinu við Langarima var
sextán ára piltur staddur á skóla-
svæði þegar bifreið kom aðvífandi
og með henni jafnaldri hans sem
steig út og sló fórnarlambið í andlit-
ið. Við höggið missti pilturinn gler-
augu, sem hann bar, í götuna með
þeim afleiðingum að þau brotnuðu.
Þegar hann beygði sig eftir gler-
augunum sparkaði árásarmaðurinn
í andlit hans.
Þolandinn hlaut skurð á auga-
brún við árásina þannig að foss-
blæddi úr. Hann var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið, en árásar-
maðurinn hélt á brott ásamt félög-
um sínum í bifreið. Þegar hún
fannst skömmu síðar, viðurkenndu
farþegar og ökumaður að árásar-
maðurinn hefði farið í hús í Kópa-
vogi og var hann sóttur þangað.
Árásarmaðurinn var ókunnugur
fórnarlambinu, en talið er líklegt
að upphaf málsins hafi verið af-
brýðisemi vegna stúlku.
Nokkru siðar, eða skömmu fyrir
klukkan 2 aðfaranótt miðvikudags,
var tilkynnt að unglingar hefðu
ráðist á mann á bílastæði við
Frostafold, en hann hafði haft af-
skipti af þeim. Maðurinn var við
vinnu á heimili sínu þegar hann
heyrði brothljóð, skyggndist út og
sá þijá unglinga sem höfðu senni-
lega unnið skemmdarverk á bifreið
í stæði þar.
Ungmennin héldu á brott stuttu
seinna en hann elti þau uppi og
náði tali-af þeim skammt frá.
Eftir orðaskipti þeirra á mi
skipti engum togum að einn þr
menninganna réðst á manninn c
sló hann í síðuna. Leikurinn bar
um stæðið og lenti maðurinn upp
vélarhlíf nærliggjandi bifreiðar se
skemmdist fyrir vikið.
Tókst ekki að hemja
árásarmanninn
Hann komst síðan undan og t
kynnti um atvikið til lögreglu. F
lagar árásarmannsins reyndu i
árangurs að hindra hann við a
hæfi sitt. Lögreglan kom á vettvar
og náði tveimur piltanna, en eii
þeirra komst undan á hlaupui
Maðurinn sem varð fyrir árásin
kvartaði yfir verkjum í síðu og róf
beini og fór á slysadeild til ran
sóknar.
Einnig var tilkynnt til lögregli
fyrrakvöld að unglingar hefðu rá
ist aftan að manni sem starfar v
varðgæslu við Álfabakka og f
hann á slysadeild til rannsóknar.
VÍS kynnir viðbrögð
við tryggingum FIB
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands
hf. hefur boðað til blaðamannafund-
ar í dag þar sem starfsmenn félags-
ins ætla að kynna viðbrögð VÍS við
þeim iðgjöldum ökutækjatrygginga
sem FIB-trygging-IBEX kynntu
landsmönnum í seinustu viku.
„Við ætlum að kynna hvernig við
lítum á þetta og hver okkar við-
brögð við því verð_a,“ sagði Axel
Gíslason forstjóri VÍS, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Klébergs-
skóla lok-
að vegna
lúsarleitar
LÚ S ARTILFELLUM hefur að
sögn Helga Guðbergssonar, læknis
á Heilsuverndarstöðinni, farið
hægt fjölgandi hér á landi frá ár-
inu 1980. Hann tengir breytinguna
við almennari ferðalög til annarra
landa. Klébergsskóli á Kjalarnesi
er lokaður vegna lúsarleitar í dag.
Helgi sagði að lús gæti smitast
hratt. Á hinn bóginn væri auðvelt
að ráða niðurlögum lúsarinnar
enda mætti auðveldlega nálgast
lúsarsjampó og leiðbeiningar í
apótekum.
Hann sagði algengast að lús
kæmi upp á haustin en hafði ekki
upplýsingar um ástandið nú. For-
eldrum barna í Klébergsskóla hef-
ur verið tilkynnt að lús hafi fund-
ist á bömum í skólanum. Nauðsyn-
legt sé að kemba vel hár allra
heimilismanna. Ef lús finnist verði
að þvo öllum með Quellada-
hársápu.
Valt og rann
40 metra
UMFERÐARSLYS varð á Miklu-
braut fyrir austan Skeiðarvog á
tíunda tímanum í gærkvöldi. Bif-
reið var ekið á fyrirstöðu vegna
þrengingar á götunni og valt við
það og rann um 40 metra.
í bílnum voru kona og eitt barn
og skarst konan nokkuð af gler-
brotum en barnið slapp ómeitt,
samkvæmt upplýsingum lögreglu.
BLAÐINU í dag fylgir átta síðna
auglýsingablað frá Hagkaupi.