Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 37
Verð frá
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 37
AÐSENDAR GREINAR
Hreint land
Úrbóta þörf á ferðamannaslóðum utan byggða
I dag og á morgun frá
kl. 15:00 - 18:00 Kynnir S
Vilbergsdóttir Faber Caste
myndlistavörur, þar á meðal e
athyglisverðar nýjungar,
afslátt
V
En hver eða hveijir eiga að hafa
frumkvæði að allsherjarúrbótum og
annast um og kosta þær fram-
kvæmdir sem nauðsynlegar eru í
þessu sambandi? Við þeirri spurn-
ingu verður nú um stundir ekkért
það svar fengið sem fulllnægjandi
er. Fjölmargir aðilar eiga og reka
þá skála, sem í boði eru ásamt ein-
hvers konar salernisaðstöðu, og
hafa margir þeirra ekkert samband
sín í milli auk þess sem vitað er
að sumir þeirra eru févana. Ljóst
er að myndarlegar framkvæmdir á
þessu sviði kosta umtalsverða fjár-
muni en tekjur af mörgum, e.t.v.
flestum, þessara skála eru ekki
hærri en svo að þær hrökkva vart
eða ekki til þeirra umbóta sem svari
fyllstu kröfum. Hér þarf bersýni-
lega samræmdar aðgerðir undir
forystu einhvers þess aðila sem til
þess nýtur almannatrausts og sem
hefur að bakhjarli það fjármagn
sem til þarf umfram það sem skála-
eigendur geta sjálfir af höndum
reitt. Hið sama gildir um uppbygg-
ingu mannsæmandi hreinlætisað-
stöðu á áningarstöðum þar sem
engin salerni eru nú. Eðlilegast
Helgardvöl í heimsborg
fyrir líkama og sál
Falleg borg sem kemur á óvart -
og verðlagið er mun hagstæðara
en í Bandaríkjunum!
FLESTIR munu
vera sammála um að
fegurðar lands okkar
eða ferðalaga um það
verði eigi notið sem
skyldi nema landið sé
laust við þann sora og
úrgang sem óhjá-
kvæmilega fylgir
mannaferðum. „Hreint
land - fagurt land“ er
með sanni undirstaða
ferðamennsku á ís-
landi. Ekki verður því
þó móti mælt að margt
þarf að færa til betri
vegar um hreinlætis-
málefni í óbyggðum
lands okkar. Sá mikli fiaumur
ferðamanna, sem nú flæðir yfir
hálendið og aðrar óbyggðar eða lítt-
byggðar lendur ár hvert, hlýtur að
kalla á stórbætta hreinlætisaðstöðu
víðast hvar á þeim slóðum ferða-
langa sem eftirsóknarverðar eru
þeim er stofna vilja til góðra kynna
af landinu. Jafnframt verður m.a.
að koma fyllstu reglu á allt það er
snýr að losun seyru úr salernum á
ferðamannastöðum utan byggða og
losun úrgangs þaðan að öðru leyti.
Þá má ekki gleyma því að gott og
hreint drykkjarvatn er skilyrði þess
að ferðamannaaðstaða geti talist
boðleg. En hér eru mörg ljón í vegi
affarasællar lausnar, er almanna-
sátt geti tekist um, og koma þar
bæði til hindranir, er lúta lögmálum
náttúrunnar, og skortur á fjármun-
um auk ónógrar yfirstjórnar og
skipulagningar. Hér þarf samhent
átak til þess að ryðja leið til þeirra
lausna á vandanum sem komandi
kynslóðir íslendinga megi vera
stoltar af.
Oft hefur verið bent á - og það
með réttu - að nokkur skortur sé
á salernum á ýmsum þeim ferða-
mannastöðum í óbyggðum, sem
hvað fjölsóttastir eru, auk þess sem
aðstaðan við þau salerni, sem þó
eru í boði, sé sums staðar ekki eins
og best verður á kosið. Undir þetta
má vissulega taka og ljóst er að á
þessu sviði þarf að taka duglega
til hendinni ef koma á í veg fyrir
sífellda óánægju ferðamannanna og
þeirra sem hafa þjónustu við þá að
atvinnu. Við alla þá skála í óbyggð-
um, sem ætlað er að hýsa ferða-
menn, eru að vísu einhvers konar
salemi en þau eru svo sannarlega
í misjöfnu ásigkomulagi og mega
sum hver muna fífil sinn fegri. Þá
verða þær raddir æ háværari sem
krefjast salemisaðstöðu á fjölmörg-
um áningarstöðum ferðamanna á
óbyggðaleiðurn, þar sem engir skál-
ar em fyrir hendi, og verður því
heldur ekki móti mælt að augljósir
hagsmunir ferðamanna hljóta að
kalla þar á lausn sem dugir.
virðist að Ferðamála-
ráð íslands sé og verði
sá aðili, sem hafi með
höndum forystu- og
samræmingarhiutverk
á þessu sviði, en kalli
síðan hina íjölmörgu
hagsmunaaðila í ferða-
mannaþjónustunni til
skipulegrar aðstoðar.
Til þessa þyrfti þó
Ferðamálaráð stór-
aukna fjármuni frá því
sem nú er. í því sam-
bandi skal þá bent á
að lögum samkvæmt á
hið svokallaða „Frí-
hafnargjald“, sem er
með vissum hætti skattur á ferða-
menn, að renna til úrbóta í ferða-
málum hér innanlands en um
margra ára skeið hafa þó stjórn-
völd látið sér sæma að taka þetta
fé að mestu til annarra þarfa, þann-
ig að ferðaþjónustan og þarmeð
ferðamenn hafa ekki notið þess.
Stjórn félagsins hefur
tekið, segir Páll Sig-
urðsson, stefnumark-
andi ákvarðanir.
Hefði stórum hluta þessa fjár hins
vegar, á undanförnum árum, verið
varið til þess að bæta aðstöðu á
ferðamannastöðum utan byggða,
væru hreinlætismálefnin þar sann-
arlega með öðrum og betra hætti
en nú er. Þetta þarf að færa í rétt
horf hið fyrsta, með almannaátaki,
þannig að duglegar umbætur á
hreinlætisaðstöðunni komi til en
það er sannkallað þjóðþrifamál. í
þessu sambandi verður þá jafnframt
að minnast þess að ekki er nóg að
byggja ný salerni eða stækka þá
aðstöðu sem fyrir er, heldur verður
að tryggja það að þessari aðstöðu
sé alls staðar haldið við þannig að
til sóma sé. Sums staðar gæti þar
orðið þrautin þyngri og ljóst er
a.m.k. að þrif og viðhald þeirra
salerna, sem ekki verða á skála-
svæðum, verður að kosta að stað-
aldri af almannafé.
En þetta er ekki allt og sumt.
Páll Sigurðsson
Vitað er að sums staðar hefur seyra
úr rotþróm, er tengjast salernum á
ferðamannastöðum, allt til þessa
verið losuð í fallvötn - eða jafnvel
stöðuvötn! - á óbyggðum uppi, en
einnig þekkist það, að hún hafi
verið losuð á landsvæði þar sem
hætt er við að hún verði ferðamönn-
um til ama. Að jafnaði hefur þetta
ekki verið í samræmi við stefnu
hlutaðeigandi heilbrigðisyfírvalda,
a.m.k. ekki hin síðari árin, og ætti
sannarlega ekki að líðast. Þá hefur
losun sorps frá ferðamannastöðum
utan byggða stundum verið með
ófullnægjandi hætti. Sums staðar
hefur aðstaða til réttra aðgerða að
vísu verið mjög örðug og kostnaðar-
söm, en sum „slysin“ má einnig
rekja til áhuga- og skilningsleysis.
Mestu máli skiptir þó, að full sam-
staða náist hið fyrsta um góðar
úrbætur í þessu efni, þannig að
andvaraleysi leiði ekki til umhverf-
isspjalla.
Ferðafélag íslands á marga
ferðamannaskála á öræfum svo sem
kunnugt er. Á því hvílir rík ábyrgð
á velferð og vellíðan ferðamanna
sem þangað leita. Það ber sinn hluta
ábyrgðar vegna hreinlætismálanna.
Þótt margt hafi þar áunnist, hefur
árangurinn eigi ætíð verið sem
skyldi, í öllum greinum, en nú eru
hins vegar uppi raunhæfar áætlanir
um verulegar úrbætur. Beinast þær
í sumum efnum fyrst að fjölsóttustu
stöðunum, þar sem þörfín er brýn-
ust, en öðrum er ætlað víðara svið.
Þar verður að fara að öllu í góðu
og virku samstarfí við heilbrigðisyf-
irvöld. Nýlega hefur stjóm félagsins
tekið stefnumarkandi ákvarðanir í
þessu efni, sem ætlast er til að
verði framfylgt af festu á öllu at-
hafnasvæði félagsins, í samráði við
heilbrigðisyfírvöld, þannig að hrein-
lætisaðstaða verði smám saman
óaðfínnanleg og komið verði í veg
fyrir „slysin“ sem fyrr voru nefnd.
Aðrir eigendur og rekendur öræfa-
skála ættu að fylgja þessu for-
dæmi, þannig að almenn samstaða
náist brátt um viðeigandi stefnu og
aðgerðir.
Höfundur er forseti Ferðafélags
íslands.
‘lnnifalid: Flug. gisting med morgunverði ogflugvallarskattar.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
29.9001,
á mann í tvfbýli í 4 daýa*.
Halifax
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn, ferða-
skrifstofurnar eða söludeild Flugleiöa í síma SO SO100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-19 og á laugard. kl. 8 -16).
Kh^aini^urent
STJÖRNUR HAUSTSINS
Gréta Boöa, föröunarmeistari,
kynnir nýju haust- og oétrar-
litina í dag og á morgun.
• Glæsilegir litir.
• Frábær tilboö.
• Hægt er að panta
tíma í föröun.
OculuS
Austurstræó 3