Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 21 Lömunarveiki- faraldur vekur ugg í Albaníu Öndunarvélar vantar tilfinnanlega Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÁÆTLUNUM Alþjóða heilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO) og fleiri samtaka um að útrýma löm- unarveiki fyrir árið 2000 er nú stefnt í hættu, þar sem lömunar- veikifaraldur hefur brotist út í Al- baníu. Að sögn Jo E. Asvall svæðis- stjóra WHO í Evrópu var álitið að sjúkdómurinn væri útdauður í Evr- ópu. WHO hefur nú hert aðgerðir í Albaníu og enn er vonast til að takmarkið um útrýmingu lömunar- veiki muni ganga eftir. Þar sem aðstæður á sjúkrahúsum í Albaníu eru hörmulegar og tækjaskortur mikill vantar tilfinnanlega öndun- arvélar til að hjálpa lömunarveikis- sjúklingum þar. Því er nú leitað logandi ljósi að notuðum öndunar- vélum. Á blaðamannafundi í Kaup- mannahöfn, þar sem Evrópuskrif- stofa WHO er til húsa, sagði Aleks- ander Sallabando, yfírmaður heil- brigðisstofnunarinnar í Albaníu, að vart hefði orðið við sjúkdóminn síð- ari hluta vetrar og nú væri vitað um 66 tilfelli. í fýrstu var óttast að faraldurinn ætti rætur að rekja til herferðar til að bólusetja börn gegn lömunarveiki. Nú væri hins vegar sýnt að faraldurinn kæmi upp þar sem bólusetning hefði verið illa skipulögð áður fyrr og bóluefnið oft gallað. Vanræksla í þessum efn- um á áttunda og níunda áratugnum væri því orsök faraldursins nú. Að sögn Asvall er ekki ástæða til að forðast ferðir til Albaníu, en sjálfsagt væri fyrir alla að huga að bólusetningum sínum, hvort sem farið væri til Albaníu eða ann- arra landa, þar sem heilbrigð- isþjónusta væri ófullkomin. Aðeins til tvær öndunarvélar Slæmt ástand á albönskum sjúkrahúsum torveldar meðferð lömunarveikissjúklinga. Aðeins eru til tvær öndunarvélar í landinu og sagði Asvall að kærkomið væri að fá að gjöf notaðar öndunarvélar og myndi WHO greiða fyrir flutn- ing þeirra til Tirana. Óháð faraldr- inum er unnið af krafti við að bólu- setja börn og unglinga í Albaníu. Sama á við um önnur svæði í heim- inum eins og Indland, þar sem löm- unarveiki var löngum landlæg. Áfram er því vonast eftir að takist að uppræta sjúkdóminn fyrir alda- mót, eins og stefnt hefur verið að, en í Asíu og Afríku er mikið af bækluðu fólki eftir lömunarveiki. ERLENT Reuter 11 manns létust í fangauppreisn Diyarbakir. Reuter. Pelsunum mótmælt FÉLAGAR í samtökum, sem berj- ast gegn illri meðferð á dýrum, komu saman í Moskvu í gær til að mótmæla loðdýraeldi og drápi. Gengu þijár konur, þar af ein rússnesk, kviknaktar um strætin að öðru leyti en því, að þær sveipuðu um sig borða þar sem á stóð: „Við viljum heldur vera naktar en í feldi annarra dýra.“ I Moskvu er nú alþjóðleg loðdýrakaupstefna en Rússar flytja út mikið af loðfeldum og eftirspurnin innanlands er mjög vaxandi enda er rússneski vetur- inn kaldur. ALLT að 11 manns létust og nokkr- ir særðust þegar kúrdískir fangar í öryggisfangelsi í borginni Diyar- bakir i Tyrklandi gerðu uppreisn. Var hún bæld niður en fangarnir vildu með henni mótmæla illum aðbúnaði í fangelsinu. Tölur um látna voru nokkuð á reiki en að sögn starfsmanns á sjúkrahúsi í borginni voru þeir 11 en Devket Kazan, dómsmálaráð- herra Tyrklands, sagði, að níu manns hefðu fallið. Fangarnir, sem uppreisnina gerðu, eru úr Verkamannaflokki Kúrdistans en hann hefur lengi barist gegn Tyrkjum í austurhluta landsins. Söfnuðust ættingjar hinna látnu saman fyrir utan sjúkrahúsið og kom þar til ryskinga við lögregl- una. Talið er, að 20.000 manns hafi fallið í átökum Tyrkja og Kúrda frá 1984 og áætlað er, að kostnaður Tyrkja vegna þessa hernaðar sé um 530 milljarðar ísl. kr. árlega. HAGKAUP Fleece-peysur einlitar og tvílitar. Hálfur rennilás 2.495 kr. HeiU rennilás 2.995 kr. Jakkaföt 7.990 kr. Polopeysa mynstruð. Tveir litir 2.495 kr. Póstverslun Grænt númer: 800 6680 Sími: 568 2255 Fax: 588 9330 Polopeysa mynstruð. Tveir litir 2.995 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.