Morgunblaðið - 26.09.1996, Side 10
J
10 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996________________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sýslumenn á þremur stöðum á landsbyggðinni
Fjölgun afbrota úti á
landi ekki marktæk
SÝSLUMENN á þremur stöðum á
landsbyggðinni, sem Morgunblaðið
ræddi við, eru sammála um að þeir
kannist almennt ekki við merkjanlega
aukningu á afbrotum í sínum byggð-
arlögum og nágrenni þeirra. í Morg-
unblaðinu í gær lýsti sýslumaðurinn
á ísafirði yfir þeirri skoðun sinni að
flest bendi til að þjófnaður sé vax-
andi vandamál á landsbyggðinni.
Georg Lárusson sýslumaður í
Vestmannaeyjum segir að í flestum
atriðum sé að vísu hægt að taka
undir orð sýslumanns á Isafirði, en
þó muni hann aðeins eftir einu dæmi
um skipulagða þrotastarfsemi í Vest-
mannaeyjum. í flestum tilvikum sé
um að ræða smábrot sem tengjast
fíkniefnum að einhverju leyti.
Ekki skipulögð starfsemi
„Þetta er meira vitleysisgangur
en skipulögð fjármögnunarleið sem
lýtur reglu. Mér finnst líklegt að ís-
firðingar hafi auk þess kynni af ein-
staklingum af höfuðborgarsvæðinu
sem halda út á land til að fremja
afbrot umfram okkur sem erum
vemduð af hafínu, ef svo má segja.
Við urðum varir við örlítið aukna
fíkniefnanotkun í fyrravor, en alls
ekki þó þannig að það væri faraldur
eða stökkbreyting miðað við það sem
verið hefur.“ segir Georg.
Það sem af er þessu ári hafa 15
fíkniefnamál komið til kasta embætt-
isins og 52 innbrot og þjófnaðir, að
sögn Tryggva Kr. Olafssonar lög-
reglufulltrúa. í fyrra voru fíkniefna-
málin 10 og innbrot og þjófnaðir 69
talsins, en 1994 voru fíkniefnamálin
4 en innbrot og þjófnaðir 88. Georg
segir þá aukningu sem má á annað
borð greina í fíkniefnaneyslu og brot-
um aðallega hafa verið á meðal ungl-
inga, og sé það í samræmi við þróun-
rna annars staðar í þjóðfélaginu.
Halldór Kristinsson sýslumaður á
Stakfell
Lögfræðingur
Þórhíldur Sandholt
Fasteignasala Sudurlandsbraut 6 Sölumenn
^-/jo 7ÍZOO Æ Gísli Sigurbjörnsson
öOO~fOOö II Sigurbjörn Þorbergsson
Heimasími á kvöldin og um heigar 553 3771 - Gísli - Þórhildur
Opið alla virka daga frá kl. 9.30 - 18, laugardaga frá kl. 12 - 14
EFSTIHJALLI - KÓP.
Einbýli
HALSASEL
Fallegt og vel skipulagt einbhús með
sérbílskúr. 4 svefnherb., stórar stofur og
fjölskherb. Mikið tómstundasvæði og
geymslur.
FORNISTEKKUR
Fallegt og gott 136,5 fm einb. á einni haeð
með tvöföldum 43 fm bílskúr. Vel staðsett
og góð eign á sérlega fallegri lóð. Verð
14,9 millj.
VAÐLASEL
Fallegt og vel skipulagt 215 fm hús með
gullfallegum stofum, stóru eldhúsi og 4
svefnherb. Góður garður með heitum pot-
ti. Innbyggður bílskúr. Möguleg skipti á
raðhúsi í sama hverfi. Verð 16,8 millj.
Rað- og parhús
TUNGUVEGUR
Endaraðhús, tvær hæðir og kj. 112 fm. 3
svefnherb. á efri hæð, stofur og eldhús á
miðhæð, 2 herb. og þvherb. I kj. Flúsið ný-
viðgert og málað. Verð 8,0 millj.
VESTURÁS
Nýtt 168,7 fm raðhús á einni hæð. Fullb.
að utan, fokhelt innan. Gert ráð fyrir 4
svefnherb. og innb. bílskúr.
SUÐURÁS
Nýtt 137 fm raðh. á einni hæð. Fullb. að
utan, fokhelt að innan. Gert ráð fyrir inn-
byggðum bílskúr.
Hæðir
SIGTUN
Hæð og ris í steinhúsi, nú 2 íb. Á hæð-
inni sem er 105 fm er 4ra herb. íb. og í
risi er 3ja herb. íb. 59 fm. Húsið er nývið-
gert. Góð staðsetn. Verð 12,0 millj.
4ra herb. (búð á 1. hæð I tveggja hæða
húsi ásamt aukaherb. I kjallara.
BERJARIMI
Ný og falleg 129 fm íbúð á tveimur hæð-
um. 30 fm hjónaherb. með sérbaði og
fataherb. Fallegar innr. Stórar suðursv.
ENGJASEL
Mjög góð 4ra herbergja íbúö 99 fm á 1.
hæð ásamt stæði í bílskýli. Nýleg eld-
húsinnr. Suðursvalir. Áhv. 1,9 millj. Ibúðin
fæst á góðu verði, 7,0 millj.
3ja herb.
GRENSASVEGUR
Nýtt á skrá:Þægil. 71,2 fm íb. á 3. hæð í
vel umgengnu fjölb. Getur losnað fljótt.
Verð 5,8 millj.
ÁLFASKEIÐ
Góð 3ja herb. ib. 60,7 fm á 1. hæð ásamt
aukaherb. í kj. Skipti hugsanleg á hæð I
Kópavogi. Mikið endurn. íb.
KRUMMAHÓLAR
Sérl. falleg 83,5 fm íb. á 2. hæð í lyftu-
húsi með sérinng. af svölum og stórum
suðursvölum. Góð áhvílandi lán. Verð
6,2 millj. Laus fljótlega.
HRINGBRAUT
Nýendurn. ib. á 2. hæð í fjölb. Ný tæki,
parket, nýtt gler og rafmagn. Þægileg
íbúð fyrir barnlausa fjölsk. l_aus strax.
ORRAHÓLAR
Mjög góð 88 fm íb. með fallegu útsýni
ofarlega í lyftuhúsi. Getur losnað fljótt.
Húsið allt nýviðgert og málað.
LAUFRIMI
Ný vel skipulögö 95 fm íbúð á 2. hæð
með sérinng. I vel staðsettu húsi. Tilbúin
undir tréverk. Verð 6,8 millj.
DALSEL
Laus 87 fm íbúð á 1. hæð ásamt stæði í
bílskýli. Áhv. 2,3 millj. Verð 6,7 millj.
LJÓSHEIMAR
Góð, vel skipulögð og falleg 85 fm Ibúð
á 2. hæð í sex ibúða húsi sem er nývið-
gert og málað. Laus. Verð 7,2 millj.
ÞVERHOLT - MOS.
Stór, björt og falleg 114 fm íb. (hjarta bæj-
arins. Ib. er i nýl. fjölbh. Áhv. góð bygg-
sjlán 5.142 þús. Verð 8,5 millj.
4ra-5 herb.
KLEPPSVEGUR
Vel skipul. 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð í
fjölbýli sem stendur næst nýbyggingum
DAS. Ákv. sala. Skipti möguleg á 2ja herb.
íbúð. Góð eign á góðu verði. Verð 6,3
millj.
SMYRILSHÓLAR
Gullfalleg 5 herb. endaíb. 100,6 fm á 2.
hæð í vinsælu fjölbýlishúsi. Fallegt útsýni.
Rúmgóðar suðursvalir. Verð 7,4 millj.
KLEPPSVEGUR
Endaíb. á 1. hæð 93,4 fm. Skiptist í 2 stof-
ur og 2 .svefnherb. Ib. fæst á góðu verði
og kjörum.
2ja herb.
ÞVERBREKKA - KÓP.
Mjög snyrtileg 45 fm íbúð á 5. hæð i lyftu-
húsi. Frábært útsýni. Verð 4,4 millj.
ASPARFELL- LYFTA
Sérlega falleg 54 fm íbúð á 7. hæð I lyftu-
húsi. Frábært útsýni. Húsvörður. Verð
4,5 millj.
HÁTÚN - LYFTA
2ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi
54,7 fm. Suðursvalir. Verð 4,7 millj.
VALLARÁS - LYFTUHÚS
Nýleg 53 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Áhv.
byggsj. 2,150 millj. Greiðslubyrði 11.200 ®
á mán. Verð 5,2 millj.
Húsavík kveðst ekki hafa orðið var
við fjölgun fíkniefnamála eða afbrota
seinustu mánuði eða misseri.
„Oft fjölgar málum með aukinni
spennu í atvinnulífi eða umhveifi
þannig að jafnvægi og rósemi fólks
raskast. Ég starfaði fyrir vestan á
sínum tíma og varð var við ákveðinn
óróleika þar, sem gæti hafa aukist
af ýmsum ástæðum. Hérna fyrir
norðan virðist fíkniefnaneysla og af-
brotatíðni hins vegar standa í stað,
án þess þó að við séum lausir við
vandann. Við þurfum að halda vöku
okkar eins og aðrir,“ segir hann.
Aukin fíkniefnaneysla
ekkisönnuð
Lárus Bjamason sýslumaður á
Seyðisfirði kveðst ekki hafa orðið var
við aukin innbrot eða fíkniefnanotkun
í sínu umdæmi upp á síðkastið og
hann muni ekki eftir slíkum málum.
„Við myndum vita um faraldur eða
ef fólk steðjaði hingað úr öðrum lands-
hlutum til að fremja glæpi. Auðvitað
koma upp mál öðru hvoru, en þau eru
yfírleitt rakin til sömu óróaseggjanna.
Hins vegar ber að hafa í huga að við
höfum ákaflega litla löggæslu miðað
við marga aðra og fáum því kannski
ekki mörg fíkniefnamál á borð til okk-
ar, en innbrotin þarf hins vegar ekki
að leita uppi,“ segir Lárus.
Hann segir að rætt hafi verið um
aukna fíkniefnaneyslu, einkum á
meðal ungmenna, en áþreifanlegar
staðreyndir um slíka aukningu liggi
ekki fyrir.
LYNGVIK
FASTEIGNASALA SIÐUMULA 3J SIMI: 588 9490
SIMI 588 9490
Sogavegur — einbýli Fallegt 153 fm
eldra hús sem er mikið endurn. Stór og
fallegur trjágarður. Áhv. 4,7 millj. Verð
12.6 millj. (9167).
Seltjarnarnes — raðhús Nýkomið í
sölu sérl. vandað og nýl. 252 fm raðhús.
Innb. bílsk. ca 30 fm með góðri lofthæð.
Allar innr. eru fyrsta flokks. Áhv. ca 6 millj.
húsbr. Verð 17,8 millj. (8577).
Barmahlíð — sérhæð + bílsk. Mjög
góð 163 fm efri hæð og ris ásamt 35 fm
bílsk. Nýl. í eldhúsi. Áhv. 4,6 millj. Verð
13,3 millj. (7533).
Hrefnugata — hæð Sérl. falleg og
mikið endurn. 96 fm neðri hæð. Áhv. ca 5
millj. Verð 8,4 millj. (7470)
Bólstaðarhlíð — 5 herb. + bflskúr
Óvenju falleg 121 fm íb. á 4. hæð ásamt
bílsk. 4 svefnherb. Áhv. 4,7 millj. Verð 8,9
millj. (5414).
Hlfðarhjalli— 5 herb. + bflskúr Glæsil.
117 fm íb. oa 2. hæð ásamt innb. 25 fm
bilsk. Mikið útsýni. Áhv. 5,1 millj. byggsj.
Verð 11,2 millj. 4527.
Lundarbrekka — 5 herb. Mjög góð
109 fm íb. 4 svefnh. Áhv. 4,1 millj. Verð
8.6 millj. (5485).
Álfheimar — 5 herb. Rúmg. 121 fm íb.
á 2. hæð. Sérþvottaherb. í íb. Hægt að
hafa 4 svefnherb. ef vill. Ný innr. fylgir I
eldhúsi. Verð 8,5 millj. (4394).
Hörðaland — 4ra herb. Góð 90 fm íb.
á 2. hæð. 3 rúmg. svefnh. Mikið útsýni.
Verð 7,9 millj. (4572).
Fálkagata — 4ra herb. Vel staðs. 93
fm íb. á 2. hæð. Frábært útsýni. Verð 7,5
millj. (4516).
Blikahólar — 3ja herb. Reglulega
falleg 82 fm íb. á 2. hæð í litlu fjölbh. Áhv.
3,5 millj. byggsj. Verð 6,6 millj. (3487).
Stuttmyndir um fíkniefna-
vandann frumsýndar
Morgunblaðið/Ásdís
BRYNJÓLFUR Bjarnason, forstjóri Granda, Þórarinn Tyrfings-
son, forniaður SAÁ, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem situr í
sljórn SÁÁ, voru mættir fyrstir að sjá nýju stuttmyndirnar, sem
beint er gegn fíkniefnaneyslu. Grandi kostar gerð myndanna.
Nýjar leiðir í
forvarnar starfi
ÞRJÁR nýjar stuttmyndir, sem ætl-
aðar eru til að vekja ungt fólk til
umhugsunar um afleiðingar fíkni-
efnaneyzlu, voru frumsýndar í
Háskólabíói í gær. í dag, fimmtu-
dag, munu kvikmyndahúsin á
höfuðborgarsvæðinu hefja sýningu
á myndunum og má gera ráð fyr-
ir, að hátt í tvö hundruð þúsund
manns muni sjá myndirnar á næstu
vikum, flestir þeirra ungt fólk.
Leikstjórn myndanna annaðist
Hilmar Oddsson, handritshöfundur
er Páll Pálsson og Helga Margrét
Reykdal sá um framleiðslu fyrir
Saga Film. Allir leikarar í myndun-
um eru félagsmenn í SÁÁ og gáfu
þeir sína vinnu.
Gjöf Granda hf.
Framleiðsla myndanna er kostuð
af Granda hf., sem færir SAA þær
að gjöf. Stjórn Granda ákvað í
fyrra, þegar fyrirtækið minntist
10 ára afmælis síns, að gefa tvær
milljónir króna til þessa forvarnar-
starfs. Á frumsýningunni í gær
sagði Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Granda, að stjórn og starfs-
fólk fyrirtækisins væri ánægt með
tækifærið, sem þarna hefði boðizt
til að leggja baráttunni gegn fíkni-
efnavandanum lið. Brynjólfur
sagðist ánægður með árangurinn,
að hans mati séu myndirnar ákaf-
lega áhrifamiklar. Þær muni fá
unga fólkið til að staldra við, hugsa
og ræða málið, en til þess sé leikur-
inn gerður.
Ástandið aldrei verra
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ, benti á hve þörfin á efldum
forvörnum gegn fíkniefnum væri
brýn. Ástandið hvað varðar fíkni-
efnaneyzlu ungmenna á íslandi
hafi aldrei verið verra. Á þessu ári
sé gert ráð fyrir, að um 500 ung-
menni innan 25 ára aldurs komi á
Vog til meðferðar vegna fíkniefna-
neyzlu. Sprautufíklar væru nú
fleiri en nokkru sinni. Þórarinn
fagnaði framtaki því, sem Grandi
hefði nú styrkt, og sagði það ein-
læga ósk sína, að fleiri fyrirtæki
fylgdu í kjölfarið. Það sé allra hag-
ur.
Nauðsynlegt sé að fyrirtæki séu
á varðbergi gagnvart fíkniefna-
vandanum og þeim alvarlegu
vandamálum sem honum fylgja á
vinnumarkaðnum.
Þýfi skilað til eigenda
ÍSLENSKA kvikmyndasamsteyp-
an fékk í fyrradag flestöll tæki sín
til baka, en þeim hafði verið stolið
í innbroti í skrifstofur fyrirtækisins
um helgina. Meðal annars var um
að ræða tölvukost.
Friðrik Þór Friðriksson hjá ís-
Grettisgata
— lítil séríbúð — laus strax
[ næsta nágrenni Iðnskólans er til sölu lítil 3ja herbergja
íbúð, 60 fm, á 1. hæð í tvíbýlishúsi. íbúðin er öll endurnýjuð
með nýjum innréttingum, gólfefnum, raf- og hitalögnum,
gluggum og gleri. íbúðin er laus strax. Verð 5,4 millj.
Mögulegt að yfirtaka fasteignaveðlán til 25 ára að fjárhæð
3,2 millj. Milligjöf mætti greiðast með nýlegri bifreið.
Lyklar og nánari upplýsingar á fasteignasölunni
Sáreign, Skólavörðustíg 38A, sími 552 9077.
lensku kvikmyndasamsteypunni
segir mikla eftirgrennslan hafa
farið af stað og ekki hafi þurft að
greiða „lausnargjald" fyrir tölv-
urnar, sem innihéldu gögn fyrir
kvikmyndina Djöflaeyjuna.
í fyrstu var óttast að innbrotið
gæti tafið vinnslu myndarinnar og
frumsýningu, en nú er ljóst að
myndin verður frumsýnd 3. októ-
ber eins og að var stefnt.
Öryggisráðstafanir hertar
„Við erum svo þakklát, að við
erum að reyna að hafa uppi á heim-
ilisfangi afbrotamannanna til að
senda þeim boðskort. Þetta er
kannski upphafið að nýrri kvik-
mynd,“ segir hann.
Friðrik segir viðræður standa
nú yfir við öryggisfyrirtæki, með
það í huga að sett verði upp þjófa-
vörn.