Morgunblaðið - 26.09.1996, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
^ Morgunblaðið/Kristján
Attundi liðsmaðurinn
HANDKNATTLEIKSLIÐ KA
hefur lengi státað af því að eiga
einn öflugasta heimavöll landsins.
í hvoru liði eru 7 leikmenn inni
á vellinum í einu og má segja að
stuðningsmenn KA hafi virkað
sem 8. liðsmaðurinn hverju sinni.
Til að undirstrika mikilvægi
stuðningsmanna sinna hefur KA
hafið sölu á bolum, sem merktir
eru eins og keppnistreyjur KA-
manna. Bolirnir eru með sömu
auglýsingar og eru á keppni-
streyjum leikmanna en þeir eru
allir merktir númer 8 á bakinu.
Það leikur því enginn leikmaður
KA í keppnistreyju númer 8 í
vetur.
Á myndinni eru nokkrir hressir
stuðningsmenn í KA-bolum núm-
er 8. F.v. Eiður Eiðsson, Leifur
Jónsson, Gunnlaugur Eiðsson,
Júlíus Jónsson og Olafur Öm
Ólafsson.
Starfsemi Foldu komin í fullan gang eftir endurskipulagningu
Nýir eigendur bjart-
sýnir á framtíðina
STARFSEMI Foldu hf. á Akureyri
er komin í fullan gang á ný, eftir
endurskipulagningu og eigenda-
skipti fyrr í sumar. Stærstu hlut-
hafarnir, Regin, hf. Framkvæmda-
sjóður Akureyrar, Jöklar hf. og
Burðarás hf., sem áttu vel yfir 90%
hlutafjár í Foldu, seldu hlut sinn
til hlutafélaganna Vopna hf. og
Dropans hf. Vopni hf. er í eigu
sömu aðila og eiga Sjóklæðagerð
Islands hf. en Dropinn er í eigu
þriggja starfsmanna Foldu.
Einn þeirra er Hermann Sigur-
steinsson, sem tekið hefur við
starfi framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins. Hann segir að starfsemin
hafi farið mjög vel af stað og þar
á bæ ríki bjartsýni um framtíð
fyrirtækisins. Hjá Foldu starfa nú
um 65 manns en starfsmenn voru
um 75 fyrir endurskipulagninguna.
Hermann gerir ráð fyrir að starfs-
fólki eigi eftir að fækka eitthvað
á næstunni en hann vonast til að
þeim fjölgi aftur áður en langt um
líður. Tímabilið október/nóvember
og fram í febrúar hefur reynst
fyrirtækinu erfitt síðustu ár og
starfsemin verið í lágmarki.
Framleitt fyrir
Sj óklæðagerðina
„Það verður áfram niðursveifla
á þessu tímabili en við munum
mæta henni með vinnu fyrir Sjó-
klæðagerðina. Við erum nú þegar
að sauma kuldagalla og munum
til viðbótar fara í ýmsa aðra fram-
ieiðslu fyrir Sjóklæðagerðina, til
að mæta þessum daufu mánuð-
um,“ segir Hermann.
í vélasal Foldu, þar sem starfa
10 manns, hefur verið unnið á
vóktum allan sólarhringinn alla
daga vikunnar en í öðrum deildum
hefur verið unnin dagvinna. Her-
mann segir að markaðsmálin er-
lendis séu á svipuðu róli og á síð-
asta ári en fyrirtækið selur alls
kyns ullarvörur, m.a. peysur, teppi
og jakka. Helstu markaðir fyrir-
tækisins eru í Skandinavíu, Þýska-
landi og Japan.
Starfs-
leikninám
í Lundar-
skóla
STARFSLEIKNINÁM, sem er
nám sem kennarar og stjóm-
endur einstakra skóla stunda
á starfstíma þeirra, var sett í
Lundarskóla á Akureyri í vik-
unn. Námið miðar að því að
efla starfshæfni þátttakenda,
styrkja samstarf þeirra og
bæta starf viðkomandi skóla.
Námið er unnið í samstarfi
viðkomandi skóla, sveitarfé-
lags og Kennaraháskóla Is-
lands, en endurmenntunar-
deild þess síðastnefnda'veitir
ráðgjöf og stuðning við skipu-
lag og framkvæmd námsins.
Starfsleikninámið byggist á
hugmynd um að þátttakendur
nýti sér samstarfsheildina til
náms og breytingastarfs með
því að vinna saman að ný-
breytni á ákveðnu afmörkuðu
sviði á námstímabilinu. Jafn-
framt er lögð áhersla á ein-
staklingsbundin verkefni sem
krefjast sjálfstæðra vinnu-
bragða. Námið nær yfír eitt
skólaár.
Grímsey. Morgunblaðið.
í GRIMSEY eru þrír smábænd-
ur og var fé þeirra á sumar-
beit uppi á eyju. Þar er nóg
að bíta fyrir ferfætlinga svo
Fé vænt af „fjalli“
Morgunblaðið/Hólmfríður
féð kom vænt af „fjalli“ þegar
rekið var saman á dögunum.
Um 130 Qár eru í eyjunni og
var það rekið saman í rétt í
túnfætinum hjá Þorláki odd-
vita og Huldu konu hans.
Skemmtu menn sér konung-
lega, ungir sem aldnir.
Breyttar aðferðir skila árangri hjá Fiskeldi Eyjafjarðar
Héraðsráð
Eyjafjarðar
Oánægja
vegna sjáv-
arútvegs-
skóla SÞ
„HÉRAÐSRÁÐ Eyjafjarðar lýsir
yfir undrun og óánægju vegna nið-
urstöðu starfshóps sem falið var
að kanna leiðir til að stofna Sjávar-
útvegsskóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna hér á landi, en þar er
gert ráð fyrir að skólinn skuli vera
í Reykjavík," segir í ályktun frá
Héraðsráði Eyjafjarðar.
Ráðið telur margt mæla með því
að skólinn verði staðsettur á Akur-
eyri í nánum tengslum við Háskól-
ann á Akureyri þar sem rekin sé
sjávarútvegsdeild með tveimur
brautum, sjávarútvegsbraut og
matvælaframleiðslubraut. Treystir
ráðið því að stjórnvöld standi við
ályktun Alþingis frá 1992 um að
háskólinn verði efldur og þar verði
öflug miðstöð rannsókna- og
fræðastarfsemi á sviði sjávarút-
vegs. Uppbyggingin nái ekki fram
að ganga með atfylgi heimamanna
einna, til verði að koma öflugur
stuðningur ríkisvaldsins.
----♦--------
Um 30 þúsund lúðuseiði
lifðu myndbreytinguna
Lúðurnar hrygna nú
að mestu leyti allt árið
BETRI árangur náðist í sumar í
framleiðlu lúðuseiða hjá Fiskeldi
Eyjafjarðar og er Ólafur Halldórs-
son framkvæmdastjóri vongóður
um að menn séu að ná tökum á
seiðaframleiðslunni. Fyrstu seiðin
voru framleidd í stöð félagsins á
Hjalteyri sumarið 1990, en síðan
hefur ekki tekist að framleiða veru-
legan fjölda seiða fyrr en nú í sum-
ar. Helsti þröskuldurinn í fram-
leiðslunni til þessa hefur verið
fyrsta fóðrun lúðulirfa eftir að kvið-
pokastigi lýkur.
Hrygningu stjórnað
með birtu
„Þessi árangur kemur í kjölfar
breytinga á aðferðum," segir Ólaf-
ur. Fjögurra ára þróunarverkefni
sem Fiskeldi Eyjafjarðar stóð að í
samstarfí við Hafrannsóknarstofn-
unina í Bergen og Háskólann í
Gautaborg og lauk um síðustu ára-
mót er, að sögn Ólafs, ein af ástæð-
um þess að góður árangur náðist í
sumar. „í þessu verkefni náðum við
að breyta hfygningartíma lúðunnar
og stjórna honum. Nú er hrygning-
arstofn okkar þrískiptur, en hrygn-
ingu er stjórnað með birtu. Hrygn-
ing á sér nú stað að mestu leyti
árið um kring, sem þýðir að við
höfum hrogn og síðan lirfur til að
vinna með í rannsóknum á fóðrun
lirfa. Fram til ársins 1994 hrygndi
fiskur aðeins einu sinni á ári og þar
af leiðandi var hægt að stunda fóð-
urrannsóknir 2-3 mánuði á ári í
staðinn fyrir allt árið eins og nú er.“
Nefndi Ólafur að félagið hefði
einnig átt mjög gott samstarf við
Lýsi hf. og framkvæmdastjóra þess,
Baldur Hjaltason, og Guðmund G.
Haraldsson hjá Raunvísindastofnun
HÍ. „Með þessum aðilum höfum við
undanfarin ár unnið að því að bæta
framleiðslu á lifandi fóðri, sem not-
að er við fóðrun lirfa, en helsti
þröskuldurinn í seiðaframleiðslu er
að búa til fóður með réttri næring-
arsamsetningu," segir Ólafur.
Ólafur segir ánægjulegt að sjá
árangur eftir nær þrotlaust rann-
óknar- og þróunarstarf í 6-8 ár, en
fyrirtækið var stofnað 1987. „Við
teljum að við höfum stigið stórt
skref fram á við, en vitum að enn
á eftir að bæta margt og lagfæra.
Fóðrun nýrra lirfuhópa hefst aftur
í október og á næstu mánuðum og
allt næsta ár munum við vinna að
frekari endurbótum við seiðafram-
leiðsluna.
Um 30 þúsund seiði lifðu
Um 30 þúsund lúðuseiði lifðu
myndbreytinguna í seiðaeldisstöð-
inni á Hjalteyri og 10-15 þúsund
seiði hafa þegar verið flutt í eldis-
stöð fyrirtækisins í Þorlákshöfn.
„Markmið okkar er að auka fram-
leiðslu lúðuseiða mikið frá því sem
nú er,“ segir Ólafur. „Verð á ferskri
lúðu er mjög hátt á mörkuðum og
með auknum árangri í seiðafram-
leiðslu teljum við ástæðu til ákveð-
innar bjartsýni á að arðvænlegt
lúðueldi verði stundað á íslandi í
framtíðinni.“
Vatnsleysi í Hrísey
Dælunni
slakað neð-
ar í holuna
VATNSSKORTUR gerði vart við
sig í Hrísey í lok liðinnar viku og
um helgina, en í gær var dæla í
borholu eyjarinnar látin síga niður
um 4 metra og fékkst þá nægt
vatn.
Gunnar Jónsson sveitarstjóri í
Hrísey sagði að langvarandi þurrk-
ar í ágúst og september sem og
snjóleysi í fyrravetur hefðu gert
að verkum að ekki safnaðist nægt
vatn í brunna eyjarskeggja. Engin
teljandi vandræði sköpuðust af
vatnsskortinum, sundlauginni var
þó lokað tímabundið og þá var
vatnið sem notað er í frystihúsinu
sparað dálítið.
„Þeir létu dæluna síga töluvert
neðar í holuna og þá kom strax
nægt vatn,“ sagði Gunnar.