Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Heilbrigði og allsnægtir frá Setbergi
Fyrir eina rödd
og fleiri
SETBERG gaf út í fyrra
bók ítölsku skáldkon-
unnar Susönnu Tamaro,
Lát hjartað ráða för, en
sú bók hefur notið mik-
illa vinsælda og verið
meðal metsölubóka í 50
löndum. Nú gefur Set-
berg út fyrir jólin nýja
bók eftir Tamaro, Fyrir
eina rödd, — sögur úr
samfélagi allsnægta,
dagbækur, samtöl og
eintöl. Bókin er þýdd úr
frummáli af Ólafi Gísla-
syni.
Lækningamáttur lík- Susanna
amans er bók um heii- Tamaro
brigt líf, jafnvægi lík-
ama og sálar, hvernig styrkja má
líkamann með skynsamlegu matar-
æði, vítamínum og hreyfmgu. Höf-
undur bókarinnar, Andrew Weil, er
læknir, en var upphaflega grasa-
fræðingur. Þýðandi er Þorsteinn
Njálsson læknir.
Brúðkaupið okkar heitir bók eftir
séra Karl Sigurbjörns-
son og er henni ætlað
að halda til haga ýmsu
sem tengist brúðkaups-
degi. Einnig eru í bók-
inni tilvitnanir um ást-
ina og hjónabandið.
Nú er ég orðin
mamma er bók sem
íjallar um líkama og sál
konunnar eftir fæðingu
barns, um fyrstu mjólk-
urgjöfina, svefn, eðli-
lega þyngd, kynlíf eftir
fæðingu barns, geð-
rænar sveiflur og margt
fleira. Guðrún Björg
Sigurbjömsdóttir yfir-
ljósmóðir annast útgáfu
bókarinnar.
Ný skáldsaga eftir metsöluhöfund-
inn bandaríska, Danielle Steel, nefn-
ist Þegar mest á reynir í .þýðingu
Skúla Jenssonar. Setberg gefur að
venju út margar bækur fyrir börn,
m.a. litprentaða hljóðbók, Dýrin okk-
ar, um dýrin í sveitinni.
SÝNING á verkum Mapplethorpes virðist ekki hafa farið fyrir brjóstið á Bretum.
Bretar sáttir við Mapplethorpe
London. Reuter.
SÝNING, sem búist var við að yrði
ein hin umdeildasta á árinu í Bret-
landi, hófst fyrir helgi í London. Um
er að ræða yfirlitssýningu á verkum
ljósmyndarans Roberts Mapplet-
horpe en myndir hans hafa oftlega
verið úthrópaðar sem klám. Gestir á
sýningunni í Hayward-galleríinu
vom þó ekki á því að verkin væm
klámfengin, heldur sönn listaverk.
Á sýningunni, sem er hin stærsta
sem sett hefur verið upp á verkum
Mapplethorpes, kennir ýmissa grasa.
Hanga myndir hans af hommum sem
haldnir eru kvala- og sjálfskvalalosta
innan um myndir af kvikmynda-
stjörnum á borð til Arnold Schwarz-
enegger. Mapplethorpe lést úr al-
næmi árið 1989.
Við inngang gallerísins er skilti
þar sem viðkvæmt fóik er varað við
að fara á sýninguna auk þess sem
þar segir að hún sé ekki við hæfi
barna.
Ein mynd á sýningunni var tekin
niður vegna tilmæla barnaverndar-
samtaka, sem töldu hana höfða um
of til barnaníðinga og hefur sú
ákvörðun verið harðlega gagnrýnd.
Myndin sem tekin var niður er af
stúlkunni Rosie sem var aðeins
þriggja ára er hún var tekin. Rosie
er nú orðin 22 ára og sagði við blaða-
menn að henni fyndist lætin út af
myndinni hreint fáránleg. Ljósmynd-
in væri falleg og sýndi sakleysi æsk-
unnar, væri ekki klámfenginn á
nokkurn hátt. Undir þetta tóku ýms-
ir listgagnrýnendur og kváðust þeir
telja að ekki hefði nokkur maður
talið neitt athugavert við myndina
hefði safnstjórnin ekki tekið hana
niður.
Sýningin stendur í tvo mánuði og
er búist við því að ailt að 100.000
manns muni sækja hana. Fyrstu
dagana mynduðust langar biðraðir
við sýningarsalinn og var ekki að sjá
að fólki ofbyði list Mappelthorpes,
líkt og gerðist í heimalandi hans,
Bandaríkjunum.
Tékkar
heiðra
minningu
Mahlers
TÉKKAR leggja nú allt kapp á að
heiðra minningu tónskáldsins
Gustavs Mahler og minna í leiðinni
á að hann var fæddur í Bæheimi.
Sjálfur sagðist Mahler í þrígang
hafa misst heimili sitt, sem bæ-
heimskur maður í Austurríki, sem
Austurríkismaður í Þýskalandi og
sem gyðingur um heim allan. „Ég
er hvarvetna aðkomumaður og
hvergi velkominn."
Mahler hefur oft verið sagður
Vínarbúi eða Þjóðveiji. Hann var
hins vegar fæddur árið 1860 í smá-
þorpi þar sem nú er Tékkland. Ka-
liste heitir það og er 90 km suðaust-
ur af Prag. Þar voru í sumar haldn-
ir veglegir tónleikar til að heiðra
minningu Mahlers, efnt var til sér-
staks Mahler-dags, og í fjórar vikur
buðu útvarp og sjónvarp upp á ýmsa
dagskrárliði tengda tónskáldinu.
Á meðal þeirra sem lögðu leið sína
til Kaliste var barnabarn Mahlers,
Marina Mahler en hún er eini afkom-
andi hans sem er á lífi. Hún hefur
helgað líf sitt því að halda minningu
afans á lofti og ferðast um heiminn
þveran og endilangan með það að
markmiði. Þá komu til samkomunn-
ar ýmis fyrirmenni úr stjórnmálum
og tónlistarlífí. Leikin voru verk á
borð við aðra sinfóníu skáldsins og
rauðar rósir gróðursettar fyrir utan
barnaskóla þorpsins með vísan til
4. þáttar verksins,„Rosehen Rot“.
Þá má nefna söng mezzosópransins
Dagmar Peckova„Lieder eines fa-
hrenden Gesellen", Adagietto úr
fimmtu sinfóníunni. Vonast skipu-
leggjendur hátíðarinnar til að hún
verði að árlegum viðburði, þar sem
áhersla verði lögð á að gera Kaliste
að tákni mannlegs, þjóðlegs og
menningarlegs umburðarlyndis.
Ekki er að efa að Mahler hefði
fallið vel sá sómi sem Tékkar sýna
minningu hans, því hann kvaðst alla
tíð hafa verið undir miklum áhrifum
tékkneskrar tónlistar sem hann
heyrði í bernsku.
Þýskur orgelleikari
í Hallgrímskirkju
ÞÝSKI orgelleikarinn
Heinrich Walther mun
í kvöld kl. 20.30 leika
Sinfóníu í d-moll eftir
César Franck á orgelið
í Hallgrímskirkju. Sin-
fónían var upphaflega
samin fyrir hljómsveit
en Heinrich Walther
umritaði hana fyrir
hljóðfæri sitt. Auk sin-
fóníunnar verða á efnis-
skrá Sónata nr. 3 op.
65 eftir Felix Mend-
elsohn og þáttur úr
Fúgulistinni eftir Jó-
hann Sebastian Bach.
César Franck var eitt
helsta tónskáld Frakka á síðustu öld.
Hann var organleikari og kennari en
sinnti tónsmíðum eldsnemma á
morgnana. Sinfónísk tónlist átti mjög
undir högg að sækja í Frakklandi á
hans dögum því áhugi manna beind-
ist einkum að óperulistinni. César
Franck var orðinn hálf sjötugur þeg-
ar hann samdi fyrstu og einu sinfó-
níu sína. Hún er samin undir sterkum
þýskum áhrifum; form verksins og
meðferð stefjanna er í anda Beetho-
vens en hljómaveröldin er fengin frá
Wagner.
Heinrich Walther lauk námi í or-
gelleik við Tónlistarháskólann í Frei-
burg. Hann stundaði
framhaldsnám í Toulo-
use í Frakklandi og
Dallas í Bandaríkjunum.
Árið 1986 vann hann til
verðlauna í keppni org-
anista í San Antonio í
Texas og ári síðar í al-
þjóðlegu Pachelbell-
keppninni í Núrnberg.
Að loknu námi hefur
Heinrich Walther starf-
að sem organisti í
Svartaskógi og kennt
jafnframt við Tónlist-
arháskólann í Freiburg.
Hann hefur gefið út
hljómdiska með verkum
eftir samtímahöfunda en einnig sin-
fóníuna eftir César Franck sem hann
leikur á tónleikunum í Hallgríms-
kirkju á fimmtudagskvöld.
Fyrir tónleikana mun Gunnsteinn
Olafsson fjalla um sinfóníu Césars
Franck í hátíðarsal Tónskóla þjóð-
kirkjunnar að Sölvhólsgötu 13, 2.
hæð klukkan 16-18. Öllum er heim-
ill aðgangur. Heinrich Walther mun
síðan bjóða íslenskum organleikurum
til sameiginlegs fundar í Digranes-
kirkju föstudaginn 27. september kl.
10 fyrir hádegi. Þar verður margs-
konar orgeltónlist leikin og tekin til
umræðu.
Heinrich
Walther
Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði
GOÐA, Kirkjusandi v/Laugamesveg, færðu Borgarnesslátur og
Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði.
Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga
til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14.