Morgunblaðið - 26.09.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 39
SJÓNMENNTAVETTVANGUR
wock öai ttk' tbacw \!.h*
KW nwn. uoréiilbcw <Wrf«!(o Ní«
brtttwoiity «.iTv6<stíViVl
iiMiwtoav.il .vnciiítiii' ,
t ttx í-ú iVvWu tx-tt-Hxlil
.\AlWl3ttíWRtt«B,%'(K>V
jettNwd iatMtviW WttKCtti
ig twlMxju
inttlvloluiuMtí , ,
iK Ma'líx WunH wíVíovi
S»Œ!
l (aw&hwttwia wœc
haUttfVt M tttr inoVt,
l'ríf Ittho WKijt !c ttrvV'J
:boít iwtttanv *«Qmí
■<('. Jéittittaiswttf^ína
*iX, c a-Vnir. "'un' inic -
iólNHvittdAVtKÍfM*,
CM "-j
arf uéfe&éttOfr
CialílW:
WíUMtíttHtó,
WiMvVbaétilrsiijál
í\«iuttí«Jw\Vc
<!t Wacc UMXitl
uwh'ra cjttit*
rn.WnÍ’
Kvtotw
tyújwdni
\\V.Vvliv
ttmaoi
IvXlítUS
í\cís®£<! i&tsfrc. /
OturwilsX vxm xMÍxt^^mnsv^ kaúuAwfr'f' *so inUc \w* M<v»m
uaXaó \ttí>o vumuKéutxn btcv WRímó (i»w éifftaa vwn
tÓlVOxbMHiífl ^{ttjLlítttV'HJMÍ
HANDRITUÐ síða úr Grimms-ævintýrum, vatnslitir með gulli á
kálfskinn, allt frá hendi William Morris og skilvirkt dæmi um
skreytistíl hans og yfirburða handverk.
LOFTSKREYTINGIN yfir aðalstiganum í Rauða húsinu
líkist helst núlistaverki.
gengileg sé litið til alls þess sem
hann kom í verk, þrátt fyrir hið
breiða starfssvið og á ekki lengri
ævi, auk þess að heilsan var bág-
borin síðustu æviárin. Morris var
þannig allt í öllu, blossandi andi
og hrifnæmur heimsborgari á tím-
um mikilla uppstokkana og hrær-
inga í Evrópu, og eins og algengt
er um stórhuga menn var hann
maður þversagna og öfga. Það
rakst illa, að vera í senn eldheitur
rómantíker, aðdáandi fortíðar og
jafnframt blóðrauður byltingar-
sinni, því honum var öllu meira í
mun að byggja upp á fortíðinni en
rífa hana niður.
Veigur athafna Morris var öðru
fremur að veita fólki aðgang að
sjónrænum verðmætum með því
að tengja það lífrænni sköpun í
hönnun og listiðnaði. Hann gerði
sér Ijósa grein fyrir því að sam-
tíminn hvíldi á fortíðinni, sem væri
svo aftur burðargrind núsins, og
loks eldsneyti og súrefni framtíðar-
innar. Frá honum liggja þræðir til
listamanna æskustílsins og Walter
Gropiusar, frumkvöðuls Bauhaus,
og þannig var allt starf hans sam-
ræða við fortíð, samtíð og framtíð,
um leið stóð hann traustum fótum
í sjálfu núinu. Hann vildi gera fag-
urt handverk aðgengilegt almenn-
ingi og var í senn mannvinur sem
rakinn sósíalisti, en af þeirri gerð
sem er tímar liðu hlutu þá vafa-
sömu vegsemd að vera ýtt til hliðar
misstu þeir ekki líftóruna, eða
lögðu höld á sig er þeir urðu vitni
að hinu skelfilega niðurrifi og öfug-
þróun.
Morris var þannig opinn fyrir
áhrifum úr öllum áttum, og gerði
sér ljósa grein fyrir að listin þyrfti
greiðari aðgang til almennings í
framtíðinni, ættu hinir lítilsverðu
fjöldaframleiddu hlutir iðnbylting-
arinnar ekki að gera manninn að
skynlausum óskapnaði. Einnig, að
efnishyggja og velferð væri af hinu
illa ef andinn og skynsviðið yrði
undir. Fagurfræði hans var hrein,
skýr og klár, þótt skreytið væri
yfirgengilegt á köflum, sem þó var
í jafnvægi við öfgana á hinn veginn
hvað fjöldaframleidda smekklausa
brúkshluti snerti er flæddu á mark-
aðinn. Almenningur átti að hafa
greiðan aðgang að traustu hand-
verki, listíðum og listum, en þetta
átti ekki að vera séreign aðalsins
og hinna ríku, sjálfur sagði hann
eitt sinn vonsvikinn: „Ég sóa lífi
mínu í þjónustu hinna svínslega
ríku.“ Hann sá hættuna og óhugn-
að framtíðarinnar, er sljóvgaður
einstaklingurinn, múgurinn, hefði
verið sviptur fegurðarkenndinni,
sem er hið upprunalegast’a í öllu
JANE Burden var ástin í lífi William Morris, hún var með feg-
urstu og svipsterkustu konum samtíðar sinnar. Hinn nafnkenndi
málari Dante Gabriel Rossetti eftirgerði ásjónu hennar á dúka
sína á eftirminnilegan hátt, auk þess, sem til eru margar frægar
ljósmyndir af henni. Svo skrifuðust lífsins strik, að ástir tókust
með þeim Jane og Rossetti og yfirgaf Morris þá konu sína, tvær
dætur og Rauða húsið svonefnda í Kent. Stuttu áður eða 1871
hafði Morris ásamt Rossetti leigt sér sextándu aldar húsið Kelm-
skott Manor, Hammerschmidt, London, flutti nú þangað og bjó
til dauðadags. Fyrsta sumarið þar ferðaðist hann til íslands með
Eiríki Magnússyni í Oxford, en þeir þýddu í sameiningu margar
íslendingasögur, og Morris lét heiliast af landi, þjóð og sögu.
Málverkið er gott dæmi um stíl forrafaelítanna.
dýraríkinu og sköpunarverkinu, en
lífíð hins vegar vígt tilbúnum þörf-
um, stöðluðum óhugnaði.
Það var ótæpileg rómantík og
bjartsýni að baki þessu öllu, sem
fæddi af sér margt sem nútíma-
maðurinn saknar sárlega, þegar
hinn hrái, tómi og nakti veruleiki
allt um kring blasir við honum. Við
nefnum þetta stundum fortíðarþrá,
nostalgíu, því lífið var einfaldara
og loftið tærara utan iðnaðarborg-
anna á þessum árum. Meðalaldur-
inn var að vísu lægri, en manns-
ævin mælist ekki í árum, heldur
lífsfyllingu og lífsnautn og sá sem
er hættur að upplifa og fínna til
er úr leik um leið, „passé“ - telst
óvirkur og óþarfur á yfírborði jarð-
ar.
Þetta er sennilegust ástæða
þess, að fólk streymir á söfn og
stórsýningar, og ferðast heimsálfa
á milli, því það finnur hjá sér þörf
til að sjá og upplifa með eigin aug-
um og eigin skynsviði. Mannfólkið
þarf ekki síður að reisa hús, hof
og hörga yfír skynsvið sitt en efnis-
lega virkt, því án slíkra skjólgarða
verður lífíð innantómt og falskt.
Þetta er eins konar uppreisn gegn
þeirri lágkúru, andleysi og ofbeldi
sem dynur á nútímamanneskjunni
og hún á svo erfitt með að verjast,
þar sem hún fær þetta í stöðugt
stærri og áhrifameiri skömmtum,
beint í æð.
Rýnirinn hefur áður sagt frá
þessu mikla safni, en hver deild er
efni í sérstaka grein og þær marg-
ar. Nokkrar deildir náði hann ein-
ungis að skoða yfirborðslega er
hann var þar á ferð fyrir nokkrum
árum, og nálgaðist nú af hvað
mestri tilhlökkun, en þær reyndust
illu heilli lokaðar vegna end-
urnýjunar. Fyrir vikið beindist at-
hygli hans meira að öðru, sem hann
hafði ekki tekið nógu vel eftir í
fyrri heimsókn, og hér féll hann
flatur fyrir deild steypujárns fyrir
formræna fjölbreytni, einfaldleika
og myndræna fegurð hins blakka
efniviðs. Kjallari safnsins reyndist
svo opinberun fyrir ótakmarkaða
fjölbreytni og skyndilega var hann
staddur í herbergi með undurfögr-
um útskornum tréstyttum sem
höfðuðu fírnasterkt til hans. Ein-
faldleikinn og formfegurðin sláandi
og innri útgeislan svo rík að hann
stóð sem bergnuminn, alveg viss
um að hér hefði hann rekist á mik-
ilsháttar hluti. Einkum vöktu
nokkrar myndir af guðsmóðurinni
með barnið athygli hans, því langt
var síðan hann hafði litið jafn tæra
upphafna fegurð augum. I ljós kom
að höfundarnir voru þeir Donato
di Niccoló di Betto Bardi (um
1386-1466), er hlaut viðurnefnið
Donatello, og Lorenzo Ghiberti
(1378 eða ’81-1455), þeir voru
með mikilvægustu ásunum sem
lögðu kímið að fæðingu endurreisn-
arinnar og jafnframt mótun hug-
taksins.
Donatello þekkja margir, en
Ghiberti vafalítið sýnu færri, en
eitt nafnkenndasta verk hans er
Paradísarhurðin gullna á skírn-
arkapellunni fyrir framan dóm-
kirkjuna í Flórenz. Hér sigraði hann
í frægri samkeppni, þar sem valið
stóð að lokum á milli uppkasta
lians og hins óviðjafnlega Fillippo
Brunelleschis (1377-1446), sem
er höfundur hins tvöfalda kúfþaks
á kirkjunni. Rökin voru að erfiðara
og kostnaðarsamara yrði að útfæra
verk Brunelleschis, sem væri að
auki þyngra og bæri í sér fleiri
smáatriði. Þessir fjölhæfu meistar-
ar voru allir innfæddir Flórenzbú-
ar, bjuggu þar allan sinn aldur og
ruddu brautina fyrir meistara há-
endurreisnarinnar, Michaelangelo
(1465-1564), sem einnig starfaði
mikið í Flórenz og andlega skyldur
þeim.
Allur kjallarinn reyndist svo
náma listhandverks frá miðöldum
til seinni tíma, og það var í góðu
samræmi við skoðun sýningar Will-
iam Morris, að athygli rýnisins
beindist ríkulega að miðöldum og
tímabilinu fyrir fæðingu Rafaels
Sanzio frá Urbinó.
Höfundur er myndlistai-madur.
SIAJEP
varmaskiptar
og
stjórnbúnaður
Þú finnur j
varla betri j
lausn. i
= HÉÐINN =
VERSLUN !
i SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260
KOMPU
SALAÆJ
í Kolaportinu er kompusala
alla markaðsdaga
og bósinn kostar ekki nema
k rw2>9.5,Q
m
Nú er tilvalið að taka til
geymslunum 03 fataskápunum,
panta bás 1 Kolaportinu
og breyta gamla dótinu
í goðan pening.
>Pantanasimi
er 562 5030 \
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Viltu
endilega
borga
meira
en þú
þarft
fyrir
gleraugun?
EF SVO ER - ÞÁ ERUM
VIÐ EKKI RÉTTA GLER-
AUGNAVERSLUNIN
FYRIR ÞIG
♦
Lækjargötu 6
Reykjavík
Sími 551 6505