Morgunblaðið - 26.09.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Propolis til
bættrar heilsu
og betra lífs
Frá Ragnari Þjóðólfssyni:
NÝVERIÐ hringdi kona í Þjóðar-
sálina til að segja frá ótrúlegum
bata tveggja krabbameinssjúkl-
inga sem notað höfðu Propolis sér
til heilsubótar. Þetta eru ekki einu
tilfellin þar sem Propolis hefur
reynst vel gegn vágesti þeim sem
krabbamein er. Til eru mörg skjal-
fest dæmi um slíkt frá Danmörku,
meðal annars sjúkrasaga manns
sem þjáðist af krabbameini í hálsi.
Hann hafði tvívegis verið skor-
inn og eftir seinni uppskurðinn
varð læknir hans var við þykkildi
undir tungurótinni sem hann áleit
að nema þyrfti burt. Þar sem svo
skammt var um liðið frá aðgerð-
inni áleit læknirinn að betra væri
að bíða þar til hann hefði jafnað
sig nokkuð áður en hafist yrði
handa á ný. Þann tíma notaði
maðurinn til að tyggja Propolis
að beiðni konu sinnar og það var
eins og við manninn mælt að þeg-
ar að næstu læknisskoðun kom
fannst hvorki tangur né tetur af
berinu í munni hans.
Sjálfur þekki ég persónulega
marga íslendinga sem notað hafa
Propolis með góðum árangri í bar-
áttunni við krabbamein. Sjúkling-
ar með mein í blöðruhálskirtli hafa
sagt mér að hætti þeir að taka
sinn daglega skammt af Propolis
blossi strax upp bólgur og eymsl.
Aðrir nota efnið til að ná upp fyrri
líkamshreysti að lokinni erfiðri
geisla- eða lyfjameðferð.
Kona sem þjáðist af þrálátum
þvagfærasýkingum segir mér að
eftir að hún hafði tekið Propolis í
rúman mánuð hafi hún náð fullum
bata og verði hún vör við einkenni
nægi að taka nokkrum sinnum inn
Propolis til að þau hverfi og ungur
vinur minn segir mér að notkun
efnisins hafi eytt öllum unglinga-
bólum úr andliti hans. Ég get held-
ur ekki látið hjá líða að nefna þau
áhrif sem Propolis hefur á hvers
kyns sveppasýkingu, þar á meðal
Candida Albicans. Sveppirnir bók-
staflega hverfa eins og dögg fyrir
sólu.
Enginn efi er að Propolis er
heilsubætandi efni og margir sem
ég hef bent á að nota það hafa
haft samband við mig aftur til að
þakka ábendinguna og segja
hreint ótrúlegar sögur af bættri
líðan sinni. Ég hef heyrt frá sjúkl-
ingum með erfið magasár og ristil-
bólgur, mæðrum með eyrnaveik
börn, nýrnasjúklingum og fólki
með erfiðar þvagfærasýkingar.
Allir eru sammála um að Propolis
hafi breytt lífi þeirra mjög til hins
betra. Bæði ég og fjölskylda mín
tökum daglega inn Propolis og
aðrar afurðir býflugunnar og okk-
ur verður sárasjaldan misdægurt.
RAGNAR ÞJÓÐÓLFSSON,
Arnartanga 17.
HAUSTVERÐLISTINN ER KOMINN
UM CRAM GÆÐIN ÞARF ENGINN AÐ EFAST
OG VERÐIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆÐARA.
ALLT AÐ 10.000 kr. VERÐLÆKKUN
Á EINSTÖKUM GERÐUM GRAM KÆLISKÁPA.
CRAM HF462
Áður 60.990
Nú > > 56.980
GRAM gerð: Ytri mál mm: B x D x H Rými lítr. kæl.+fr. Staðgr. kr.
Kæliskápar án frystis:
K-130 550 x601x 715 116 39.990
K-155TU 550 x601x 843 155 47.490
KS-200 550x601x1065 195 48.440
KS-240 550x601x1265 240 53.980
KS-180TU 595 x601x 843 168 49.990
KS-300E 595x601x1342 271 56.990
KS-350E 595x601x1542 323 63.980
KS-400E 595x601x1742 377 71.970
Kæliskápar meö frysti: KF-120 550 x601 x 715 94 + 14 41.990
KF-135TU 550 x601x 843 109 + 27 48.980
KF-184 550x601x1065 139 + 33 48.980
KF-232GT 550x601x1285 186+33 56.940
KF-263 550x601x1465 197 + 55 54.990
KF-245EG 595x601x1342 168+62 62.990
KF-355E 595 x601 x1742 272 + 62 69.990
KF-345E 595 x601 x1 742 190 +133 79.990
Frystiskápar:
FS-100 550 x601x 715 77 39.990
FS-133 550 x601x 865 119 46.990
FS-1 75 550x601x1065 160 52.990
FS-150 595 x601 x 900 131 48.970
FS-250E 595x601x1342 224 59.990
FS-290E 595 x601 x1542 269 69.990
FS-340E 595x601x1742 314 78.990
Frystikistur:
HF-234 800 x695x 850 234 42.980
HF-348 1100 x695x 850 348 48.980
HF-462 1400 x695x 850 462 56.980
HF-576 1 700 x695x 850 576 72.980
FB-203 800 x695x 850 202 45.980
FB-308 1100 x695x 850 307 52.990
(FB-gerðir hafa 75mm einangrun - orkusparandi)
EURO og VISA raðgreiðslur
án útborgunar.
FRÍ HEIMSENDING - og við fjarlægjum
gamla tækið án aukakosnaðar.
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Frá Katrínu Jónsdóttur:
UNDANFARIÐ hefur mikið verið
skrifað um einelti og það er mér
gleðiefni. Það er einmitt það sem
þarf til þess að ná til þeirra barna
sem fyrir þessu verða. Það er stað-
reynd að fórnarlömbin skammast
sín mikið fyrir að vera lögð í ein-
elti og eru þess vegna ekki líkleg
til þess að leita sér hjálpar. Þeim
finsnt það jafnvel vera svartur
blettur á lífi sínu og ekki bætir
mikil minnimáttarkennd ástandið.
Auk þess hafa mörg hver lítið sem
ekkert sjálfstraust og verða jafn-
vel þunglynd eftir því sem sem
félagsleg staða þeirra í skólanum
versnar. Sjálf var ég lögð í einelti
sem barn og skrifa því af reynslu.
Það eru mörg ár síðan og nú er
það mér hugleikið að koma þeim
krökkum til hjálpar sem eru að
lenda í þessu núna.
Öli viljum við að börnunum okk-
ar líði vel í skólanum, en það er
Einelti
varðar
okkur öll
einelti í öllum grunnskólum. Til
þess að tryggja velferð barna okk-
ar ber öllum aðilum, þ.e. kennur-
um, foreldrum, gerendum og fórn-
arlömbum að betjast gegn þessu.
Ég er þeirrar skoðunar að nógu
mikil umræða geti komið fórn-
arlömbum til hjálpar. Þá myndu
þau gera sér grein fyrir hversu
margir eru í sömu sporum og þau,
að þau eru ekki ein í heiminum.
Æskilegt væri að þau hittu aðra
krakka sem eru í sömu aðstöðu
og gæti það átt sér stað í sérstök-
um hópum.
Með þessum rituðu orðum geri
ég mér grein fyrir að erfitt gæti
reynst að fá fórnarlömbin til að
taka þátt í slíkri hópumræðu, en
með því að gefast upp strax vær-
um við að bregðast börnunum
okkar.
En það eru ekki bara fórn-
arlömbin sem þurfa hjálp, gerend-
urnir líka. Þeir vita ekki hvað
þetta hefur alvarleg áhrif á fórn-
arlömbin og þurfa þess vegna
hjálp til þess að gera sér grein
fyrir því. Best væri ef foreldrar
ræddu um einelti við börnin sín,
hvað það er og hvaða afleiðingar
það hefur.
Ég hvet alla til þess að vera á
varðbergi og grípa í taumana ef
þá grunar að um einelti sé að
ræða.
KATRÍN JÓNSDÓTTIR,
Sólvallagötu 32A, Reykjavík.
Hvers á að gjalda?
Frá Ásmundi U. Guðmundssyni:
ÞAÐ er óskemmtilegur sá einiiti
áróður þeirra sem skrifuðu í Morg-
unblaðið 13. sept. 1996 í dálkinn
„Bréf til blaðsins" um dráp á ref
norður í Svarfaðardal í kringum 7.
sama mánaðar og fóru mikinn í
skrifum sínum. Greinilegt er að
enginn af þessu vandlætingarfulla
liði hefur séð ref drepa lömb að
vori, því síður séð grenlægjuna
kenna yrðlingunum aðferðina er
líða tekur á sumar. Verður þá oft
fullorðið fé fórnarlömbin, kind-
arsnoppan mölbrotin og tuggin, oft
upp að augum, í flestum tilvikum
ein maðkaveita eða klofið (júgur
og aftasti hluti kviða og endaþarm-
ur eða eistun ef um hrút er að
ræða kolgrafin maðkaveita). Slíkt
fé var hér áður fyrr umsvifalaust
skorið á háls á staðnum, var þá
vasahnífu'rinn góður. í mínum huga
eru refur og minkur réttdræpir
hvar sem til þeirra næst, gildir einu
hvaða aðferð er þá notuð. Þó tekur
steininn úr er formaður Dýravernd-
unarfélags Reykjavíkur, Sigríður
Ásgeirsdóttir, setur rifu á annað
augað en hefur hitt lokað og fer
að kæra hjónin sem um ræðir og
börnin með fyrir drápið á refnum.
Þeirri kæru frú Sigríði væri nær
að opna hitt augað líka og fara að
huga að öllum þeim smáhólfum af-
mörkuðum með rafmagnsgirðingum
sem æpa á ferðamanninn fram með
mestöllu vegakerfí þessa lands svo
rótnöguðu að flag er og oftast ekk- 5
ert vatn. Þessi hólf höfðu að geyma
hross sem eigruðu stefnulaust um í
leit að stráum sem ekki voru tii.
Þetta er verra en þó einn refur
væri hábundinn og drepinn á eftir.
í lokin: í DV 17. sept. 1996 skrif-
aði Dagfari pistil til vamar svarf-
dælsku fjölskyldunni. Dagfari á
þakkir skildar fyrir.
ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON,
Suðurgötu 124, Akranesi.
11
vou
Laugavegi 51 s. 551 8840
Ath. The Shoe
Pantanir óskast eA+*
Nýjar
vetrarvörur
Tilboð:
Ullarjakkar
4.900
Úlpur
4.900
Prakkar
4.900
Stakir jakkar
3.900
Gallabuxur
8.900
Flauelsbuxur
8.900
Skyrtur
8.900
Kuldaskór Tilboö 6.990