Morgunblaðið - 26.09.1996, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson.
ÞEIR urðu að sætta sig við annað sætið í bikarkeppni Bridssam-
bandsins þrátt fyrir hetjulega baráttu. Talið frá vinstri: Kristján
Kristjánsson, forseti Bridssambandsins, en hann afhenti verðlaunin
i mótslok, Guðmundur Sv. Hermannsson, Karl Sigurhjartarson,
Ragnar Hermannsson, Björn Eysteinsson og Helgi Jóhannsson. Á
myndina vantar Einar Jónsson, einn silfurverðlaunahafanna.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragna rsson
Bridsdeild FEBK
Spilaður var Mitchell tvímenn-
ingur þriðjudaginn 17. september
’96. 22 pör mættu. Úrslit:
NS-riðill
Karl Adolfsson - Eggert Einarsson 262
Sæmundur Bjömss. - Böðvar Guðmundss.261
Jón Andrésson-ValdimarÞórðarson 236
AV-riðill
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 286
Eysteinn Einarsson - Sævar Magnússon 276
HelgaÁmundad.-HermannFinnbogas. 241
Meðalskor 216
Spilaður var Mitchel! tvímenn-
ingur föstudaginn 20. september
’96 20 pör mættu. Úrslit:
NS-riðill
Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófersson 281
Fróði Pálsson - Theódór Jóhannsson 250
Lárns Amórsson - Alfreð Kristjánsson 236
AV-riðilI
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 292
Hannes Alfonsson - Garðar Sigurðsson 271
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 249
Meðalskor 216
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Mánudaginn 16. september ’96
spiluðu 19 pör með yfirsetu Mitch-
ell.
NS-riðill
Guðbjörg Þórðard. — Jón J. Sigurðss. 250
Sæbjörg Jónasd. - Þorsteinn Erlingss. 246
Rafn Kristjánsson - Tryggvi Gíslason 243
AV-riðilI
Fróði B. Pálsson - Theodór Jóhannss. 248
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 243
Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyvantss. 235
Meðalskor 216
Fimmtudaginn 19. september
spiluðu 18 pör Mitchell.
NS-riðilI
Elín Jónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 269
Hjálmar Gíslas. - Haukur Guðmundss. 263
Eggert Einarsson - Karl Adólfsson 243
AV-riðill
Þórólfur Meyvantss. - Eyjólfur Halldórss. 271
Jón J. Sigurðss. - Dvaíð Guðmundss. 263
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 233
Meðalskor 216
Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum
220 Hafnarfjöröur v/Holtaveg
565 5560 104 Reykjavík
588 7499
Bamasamfellur
einlitar og munstraðar
Ádur.299,-
"‘199.-
Skeifunni 13 Norðurtanga3
108 Reykjavík 600 Akureyri
568 7499 462 6662
Boxer nærbuxur
Fururekki
(notaðar innréttingar)
tilvalið í geymsluna o.fí.
IDAG
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar átakinu „Börnin heim“ og varð ágóðinn
5.000 krónur. Þær heita frá vinstri talið Anna,
Þóra, Eva og Bryndís.
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í opna
flokknum á minningarmót-
inu um Donner í Amster-
dam í ágúst. Danski al-
þjóðameistarinn Bjarke
Kristensen (2.420) var með
hvítt, en Stefan Van Blitt-
erswijk (2.320), Hollandi,
hafði svart.
27. —Hxc3! 28. Bxc3 -
Dg4+ 29. Hg3 — Re2+ og
hvítur gafst upp. Eftir 30.
SVARTUR leikur og vinnur
Dxe2 - Dxe2 31. Hd8+ -
He8 32. Hxe8+ — Dxe8 33.
Hxh3 — De2 er svarta stað-
an gjörunnin.
Farsi
, f>icískuLu<5 útktjá. dtílumcU ybharut
l hoqCK.. Uér 'inni drekhx cdlir úr
sama, cla.Llirujm.~
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Hvers eiga
Garðbæingar
að gjalda?
KONA úr Garðabæ
hringdi:
Við Garðbæingar bú-
um við það öryggisleysi
að fá enga læknisþjón-
ustu eftir miðnætti.
Sjúklingur getur þurft á
lækni að halda án þess
að vera í bráðri lífshættu
sérlega ung böm og
eldra fólk.
Hvert eigum við að
ieita er búum í Garðabæ?
Tapað/fundiö
Seðlaveski
tapaðist
SVART karlmannsveski
með öllum skilríkjum og
greiðslukorti tapaðist að-
faranótt sunnudagsins
einhversstaðar frá
miðbæ inn að Fossvogs-
hverfi. Skilvís finnandi
er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 553-6914.
Koparlugt hvarf
VIÐ Meðalfellsvatn er
sumarbústaður sem heit-
ir Hlíð. í hliði þar hékk
gömul koparlugt sem
hvarf nýlega og óskar
eigandinn eindregið eftir
því að henni verði skilað
við fyrsta tækifæri. Geti
einhver gefið upplýs-
ingar er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 551-4811.
Gæludýr
Týndur högni
FJÖGURRA mánaða
gamall högni hvarf frá
Langagerði 29 si.
fimmtudag. Hann er
bröndóttur á baki og
skotti með hvítan maga
og fætur og blesu í höfði.
Hann bar svarta ól. Geti
einhver gefið upplýs-
ingar um hann vinsam-
lega hringið í síma
581-4970 eða 897-2906.
Týndur högni
GRÁBRÖNDÓTTUR
högni hvítur á bringu
með hvíta fætur tapaðist
frá Löngumýri í
Garðabæ sl. föstudags-
kvöld. Hann var ómerkt-
ur en með tattóverað
númer í eyra. Geti ein-
hver gefið upplýsingar
um hann er óskað eftir
þeim í síma 565-6541.
COSPER
EFTIR 20 mínútur get ég borgað þér 200 þúsund
krónumar sem ég skulda þér.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI er fullur iðrunar yfir
því að hafa notað orðið „spen-
dýraflóra". Hann veit auðvitað að
orðið „flóra“ nær aðeins yfir lífver-
ur í jurtaríkinu, og átti því að nota
orðið „fána“ í áðurnefndum pistli,
því að hann er gamall MR-ingur.
xxx
EIGI alls fyrir löngu var um
þessi orð fjallað í hinum
ágæta þætti Gísla Jónssonar
menntaskólakennara á Akureyri,
„Islenzkt mál“. Þar sagði m.a.:
„Hörður Kristinsson náttúrufr. hef-
ur í bréfum til blaðanna mælt gegn
misnotkun orðsins flóra, og hreint
ekki að ástæðulausu. Þórir Haralds-
son menntaskólakennari og bjarn-
dýrafræðingur hafði áður beðið mig
að gera þetta, og þó að Hörður
hafi að nokkru tekið af mér ómak-
ið, fellst ég á rök Þóris, að ekki
falli tré við fyrsta högg. Mér til
hægri verka bið ég nú það góða
fólk á Mbl. sem kemur íslensku
máli til skila að endurprenta hluta
af 717. þætti (6/11 ’93), að nokkru
slitinn úr samhengi og eilítið breytt-
an (von er að Þóri blöskri þegar hér
í blaðinu var talað um „fjölskrúðuga
fuglaflóru"):
Þá er það fyrirbæri nefnt flos í
latínu sem blóm heitir á tungu
okkar. FIos er karlkyns í lat., eign-
arf. floris, fleirt. flores. Mörg orð
eru samstofna því, og verður hér
látið við nema að nefna sjálfa blóm-
gyðju þeirra Rómverja er Flora
hét. Svo kom, að þetta orð barst
um víðan völl tungnanna og tók
að merkja jurtaríki, gróðurríki.
Stefán kennari (skólameistari)
samdi grundvallarrit og heitir
Flóra íslands. í dansk- og ensk-
íslenskum orðabókum finn ég ekki
annað en flora þýði gróðurríki á
tilteknum stað eða tíma.“
xxx
OG ÁFRAM heldur Gísli: „Dýra-
ríkið hefur sumstaðar fengið
nafnið fána (fauna), og er það að
rekja til eins af guðum Rómveija.
Sá hét Faunus. Orðið fána heyrist
sjaldan eða sést með Islendingum.
En af hverju er ég að þessu? Jú,
ég heyrði um daginn að það væri
fjölbreytt „skemmtanaflóra" í
Reykjavík, og ég hef heyrt um
ýmsar aðrar „flórur" af ólíklegasta
tagi, og svo langt gekk að maður
nokkur talaði um fjölbreytta „dýra-
flóru“. Og þá finnst mér að rugling-
ur í náttúrunnar ríki sé kominn
yfir mörkin. Vafalaust hefur ein-
hver heyrt nefnda *mannaflóru.
Flóra (Flora) er kvenheiti bæði
hérlendis og erlendis, til mikilla
muna eldra með sumum útlendum
þjóðum. Gömlum konum í minni
sveit mislíkaði, þegar það var tekið
upp, og minnti þær á fjósverk, enda
óvanai' að sjá konur á borð við Floru
MacDonald eða Floru Robson, rétt
eins og sveitungi okkar Þorsteinn
Þraslaugarson „kenndi ekki hvað
fogli“ dúfan var í Ufsakirkju, af
því að hann var „óvanur að sjá
heilagan anda“.“
xxx
LOKS langar Víkveija til að
minnast á þær framkvæmdir,
sem undanfarið hafa verið í vinnslu
á Bústaðavegi á móts við verzlunar-
húsið Grímsbæ. Hann varð mjög
hrifinn af breikkun götunnar, því
stöðugar tafir hafa verið af bílum,
sem ekið er vestur götuna og hafa
ætlað að beygja inn á stæðið við
verzlunina. En svo gerðist það á
þriðjudag, að framkvæmdaaðilar
hófu að gera eyju á miðja götuna
og þrengdu þar með allt aftur og
eru nú, að því er Víkveija sýnist,
allar ummbætur fyrir bí. Skrítið er
hvernig menn geta misskilið gerðir
gatnamálayfirvalda. Að einhveijum
skyldi detta í hug að verið væri að
betrumbæta umferðina á þessum
stað?