Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Pg« bit.ist/etl f:
i, sérstaklepH
Ö grípandi. \v
★ Ó.H.T Rás
HASKOLABIO
SÍMI .552 2140
Háskólabíó
HTTP://WWW.
THE ARRIVAL.COM
KEÐJUVERKUN
Mikii m
★★★
X CereArtjie X
AKUREYRI
"TVV/
• W T O MAK
ERICAN O01LT
rTFCFTwC .Iflhar mynd
I >IU tUSI." 0 H.t Rlt J
★ ★★l/2
A.L MSL
Myncl Joel og
lCtlian Coen ,á
FARGr
Leikstjóri: Óskarsverölaunahafinn
Bille August (Pelle sigurvegari).
Sýnd kl. 6.15 og 9.15.
DANSKIR KVIKMYNDADAGAR I HASK0LABI0I
Dagana 26. september til 3. október.
Stórstjörnur Keanu Reeves (Speed) og Morgan Freeman
(Seven og Shawshank fangelsið) eru maettirtil leiks í öruggri
leikstjórn Andrew Davis (The Fugitive). HALTU ÞÉR FAST þvi
Keðjuverkun er spennumynd á ofsahraða.
Þú færð fá tækifæri til að draga andann.
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. b.i. 12.
Bara stelpa er epísk saga full af
ádeilu og háöi og fjallar um unga
stúlku viö upphaf síðari
heimstyrjaldar. Hún á í
stöðugum erjum við sinnulausa
móður og fordómafullan föður
sem hefur allt á hornum sér
varðandi framtíð dóttur sinnar.
Hana dreymir um að verða
blaðamaður en Heimsstyrjöld,
gifting og barneignir koma í veg
fyrir að hún geti látið þann
draum sinn rætast. Myndin er
byggð á ævi Lise Nörgaard sem
skrifaði m.a. sjónvarpsþættina
Matador sem sýndir voru í
sjónvarpinu við miklar vinsældir.
Sýnd kl. 8.
Dalvíkingar
um árangri
Þ- KNATTSPYRNULIÐ Dal-
víkur sigraði í 3. deild Islands-
mótsins í knattspyrnu og vann
sér um leið sæti í 2. deild að
ári, í fyrsta sinn í sögu félags-
ins. Þetta var jafnframt í fyrsta
skipti sem féjagið vinnur til
verðlauna á Islandsmótinu í
knattspyrnu. Það var því mikið
um dýrðir á Dalvík sl. laugar-
dag er knattspyrnuliðið kom
heim með bikarinn. Um kvöldið
var slegið upp veislu í Víkur-
röst og þangað kom fjölmenni
og samfagnaði knattspyrnu-
hetjunum, sljórnarmönnum og
mökum þeirra. Félaginu bárust
gjafir og kveðjur á þessum
tímamótum, m.a. peningagjafir
frá Dalvíkurbæ og Fiskmiðlun
Norðurlands. Ljósmyndari
Morgunblaðsins leit við í Víkur-
röst um kvöldið og tók þar
nokkrar myndir.
fyrir minni og meiri-
[ háttar gönguferðir.
Mikið úrval.
Verð frá
CHb. 6.900
■^L EIGANl
ÚTIVISTARBÚÐIIU
viö Umferðarmiðstöðina
Morgunblaðið/Kristján
SNORRI Finnlaugsson, framkvæmdastjóri KSI og fyrrum formað-
ur UMFS á Dalvík, lét sig ekki vanta í veisluna í Víkurröst. Snorri-
er lengst t.h. en með honum á myndinni eru Helga Níelsdóttir,
Sigríður Birgisdóttir, Eiríkur Helgason og Tómas Viðarsson.
VILHJÁLMUR Björnsson, íþróttafrömuður á Dalvík til fjölmargra
ára, t.v. ræðir við Rögnvald Skíða Friðbjörnsson, bæjarstjóra.
FORSVARSMENN helstu stuðningsaðila liðsins: Rögnvaldur Skíði
Friðbjörns, bæjarstjóri í Dalvík, Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts og Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Svarfdæla.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
. f
ATRIÐI úr kvikmyndinm Crymg Freeman.
Laugarásbíó sýnir mynd-
ina Crying Freeman
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafíð sýning-
ar á kvikmyndinni Ciying Freeman,
en heiti myndarinnar er jafnframt
gælunafna aðalpersónunnar sem
Marc Dacascos leikur. Leikstjóri er
Christopher Gans, sem einnig er
annar höfundur handritsins.
Myndin er byggð á sagnahefð
asískra þjóða um réttlæti, græðgi,
hefnd og valdþorsta. Ung kona,
Emu O’Hara, er stödd í San Fran-
cisco þegar hún verður vitni að af-
töku glæpamannsins Sonny Shimiz-
aki og tveggja lífvarða hans. Þeir
eru skotnir fyrir augum hennar af
manni sem reynir ekki að dylja and-
lit sitt og áður en hann hverfur af
vettvangi vindur hann sér að henni
og kynnir sig. Nafn hans er Joe,
gælunafn Crying Freeman. Emu á
eftir að komast að því að morðingj-
ar hinnar öfiugu hreyfingar, sem
kallar sig Syni Drekans, kynna sig
ætíð fyrir næsta fórnarlambi sínu.
Emu verður vitaskuld hrædd þrátt
fyrir að heillast af hinum miskunn-
arlausa morðingja og leitar ásjár
lögreglunnar sem veitir henni vernd
uns hún er komin aftur til heima-
borgar sinnar, Vancouver í Kanada.
Á meðan sver glæpaforinginn
Shudo Shimizaki, faðir Sonnys, þess
dýran eið að hann muni ekki una
sér hvíldar fyrr en morðingi sonar
hans sé fundinn. Hann kemst að
því að Emu varð vitni að morðinu
og talaði við morðingjann og í krafti
peninga sinna og valda tekst honum
að koma því til leiðar að Emu verð-
ur tálbeita hans eigin útsendara.
Þar með hefst ófyrirsjáanleg at-
burðarás sem felur í sér kyngimagn-
aða baráttu góðs og ills og afla sem
vart geta verið af þessum heimi.
Banderas og Griffith
eignast dóttur
Þ- HJÓNIN Melanie Griffith leik-
kona og leikarinn Antonio
Banderas eignuðust sitt fyrsta
barn saman, dótturina Stellu del
Carmen, síðastliðinn þriðjudag.
Móður og barni heilsast vel en
fæðingin átti sér stað á Costa
Del Sol spítalanum í Marbella á
Spáni. Barnið vó um 11 merkur
við fæðingu. Hún er þriðja barn
Melanie en fyrir á hún dóttur
með fyrrverandi eiginmanni sín-
um, Ieikaranum Don Johnson, og
einn son frá fyrsta hjónabandi
sínu. Þetta er fyrsta barn Bande-
ras en hann og Melanie kynntust
við töku myndarinnar „Two
Much“.