Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Sex hópar vald-
ir í lokað útboð
SEX hönnunarhópar hafa verið
valdir til þátttöku í lokuðu útboði
fyrir verkfræðihönnun vegna fyrir-
hugaðrar stækkunar á Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Ellefu hönnunar-
hópar sóttu um þátttöku í útboðinu.
Þeir sem valdir voru eru Almenna
verkfræðistofan hf., Fjarhitun hf.
og Rafhönnun hf., sem mynda einn
hóp. Verkfræðistofa Sigurðar Thor-
oddsen hf. er annar hópur og í þeim
þriðja eru Verkfræðistofan Línu-
hönnun hf., Verkfræðistofa Guð-
mundar og Kristjáns hf. og Verk-
fræðistofan Afl og Orka ehf.
í fjórða hópnum eru Ramböll,
Hannemann & Höjlund a/s, Verk-
fræðiþjónusta Magnúsar Bjarna-
sonar, Rafteikning hf., Forsjá hf.
og Strendingur hf. í fimmta hópn-
um er British Aerospace Consult-
ancy Services og í sjötta hópnum
eru Lahmeyer International GmbH,
Flughafen Frankfurt/Main AG
Airconsult, Verkfræðistofa Erlends
Birgissonar, Lagnatækni hf. og El-
tækni.
Auglýst innan EES
Forvalið var auglýst á evrópska
efnahagssvæðinu samkvæmt reglu-
gerð um innkaup ríkisins og lögum
um skipan opinberra ftamkvæmda.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
kemur fram að við val á hönnunar-
verktaka hafí verið tekið mið af
almennri reynslu og þeirri sérþekk-
ingu sem nauðsynleg er til þess að
geta leyst verkefnið vel af hendi.
Metin hafi verið reynsla af öðrum
sambærilegum verkum, aðstæðum
og fjárhagsstyrk fyrirtækjanna.
Víðiteigur - Mosfellsbæ
82 fm gott raðhús. Áhv. ca 5 millj. byggingarsjóður. Parket.
Góðar innréttingar. Verð 8,5 millj.
Upplýsingar hjá Valhúsum, fasteignasölu, sími 565 1122
eða í síma 565 3503 (Sverrir).
Til sölu í Hafnarfirði
Miðvangur 16: Mjög falleg og vönduð 97 fm 3ja-4ra herb.
íb. á 1. hæð. Parket. Suðursvalir. Góð lán.
Miðvangur 41: 57 fm falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð í lyftu-
húsi. Ekkert áhv. Laus strax. Verð 5 millj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
mrnrn
Glæsileg eign á góðum stað:
Steinhús ein hæð - stór bílskúr
Vel byggt og vel með farið um 160 fm. Getur verið 6-7 herb. (búð. Góður bíl-
skúr, rúmir 40 fm. Stór ræktuö lóð. Húslð stendur á einum besta útsýnisstað
i Norðurbænum I Hafnarfirði. Skipti möguleg.
Á Álftanesi óskast
einbýlishús eða raðhús um 160 fm auk bílskúrs. Traustur fjársterkur kaup-
andi.
Bakkar - Fossvogur - Garðabær
Raðhús með innb. bílskúr, ekki stórt, óskast fyrir traustan kaupanda. Rétt
eign verður staðgreidd.
• • •
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margskonar eignaskipti.
Viðskiptunum fylgir ráðgjöf
og traustar upplýsingar.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370
Ódýr og góð fyrirtæki
1. Myndbandaleiga (fjölmennu hverfi. Yfir 2000 myndbönd.
Fæst á ótrúlega góðu verði ef samið er strax. Hafið
samband.
2. Sérstakur söluturn, mikil issala. Mikil samlokusala sem hann
framleiðir sjálfur. Mikiö af eigln tækjum, mikil framlegð. Góð
staðsetning. Þekktur söluturn.
3. Dagsöluturn á Laugaveginum. Glæsilegur söluturn með
eðalvörur. Laus strax af sérsfökum ástaaðum. Góð fyrirvinna
í skemmtilegu umhverfi.
4. Gæludýraverslun á heitasta verslunarstað borgarinnar. Eigin
innflutningur. Skemmtlleg lifandi vinna. Selst á ótrúlega lágu
verði ef samiö er strax.
5. Lftil en vel tækjum búin blikksmiðja til sölu. Er þekkt og vel
staðsett. Laus strax. Mikil vinna framundan I þessari grein.
6. Og rúsinan í pylsuendanum. Söluturn við einn stærsta
unglingaskóla landsins og verið að byggja annan jafn stóran
við hliðina. Ótrúlegir möguleikar, mikll samlokusala.
(búðablokkir á bak við. Mikil velta. Verð aðeins 5 milljónir.
Upplýslngar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAIAN
SUÐURVERI
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Morgunblaðið/RAX
STARFSMENN Hellu- og varmalagna hf. leggja 4.000 fermetra af hellum og steypa
3.000 fermetra af gangstéttum í nýju Súðavík.
Nýja Súðavík
byggð upp
Kraftur hefur verið í uppbyggingu nýrrar
Súðavíkur í sumar. Fjöldi einstaklinga er
að flytja af snjóflóðasvæðinu og sveitarfé-
lagið hefur unnið að gatnagerð og frá-
gangi svæða. Helgi Bjamason
athugaði stöðu mála.
UNNIÐ hefur verið á öllum sviðum
við uppbyggingu nýrrar Súðavíkur
í sumar. A vegum sveitarfélagsins
hefur verið unnið við gatnagerð
og byggingu skólahúsnæðis og ein-
staklingar hafa verið að byggja sér
hús eða flytja úr gömlu Súðavík.
Hátt í hundrað menn voru að störf-
um á byggingarsvæðinu þegar
mest var í sumar, að mati Ágústs
Kr. Björnssonar sveitarstjóra.
Framkvæmdir á vegum sveitar-
félagsins eru langt komnar. Fyrir
löngu er lokið undirbyggingu allra
gatna og malbikun í öllu nýja þorp-
inu. Nú er verið að vinna við gang-
stéttir og bílastæði og við frágang
opinna svæða. Þá er verið að ganga
frá umhverfi viðbyggingar við
grunnskólann og sambyggðan nýj-
an grunnskóla. „Þetta hefur geng-
ið vonum frarnar," segir Agúst
sveitarstjóri.
Vel af sér vikið
Búið er að taka grunn að 51
íbúð. Til samanburðar má geta
þess að talið er að um 60 íbúðir
hafí verið í gamla þorpinu. „Ég
vona að fyrir jól verði hafín vinna
við 55 íbúðir og flutt inn í 37. Það
fer reyndar eftir veðráttunni í
haust," segir Ágúst. Þetta þýðir
að búa þarf í yfir 20 íbúðum í
gamla þorpinu í vetur. Telur sveit-
arstjórinn að flutningi þorpsins
verði nánast lokið næsta haust.
„Framkvæmdir hafa ekki getað
gengið hraðar. Þær komust seint
af stað þar sem það lá ekki fyrir
fyrr en í apríl hvemig Ofanflóða-
sjóður tæki á málum. Margir þorðu
því ekki að nota síðasta vetur til
undirbúnings og svo þegar allir
fóru af stað í vor þá var ekki
hægt að komast að hjá arkitekt-
um,“ segir Ágúst. Telur hann það
vel af sér vikið að vinna skuli haf-
in við þetta margar íbúðir. Segir
hann réttlætanlegt að fólk, sem er
í miðri framkvæmd við að flytja
sig í nýtt hverfi þegar veturinn
skellur á, fái að búa í sínum gömlu
húsum, það sé annað en að flytja
nýtt fólk í þessi hús. Bendir hann
á að síðasta vetur hafi verið búið
í flestum heilu húsunum í gömlu
Súðavík. Segist Ágúst hafa traust
á þeim vinnureglum sem mótaðar
hafi verið um rýmingu húsa.
Ekki búmannlegt
Hreppsnefnd Súðavíkur hefur
ekki mótað stefnu um notkun heilla
húsa á snjóflóðasvæðinu. Ágúst
segir að nýting þeirra sé háð sam-
þykki umhverfisráðuneytis og
muni hreppsnefndin gera tillögu
þar að lútandi. „Sumt þarf að rífa
en það er ekki búmannlegt að
bijóta niður stærstu steinhúsin,"
segir Ágúst. Nokkur eftirspum
hefur verið eftir þeim fyrir sumar-
hús og segist Ágúst ekki telja það
óskynsamlega nýtingu húsa á
þessu svæði.
Ofanflóðasjóður hefur greitt eig-
endum þeirra húsa sem skemmd-
ust eða eyðilögðust í snjóflóðunum
svokallaðar mismunarbætur og
hefur þar með eignast grunnana
og lóðarréttindi. Agúst segir að
eftir sé að ganga frá samningi við
einn húseigandann. Að því búnu
verði gengið í það að hreinsa svæð-
ið og því eigi að ljúka í vetur.
Félag íslenskra landslagsarki-
tekta hefur ákveðið að gefa sveit-
arfélaginu skipulag að minningar-
reit á þessu svæði. Nú stendur
yfir samkeppni um hönnun svæðis-
ins og verður gengið frá því næsta
sumar með tilliti til uppsetningar
minningarreitsins, að sögn sveitar-
stjórans.
Ofviða
sveitarsjóði
10% hlutur Súðavíkurhrepps í
uppkaupum húsa á snjóflóðasvæð-
inu í gömlu Súðavík nemur 53
milljónum kr. Hreppurinn samdi
við húseigendur að greiða þeim
sinn hlut í árslok. Ágúst segir það
gjörsamlega ofviða hreppnum að
greiða þessar upphæðir. Bendir
hann á að árlegar tekjur sveitar-
sjóðs séu 32-35 milljónir kr. Hann
segist hafa látið gera langtíma-
áætlun með ýmsum forsendum og
hún sýni að hreppurinn ráði ekki
einu sinni við 3% kostnaðarhlut-
deild í uppkaupunum.
Bindur hann vonir við að þessu
verði breytt við boðaða endurskoð-
un laga í haust. Ljóst er að hafa
þarf hraðar hendur ef breyta á
lögum því 53 milljónirnar falla á
hreppinn fýrir áramót.
Næg vinna hefur verið í Súða-
vík. Hins vegar segir Ágúst sveit-
arstjóri að mikil spenna sé í loft-
inu. Allir íbúarnir séu uppteknir
við að koma sér þaki yfir höfuðið
og í það fari öll orka þeirra og
fritími. Segist hann vona að næsta
sumar eða haust geti lífið í þorpinu
farið að komast í eðlilegt horf.