Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Föðurbróðir minn, GUÐNI LÚTHER SALOMONSSON, Sandholti 14, Ólafsvík, lést í St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi 30. september sl. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnheiður Helgadóttir. Faðir okkar, EINAR ÁRNASON, fyrrverandi flugstjóri og útgerðarmaður, andaðist á heimili sínu 29. september sl. Börn hins látna. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN BREIÐFJÖRÐ vélstjóri, Unufelli 33, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala að morgni 30. september. Guðjón Kristjánsson, Þórður Hreinn Kristjánsson, Anna Sch. Jóhannesdóttir, Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir, Ingólfur Benediktsson og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL HÓLM MAGNÚSSON, sem lést hinn 25. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskap- ellu fimmtudaginn 3. október kl. 13.30. Ósk Axelsdóttir, Guðmundur Skarphéðinsson, Þórir Axelsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, HALLGRÍMUR KRISTGEIRSSON bifreiðastjóri, Frostafold 5, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 4. október kl. 15.00. Blóm ög kransar vinsamlega afþökkuð en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, símar 588 7555 og 588 7559. Ásthildur Aðalsteinsdóttir, Hörður Magnússon, Elísabet I. Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Búi Harðarson, Kristín Ásta Harðardóttir, Hallgrfmur Þór Harðarson, Gunnar Pétur Harðarson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA BJARNADÓTTIR, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, að morgni 19. september sl. Útför hennar hefur farið fram f kyrrþey að ósk hinnar látnu Starfsfólki dagvistunar aldraðra á Hrafnistu í Hafnarfirði eru færð- ar alúðarþakkir fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót við hina látnu. Jafnframt er þökkuð auðsýnd samúð. Fyrir hönd aðstandenda. Ragna Ester Guðmundsdóttir, Símon S. Sigurjónsson, Bjarni Rafn Guðmundsson, Guðrún Elsa Guðmundsdóttir Flores, Alexander Flores, Grétar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna útfarar ALFREÐS GUÐMUNDSSONAR, heiðursfélaga Húseigendafélagsins, verður skrif- stofa félagsins lokuð í dag, miðvikudaginn 2. október 1996. ARNA STEINÞÓRSDÓTTIR + Arna Steinþórs- dóttir fæddist í Reykjavík 4. maí 1958. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 22. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Asta H. Har- aldsdóttir, húsmóð- ir, og Steinþór I. Nygaard, lögreglu- varðsljóri í Reykja- vík. Bróðir hennar, Erlendur Stein- þórsson, f. 1959, er verkfræðingur og býr í Bandaríkjunum. Arna giftist Andrési Reyni Ingólfs- syni árið 1981. Börn þeirra eru: Asa, f. 1980, Arnþór Ingi, f. 1987, og Auður Ásta, f. 1989. Utför Ornu fer fram frá Bessastaðakirkju í dag og hefst klukkan 13.30. Elsku mamma mín. Nú er þinni baráttu lokið og er það viss léttir að vita að þér líður betur og þjáningarnar eru horfnar. Elsku mamma mín, fleiri verða stundirnar því miður ekki og verður þín sárt saknað. Þó nú sé sorg, tár og tregi tómlegt allt nú sé um stund, þá lifir minning björt sem blóm á sumardegi um blíða móður sem horfin er á Guðs síns Þín dóttir, Ása Andrésdóttir. Sumarið er að kveðja, laufin tekin að falla og vetur að ganga í garð. Minningar sumarsins hrannast upp eftir gott og gleðilegt sumar. Þær falla þó fljótlega í skugga þeirra sorglegu frétta að frænka okkar hún Arna hafi látist skyndilega af veik- indum sínum. Það er eins og tíminn standi í stað og hugsanir eins og: Hvernig getur lífið verið svona óréttlátt og miskunnarlaust að ung kona, móðir þriggja ungra barna, sé kvödd brott úr þessu lífi? sækja á hugann. Skuggi sorgar og tómleika breið- ist yfir líf ættingja og vina, sem standa eftir með minningar um góða konu. Örnu fylgdi ætíð ljós og gleði, ijölskyldan ætíð í öndvegi og börnin hornsteinn tilverunnar, enda áttu börn stóran þátt í lífi Örnu. Lífið var helgað þeim eftir nám í uppeldis- fræðum og er missir barnanna á dagheimilinu í Bessastaðahreppi stór. Hraði og einfaldleiki hversdags- leikans verður til þess að tími til ræktunar fjölskyldu- og vinabanda verður oft lítill og eftirsjáin eftir fleiri samverustundum verður stór. Minningar um þær samverustundir sem við áttum saman verða þó enn verðmætari og verða vel varðveittar í huga okkar sem eftir lifum. Elsku Ása, Arnþór Ingi og Auður Ásta. Sorgin og söknuðurinn eru mikil enda móðurmissirinn stór, en ferðin og áfangastaður móður ykkar er ferðin til Guðs og gisting í kær- leiksríku samneyti við hann á himn- um. Þar mun hún vaka og leiða ykkur á lífsleiðinni eins og hún ætíð gerði. Andrés, Ásta, Stein- þór og Erlendur. Vegir Guðs eru órannsakan- legir, en allir liggja þeir að ákveðnum áfanga- stað. Áfangastaður og verkefni Örnu eru merkilegri en margra okkar þar sem kallið kemur efir svo skamma viðveru í þessu lífi. Verkefninu hér hefur hún skilað og skilur eft- ir skyldur handa ykkur sem hún hefur treyst ykkur fyrir. Arna, við óskum þér góðrar ferðar til samneytis við Guð almáttugan, sem mun varðveita þig og þína fjölskyldu um aldur og ævi. Kveðja. Júlíus Jóhannesson og fjölskylda, Kaupmannahöfn. Fagurgrænt lauf sumarsins er að fölna um leið og elskuleg tengda- dóttir okkar Arna Steinþórsdóttir kveður okkur svo allt of fljótt. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð þú vaktir yfir velferð barna þinna þú vildir rækta þeirra ættaijörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. Hvað fær betur lýst Örnu okkar en þessar ljóðlínur skáldsins frá Fagraskógi. Það er svo erfitt að horfast í augu við það að Arna sé horfin okkur. Hún sem átti svo margt ógert. Hún vakti yfir velferð barna sinna og uppskar samkvæmt því. Við áttum það saman sem við unn- um mest. Ást okkar til barnanna rann í sama farveg. Sársaukinn virðist óbærilegur en í hryggð okk- ar nú lyftum við hjörtum okkar til Guðs og biðjum um styrk. Leitum hans í einlægri bæn og efumst ekki um náð hans. Margs er að minnast sem aldrei verður tjáð með orðum en geymist í sjóði minninganna. Við vitum að vel hefur verið tekið á móti henni á nýju tilverustigi og hún umvafin birtu og hlýju. Elsku Andrés okkar, Ása, Arnþór Ingi, Auður Ásta, Steinþór, Ásta, Erlendur og aðrir ástvinir, ykkar sorg er mikil. Við biðjum góðan Guð að gefa ykkur styrk og hugg- un. Hafið hugfast að þó sólin sé dimm núna þá birtir upp um síðir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ragnhelður og Ingólfur. Öll finnum við fyrir fallvaltleika lífsins þegar við kveðjum vini sem falla frá fyrir aldur fram. Þannig var mér innanbijósts við andlátsfrétt Örnu. Það var fyrir 12 árum að leiðir okkar Örnu lágu saman. Við hjónin vorum nýflutt á Álftanesið, Arna og Andrés að búa sér heimili í næsta t Elskulegur bróðir minn, INGÓLFUR HAFBERG, Hrafnistu, Reykjavík, áður Laugavegi 12a, sem lést 24. september í Landspítalan- um, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni fimmtudaginn 3. október kl. 15.00. Áslaug Hafberg. húsi. Það var þá sem ég eignaðist gersemar, vináttu Örnu. Aldrei hafði ég kynnst konu sem var eins góð- hjörtuð og tillitssöm í garð þeirra sem hún umgekkst, alltaf boðin og búin að aðstoða ef með þurfti. Málshátturinn „sælla er að gefa en þiggja" lýsir Örnu einna best. Arna var kona með stórt hjarta, full samúðar með þeim sem minna máttu sín. Hún var barngóð af með- fæddri eðlishvöt og hún gaf börnum nægan tíma, sem er kannski það dýrmætasta sem börnum er gefið. Börnin mín reyndu það, og ég sá það á öðrum jafnt skyldum sem óskyldum börnum, að gæska hennar og tryggð varð óviðjafnanleg. Arna var skemmtilegur og góður félagi. Arna lauk námi frá Fóstruskóla íslands og starfaði nú síðast á leik- skólanum Krakkakoti og veit ég að hennar er sárt saknað þar. Það voru óskrifuð lög að einu sinni á ári fóru fjöiskyldurnar saman í útilegu. Fyrir nokkrum árum höfðu Arna og Andr- és lokkað okkur hjónin til að koma í Galtalæk um verslunarmannahelgi. Þetta var ótrúlega skemmtileg helgi, og hún rædd af og til um veturinn af krökkunum. Afráðið var að endur- taka þetta að ári. Þessar ferðir urðu síðan fastur liður í samveru okkar. Það eru ekki margir mánuðir síð- an Arna veiktist. Hún ræddi veikindi sín við mig í vor, og sá ég þá hversu sterk og yfirveguð hún var, þó henni væri brugðið. Hún tók veikindum sínum með æðruleysi og þakkaði fyrir hvern dag sem hún fékk með fjölskyldu sinni, ættingjum og vin- um. En við stjórnum ekki lífsklukk- unni og skiljum ekki alltaf tilgang hennar. Elsku Arna, guð og englar hans blessi þig og ég vil með þessum fáu orðum þakka fyrir að hafa fengið að vera þér samferða um skeið. Andrés minn, Ása, Arnþór Ingi, Auður Ásta og ástvinir allir, megi guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. María. Það er erfitt að sætta sig við að kveðjustundin sé komin, svona alltof fljótt. Það var svo margt sem við áttum eftir að gera saman. Ég minnist dagsins sl. vetur þegar ég sat með þér niðri á Landspítala og þú fórst í fyrstu rannsóknirnar. Á milli þess sem læknar komu og spurðu þig spurninga og gerðu á þér próf, reyndum við að halda uppi sæmilega léttu spjalli þó undir niðri værum við báðar hræddar við niður- stöðurnar frá læknunum, hveijar þær yrðu. Næstu daga á eftir sem þú varst inni á spítalanum var sam- úð þín hjá hinum sjúklingunum, þér þótti hræðilegt að sjá hvernig sjúk- dómar gátu farið með fólk, en þér fannst ekkert að þér miðað við alla hina. Enda hafðir þú það fljótlega í gegn að fara heim, koma frekar inn ef einhver breyting yrði eða til að fara í rannsóknir. í þau 24 ár sem við höfum verið vinkonur var komið víða við, en dansinn sem tengdi okkur fyrst sam- an skipaði lengi vel stóran sess. Það var einnig í gegnum dansinn sem Andrés kom til sögunnar fyrir 20 árum. Hann var ekki lengi að sjá út hvaða konu hann ætlaði sér og fór mjög varlega af stað, því ekkert skyldi fara úrskeiðis. Arna hafði auðvitað líka verið búin að reikna þennan mann út. Það voru stoltar vinkonur sem eignuðust sín fyrstu börn árið 1980, og leið varla sá dagur að við ekki töluðum saman í síma eða hittumst til að bera saman bækur okkar. Þar sem Ása er ijórum mánuðum eldri en Eggert Þór kom það í Örnu hlut að svara spurningum mínum því hún hafði reynsluna. Hún átti alltaf ráð við öllu, var aldrei í vandræðum eða að velta fyrir sér smáatriðum. Alltaf gengið hreint og ákveðið til verks. I útilegum sem við fórum í var veðr- ið ekki alltaf eins og pantað, en þá kvað við hjá Örnu: „Hvaða máli skiptir hvernig veðrið er, taka bara með regngalla og stígvél." Hún lét ekkert koma sér úr jafnvægi, ekki einu sinni þessa sex mánuði sem hún barðist við aukaverkanir vegna lyfs sem hún varð að taka. Eftir notalegt sumar heima með krökkunum og búin að taka til í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.