Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
\
I
Nýjum verðbréfasjóðum Kaupþings í Lúxemborg vel tekið
Áskriftír skipta
hundruðum milljóna
FJÁRFESTAR höfðu í gær lagt
fram óskir um kaup á hlutdeildar-
skírteinum í hinum nýju verðbréfa-
sjóðum Kaupþings í Lúxemborg
fyrir nokkur hundruð milljónir
króna, að sögn Sigurðar Einars-
sonar, starfandi forstjóra. Fyrir-
tækið kynnti þessa nýju sjóði á
mánudag, en formlega hefst
skráning á gengi þeirra í kauphöll-
inni í Lúxemborg þann 14. októ-
ber.
„Það hefur verið gríðarlega
mikið um fyrirspurnir og margir
hafa óskað eftir gögnum," sagði
Sigurður í samtali við Morgun-
blaðið. „Þetta fer mun betur af
stað en við áttum von á.“
Kaupþing mun í fyrstu starf-
Ekki er vitað til
að önnur verð-
bréfafyrirtæki
hafi áform um
starfsemi erlendis
rækja tvo verðbréfasjóði í Lúxem-
borg en stefnt er að því að fjölga
þeim í fimm þegar fram líða stund-
ir. Sigurður sagði að ef framhald
yrði á þessum góðu viðtökum yrði
settur á stofn sjóður innan tíðar
sem myndi fjárfesta eingöngu ís-
lensku verðbréfum. Hins vegar
hefðu þeir tveir sjóðir sem nú
væru í boði heimildir til að hafa
allt að 40% af eignum sínum í ís-
lenskum verðbréfum, en það réðist
af markaðsaðstæðum hvernig sú
heimild yrði nýtt.
Margir kostir til skoðunar
Ekki er vitað til þess að önnur
íslensk verðbréfafyrirtæki hafi
uppi áform um að setja á stofn
fyrirtæki erlendis til að starf-
rækja verðbréfasjóði með hlið-
stæðum hætti og Kaupþing.
Gunnar Helgi Hálfdanarson, for-
stjóri Landsbréfa, vildi lítíð tjá sig
um þetta mál, en sagði þó að
margir kostir væru til skoðunar
hjá fyrirtækinu, m. a. hugsanleg
starfsemi erlendis.
mJ| ipl mest seldu fólksbíla-
\ tegundirnar í
J JJ/jan.- sept. 1996 fyrra ári
Fjöldi % %
1. Tovota 1.265 19,7 +14,0
2. Volkswaqen 828 12,9 +40,1
3. Nissan 583 9,1 -16,8
4. Hvundai 506 7,9 +4,1
5. Subaru 431 6,7 +84,8
6. Suzuki 414 6,5 +116,9
7. Mitsubishi 397 6,2 +78,1
8. Opel 374 5,8 +34,5
9. Ford 294 4,6 +245,9
10. Renault 268 4,2 +20,2
11. Honda 152 2,4 +90,0
12. Volvo 123 1,9 -33,9
13. Masda 114 1,8 +5,0
14. Skoda 106 1,7 -13,6
15. Lada 79 1,2 -34,2
Aðrar teg. 479 7,5 +20,4
Samtals 6.413 100,0 +24,8
Þriðjungsaukning í september
Liðlega þriðjungi fleiri nýir fólksbílar seldust í nýliðnum september-
mánuði en í sama mánuði í fyrra eða 678 samanborið við 497.
Þá hafa selst hátt á þrettánda hundrað fleiri fólksbílar fyrstu níu
mánuðina í ár en á sama tímabili í fyrra eða 6.413 samanborið við
5.140 á síðasta ári. Mest seldist af Toyotu í september 128 bílar,
en síðan af Volkswagen, 102 bílar, 70 af Mitsubishi, 59 af Nissan
og 52 af Hyundai. Það sem af er ársins hefur mest selst af Toyotu
bifreiðum eða 1.265 bílar og síðan af Volkswagen 828.
VSÍ vill að verðbreytingastuðull
taki mið af lánskjaravísitölu
VINNUVEITENDASAMBAND ís-
lands (VSÍ) hefur óskað eftir því við
stjórnvöld að verðbreytingastuðull
skattalaga verði látinn taka mið af
lánskjaravísitölu í stað byggingavísi-
tölu og að sú breyting gildi fyrir
skattuppgjör vegna yfirstandandi
reikningsárs. Telur sambandið að
án breytinga muni skattuppgjör
margra fyrirtækja verða langt um-
fram almennar verðlagsbreytingar
og mynda óeðlilega háan skattstofn.
í bréfi, sem VSÍ hefur sent fjár-
málaráðherra, er athygli hans vakin
á skattalegum áhrifum þeirrar
ákvörðunar Alþingis sl. vor að lækka
endurgreiðslu virðisaukaskatts af
vinnu iðnaðarmanna við nýbygging-
ar og viðhald íbúðarhúsnæðis úr
100% í 60%. í bréfinu segir að þessi
ákvörðun hafi valdið því að bygging-
arvísitala hækkaði um 3,3% í júlí-
mánuði og haft tilefnislaus áhrif á
fjölda samninga, sem tengdir voru
vísitölunni í heild eða launaþætti
hennar. Vísitalan hafi hækkað um
5,8% á tímabilinu janúar til septem-
ber og sé útlit fyrir að hækkunin
nemi 6,1-6,2% mælt frá janúar 1996
til janúar 1997. Almennar verðbreyt-
ingar, mældar með vísitölu neyslu-
verðs, verði hins vegar að öllum lík-
indum 2,4% þannig að misgengi
þessara vísitalna verði tæp 4% á
áripu.
I bréfi VSI segir að þar sem pen-
ingalegar skuldir séu umfram eignir
hjá flestum fyrirtækjum í fram-
leiðslu, verslun og þjónustu muni að
óbreyttu myndast tekjufærsla við
skattalegt uppgjör, sem sé langt
umfram almennar verðlagsbreyting-
ar og mynda skattstofn. Afkoma
fyrirtækja verði því ofmetin sem
þessu nemi. „Þetta er að sjálfsögðu
fullkomlega óviðunandi og ekki í
samræmi við þann tilgang laganna
um að færa einungis raunvexti til
tekna eða gjalda," segir í bréfinu.
Tvær leiðir mögulegar
VSÍ óskar nú eftir því að ráðherra
beiti sér fyrir nauðsynlegum laga-
breytingum á haustþingi svo ekki
komi til þessara áhrifa vegna endur-
greiðslu skattsins og er bent á tvær
leiðir í því sambandi. Annars vegar
sé hægt að ná þessu markmiði með
beinum lagafyrirmælum um að við
útreikning verðbreytingastuðuls
skuli að þessu sinni ekki tekið mið
af framangreindum breytingum.
Þetta sé þó hæpin leið því margt
bendi til þess að byggingarvísitalan
sé ekki heppilegur mælikvarði á
verðlagsbreytingar, þar sem hún
taki mjög mið af taxtabreytingum
af ýmsum toga en ekki endilega
raunverulegum breytingum á verð-
lagi. _
VSI mælir hins vegar eindregið
með því að verðbreytingastuðull
skattalaga verði látinn taka mið af
lánskjaravísitölu í stað byggingar-
vísitölu og að sú breyting gildi fyrir
skattuppgjör vegna yfirstandandi
reikningsárs. í því skyni sé brýnt
að breyta Iögum um tekju- og eign-
arskatt á þá leið að í stað byggingar-
vísitölu innan ársins verði miðað við
lánskjaravísitölu enda heyri raun-
vaxtaútreikningur á grundvelli
byggingarvísitölu liðinni tíð. Láns-
kjaravísitala fylgi nú breytingum á
vísitölu neysluverðs og sé þannig
mun áreiðanlegri mælikvarði á
breytingar á verðmæti peningalegra
eigna og skulda.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞEIR Frede E. Pedersen, forstjóri 3M í Danmörku, Jan Wenn-
er, kynningarstjóri og Lars Mathiesen, gæðastjóri eru staddir
hér í tilefni af vörusýningu 3M.
Vörusýning hjá 3M
Stóraukið samstarf á sviði ferðaþjónustu
Norræn mark-
aðssókn í
Bandaríkjunum
7,1% meðal-
ávöxtun
ríkisvíxla
MEÐALÁVÖXTUN ríkisvíxla var
7,1% í útboði Lánasýslu ríkisins í
gær og er það um 0,6 prósentu-
stiga hækkun frá því í síðasta
útboði í byijun ágúst.
Alls bárust 4 gild tilboð að fjár-
hæð 1.805 milljónir en tekið var
tilboðum fyrir 1.205 milljónir. Þar
af tók Seðlabanki íslands tilboðum
að fjárhæð 400 milljónir á meðal-
verði samþykktra tilboða. Næsta
útboð ríkisverðbréfa er útboð á
ríkisbréfum miðvikudaginn 9.
október nk.
------» ♦ ♦-----
Teknir
vegna njósna
um VW
Frankfurt. Reuter.
TVEIR Þjóðveijar eru í haldi lög-
reglu og hafa viðurkennt að hafa
komið fyrir ljósmyndavél á til-
raunabraut Volkswagen bifreiða-
verksmiðjanna og selt bílaritum
ljósmyndir.
Mennirnir eru 39 og 44 ára og
ónafngreindir. Þeir voru ekki
starfsmenn Volkswagens eða
keppinauta fyrirtækisins að sögn
Eckehards Niestrojs saksóknara
þegar hann skýrði frá árangri
rannsóknar í einhveiju mesta
iðnnnjósnamáli sem um getur í
Þýzkalandi.
Upp komst um málið þegar
maður í Suður-Þýzkalandi benti
lögreglu á mann í Stárnberg í Saar
sem hefði sérþekkingu á hátækni-
legum ljósmyndabúnaði og væri
tíður gestur á tilraunabrautum
þýzkra bifreiðaframleiðenda.
Eldri maðurinn viðurkenndi að
hafa játað að hafa komið ljós-
myndavélinni fyrir og tekið ljós-
myndir af frumgerðum VW-bif-
reiða, en hinn hefur ekkert viljað
um málið segja.
Báðir mennirnir gáfu sig fram
við lögregluna þegar rannsókn var
hafin í málinu og þeir eru hafðir í
gæzluvarðhaldi til að koma í veg
fyrir að þeir breyti sönnunargögn-
um.
VW tilkynnti í ágúst að fundizt
hefði háþróuð Ijósmyndavél á til-
raunabraut bílaverksmiðjanna í
Ehra-Lessin.
ALÞJÓÐLEGA fyrirtækið 3M
stendur nú fyrir vörusýningu á
Hótel Loftleiðum þar sem kynnt
eru sýnishorn af framleiðsluvör-
um fyrirtækisins. 3M framleiðir
ótal vöruflokka eða allt frá gul-
um minnismiðum til skurðlækn-
ingatækja. Um síðustu áramót
varð sú breyting að í stað eins
umboðsmanns hérlendis voru
valdir 13 aðilar, hver á sínu sviði
til að annast sölu á vörum frá
3M. Þetta hefur skilað sér í því
að salan hefur verið um tvöfalt
meiri það sem af er árinu en á
sama tímaífyrra.
Sýningunni lýkur í dag, en í
tengslum við hana hafa verið
haldin fjölmörg námskeið og fyr-
irlestrar. í tilefni af sýningunni
eru staddir hérlendis um 30 sér-
fræðingar fyrirtækisins ásamt
forstjóra 3M í Danmörku.
3M hefur fulltrúa í 61 landi
og nemur heildarveltan liðlega
13 milljörðum dollara á ári.
Fyrirtækið Ieggur mikla áherslu
á þróunarstarf og ver yfir 7%
af veltu sinni til þróunar og rann-
sókna.
FERÐAMÁLAYFIRVÖLD á Norð-
urlöndunum hafa sett á stofn
hlutafélag í Bandaríkjunum,
Scandinavian Tourism Incorporati-
on til að vinna að sameiginlegum
kynningarmálum, upplýsingagjöf
og markaðsmálum landanna í
ferðaþjónustu á Bandaríkjamark-
aði.
Að sögn Magnúsar Oddssonar,
ferðamálastjóra, verður allt sam-
eiginlegt markaðsstarf Norður-
landanna í Bandaríkjunum stór-
aukið og er gert ráð fyrir að á
næstu þremur árum verði um 500
milljónum króna varið til þessa
verkefnis á vegum fyrirtækisins.
Er hér um að ræða stóraukna starf-
semi frá því sem verið hefur. Fjár-
magninu verður varið til aukinnar
upplýsingagjafar, beinna auglýs-
inga, aukinna samskipta við sölu-
aðila, fjölgunar fjölmiðlaheim-
sókna og fleiri þátta.
ísland greiðir 7%
Eignarhlutur Islendinga í fyrir-
tækinu er 20%, en samningar tók-
ust um að ísland greiði 7% af heild-
arkostnaði þar sem tekjur landsins
af þessu svæði eru hlutfallslega
minni en hinna Norðurlandanna.
Hlutur íslands verður íjármagnaður
með framlagi frá Ferðamálaráði
íslands og Flugleiðum.
Magnús leggur áherslu á að með
þessu nýja fyrirtæki sé verið að
auka við núverandi markaðsstarf
íslands í Bandaríkjunum. Skrifstofa
Ferðamálaráðs í New York mun
halda áfram hliðstæðu starfi og
verið hefur, auk þess sem starfsemi
Flugleiða hefur verið að aukast á
undanförnum misserum samhliða
stórauknu framboði flugsæta frá
Bandaríkjunum til íslands. Stjórn
félagsins skipa sex menn og er
Magnús fulltrúi íslands.
I
I
I
I
(
(
<
(
(
(
(
(
j«
<
(
(
N
(
i
%
i
í
í
I
-