Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 19 Reuter Reiði í garð Japana TVEIR Tævanir hrópa slagorð gegn Japönum í Taipei en fyrir ofan þá getur að líta mynd af David Chan frá Hong Kong, sem drukkn- aði fyrir helgi er hann mótmælti byggingu vita á eyjum í Kínahafi sem Japanir, Kínverjar og Tævanir deila um. Eyjarnar kallast Diaoyu á kínversku en Senkaku í Japan. Li Peng, forsætisráðherra Kína, sagði á mánudag að Japanir hefðu grafið undan samskiptum Kín- veija og Japana með byggingu vitans. Þá köiluðu kínversk yfirvöld japanska sendiherrann á sinn fund vegna láts Chans. Boða sænskt sýndarfangelsi Stokkhðlmi. Rcutcr. SVÍAR verða um áramót fyrsta þjóð- in sem gefur föngum um allt land kost á því að afplána styttri dóma heima, undir rafrænu eftirliti, í nokkurs konar sýndarfangelsi. Gerð hefur verið tilraun með slíkan búnað í tvö ár í sex umdæmum og hefur hún gefið svo góða raun að ákveðið hefur verið að hún nái til landsins alls. Segja fangelsinsyfirvöld ávinn- inginn þann að mun minni kostnaður fylgi eftirlitinu en fangavist, auk þess sem fangarnir kynnist síður síbrotamönnum og því minnki hætt- an á því að þeir leiðist út í afbrot að nýju. Um er 'að ræða búnað sem festur er við ökkla fangans, til að hægt sé að fylgjast með ferðum hans. Þá er fanganum sett nákvæm stundatafla, sem hann verður að fylgja, annars fer aðvörunarbúnaður í gang. Svíar eru ekki eina þjóðin sem hefur gert tilraunir með eftirlitsbún- aðinn; Bretar, Hollendingar, Banda- ríkjamenn og Kanadamenn hafa einnig reynt hann en eru ekki komn- ir eins langt á veg og Svíar. Þar í landi hefur búnaðurinn verið reyndur á um 700 föngum en tilraunin hófst í ágúst 1994 og stóð til boða föngum sem hlotið höfðu tveggja mánaða dóma eða styttri. Dæmi um fangann er Axel, 21 árs vélvirki, sem hlaut tveggja mán- aða dóm fyrir að keyra undir áhrifum áfengis. Hann fer til vinnu kl. 8.15 og kemur heim kl. 17.45 síðdegis. Um helgar má hann vera úti eina klukkustund á dag. Víki hann frá þessari stundatöflu, fer aðvörunar- bjalla í nálægri eftirlitsstöð í gang og hann hættir á það að verða að ljúka afplánun í fangelsi. Svo fremi sem hann fylgir áætluninni, getur hann stundað vinnu, og þó það geti verið erfitt að líta ekki af klukk- unni, segir hann það betra en að sitja inni. Rúmur helmingur fanganna í til- rauninni afplánaði dóm fyrir svipuð afbrot og Axel, ölvunarakstur. 17% höfðu hlotið dóm fyrir líkamsárás og afgangurinn fyrir þjófnaði, fjár- svik, brot á eiturlyfjalöggjöf, fjár- drátt og fyrir að neita að gegna herskyldu eða annarri samfélags- þjónustu. Nú íhuga fangelsisyfirvöld að bjóða föngum með þriggja mánaða dóm eða minna að afplána hann undir eftirliti, en það eru um 5.000 manns. Gangi það vel, kann að vera að menn með allt að eins árs dóm eigi þess kost að afplána hann heima, en það eru um 85% þeirra sem sitja í sænskum fangelsum. Þessi nýjung kann því þegar fram líða stundir, að leiða til þess að hægt verður að loka fangelsum. Nú þegar 90 ór cru li?>in tré því ah sœsími var lagbur til landsins og Landssími íslands 13:00 Ávarp samgönguráðherra Halidórs Blöndal 13:10 Staða fjarskipta á íslandi í dag Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri 13:30 Frá ríkisrekstri yfir í hlutafélag Frá einkaleyfi til opinnar samkeppni Tormod Hermansen, forstjóri Telenor, Noregi 14:10 Framtíðin Guðjón Már Guðjónsson, stjórnarformaður Oz 14:25 Fjarskiptatæknin í fyrirtækjarekstri Símon Kristjánsson, deildarstj. fjarskiptasv. tölvud. Flugleiða 14:40 Netvædd margmiðlun Örn Orrason, verkfræðingur, Kerfisverkfræðistofu Háskóla íslands 15:00 Kaffiveitingar 15:30 Internetll Jan Snygg, Ericsson, Svíþjóð 16:10 Samruni tölvu-og símatækni Frosti Bergsson, forstjóri Opinna kerfa 16:25 Opnar umræður frummælenda og annarra fundarmanna 17:00 Ráðstefnuslit Fundarstjóri: Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Scandic Hótel Loftleiðir 7. október 1996, kl. 13:00 Skráning er hafin í síma 550 6003 Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis tók til starfa, cfnir Póstur og sími til ró&stefnu um fjar- skiptaþróun. POSTUR OG SIMI Eitt blað fyrir alla! JRovDvmhlatiiti - kjarni málsins! AUSTURSTRÆTI 9 SlMI 561 8555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.