Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Um 25 starfsmönnum Strytu og Söltunarfélags Dalvíkur sagt upp störfum Engin vaktavinna í rækjuvinnslunni STRYTA hf. á Akureyri og Söltun- arfélag Dalvíkur hf., dótturfyrir- tæki Samheija hf., hafa sagt upp vaktavinnusamningi starfsmanna í rækjuvinnslu fyrirtækanna. í kjöl- farið hefur alls um 25 starfsmönn- um fyrirtækjanna beggja verið sagt upp störfum frá 1. október. Upp- sagnarfrestur starfsmanna er mis- langur en allt að 6 mánuðir. Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Strýtu, segir að vaktavinnu í rækjuvinnslu fyrir- tækjanna verði hætt í byijun nóv- ember og fari ekki af stað aftur fyrr en á fyrri hluta næsta árs. Hann segir nauðsynlegt að minnka framboð á rækju á mörkuðum og því þurfi að draga úr framleiðslu. Nauðsynlegt að draga úr veiði „Jafnframt er nauðsynlegt að draga úr rækjuveiðum því ef veiðin fyrstu 6 mánuði þessa fiskveiðiárs verður jafn mikil og á sama tíma- bili í fyrra hrynur rækjuvinnslan alveg og yrði mjög lengi að ná sér á strik aftur. Það verður því að fresta veiðinni fram á seinni hluta fiskveiðiársins," segir Aðalsteinn. Hann segir að ástandið í rækj- unni geti hugsanlega lagast þegar líður fram á næsta ár en á meðan mestu verðlækkanir á rækjuafurð- um ganga yfir sé nauðsynlegt að draga úr vinnslu. Vaktavinna hefur verið við lýði í rækjuvinnslu Söltun- arfélagsins og Strýtu síðustu ár og segir Aðalsteinn að þeim samning- um hafi ekki verið sagt upp áður. Erum að kaupa miklu minna magn Fyrirtækin hafa keypt árlega um 9.000 tonn af rækju af 15-20 frystiskipum og unnið úr því um 3.000 tonn af afurðum. „Við erum nú aðeins með ferskrækjubáta í við- skiptum og einnig kaupum við af tveimur frystiskipum. Við erum því að kaupa miklu minna magn af rækju en síðustu ár. Það eru reynd- ar mun færri skip á rækjuveiðum um þessar mundir enda hefur verð- ið sem bátarnir eru að fá snarfall- ið.“ segir Aðalsteinn. lil J|( - jA— ym ijfjp . m m\ L hök 'ylffiffijj- r.-'\ Morgunblaðið/Kristján Lýst heim að hverjum bæ ÁKVEÐIÐ var í sumar að lýsa heimreiðar að hverjum bæ í ábúð í Árskógshreppi og nú nýlega var hafist handa við það verkefni. Hreppurinn tekur þátt í kostnaði á móti ábúendum sem ætla má að séu himinlifandi yfir raflýsingu heim að bæ sínum. Raflýsing hefur verið í þorpun- um tveimur, Árskógssandi og Hauganesi, en stefnt er að því að ljúka raflýsingu heimreið- anna síðar í haust þannig að hreppurinn verður allur upp- lýstur er lengra líður á árið. Á myndinni eru rafvirkjarnir Olafur Jensson og Jónas Ragn- arsson, starfsmenn Rafeyrar á Akureyri, en á milli þeirra er Kári Halldórsson frá KH-vinnu- vélum, en þeir voru að leggja raflögn í heimreiðina að bænum Sólvangi. Ólafur sagði að þeir yrðu tvær til þijár vikur að koma ljósastaurunum upp og síðan ætti ekki að vera neitt að vanbúnaði að kveikja ljósin í hreppnum. Mismargir staurar eru við hveija heimreið, frá tveimur til átta. Morgunblaðið/Kristján BORGARISJAKINN var mjög stór og með tveimur eins konar turnum. Á milli „turnanna" sést í vitann á Hrólfsskeri. Á minni myndinni eru Gísli Einarsson, formaður Björgunarsveitar SVFI í Hrísey t.v. og Bjarni Ármannsson bátamaður félagsins en þeir fóru með ljósmyndara Morgun- blaðsins að jakanum í gær á björgunarbátnum Kidda. Borgarísjaki á Eyjafirði BORGARÍSJAKA rak inn á Eyjafjörð í fyrrinótt og um hádegisbilið í gær var hann kominn inn fyrir Hrólfssker og farinn að nálgast Hrísey. Jakinn var nokkuð stór, með tveimur eins konar turnum og mjög tignarlegur að sjá. Auk þess sáust margir minni jakar á reki í firðinum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er mjög sjaldgæft að sjá borgarísjaka inni á Eyja- firði á þessum árstíma. Þór Jakobsson á hafís- deild Veðurstofu íslands segir borgarísjaka upp- haflega komna frá skriðjöklum Grænlands. Þeir brotni frá skriðjöklum og fari á flot í sjónum og að ekki sé því um venjulegan hafís að ræða. Geta vcrið hættulegir sjófarendum „Það ber gjarnan meira á borgarísjökum á þessum árstíma, þegar sjálfur hafísinn er minnst- ur. Hafísinn er nú við Grænland og það er reynd- ar óvenju lítið af honum þar. Borgarísjakar geta verið hættulegir sjófarendum í myrkri og þessi jaki í Eyjafirði er trúlega brot úr enn stærri jaka.“ Þór segir að Veðurstofan hafi verið að fá frétt- ir undanfarnar vikur af borgarísjökum úti fyrir Norðurlandi vestanverðu, fyrst við Húnaflóa og svo norðan við Skaga. Jakar hafa sést frá strand- stöðvum og skipum. Kristján Þórhallsson, trillukarl á Dalvík, sagð- ist hafa orðið var við jakann í fyrrakvöld og þá miklu utar í firðinum. Er hann hélt svo í róður í gærmorgun var jakinn kominn inn fyrir Hrólfs- sker. „Eg minnist þess ekki að borgarísjaki hafi sést á þessum slóðum áður og það er örugglega mjög óvenjulegt," sagði Kristján, sem er að nálg- ast sextugsaldurinn og hefur lengi verið viðloð- andi sjóinn. Hótel KEA fækkar starfsfólki STARFSFÓLKI á Hótel KEA hef- ur verið sagt upp störfum, flestir verða endurráðnir að nýju, en fyrir- hugað er að fækka starfsfólkinu nokkuð, eða um fjóra til fimm. Rétt rúmlega tuttugu manns hafa starfað hjá hótelinu. Elías Hákonarson hótelstjóri sagði að aukin samkeppni í veit- ingarekstri leiddi til þess að sá þáttur starfseminnar gengi ekki nægilega vel. Gistiþjónustan væri auðveldari við að eiga og krefðist ekki eins mikils mannskapar. Nýliðinn septembermánuður var að sögn Elíasar alveg þokkalegur, en ráðstefnur og fundahöld hefðu sett sinn svip á mánuðinn, m.a. Vestnorden kaupstefnan og vinnu- fundur FAO, svo eitthvað sé nefnt. Hótelið er vel í stakk búið til að halda ráðstefnur en Elías sagði að ijárfest hefði verið í tækjum og búnaði að undanförnu. BÍLATORG FUNAHÖFÐA 1 S: 587-7777 Ragnar Lövdal, lögg. bifreiðasali Arnþór Grétarsson, 11 sölumabur V ITVEGUM BÍ LALÁN - VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ Félag Löggiltra Bifreidasala WÉUm «rg. '95, rauðuv, 3ja dyra, beimkiptm; ek. 19 þús. kin. Verð 1.080. OOO. Skipti. drg. '96, bldsans., 5 g., 3ja dyra, ck. 31 þ/ís. km. l'erð 1.090.000. Skipti. csuziiKt vttara JL^t drg. '93, 5 dyra, steivgrdr, sjrílfsk., samlecsingar, rafinagnsrdður, 302" dekk, dlfelgur, ek. 50 þtís. ktn. Verð 1.440.000. Skipti d ódýrari. rstssan vatroi atesel 1 urbo drg. '95, hvitur, einn vteð öíltt, 32" dekk, dlfelgttr, grind, stigbretti. Fallegttr bíll, ek. aðeins 29þtis. kvt. Verð 3.450.000. Skipti. Kenault IV RJSl drg. '95, dökkbldr, ek. 20 þtís. km, rafin. í rtiðnvt, savtltesingar. Verð 990.000. Skipti. A'liYlC Lancer 1600 drg. '93, bldsans., 4ra dyra, 5 g., savtLcsingar, rafinagnsrtiðtir, topphíga, dlfelgur, spoi/et; einn eigandi, ek. 52 þtís. kvt. Verð 1.050.000 staðgrcitt. Chevrolet Blazer drg. '91, bldsans., einn tneð ölltt. Verð 1.990.000. Skipti rí dýrari Toyota Landa'ttiser. Cadillac Ueville hvítur árg. '91, leðursteti, rafin. í öllu, stórghesilegur vagn. Sjón er sögu ríkari. Einn vteð öllu. Verð aðeins 2.400.000. Skipri. Ford Econoline XL 350 diesel drg. '91, ráuðttr og grdt; soðinn dtíkttr i gólfi, 4 kapteins stólar, bekkin; topp/tíga, sjdlfsk., 35" dekk, d/fe/gm; 4x4 Benz fiaðrit; spil og spi/stuðari, rafin. i rtiðuvt, stwilceshigítr, ck. aðeins 86 þtis. kvt. Verð 3.390.000. Skipti d nýrri jeppa. Ford Mondeo CLX 2000 drg. '94, vínrauðm; 4ra dyra, sjd/fsk., savtltesingai; rafinagnsrúðm; dlfelgm; spoilei; þjófavörn, ek. 53 þtis. k/n. Verð 1.530.000. Skipti. Ford 250 diesel drg. '90, vínrauðm; p/astbns, 35" króvtfelgm; 7.3 diesel, lofthesingat; einn vteð ö/ln, tibtiinn d fiöll. Verð 1.680.000. Skipti. Toyota Landcruiser VX rírg. 90. Alfelgm; sjdlfskiptm; 33"dekk, diesel tnrbo, ek. 155 þús. kvt. Verð 3.100.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.