Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ ísland í 8.-12. sæti Olympíuskákmótsins Rússar reyndust erfiðir mótherjar ÍSLENDINGAR enduðu í 8.-12. sæti á Ólympíuskákmótinu í Jerevan. Það er glæsilegur árangur og mun betri en raunsæir menn gátu gert sér vonir um fyrir mótið. Á hinn bóginn voru íslensku stórmeistararn- ir nokkuð stúmir yfír því að þurfa að enda með tapi, og það meira að segja heldur slysalegu tapi, en við ramman reip var að draga þar sem var rússneska skáksveitin, sú lang- sterkasta á mótinu. Á fyrsta borði tefldi Margeir Pét- ursson með hvítu gegn Alexei Dreev sem þykir í hópi allra traustustu stór- meistara. Hann tefldi að vanda afar traust og gaf engin færi á sér. Síðan bauð Dreev upp á jafntefli og að höfðu samráði við liðsstjórann, Agúst Sindra Karlsson, þáði Margeir jafn- teflið. „Ég hefði alveg getað teflt þetta eitthvað áfram,“ sagði Margeir eftir skákina, „en það hefði líka get- að farið á hvaða veg sem var.“ Á þriðja borði hafði Hannes Hlífar Stefánsson hvítt gegn Evgeny Bare- ev og líkt og Dreev tefldi Bareev afar traust og stefndi greinilega beint til jafnteflis. Hannesi tókst ekki að finna vænlega leið til fram- halds og tók því jafntefli. Á flórða borði tefldi Helgi Áss Grétarsson með svörtu gegn Sergei Rublevskij, komungum stórmeistara sem er þrátt fyrir ungan aldur orðinn alræmdur fyrir leiðinlega hegðun við skákborðið. Hann iðar í sætinu sínu, stendur sífellt upp til þess eins að setjast niður aftur, og virðist í alla staði heldur ógeðfelldur ungur mað- ur. Þá vakti athygli mjög snemma í skákinni að svo virtist sem Rublevskij væri að spyija Peter Svidler ráða um byijunina sem þeir Helgi Áss tefldu, skoska leikinn, en Svidler ku vera mikill sérfræðingur í þeim skoska leik. Slíkt samráð keppenda er að sjálfsögðu algerlega bannað. En því verður þó vart kennt um úrslitin í skákinni. „Ég koltapaði bara,“ var það eina sem Helgi Áss vildi láta hafa eftir sér þegar hann hafði gef- ist upp. Dramatískasta skákin var á öðru borði þar sem Jóhann Hjartarson hafði svart gegn Peter Svidler, ung- um og gríðarlega sterkum skák- manni sem unnið hefur marga fræga sigra á undanförnum árum. Jóhann virtist fá slæma stöðu út úr byijun- inni, en tefldi áfram af hörku og þegar kom fram í 40. leik hafði hann snúið taflinu svo sér í vil að á skák- stað í gærkvöldi voru menn sammála um að hann hefði haft vinninginn í hendi sér. Stáðan var þessi: Hvítur b3, c3, g2, h3, Ha2, Hd4, Kh2 Svartur b5, f5, g6, Re3, Hel, Be4, Kd8 Hér átti Jóhann að leika 40. - Bd5 og Svidler mun hafa viðurkennt að eftir þann leik hefði hann haft tapaða stöðu. En Jóhann lék 40. - g5, og skákin leystist um síðir upp í jafntefli. Islendingar töpuðu því með minnsta mun gegn Rússlandi og hefðu einhvem tíma verið þokkalega ánægðir með þau úrslit. Islensku skákmennirnir stóðu allir fyrir sínu, eins og sjá má á meðfylgj-. andi töflu. Hannes Hlífar Stefánsson náði bestum árangri, en árangur Þrastar Þórhallssonar er einnig eftirtektar- verður og athyglisvert að „riddara- meistarinn“ er eini íslendingurinn sem sleppur taplaus gegnum mótið. Rússar unnu eins og fram hefur komið með nokkrum yfirburðum, en Úkraínumenn urðu í öðru sæti. Lítið bar á Úkraínumönnum framan af mótinu en þeir sóttu mjög í sig veðr- ið þegar á leið og Vasili Ivantsjuk, sem tefldi á efsta borði þeirra, náði mjög glæsilegum árangri. Lokastaðan var þessi: 1. Rússland 38,5 2. Úkraína 35,0 3.-4. England, Bandaríkin 34,0 5.-7. Armenía, Spánn, Bosnía 33,5 8.-12. Island, Þýskaland, Búlgaría, Svíþjóð, Georgía 33,0 SKAK Jerevan, Armeníu ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ Ólympíuskákmótið var haldið i Armeníu dagana 15. september til 2. október. VART var hægt að fá erfiðari andstæðinga í lokaumferðinni á Ólympíuskákmótinu en Rússa sem höfðu þriggja vinninga forystu fyrir umferðina. Islenska sveitin tapaði með minnsta mun og hlaut 33 vinn- inga á Ólympíuskákmótinu og endaði í 8.-12. sæti á mótinu sem hlýtur að teljast mjög góð frammistaða. Frammistaða einstakra keppenda sést betur á meðfylgjandi töflu. Við skulum skoða viðureignina á fyrsta borði: Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Dreev (Rússlandi) Slavnesk vörn 1. c4 - c6 2. Rf3 - d5 3. d4 - Rf6 4. Rc3 - e6 5. Bg5 - h6 6. Bxf6 - Dxf6 7. g3 Dreev er traustur skákmaður og afar fastheldinn í bytjunarvali. Byij- unarvalið hefur örugglega ekki köm- ið Margeiri á óvart. Hér er algeng- ara að leika 7. e3 - Rd7 8. Bd3 eða 7. a3. 7. - Rd7 8. Bg2 - dxc4 9. 0-0 - Be7 10. Re4 - Df5 11. Red2 - e5 12. Rxc4 - exd4 13. Rxd4 - Df6 14. e3 - 0-0 15. Dh5 - Rb6 16. Rd2 - Dg5! Hvítur hefur rýmri stöðu en svart- ur biskupaparið og leitar því eðlilega eftir uppskiptum. 17. Ddl - Bg4 18. Dc2 - Hcd8 19. Hacl - Hfe8 20. a3 - Dh5 21. Re4 - Bh3 22. Bf3 - Bg4 23. Bg2 - Bh3 24. Bf3 - Bg4 Keppendur sömdu hér um jafn- tefli enda kemur sama staðan upp í þriðja sinn eftir 25. Bg2 - Bh3. Karl Þorsteins u O cS j> co w 'c <D JD 'O c cS c 3 'C ci T3 C c<S cS c c <u £ S £ 3 cS 'g> O ""O C cS cn 'co <D C 'O cS C 'Tn 3 UJ CS cS 'C 'O o '>> r-• 2 'C 3 <d o 3 CQ W O A 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. samt. 1. Margeir Pétursson 'h 'h 'h 0 'h 1 'h 'h 'h 'h 5/10 2. Jóhann Hjartarson 1 'h 1 'h 0 '12 1 0 1 1 'h 7/11 3. Hannes H. Stefánsson 'h 1 'h 'h 'h 1 1 1 0 1 'h 'h 8/12 4. Help Ólafsson 'h 'k 0 1 0 'h 3/7 1. vm. Þröstur Þórhallss. 1 1 'h 'h 1 'h 'k 'h S'IM 2. vm. Helgi Áss Grétarss 'h 'h 0 1 1 'h 1 0 4 V2/8 Úrslit 2 Vi Wi 2 Vh 1 'h 'h 3 'h 2 4 1 'h 2'h 2 'h 3 1 'h 33/56 Iljumsjinov endurkjörinn forseti FIDE Atlaga vestrænna þjóða mistókst Tilraun vestrænna þjóða til að breyta valdahlutföllum innan FIDE mistókst í gær þegar Kirsan Iljumsjinov var endurkjörinn forseti. Dlugi Jökulsson fylgdist með baktjaldamakkinu í Jerevan í Armeníu. Jerevan. Morgunblaðið KIRSAN Iljumsjinov var í gær endurkjörinn forseti FIDE og fékk 87 atkvæði gegn 46 at- kvæðum mótframbjóðandans, Jaime Sunye Neto stórmeistara frá Brasilíu. Iljumsjinov sveik i fyrradag það samkomulag sem hann hafði gert við flestar sterkustu skákþjóðir Vesturlanda og fól í sér að hann yrði áfram forseti FIDE, Alþjóðaskáksambandsins, en völd hans yrðu skert verulega. í samkomulaginu fólst að Jaime Sunye Neto ætti að verða eins konar yfírframkvæmdastjóri FIDE og Einar S. Einarsson, svæðisstjóri FIDE á Norðurlönd- um, að gegna embætti varaforseta, en umfram allt var ætlunin að efla völd stjórnarinnar á kostnað forsetans og ýta til hliðar ýmsum þeim valdamönnum sem helstir hafa verið innan FIDE og eiga ríkastan þátt í að samtökin eru nú nánast komin að fótum fram. Einar var ekki á lista Sunye Netos í gær, heldur var Jan nokkur Banas frá Slóvakíu varaforsetaefni. „Það varð ljóst á þinginu á sunnudaginn að ekkert það samkomulag sem gert hafði verið fyrirfram var pappírsins virði,“ sagði Einar. „Bæði framboðin sem fram voru komin voru lýst ólögleg eftir ýmis bellibrögð og samkomulag okkar við Ujumsjinov var úr sögunni. Og Iljumsjinov hafði ekki stuðning til að fara sjálfur í framboð án þess að til- nefna stjómarmenn sína. Eftir að hann gekk af fundi á sunnudagskvöld var Ijóst að leysa varð stjórnarkreppuna sem upp var komin ein- hvern veginn og í fyrradag gengu menn í það að setja saman nýja framboðslista. Sunye Neto var efstur á öðrum, en sá listi var heldur tæt- ingslegur og hvorki ég né fulltrúi Bandaríkj- anna eða Þýskalands sóttumst eftir því að sitja á þeim lista. Okkur þótti ljóst að Iljumsjinov hefði alla þræði í hendi sér, sem líka reyndist rétt, því hann vann yfirburðasigur." Iljumsjinov náði kjöri með því að múta skák- samböndum smáríkja og með því að bjóða skákmönnum gull og græna skóga. Hann hef- ur lofað að halda einvígi Kasparovs og Karpovs ekki síðar en í nóvember. I desember á að fara fram hin nýja heimsmeistarakeppni Ilj- umsjinovs þar sem hundrað skákmeistarar keppa með útsláttarfyrirkomulagi. Klofningur ekki yfirvofandi Einar S. Einarsson segir klofning sambands- ins ekki yfirvofandi þrátt fyrir slæma útreið vestrænna ríkja. „Nú fara menn heim og sleikja sár sín. Það er augljóst að vestrænu sambönd- in hafa ekki náð neinu því fram sem þau ætl- uðu, en hins vegar ætlum við ekki að flýta okkur við að kljúfa okkur út. Við höfum ákveð- ið að bíða og sjá hvernig Iljumsjinov og hinni nýju stjórn hans gengur að standa við stóru orðin um einvígi Karpovs og Kasparovs og nýju heimsmeistarakeppnina." Það var á næturfundi aðfaranótt mánudags, að í ljós kom að Iljumsjinov hafði gengið á bak orða sinna og sóttist nú ekki lengur eftir því að sitja sem valdalítill forseti í skjóli þeirra Sunye Netos, Einars S. Einarssonar og vest- rænu skákþjóðanna. Skoðanir eru nokkuð skiptar um ástæður þessa. Ein skýring hljóðar þannig að hann hafi einfaldlega ekki getað horfst í augu við valdamissinn, en önnur skýr- ing er að visu fráleitari en þar með sennilegri þar sem um FIDE er að ræða, en upp á þau samtök verður ekki logið þessi misserin. Atkvæðakaup fyrir 10-20 milljónir Skýringin hljóðar þannig að Iljumsjinov hafi verið búinn að afhenda ýmsum lautinöntum sínum, svo sem þeim Campomanesi fyrrver- andi FIDE-forseta, Giorgios Makropoulosi frá Grikklandi og Bachar Kouatly frá Frakklandi, gríðarlegar fúlgur fjár, sem fara áttu til þess að kaupa atkvæði frá minni háttar skáklönd- um, og áttu að tryggja að Iljumsjinov fengi tvo þriðju hluta atkvæða í kosningu um hvort hann mætti fara í forsetaframboð, þrátt fyrir að framboðsfrestur væri útrunninn. Þegar Iljumsjinov gerði síðan samkomulagið við vestrænu ríkin og þeir lautinantar hans uppgötvuðu að stór þáttur í því samkomulagi var að einmitt þeir skyldu víkja út í ystu myrk- ur skákheimsins, þá munu þeir félagar einfald- lega hafa neitað að afhenda Iljumsjinov at- kvæðin sem þeir voru búnir að kaupa fyrir peningana hans, og eru nefndar tölur á borð við 10-20 milljónir íslenskra króna. Þar með var ekki á hreinu hvort nýtt framboð Iljumsj- inovs, Sunye Netos og Einars S. Einarssonar fengi nægilegan stuðning, og Iljumsjinov sneri við blaðinu. Ennfremur mun forseti rússneska skáksambandsins, Andrei Makarov, hafa leikið tveimur eða þremur skjöldum allan tímann. Endirinn varð alltént sá að menn voru fengn- ir til þess að segja sig af listum þeirra tveggja framboða sem formlega voru komin fram, ann- ars vegar framboðs Sunye Netos og hins veg- ar framboðs Bachar Kouatlys. Þegar ekki voru lengur nægilega margir menn á listunum töld- ust bæði framboðin ógild og Iljumsjinov taldi sig eiga greiða leið í forsetastólinn. En þótt Iljumsjinov væri búinn að koma í veg fyrir önnur framboð en sitt eigið, þá varð honum ekki kápan úr því klæðinu að smjúga sjálfur aftur í forsetastólinn mótspyrnulaust - sem hefði gert honum kleift að halda öllum sínum völdum og velja sér sjálfur sína meðreið- arsveina. Allan mánudaginn dunduðu fulltrúar á þingi FIDE sér við að fella öll mál hver fyr- ir öðrum, uns svo fór að lokum að enginn virt- ist geta orðið forseti sambandsins, og laga- flækjur stæðu í vegi fyrir hverri ráðagerð. Blaðamaður verður að viðurkenna að hafa orð- ið fyrir nokkrum vonbrigðum með þingið. Nöldur og karp Eftir að hafa lesið fréttir af ísmeygilegum bellibrögðum og stórkarlalegri valdabaráttu á slíkum þingum síðustu árin, þá bjóst ég við að sjá sviptast um sali stimamjúka mafíósa sem tala svo gullið glampar í munni þeirra meðan þeir bregða rýtingum á bak, en í staðinn varð ég vitni að afar þreytandi nöldri og sífri um fundarsköp, endalausu karpi um hvernig standa skyldi að næstu atkvæðagreiðslu sem skipti ekki nokkru máli hvernig færi, og svo fengu menn að heyra dágóðan skammt af lofi og prísi um Kirsan Iljumsjinov. Hann taldi sér það til tekna að geta staðið fyrir einvígi Kasp- arovs og Karpovs en vakti athygli í fyrradag þegar hann átti að flytja eins konar stefnu- ræðu og minntist varla einu orði á málefni skáklistarinnar en flutti í staðinn mikla ræðu um eigin hæfileika. Undir lok fundarins, seint á mánudagskvöld, fór að vísu mjög að færast fjör í leikinn, og þá sýndi Kirsan Iljumsjinov um síðir á sér annan svip en það brosandi drengjaandlit sem hann hefur yfirleitt límt á höfuðið. Fyrst brá svo við að einn af mönnum hans, fulltrúi frá Singapore, greiddi við einhveija atkvæða- greiðsluna atkvæði á annan hátt en greinilega hafði verið ákveðið fyrirfram. Enginn man lengur um hvað sú atkvæðagreiðsla snerist og atkvæðið frá Singapore skipti engu máli. En Kirsan Iljumsjinov lét ekki bjóða sér þetta og heimtaði að fulltrúa Singapore yrði vísað á dyr og sviptur leyfi til að sitja fundinn. Það hafði hann fram með bellibrögðum, en raunir Kirsans voru nú rétt að hefjast. Fulltrúi Portúgals steig í ræðustól og kvaðst hafa fyr- ir því heimildir að það væri alrangt að Iljumsj- inov væri búinn að ná samkomulagi um ein- vígi þeirra Karpovs og Kasparovs. Portúgalinn sagðist hafa talað við Karpov sjálfan og FIDE- heimsmeistarinn þvertæki fyrir að nokkurt samkomulag um einvígi væri frágengið. Gerðist nú margt í senn. Menn Iljumsjinovs ærðust úr reiði, en reiðastur varð hann sjálf- ur, stóð á fætur, náfölur af bræði, og sagði að þessar dylgjur portúgalska fulltrúans væru móðgun við sig, við FIDE og við kalmykísku þjóðina! Hann fjölyrti um hversu hart hann hefði lagt að sér í þágu FIDE og þar á meðal borgað óteljandi milljónir úr eigin vasa til að sambandið gæti haldið áfram starfsemi. Og loks hótaði Kirsan Iljumsjinov að segja af sér sem forseti FIDE og mættu samtökin eiga sig. Því næst gekk hann á dyr, þungur á brún og lífverðir hans ekki síður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.