Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ 24 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 LISTIR Að ganga sinn veg Morgunblaðið/H alldór RANNVEIG Fríða Bragadóttir og Silvia Massarelli ánægðar í tónleikalok. TONLIST fslcnska ópcran KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR flutti verk eftir Dagfínn Koch, Reine Jönsson, Pál P. Pálsson, Göran Gam- storp og Einojuhani Rautavaara. Ein- söngvari: Rannveig Fríða Bragadótt- ir. Stjórnandi: Silvia Massarelli. Suiuiudagurinn 29. september, 1996. TÓNLEIKAR Kammersveitar Reykjavíkur hófust á verki eftir Dagf- inn Koch, sem hann nefnir Aura. Það er svolítill stráksskapur í „prógram- nótum“ tónskáldsins, er hann ritar: „Því er ekki að leyna að tónskáldin Klaus Huber, Witold Lustoslawsi, Ame Nordheim, Olav Anton Thom- mesen og Isang Yun hafa haft áhrif á verkið. Hafðu það í huga, hlustandi góður, þegar þú hlustar á verkið. Þeir sem hafa áhuga á tónsmíða- tækni gætu haft gaman af því að vita að Aura er samsett úr fimm köflum sem varpa ljósi á mismun- andi blöndun hljóðfæra og tækni“. Fyrir það fyrsta segir höfundur að verkið sé stæling og í annan stað talar hann um blöndum hljóðfæra, sem hvert og eitt einasta hljómsveit- arverk hlýtur að vera og í þriðja lagi að kaflaskipanin varpi ljósi á tækni þá sem tónskáldið notar við gerð verksins. Þessi texti er gagnslaus við greiningu verksins, sem er lagrænt upp á gamla móðinn og ekki sérlega frumlegt en var ágætlega flutt. Annað verkið heitir Om att cycla, eftir Reine Jönsson og er eins konar stæling á gamelantónlist austan úr Asíu, nema mun lakari en tónlist austanmanna. Þegar gamelan þætt- inum lýkur, verður tónlistin melodísk samsuða í tónalli skipan. í raun ætti ekki að kenna verkið við hljólreiðar, heldur væri miklu réttara að kalia það „Út’ að aka“. Þriðja verkið á efnisskránni var Morgen, eftir Pál P. Pálsson, samið 1981. Þetta 15 ára gamla verk er frá tilraunatíma- bili tónskáldsins og afar sérkenni- legt að nota þetta fræga ljóð, sem R. Strauss gerði ódauðlegt (útgefið 1898) og var brúðargjöf tónskálds- ins til konu sinnar. Textinn, sem er hljóðlát ástarjátning, var túlkaður með tónmáli, sem er undarlega fjarri innihaldi ljóðsins. Rannveig Fríða Bragadóttir söng verkið á sannfær- andi máta. Puls III, eftir Göran Gamstorp er sérkennilegt verk, samið fýrir 12 strengjahljóðfæri, sem öll leika sjálf- stæðar raddir. Ritháttur verksins er mjög þéttur og er krefjandi í flutn- ingi varðandi samstillingu í styrk og hryn, sem var mjög vel útfært af Kammersveit Reykjavíkur. Þetta verk og lokaverkið Canto IV, eftir Rautavaara voru bestu verk tónleik- anna, bæði hvað varðar heilsteypta formskipan og rithátt. Bæði verkin eru og krefjandi tónlist, og flutning- ur Kammersveitar Reykjavíkur var þar bestur undir stjórn Silvíu Massa- relli en stjórn hennar virtist á köflum nokkuð óráðin og eins og á stundum vantaði afgerandi mótun af hennar hálfu, svo að sum verkin fengu að hluta til, að „ganga sinn veg“ án afskipta hennar. Jón Ásgeirsson. Allt lagt í sölumar Látúnslæti TONIIST Listasafn íslands KAMMERTÓNLEIKAR Strengjakvartettar eftir Jovanka Trbojevic, Ame Mellnás, Jouni Ka- ipainen og Per Norgárd. Avanti! (John Storgárds, Anna Hohti, fíðlur; Tuula Riisalo, víóla; Lea Pekkala, selló). Listasafni Islands, laugardag- inn 28. september kl. 20. FYRSTA verkið á kammertónleik- um Norrænna músíkdaga í Lista- safni íslands sl. laugardagskvöld, „Oro“ eftir finnsk-bosníuserbísku tónskáldkonuna Jovönku Trbojevic var ekki langt. En ekki þurfa gæði að vera háð magni. Skornir skammt- ar fá skinið líka, og það var ekki sízt fyrir það að höfundur þekkti sinn vitjunartíma - í andstöðu við suma langmálli kollega sína - að „Oro“ náði að glóa í eyrum og gleðja hugann án þess að fölna við óþarfar lopateygingar. Seinni kvartettar tónleikanna voru allir viðameiri - a.m.k. hvað tímalengd varðar. Fyrst var Quart- etto d’archi - „HommagesHöf- undurinn, Arne Mellnás (f. 1933), er meðal kunnustu stafnbúa sænska módernismans og hefur haft víðtæk áhrif á þarlenda tónsköpun, m.a. sem tónsmíðakennari við Tónlistar- háskólann í Stokkhólmi. Skv. tón- leikaskrá vottaði höfundur gömlu kvartettmeisturunum virðingu sína með tilvitnun í Grosse Fuge eftir Beethoven, 3. kvartett Bartóks og 6 Bagatellur eftir Webern í hveijum hinna þriggja þátta verksins. Undir- ritaður varð þess þó lítið var, svo varla hafa tilvitnanirnar átt að hafa meira en einkagildi. TONLIST Vídalínskirkja KÓRTÓNLEIKAR Hljómeyki, stjórrumdi Bernliard Wilkinson, flutti kórverk eftir Hen- rik Ddegaard, Peter Lindroth, Sun- leif Rasmussen og Hjálmar H. Ragn- arsson. Sunnudagurinn 29, septem- ber, 1996. TÓNLEIKARNIR hófust á söng- verkinu Margit og Bergekongen, eftir Henrik Odegaard. Textinn er þjóðvísa frá Þelamörk og studdist tónskáldið við upptöku á söng kvæðamanns, sem gerð var 1938. í kvæðinu segir frá hinni stoltu Margréti, sem álfakóngurinn tældi til sín og eignaðist með henni „syni og dætur þijár“. Eftir fjórtán ár með álfum, fékk hin stolta Margrét að heimsækja föður sinn, er leiddi dóttur sína til sætis í stól móður hennar. Sem elding birtist álfa- kóngurinn og kallar á Margréti, Mellnas lék framan af á dulrænum nótum, síðar á ljóðrænum, og renni- leg hljómabeiting hans í þéttri skipan bar vott um þaulreyndan kórverka- höfund. Framúrstefnueffektar voru tiltölulega fáar, litaáferð fjölbreyti- leg en hrynræn tilþrif hins vegar litil sem engin. Þrátt fyrir auðheyrða verkkunnáttu var sá ljóður á tón- smíðinni, að höfundur virtist hafa lokið máli sínu þónokkru áður en síðustu tónar fjöruðu út. Eftir hlé var komið að Kvartetti nr. 4 Op. 45 eftir Finna af yngri kynslóð, Jouni Kaipainen (f. 1956). Ópusnúmeragjöf myndu margir telja örugga vísbendingu um von- laust rómantískt innræti á þessum síðustu og verstu. Það kom líka í ljós, því þó að verkið tyllti tæplega fæti í fornhaga dúr/moll-kerfisins nema endrum og eins, var tónaver- öld þess óvenju tilfinningahiaðin, blóðrík og aðlaðandi. Kvartettinn var pantaður fyrir kammermúsíkhátíð- ina í Kuhmo 1994 og hafði að geyma mörg falleg ljóðræn augnablik, en átti einnig til að ýfa vötnin hressi- lega og fara mikinn. Höfundur var greinilega vel heima í þessum vandmeðfarna kammermiðli, líkt og fyrrum kenn- ari hans, Aulis Sallinen, og kom Kvartett nr. 4 fyrir sem heilsteypt- asta og skemmtilegasta framlag kvöldsins. Meðal kunnustu norrænna samtíma- tónskálda á heimsvísu er óefað sá danski Per Norgárd. Afköst hans eru með ólíkindum, og útbreiðsla verka hans ekki síður, miðað við hvað gerist og gengur á Norðurlönd- um. Hann hefur og haft mikil áhrif á yngri kynslóðir danskra tónskálda sem kennari og hönnuður persónu- legrar útgáfu af raðtækni, aðferð hún kveður sitt fólk og sest upp á „gangvarann gráa og grætur fleiri tárum en hár eru’ á hestsins makka. Svo bankaði’ hún upp á bergið með fingrum sínum smá. Ljúk upp mín elsta dóttir og drag lokur í frá.“ Kvæði þetta er sam- stofna þeim fornu danskvæðum, sem varðveist hafa hér á landi og líklega er útfærsla tónskáldsins nokkuð langt frá frumgerðinni, bæði hvað snertir tónmál og form- skipan kvæðisins. Hvað sem því líður er þetta skemmtilega unnið tónverk, svolítið laust í formi og var mjög vel flutt af Hljómeyki. Vokalmusik heitir sérkennilegt verk, eftir Peter Lindroth. Tónmál þess er liggjandi fimmund, eins konar „bordún" og byggist tón- smíðin á smá frávikum kvart- og hálftón upp og niður frá tónum sem hann þróaði upp úr 1970 og á ýmislegt skylt með fraktal-stærð- fræði 9. áratugar. Strengjakvartett nr. 7, saminn að beiðni Konungsbókhlöðu í tiiefni af tveggja alda afmæli hennar 1993, bar, þrátt fyrir yfirlýstan áhuga höfundar á hlustunarsálfræði, lítil merki um náið samband við áheyr- endur. í eyrum undirritaðs varð tón- verkið furðu fljótt langdregið, að maður segi ekki hreint og beint leið- inlegt. Ef eilíf æska felst í kyrrsetn- ingu tímans, þá var 7. kvartettinn sannkallaður æskubrunnur, því tíminn virtist aldrei ætla að líða. Kapituli fyrir sig var leikur fer- eykisins frá Avanti!- sveitinni, sem kynnt var í tón- skrá sem „ein besta kammer- sveit í Evr- ópu í dag“. Frammistaða strengjakvartetts- ins feykti fljótlega á brott öllum grun um að of stórt væri upp í sig tekið. Var eiginlega hvergi að finna snöggan blett á glæstri spila- mennskunni, og tókust tónverkin þegar bezt lét á þvílíkt flug, að höf- undar þeirra hefðu tæplega getað óskað sér meira, jafnvel í lausbeizl- uðustu draumum sínum. Slík túlkun er göldrum líkust, og verður henni aðeins lagt eitt til lasts, þegar ný og njörvuð tónverk eiga í hlut: Að geta, ef svo ber undir, ávís- að á eign umfram innistæðu. fimmundarinnar. Þetta er ákaflega fábrotin tónsmíð en undir lokin færist fimmundin niður um tón og er það í raun eini „viðburðurinn" í þessu undarlega fábrotna og kynd- uga verki, sem mætti fremur kalla „tónfiff" en tónsmíð. Þrjú lög flutti Iiljómeyki eftir færeyska tónskáldið Sunleif Rasm- ussen, tvö við kvæði eftir Karsten Hoydal og eitt við þýðingu á kvæði eftir Stefán Hörð Grímsson, sem heitir Kvöldvísur um sumarmál. Það var þokki yfir lögum Sunleifs, sem Hljómeyki flutti mjög fallega. Aðalverk tónleikanna var messa, eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Messu þessa hefur undirritaður heyrt tvisvar sungna og ekki sló fölva á flutninginn að þessu sinni. Verkið hefst á kallandi Kyrie elei- son. Miðþátturinn Christe eleison TONLIST FÍII-salurinn KAMMERTÓNLEIKAR BumingPitch eftir Kent Olofsson, Heavy metal eftir Sven-David Sand- ström og Roman eftir Lasse Thore- sen. Flytjendun Saxofon Concentus og Kvintett Corretto. Tónlistarskóla FIH að Rauðagerði, sunnudaginn 29. september kl. 14. ER TIL of mikils ætlazt, að mód- ernísk samtímatónverk handan við fortíðarnáttröll á við dúr og moll bjóði upp á einhveijar áþreifanlegar nýjungar? Eða er það þvert á móti til marks um langþráðan stöðugleika, að sum „fram- sækin“ tónverk dagsins í dag hljómi líkt og væru skrifuð fyrir 20-30 árum? Þetta kom upp í hugann, er norski saxófónakvartett- inn Saxofon Concentus blés „Burning Pitch“ (= Logandi bik (eða tóntíðni)) eftir Svíann Ken Olofsson (f. 1962) í sal Tónlistarskóla FÍH stundu fyrir und- orn sl. sunnudag. Á síðustu árum kvað farið að móta fyrir ákveðinni tilhneigingu til að endurvekja stílhugsun frá árdög- um framsækninnar á 6. og 7. ára- tug, og má vera að megi að hluta kenna verkið við svonefndan „post- módernisma". Annars var stykkið á gráu svæði milli framúrstefnujass (í líkingu við það sem heyrzt hefur hér á landi frá m.a. Hilmari Jens- syni og félögum) og almennrar há- skólaframsækni. Með kvartettnum voru leiknar upptökur af segulbandi undir hljóð- er byggður á bundnum línum, sem hefja sig upp í klasakenndan sam- hljóm og síðan er aftur horfíð til hins kallandi Kyrie. Gloria þáttur- inn er hæglátur og endar á dúr- hljómi (amen). Credo hefst á tal- kafla og síðan er sungið í leshraða, á sama tóni en í Crucifixus er hvert atkvæði sungið á stuttum tónum, með þögn á milli. Þá kemur aftur lessöngur og „amenið“ er síðan hvíslað. Sanctuskaflinn hófst á org- anum en lokakaflinn, Agnus Dei, er sérkennilegur og á köflum til- þrifamikill, þar sem leikið er með fijálsan hryn í þrískiptum kór en undir það síðasta bregður fyrir hálf- gerðri popp laglínu, með viðeigandi hljómskiptum. Óllu þessu er listilega fyrirkomið og er Jiessi messa með því besta sem við Islendingar eigum í gerð stærri kórverka og ekki má gleyma því, að það gerði verkinu mikið, hversu vel það var flutt af Hljómeyki, undir stjóm Bemhards Wilkinsonar. Jón Ásgeirsson. stjórn höfundar er unnar voru með ýmsum hætti úr spunaspili frá 1992, og léðu þær verkinu kærkomna aukavídd með fjarrænum rör-kennd- um bakgrunnsómi. Að öðru leyti var verkið mestmegnis samsett úr sí- sköruðum staktónum, ekki ólíkt því sem heyra mátti í 7. strengjakvart- ett Pers Norgárds kvöldið áður. Þeg- ar á leið tók maður að sakna áþreif- anlegrar andstæðu við einhæfum og tilviljunarkenndum rithættinum, og þrátt fyrir vel frambærilega spila- mennsku voru heildaráhrifin orðin næsta sementsgrá af tilbreytingar- leysi áður en yfir lauk. Nestor tónleikanna var Svíinn Sven-David Sandström (f. 1942), er átti hér prýðilegan lúðrakvintett, upphaflega saminn fyrir Málmblás- arasveit Stokkhólms 1991. Verkið heyrðist vera í fímm tiltölulega ólík- um þáttum, og dugði það eitt sér til að halda uppi dampi við fyrstu heym. Má auk þess vera, að við aðra eða fjórðu kæmi fram stefrænt samband milli þátta, en annars var svítan lipurlega og hlustvænt skrif- uð, byijandi á fímmundarstökkum upp á við, líkt og kallað væri til refaveiða á brezkum herragarði, þró- aðist síðan yfir í einskonar minimal- isma, er loks var rofínn af nokkrum hvellum upphrópunarmerkjum. I 2. þætti kom tónskáldið upp um hugsanlega dulda jassfortíð með hljómanotkun sinni, og í 3. (leikinn með dempurum) tístu trompetin stuttar flaumósa hátíðnitónabunur við hægan samstíga hljómagang hinna lúðranna á neðra sviði. 4. þáttur var „deplóttur" í áferð að hætti Webems, en gat þó ekki stillt sig um ávæning af sveiflu, þegar höámdur uggði minnst að sér, og brá hann á glens, ef ekki sjálfsháð, með nokkurskonar hnígandi „hlát- urrokum" í lokin. Fimmti og síðasti þátturinn var gerður úr hægum, lág- stemmdum hljómum, aðskildum af heildarþögnum í atómsálmastíl. Corretto-liðar léku af natni, en hefðu e.t.v. mátt kýla aðeins meira á styrktoppana og ná ögn þéttar saman á veikustu stöðum senza vi- brato. Tónleikunum lauk að undan- gengnu hléi með Iiornan fyrir saxo- fónakvartett eftir landa blásaranna, Norðmanninn Lasse Thoresen (f. 1949), prófessor í tónsmíðum við Ríkistónlistarháskólann í Osló. Kvart- ettinn átti sammerkt með fyrsta verki tónleikanna að hafa getað verið sam- inn hér um bil hvenær sem væri undanfarin 30 ár, en var hins vegar til muna betur unnin tónsmíð, fjöl- breyttari, en líka markvissari, og - á köflum - býsna áhrifamikið verk. Miðað við dijúga tímalengd var afrek út af fyrir sig að halda athygli hlust- enda allt til loka í jafn málamiðlunar- lausum stíl, en það tókst, og spillti þar einbeittur flutningur þeirra Conc- entus-félaga sízt fyrir. Ríkarður Ö. Pálsson Ríkarður Ö. Pálsson. ITTJÓMEYKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.