Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 52
HYUNDAI HÁTÆKNITIL FRAMFARA Tæknival SKEIFUNNI 17 SlMI 550-4000 • FAX5S0-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 II00, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL/SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Krókabátar Allt að 850 milljónir í úreldingu STJÓRN Þróunarsjóðs sjávarút- vegsins hefur samþykkt 137 um- sóknir um samtals tæplega 414 milljóna króna styrki til úreldingar krókabáta á þessu ári. Sótt hefur verið um úreldingu 280 báta og gæti heildarupphæð styrkjanna komist í 850 milljónir króna. Gert hafði verið ráð fyrir fimm hundruð milljónum króna til úreldingarinnar og segir Hinrik Greipsson, fram- kvæmdaStjóri Þróunarsjóðsins, að bæta verði við fjármunum sem ætl- aðir hefðu verið í annað. Úrelding a'flamarksskipa og fiskverkun- arhúsa hefur verið minni en búist var við. Meðalstyrkur á bát er um þijár milljónir króna. Styrkupphæðin nemur um 80% af vátryggingarverð- mæti sóknardagabáta en 60% í til- felli þorskaflahámarksbáta. Úreltir krókabátar mega ekki stunda veiðar i atvinnuskyni innan islenskrar lög- sögu, en nota má þá sem skemmti- báta eða selja úr landi. Vaxandi starfsemi íslendinga í sjávarútvegi —erlendis hefur valdið aukinni eftir- spurn eftir úreldingarbátum. ■ Sótt var um/Cl Morgunblaðið/Ámi Sæberg Vinnslustöðin og Meitillinn leita aukinnar hagræðingar Sameining fyrirtækj- anna er í athugun VIÐRÆÐUR standa yfir milli stjórnenda Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum og Meitilsins hf. í Þorlákshöfn um nánara sam- starf, þar á meðal um sameiningu. Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn- ar, segir markmiðið með viðræðun- um að kanna hvort hægt sé að auka hagkvæmni í rekstri fyrir- tækjanna. Náið samstarf Meitillinn og Vinnslustöðin hafa til margra ára starfað mikið sam- an. Þau eiga saman togarann Sindra ásamt KEA og Olíufélaginu og fyrirtækin eiga hlutafé hvort í öðru. „Það sem við höfum verið að skoða er hvort hægt er að efla þetta samstarf ennfrekar, m.a. með nánari eignatengslum. Markmiðið er að ná fram aukinni hagræðingu í vinnslu. Bolfisk- vinnslan á í miklum erfiðleikum og nauðsynlegt að leita allra leiða til að bæta stöðu hennar. Meitillinn hefur náð miklum árangri í vinnslu á karfa. Vinnslustöðin hefur hins vegar verið að flytja út mikið af ferskum óunnum karfa. Spurning- in er hvort við getum flutt þennan karfa til Þorlákshafnar og aukið þar með arðsemina þar og sömu- leiðis hjá okkur,“ sagði Sighvatur. Sighvatur sagði að viðræðum stjórnenda fyrirtækjanna væri ekki lokið og því óvíst til hvers þær leiddu. Andlát Alþingi sett FORSETI íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, setti Alþingi í gær í fyrsta skipti á kjörtímabili sínu. I setningarræðu sinni sagði for- setinn m.a. að á komanda vetri biðu mörg erfið úrlausnarefni þingsins. Aður en athöfnin í Alþingis- húsinu hófst var að vanda messað í Dómkirkjunni og var myndin tekin þegar gengið var til þings. I fararbroddi eru forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og biskup íslands, Ólafur Skúlason. Þeim næst ganga frú Guðrún Katrín Þorbjarnardóttir og sr. Sváfnir Sveinbjarnarson og Ólaf- ur G. Einarsson, sem var endur- kjörinn forseti Alþingis. ■ 121. löggjafarþing/6 Ólympíuskákmótið Rússar í fyrsta sæti ÍSLENDINGAR töpuðu fyrir Rúss- um með minnsta mun í síðustu viður- eign sinni á Ólympíuskákmótinu í Jerevan í Armeníu í gær. Rússar unnu mótið ep Úkraínumenn urðu í öðru sæti. Islendingar enduðu í 8.-12. sæti með 33 stig. Þijár skákir Islendinga og Rússa enduðu með jafntefli en á Ijórða borði tapaði Helgi Áss Grétarsson fyrir Sergei Rublevskij. Jóhann Hjartarson átti á tímabili góða möguleika á öðru borði gegn Peter Svidler, en skákin endaði með jafn- tefli. Eins fór í skák Margeirs Pét- urssonar gegn Alexei Dreev og við- ureign Hannesar Hlífars Stefánsson- ar og Evgenys Bareevs. Hannes Hlífar Stefánsson var stigahæstur íslendinganna en Þröst- ur Þórhallsson var sá eini þeirra sem slapp taplaus í gegnum mótið. ■ Ólympíuskákmótið/12 Morgunblaðið/Golli GLERFLUGDREKI eftir Leif Breiðfjörd í sal ísaksskóla. HELGISKÚLASON LEIKARI Isaksskóli sjötíu ára HALDIÐ var upp á sjötíu ára af- mæli Isaksskóla í Reykjavík i gær. Við það tækifæri var afhjúpað glerlistaverkið „Flugdreki" eftir Leif Breiðfjörð. Viðstaddir voru Björn Bjarnason menntamálaráð- herra, nemendur, kennarar og aðrir gestir. Skóli Isaks Jónssonar er elsti starfandi barnaskóli í Reykjavík. Hann er sjálfseignarstofnun og sinnir kennslu 5-8 ára barna. I tilefni afmælisins fékk skólinn framlag úr Listskreytingasjóði og var Leifi Breiðfjörð falið að gera glerlistaverk í sal skólans. Hann bauð öllum átta ára deildum skól- ans í heimsókn í vinnustofu sína, þar sem börnin fengu að fylgjast með því hvernig verkið var unnið. EINN HELSTI leik- stjóri landsins, kvik- mynda- og sviðsleikari, Helgi Skúlason, lést á 64. aldursári á mánu- dagskvöld. Foreldrar Helga voru Sigríður Ágústsdóttir í Birt- ingaholti og Skúli Odd- leifsson í Langholtskoti í Hrunamannahreppi. Helgi var fæddur 4. september árið 1933 í Keflavík. Hann var gagnfræðingur frá Héraðsskólanum á Laugarvatni og leikari frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1954. Að námi loknu var Helgi leik- ari hjá íjóðleikhúsinu til ársins 1959. Hann var leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur frá árinu 1959 til 1976 og hélt þeim störfum áfram hjá Þjóðleikhúsinu til dauða- dags. Helgi túlkaði fjölda persóna á leik- sviðinu og er hans m.a. minnst fyrir hlutverk Ríkharðs III í Þjóðleikhús- inu árið 1986, Haralds í Stundar- friði 1979, Róberts Bel- fords í Marmara 1988 og Jóns Hreggviðsson- ar í íslandsklukkunni árið 1985. Síðasta hlut- verk Helga var bílstjór- inn í leikritinu í hvítu myrkri, sem frumsýnt var fyrir hálfum mán- uði. Silfurlampann, verðlaun leiklist- argagnrýnenda, hlaut Helgi fyrir túlkun sína á Franz í Föngunum í Altóna. Hann leik- stýrði m.a. Nótt ást- meyjanna, Ödipusi konungi, Amad- eusi og Syni skógarans og dóttur bakarans í Þjóðleikhúsinu og verk- unum Sumarið ’37, Sjóleiðin til Bagdad, Hús Bernörðu Alba og Sú gamla kemur í heimsókn hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Síðasta leikstjórn- arverkefni Helga eftir ríflega ára- tugar hlé var Þrjár konur stórar hjá Kjallaraleikhúsinu síðastliðinn vetur. Þá lék Helgi meðal annars í eftir- töldum kvikmyndum: Útlaginn, Húsið, Hrafninn flýgur, í skugga hrafnsins, Hvíti víkingurinn, Leið- sögumaðurinn (í Noregi), Svo á jörðu sem á himni, Kristnihald und- ir Jökli, Hin helgu vé og Agnes. Hann var tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni í skugga hrafnsins. Þá hafði Helgi einnig um tíma yfirumsjón með leikhúsi Ríkisút- varpsins, leikstýrði þar ýmsum verkum og lék fjölda hlutverka á þeim vettvangi. Helgi var í stjórn Leikfélags Reykjavíkur á árunum 1960 til 1965, þar af formaður frá árinu 1962 til 1965, og varaformaður Félags íslenskra leikara á árunum 1975 til 1979. Hann var einn af forvígismönnunum að stofnun Fé- lags leikstjóra á íslandi árið 1972 og fyrsti formaður þess. Eftirlifandi eiginkona Helga er Helga Bachmann, leikari og leik- stjóri, og eignuðust þau þijú börn, Hallgrím Helga, Skúla Þór og Helgu Völu. Stjúpbarn Helga er Þórdís Bachmann þýðandi. Banaslys í Gnúpverjahreppi MAÐUR lést í bílslysi skammt austan við Þrándarholt í Gnúp- verjahreppi í gærkvöldi. Áreksturinn varð á Þjórsár- dalsvegi um áttaleytið þegar pallbíll á leið í vestur mætti Fiat- bifreið sem ekið var í gagnstæða átt. Bílstjóri pallbílsins fór á nærliggjandi bæ og gerði lög- reglu viðvart og reyndist öku- maður Fiat-bifreiðarinnar látinn þegar að var komið. Hinn ökumaðurinn var fluttur til aðhlynningar, að sögn lög- reglu, en ekki var vitað hversu alvarleg meiðsli hans voru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.