Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 47 FRUMSYNING: TVO ÞARF TIL FYRIRBÆRIÐ STORMUR KIRSTIE ALLEY STEVE GUTTEMK] Sýnd kl. 5 og 9. B. i. 16ára. SAMmm TRUFLUÐ TILVERA Thx FLIPPER DIGITAL I HX Frábær gamanmynd um stelpu sem líkar ekki við nýju stjúpuna og ákveður að gera eitthvað í málinu. Aðalhlutverk: Steve Guttenberg (Þrír menn og barn); Kirstey Alley (Look Who's Talking) og tvíburarnir Mary- Kate og Ashley Olsen. V4MBIO Ein vinsælasta mynd ársins í USA!! Nýjasta kvikmynd John Travolta, eins virtasta leikara samtimans, er stórbrotin saga af manni sem skyndilega öðlast mikla hæfileika. Eru kraftar hans komnir til að vera eða er aðeins um timabundið ástand að ræða? Mögnuð mynd sem spáð er tilnefningum til Óskarsverðlauna. Aðalhlutverk: John Travolta, Kyra Sedgwick, Forest Whitaker og Robert Duvall. Leikstjóri: John Turtletaub (While You Were Sleeping, Cool Runnings). „Brellurnar eru sérstaklega vel útfærðar og senda kaldan hroll niður eftir bakinu á manni... það er engu líkara en maður sé staddur I myljandi hvirfilbyl þegar hann gengur yfir tjaldið." A.I. Mbl. „Brellur gerast ekki betri." Ó.J. Bylgjan „Brellurnar í ID4 eru ekki slæmar en þær jafnast ekkert á við Twister" People Magazine Sýnd kl. 5. Islenskt tal. Sýnd kl. 7. Enskt tal Reiðar konur enn efstar ENN verma reið- ar fyri'verandi eiginkonur topp- sætið á Tista að- sóknarmestu kvikmynda í Bandaríkjunum um síðustu helgi því greiddur að- gangseyrir á myndina , „The Pirst Wives Club“, nam 1.023 milljón- , um króna og er aðra vikuna í röð á toppnum. Mynd- in er þar með orðin ein af toppmyndum ársins. Myndin fjallar um konur sem hafa verið látnar róa, af eigin- mönnum sínum, fyrir yngri kon- ur. Með aðalhlutverk fara HUGH Grant og Sarah Jessica Parker í hlut- verkum sínum í „Ex- treme Measures". Goldie Hawn, Bette Midler og Diane Keaton. Læknaspennu- myndin „Extreme Measures“ með enska leikaranum Hugh Grant fer beint í annað sæti listans með 468,6 milljónir í greidd- an aðgangseyri. „Fly Away Home“ gengur vel sína þriðju viku á lista og „Independence Day“ tekur flugið upp á við aftur og er í sjötta sæti en var í því níunda í síð- ustu viku. Myndin hefur þénað alls 293,6 milljónir dollara frá því hún var frumsýnd í júlí. AÐSÓKN laríkjunum BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum I BIOAI í Bandaríl Titill Síðasta vika 1. (l) 2. (-.) 3. (2.) 4. (-.) 5. (3.) 6. (9.) 7. (5.) 8. (6.) 9. (4.) JLíLl First Wives Club Extreme Measures 3 Days in The Valley Fly Away Home Independence Day Bulletproof First Kid Maximum Risk Tin Cup 1.023,0 m.kr. 468.6 m.kr. 270.6 m.kr. 231,0 m.kr. 211.2 m.kr. 165,0 m.kr. 132,0 m.kr. 125,4 m.kr. 112.2 m.kr. 79,2 m.kr. 15,5 m.$ 7.1 m.$ 4.1 m.$ 3.5 m.$ 3.2 m.$ 2.5 m.$ 2,0 m.$ 1,9 m.$ 1,7 m.$ 1.2 m.$ 42,0 m.$ 7,1 m.$ 15.2 m.$ 3.5 m.$ 13.5 m.$ 293,6 m.$ 18.4 m.$ 22.5 m.$ 12,9 m.$ 51.3 m.$ IU *li Frumsýnd á morgun Danir taka upp þráðinn KVIKMYNPIR lláskólabíó D a n s k i r kvikmyndadagar HÆTTULEG KYNNI „FARLIGT VENSKAB“ ★ ★ V2 Leikstjóri: Jörn Faurschou. Handrit eftir sögu Thorstein Thomsen, Drengur án líkama. Aðalhlutverk: Ulf Pilgaard, Morten Schaffalitzky, Kenn Godske og Ilelle Fagralid. Danmörk. 1995. íslenskur texti. FYRIR nokkrum árum var ákveð- in tegund af gamanmyndum mjög áberandi í Hollywood. Þaðan kom hver myndin á fætur annarri um lík- amsskipti þar sem sálin var flutt úr einum líkama í annan, úr föður í son og aftur til baka og þar fram eftir götunum. Frægust þessara mynda er „Big“ en í henni lék Tom Hanks 12 ára strák í búk fullorðins manns. Síðan dó þessi tískusveifla út fyrir nokkrum árum eins og aðrar í Holly- wood en svo fer maður á Danska kvikmyndadaga og þar dúkkar hún upp öllum að óvörum í myndinni Hættuleg kynni eftir Jörn Faursc- hou. Hún er mest gamansöm en stund- um hrollvekjandi saga um vísinda- mann og lækni með ólæknandi sjúk- dóm sem hyggst framlengja líf sitt með því að flytja heilastarfsemi sína í frísklegan ungling. Aðgerðin tekst frábærlega nema frísklegi ungling- urinn í sársjúkum líkama læknisins er ekki dauður úr öllum æðum, ef svo má segja, og hyggur mjög á að snúa við blaðinu. Sá sem ber þessa mynd uppi er Ulf Pilgaard (úr Nætui-verðinum) sem leikur bæði helsjúkan lækni við dauðans dyr og spaugilegan ungl- ingspilt í likama læknisins. Bæði hlutverkin leika í höndum hans, sér- staklega virðist hann hafa ánægju af því að ganga í bamdóm. Annar leikur er með mestu ágætum. Þrátt fyrir í raun grafalvarlegan efniviðinn svífur þægilegur danskur húmor yfir vötnum og nóg er af kómískum létti. Hættuleg kynni hefur það fram yfir Hollywoodmyndirnar að persónurn- ar virðast af holdi og blóði en ekki tilbúinn varningur af færibandi kvik- myndaveranna. Handritið er skemmtilega skrifað og leikstjóranum, Jörn Faurschou, tekst einnig að sveipa myndina dulúð-i og jafnvel hrolli með hinn dauðvona en vinalega lækni eins og Franken- stein í sínu dimma stórhýsi, sem iðulega er myndað eins og kastala- bygging um óveðursnótt. En þótt vel takist til með allar framkvæmdir og myndin sé hin ágætasta skemmt- un bætir hún engu við það sem gert hefur verið í þessum myndaflokki vestra og maður getur spurt sjálfan sig af hveiju Danir nenna að eltast við útdautt Hollywood-gaman. Arnaldur Indriðason. Blöðrugullfiskur með eina blöðru ► ÞESSI vanskapaði blöðrugullfiskur, sem er aðeins með blöðru öðru megin á andlitinu, sést hér svamlandi í fiskabúri í verslanamiðstöð í Singapore. Fiskurinn er afar sjaldgæfur og hefur vakið mikla athygli gesta í miðstöðinni. Rétt skapað- ir gullfiskar af þessari gerð eru með blöðrur á báðum hliðum andlitsins. Spádómar biblíunnar Opinberunarbókin Enn eitt námskeiðið um hrífandi spádóma Bilíunnar hefst á Hótel íslandi, Norðursal, 30. september kl. 20 og verður námskeiðið á mánudögum og fimmtudögum á sama tíma. Fyrirlesari verður dr. Steinþór Þórðarson. Þátttaka er öllum ókeypis og vönduð námskeiðsgögn eru einnig ókeypis. Að venju verður mikið spurt og spjallað um efnið hverju sinni. Nánari upplýsingar og innritun í síma 588 7100 á skrifstofutíma eða síma 554 6850 og 554 6665 á öðrum tfmum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.