Morgunblaðið - 02.10.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 11
Stjörnukokkarnir Jacqúes Bertrand
og Emanuel Destrait frá Michelin
veitingastaðnum Les Cédres í
Lyon, starfa með matreiðslu-
mönnum Perlunnar og Óðinsvéa.
Fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld frá 3. til
20. október.
Sérvalin Cótes du Rhóne vín frá
M. Chapoutier verða á villibráðar-
vínseðli okkar.
Á hladborðinu verða m.a. eftirtaldir réttir.
Ofnsteikt villigœs með portmnssósu Hreindýra „
Villiandarbringur að hcetti hússins Villigœsa „P
Hreindýrabuff í gráðaostasósu Svartfuglsbr
Heilsteiktur hreindýravöðiri kryddjurtun
Rjúpusúpa Reyktar luru
Hreindýrasmásteik „Flambé" Koníaksgraf
Villigœsasmásteik með tittuberjasósu Birkisaltað l
Reyktar endur með hrútaberjasósu Lambahrygi
Heitreyktur svartfugl sveppafyllini
Andalifrarkæfa með rúsinum og Norðlensk si
eplum í scetu irini hcetti „Kristj
Svartfugls „Paté" Lambasmás
Marineraður hvalur í soja og engifer
Villiandargalantin
Villisveppir í smjörkcenum
Heitreykt fjallableikja
Appelsinulegin sjóbleikja
Laxakótelettur með
„Hollandaisesósu "
Reyktur lax með piparrótarsósu
Graflax með sinnepssósu
Reyktur áll
Ostar í úrvali
Allt með tilheyrandi meðlceti
Rétta aukil Þá munu þeir
félagar Jacques og Emanuel
galdra fram ýmsa forvitnilega
oggómsæta rétti að hœtti Lyon
búa, úr íslensku inllibráðinni.
Bonne appetitl
við Óðinstorg
Borðapantanir t stma 552 5090
Borðapantanir í síma 562 0200
FRÉTTIR
Arlegnr fundur Tourette-samtakaima á Norðurlöndum haldinn á Islandi í fyrsta sinn
ÁRLEGUR fundur Tourette-sam-
taka á Norðurlöndunum var í fyrsta
sinn haldinn á íslandi um sl. helgi.
Tourette Syndrome (TS) er algeng-
asti ættgengi taugasjúkdómur í
heimi. Helstu einkenni TS eru
ósjálfráð hljóð og hreyfingar,
áráttuhegðun og oft athyglisbrestur.
Elísabet K. Magnúsdóttir, formaður
Tourette-samtakanna á íslandi, seg-
ir að fundurinn hafi verið afar
árangursríkur. Norrænu-samtökin
hafi m.a. ákveðið að efla samstarf
sín á milli á sviði menntamála. Því
til viðbótar hafi verið ákveðið að
auka samvinnu við samtök utan
Norðurlandanna.
Elísabet lagði áherslu á mikilvægi
norræna samstarfsins. „Ég get nefnt
að íslensku samtökin voru upphaf-
Borið
hefur á
„sniffi“
NOKKUÐ hefur verið um það að
undanförnu að unglingar hafa ver-
ið staðnir að því að þefa af hættu-
legum efnum í von um að komast
í vímu, aðallega gasi.
Ómar Smári Armannsson segir
ljóst að unglingarnir séu að bjóða
heim hættu á andlegum og líkam-
legum skaða með þessu athæfi, auk
þess sem sprengju- og íkveikju-
hætta myndist ef þeir eru að
„sniffa" úr gaskútum innandyra.
Hann bendir meðal annars á atvik
sem varð við Elliðavatn fyrir
nokkru, þar sem kofí með nokkrum
ungmennum innandyra skemmdist
mikið eftir gassprengingu.
Dæmi um heilaskaða
„Fyrir um tíu árum var algengt
að ungmenni væru að anda að sér
gufum úr límtúpum, leiðréttingar-
lakki og gaskútum, en svo virðist
vera sem unglingar á aldrinum
13-15 ára í dag hafi gleymt þeim
alvarlegu afleiðingum sem „sniffið"
hefur. Má meðal annars benda á
alvarlegan heilaskaða sem ungling-
ur varð fyrir eftir „sniff" í skóla í
Breiðholti í því sambandi," segir
Ómar Smári.
Hann segir að foreldrar verði að
vera á varðbergi gagnvart þessum
vágesti, auk þess að gæta þess að
lögboðinn útivistartími ungmenna
sé virtur.
------» ♦ ♦------
Eldur á Ket-
ilvöllum í
Laugardal
ELDUR kom upp í íbúðarhúsinu
að Ketilvöllum í Laugardalshreppi
um kvöldmatarleytið á mánudag.
Talið er að kviknað hafi í út frá
feiti í potti á eldavél.
Þegar Slökkvilið Laugardals kom
á vettvang, um tíu mínútum eftir
að gert var viðvart, höfðu íbúar í
húsinu þegar slökkt eldinn, sem
náði ekki að breiðast út í önnur
herbergi. Ólafur Jónasson slökkvi-
liðsstjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þeir hefðu brugðist
hárrétt við með því að loka dyrum
og gluggum eldhússins þannig að
reykurinn kafnaði. Því hefði eftir-
leikurinn verið auðveldur fyrir
slökkviliðið. Að sögn Ólafs er allt
ónýtt í eldhúsinu en þar sem húsið
sé allt úr steini hafi eldurinn ekki
náð að breiðast frekar út.
Öldruð kona sem býr í húsinu
var flutt á Sjúkrahús Suðurlands
til skoðunar en þar fengust þær
upplýsingar í gær að henni hefði
ekki orðið meint af.
Samstarf á sviði
menntamála aukið
lega stofnuð fyrir hvatningu frá
Norðmönnum fyrir um fimm árum.
Norðmenn hafa reyndar verið leið-
andi í samstarfinu frá upphafi. Hin-
ir hafa fylgt á eftir og núna er ver-
ið að stofna síðustu samtökin á
Norðurlöndunum í Finnlandi," sagði
hún.
Seinni daginn héldu Margrét Héð-
insdóttir og Helga Siguijónsdóttir
fyrirlestra, að sögn Bjargar Árna-
dóttur, blaðafulltrúa. „Margrét tal-
aði um reynslu sína af því að kenna
nemendum með Tourette-einkenni í
Tjarnarskóla. Nemendur með Tour-
ette-einkenni hafa flykkst í skólann
enda hefur þeim verið sinnt sérstak-
lega vel og árangurinn hefur ekki
látið á sér standa. Helga Sigutjóns-
dóttir, námsráðgjafi í Menntaskólan-
um í Kópavogi, tók svo við af Mar-
gréti og talaði um kennslu nemenda
á framhaldsskólastigi. Afar góður
rómur var gerður að máli beggja
fyrirlesaranna og augljóst að snert
hafði verið við viðkvæmum streng,"
segir Björg. Sjálf fjallaði hún um
reynslu foreldris í erindi sínu. Jónas
G. Halldórsson, sálfræðingur, var
fjórði íslenski fyrirlesarinn á fund-
inum. Hann fjallaði um sértæka
námserfiðleika barna og unglinga.
Efst á baugi meðal félaga í nor-
rænum Tourette-samtökum eru, að
sögn Elísabetar og Bjargar, umræður
um kosti og galla lyfjagjafar, trygg-
ingalöggjöf hvers lands og afstöðu
barnaverndaryfírvalda. Erlendar
rannsóknir gefa til kynna að 5 af
hverjum 1.000 einstaklingum hafí
einhver einkenni Tourette. Hér á
landi hafa 500 manns greinst með
einkenni. Ofast eru þau greind í börn-
um frá tveggja til níu ára. Sjaldgæft
er að þau birtist eftir 15 ára aldur.
Alls sóttu 26 norrænir fulltrúar
fundinn um helgina. Norrænt þing
Tourette-samtaka á Norðurlöndun-
um fer væntanlega fram í Noregi
árið 1998.
í Perl
UIDUDlI