Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 15 Skiptum lokið í þrotabúi K. Jónssonar og Co. 397 millj. upp í kröfur SKIPTUM er lokið í þrotabúi niður- suðuverksmiðju K. Jónssonar og Co. en fyrirtækið varð gjaldþrota í mars árið 1993 eftir mikinn taprekstur árið á undan auk þess sem yfir fyrir- tækinu vofðu fjárkröfur vegna van- goldinna tolla vegna rækju sem seld var til ríkja Evrópusambandsins. Málaferli sem risu í kjölfar gjald- þrotsins töfðu skiptalok. Lýstar kröfur í þrotabúið voru 206 talsins, samtals að upphæð tæplega 438 milljónir króna. For- gangskröfur námu tæpum 13 millj- ónum króna, lýst var 32 veðkröfum að upphæð um 306 milljónir og al- mennar kröfur voru að upphæð um 118 milljónir króna. 87,3% af forgangskröfum greidd Til greiðslu upp í forgangskröfur fengust tæpar 11,3 milljónir eða um 87,3% af lýstum kröfum. Strýta hf. átti hæsta boð í verksmiðjuhús K. Jónssonar, 103 milljónir króna og þá keypti félagið einnig vörubirgðir, hráefni, vörur í vinnslu, umbúðir og birgðir sem og viðskiptakröfur fyrir samtals 283 milljónir króna. Upp í veðkröfur greiddust því 386 milljónir króna, en veðkröfum í búið var ekki öllum lýst. Alls greiddust rúmlega 397 milljónir króna upp í kröfur. Skiptastjóri í þrotabúi K. Jóns- sonar var Olafur Birgir Árnason hrl. Mikil slátursala eftir rólega byijun SLÁTURSALA er komin í fullan gang hjá Sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, en hún fór hægt af stað í byrjun sláturtíðar. Oli Valdimarsson sláturhús- stjóri sagði að gott veður í septem- ber hefði gert að verkum að salan hefði farið seint af stað. „Fólk var enn í beijamó og um annað að hugsa í góða veðrinu, það var ekki fyrr en fór að rigna svolítið að hauststemmning gerði vart við sig,“ sagði Oli. Upp á síðkastið hefur salan verið mikil, einkum í kringum helgar. „Það hefur verið svo mikil sala að við höfum ekki undan að verka sviðin,“ sagði hann, en starfsfólkið nær að verka um eitt þúsund hausa á dag. „Það dugar ekki miðað við söluna þessa síð- ustu daga, en við höfðum komið okkur upp dálitlum lager áður en slátursala hófst sem við göngum á,“ sagði Óli. Ársteinn hf. Lítið fékkst upp í kröfur SKIPTUM er lokið á þrota- búið Ársteins hf. í Ólafsfirði, en fyrirtækið sá um verkefni tengd gerð jarðganga í Ólafs- fjarðarmúla. Lýstar almennar kröfur í þrotabú Ársteins hf. námu rúmum 28,6 milljónum króna en alls fengust um 263 þús- und krónur upp í kröfur, eða 0,9156%. - kjarni málsins! Lömbin væn Lömbin koma helst til væn af fjalli að mati þeirra sem ekki vilja feitt kjöt, enda sumarið hagstætt norðan heiða. Meðal fallþungi dilka það sem af er sláturtíð er um 16 kíló sem er nokkuð svipað og var á liðnu ári. Að jafnaði koma vænstu lömbin úr Svarfaðardal og Ólafsfirði að sögn sláturhússtjóra. Morgunblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir Nýr flygill NÝR flygill var tekinn í notk- un við Tónlistarskóla Dalvíkur nýlega. Flygillinn er af gerðinni KAWAI. Nýja hljóðfærið kost- aði eina milljón og tvö hundr- uð og fimmtíu þúsund krónur, en eldri flygill tónlistarskól- ans var tekinn upp í kaupin. A myndinni er Sigríður Katrín að spila á nýja flygilinn í Tónlistarskóla Dalvíkur. /-----------\ Topptilboð Vivaldi kvenskór Verð: 2.495verð: 2.695 Ath.: Klassískir spariskór Ath.: Úr leðri með fínum gúmmísólum Póstsendum samdægurs 'Tbppskórinn Toppskórinn • Veltusundi við Ingólfstorg • Austurstræti 20 • Sími 552 1212. • Sími 552 2727. V J Hvernig gæludýr mundir þú fá þér ef þú ynnir rúmlega 44 milljónir I Víkingalottóinu? V I K I ISf G A L#YT w Til mikils að vinna! Alla miðvikudagafyrirki 16.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.