Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 22

Morgunblaðið - 02.10.1996, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÖBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Afram Silf- ur í Þjóð- minjasafni SÝNINGIN Silfur í Þjóðminja- safni hefur verið framlengd tii 13. október. Á sýningunni sem er í Bogasalnum getur að líta valda silfurgripi úr eigu safns- ins. Þar eru munir sem fundist hafa í jörðu eins og Þórsham- arinn frá Fossi og næla í Úr- nesstíl sem fannst hjá Trölla- skógi, borðsilfur, tarínur, púns- skeiðar og margs konar bún- ingasilfur. Þá er á sýningunni 18. aldar faldbúningur sem átti Vaigerður Jónsdóttir bisk- upsfrú í Skálholti með tilheyr- andi skarti. Silfursmíðaverkstæði Krist- ófers Péturssonar er uppsett í Bogasalnum en hann var einn síðasti _ silfursmiður gamia tímans. í tengsium við sýning- una gaf Þjóðminjasafnið út bókina Silfur í Þjóðminjasafni eftir Þór Magnússon þjóðminja- vörð og er í henni birt skrá um íslenska silfursmiði sem eiga verk sín varðveitt í söfnum og kirkjum. Þjóðminjasafn íslands er opið þriðjudaga, fimmtudaga, laug- ardaga og sunnudaga kl. 12-17. Nýr meðlim- ur Listakots NÝR meðlimur Listakots, Hrönn Vilhelmsdóttir hönnuður í Textílkjallaranum, hefur gengið til liðs við listakonurnar á Laugavegi 70 og opnað sýn- ingu í litla sal Listakots sem er á efri hæð gallerísins. Þar verða til sýnis silkitreflar fyrir konur, karla og krakka. Margskonar silki fær mis- munandi meðhöndlun hjá lista- konunni og síðan er silkið fóðr- að með ullarefni, auk annarra textílverka sem verða til sölu í galleríinu framvegis. Textíl- kjallari Hrannar verður þó op- inn á sama hátt og áður. Sýning Hrannar í Listakoti verður opin frá 1. til 10. októ- ber frá kl. 12-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaginn 5. október. Fyrirlestur í Nýlista- safninu KÍNVERSKI myndlistarmað- urinn Albert Ka Hing Liu heldur fyrirlestur í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b í Reykjavík, mið- vikudaginn 2. október kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist „Mun- urinn á engu og hinu smæsta" (The Difference between Noth- ing and the Smallest Thing). Albert Ka Hing Liu er fædd- ur í Hong Kong en nú búsettur í Toronto í Kanada. Þar er hann starfandi myndlistarmað- ur og listgagnrýnandi. í fyrir- lestrinum fjallar hann um sín eigin verk og sýnir litskyggnur. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Fjöllista fyrirlestur I DAG kynnir fjöllistamaðurinn Alastair Maclennan list sína kl. 16-17 í Barmahlíð, Skipholti 1. yngra 4. hæð. Alastair Maclennan kom hingað til lands á vegum fjöi- tæknideildar MHI. Hann verð- ur gestakennari þar í stuttan tíma. í dag, miðvikudag, fjallar hann um verk sín og svarar fyrirspurnum um þau. Enginn aðgangseyrir er og allir áhugamenn eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Fjölbreytt útgáfa hjá Vöku-Helgafelli LÁVARÐUR HEIMS OG FJÖLL NIÐURLANDA V AKA-HELG AFELL gefur út svipaðan fjöida bóka á þessu ári og í fyrra eða um 70 titla. Meðal þeirra eru þrjár íslenskar verð- launabækur, skáldsaga eftir Ólaf Jóhann Ólafs- son, bók eftir Elínu Páimadóttur og rit eftir Val Ingimundarson sagnfræðing um sam- skipti Islands og Banda- ríkjanna eftir síðari heimsstyrjöld. Ólafur Jóhann Ólafs- son sendir nú frá sér nýja skáldsögu. Sagan hefur hlotið nafnið Lá- Ólafur Jóhann Ólafsson varður heims og kemur Óiafur Jó- hann þar að lesendum sínum úr óvæntri átt, segir í kynningu. Er- lendir útgefendur hafa þegar sýnt nýju bókinni áhuga en önnur skáld- saga hans, Fyrirgefning syndanna, hefur nú verið geftn út í sex þjóð- löndum. Með fortíðina í farteskinu er ný bók eftir Elínu Pálmadóttur. Þetta er saga sem Elín spinnur í kringum þrjár konur úr ætt sinni, raunar eru þar í aðalhlutverki amma höfundar, langamma og langalangamma. Valur Ingimundarson sagnfræð- ingur fjallar um samskipti íslands og Bandaríkjanna á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Valur hefur um árabil rannsakað samband þjóðanna á þessum tíma, m.a. farið í gegnum skjalasöfn vestra sem nýlega voru opnuð. Saklaus í klóm réttvísinnar eftir Jónas Jónasson fjallar um Magnús Leópoldsson og 105 daga gæslu- varðhaldsvist í Síðumúlafangelsi fyr- ir tveimur áratugum. Lögreglan sótti hann á heimili hans árla morguns og var hann sakaður um að hafa myrt Geirfinn Einarsson. Séra Pétur Þórarinsson og Ingi- björg Siglaugsdóttir í Laufási hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika, hann misst báða fætur vegna syk- ursýki,_ hún fengið bijóstakrabba- mein. í nýrri bók, sem Friðrik Erl- ingsson skrifar, lýsa þau því hvernig þau hafa tekist á við mótlætið. Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent í fyrsta sinn í haust en samkeppni um þau lauk fyrr á þessu ári. Verðlaunabókin kemur út hjá Vöku-Helgafelli sama dag og þau verða afhent. Ekki verð- ur upplýst hver þöfundurinn er fyrr en á þeim degi. í haust verða einnig afhent íslensku barnabókaverðlaun- in fyrir myndskreytta bók fyrir yngstu lesendurna og kemur verð- launabókin út sama dag hjá Vöku- Helgafelli. I vor kom út verðlauna- bókin Grillaðir bananar en hún er fyrri bókin sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin á þessu ári. Höfundar bókarinnar eru mæðgurn- ar Ingibjörg Möller og Fríða Sig- urðardóttir. Að öðrum íslenskum skáldverkum má nefna tvær nýjar kiljuútgáfur með verkum Halldórs Laxness, Vef- arann mikla frá Kasmír og Söiku Guðrún Helgadóttir Vöiku. Pétur Már Ólafsson bók- menntafræðingur ritar formála að báðum bókunum en texti þeirra hef- ur verið endurunninn í tölvu. Þá endurútgaf Vaka-Helgafell fyrr á þessu ári Sjálfstætt fólk, íslands- klukkuna og Barn náttúrunnar, auk enskrar útgáfu af Kristnihaldi undir Jökli, Under the Glacier, en nú er unnið að því að koma öllum skáld- verkum Halldórs Laxness á tölvu- tækt form. Ljóðasafn Davíðs Stefánssonar kom út í fyrra og seidist upp. Safn- ið hefur nú verið endurprentað og sett í nýja öskju. Elías Snæland Jónson gefur út fyrstu skáldsögu sína í haust en áður hefur hann meðal annars sent frá sér heimildabækur um kreppuár- in og nokkrar unglingabækur. Skáldsagan ber nafnið Draumar undir gaddavír. Umgjörð sögunnar er sjávarþorp á Suðurnesjum árið 1959. Lítið samfélag er hlaðið spennu kalda stríðsins og einkennist af nábýlinu við bandaríska herinn, auk þess sem rokkið er hvarvetna í eyrum. Guðrún Helgadóttir sem hlotið hefur Norrænu barnabókaverðlaun- in sendir frá sér nýja bók nú í haust sem er sjálfstætt framhald metsölu- bókarinnar Ekkert að þakka! sem út kom í fyrra. Guðrún Eiríksdóttir sem hlaut íslensku barnabókaverð- launin fyrir sögu sína Röndóttir spó- ar fyrir nokkru hefur skrifað nýja bók fyrir börn og unglinga sem nefn- ist Saltfiskar í strigaskóm. Þá heldur Vaka-Helgafell áfram endurútgáfu sinni á sögunum um Jón Odd og Jón Bjarna. Nú kemur önnur bókin út í þessum flokki sem nefnist Meira af Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Þá má geta bókarinnar Vér ungl- ingar sem fjallar í gamni og alvöru um það hvernig er að vera unglingur og helstu áhyggjuefni sem leita á hugann. Þórey Friðbjörnsdóttir, rit- höfundur þýddi og staðfærði bókina. Hátíðarréttir, snjallyrði og þjóðsögur Vaka-Helgafell gefur út nokkrar íslenskar bækur almenns efnis á þessu ári. Nú kemur út þriðja bókin í flokknum íslenskar gæðauppskrift- ir og nefnist hún Hátíðarréttir. Rit- stjórar bókarinnar eru Björg Sigurð- ardóttir og Hörður Héðinsson sem kunn eru fyrir umsjón með mat- reiðsluklúbbnum Nýir eftirlætisrétt- ir. Áður hafa komið út í þessum Cees Nooteboom Robert James Waller flokki bækurnar Grillréttir og Pasta- réttir Símon Jón Jóhannsson og Axel Ammendrup hafa tekið saman Stóru tilvitnanabókina. Þar safna þeir saman um sex þúsund tilvitnunum, innlendum og erlendum. í haust kemur út hjá Vöku-Helga- fell bókin Siglfirskar þjóðsögur og sagnir sem Þ. Ragnar Jónsson, fyrr- verandi bæjargjaldkeri á Siglufirði, hefur tekið saman. í bókinni er að finna á annað hundrað þjóðsögur og sagnir frá ýmsum tímum sem tengj- ast hinum fornu Siglufjarðarbyggð- um. Fyrr í sumar gaf Vaka-Helgafell út tvær bækur um jarðfræði ís- lands. Önnur er á ensku og þýsku og nefnist Earth in Action og land im Werden en hin er á ensku og nefnist Volcanoes in Iceland. Þá eru ótaldar fimmtán bækur sem nefndar eru „Smábókasafn Vöku-Helgafells“ og út komu snemma sumars en það voru eftir- taldar bækur: Fugl á garðstaurnum og fleiri smásögur eftir Halldór Laxness, Stjórnari himintunglanna og fleiri smásögur eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Hrafnkels saga Freys- goða í útgáfu Halldórs Laxness, Hávamál, Ljóðaperlur eftir Jónas Hallgrímsson, Hlini kóngsson og fleiri íslensk ævintýri, Djákninn á Myrká og fleiri íslenskar drauga- sögur, Púkinn og fjósamaðurinn og fleiri íslenskar þjóðsögur, Snjall- yrði, Samkvæmisleikir, Hvað segja stjörnurnar um þig?, Hvenær gerð- ist það? Atburðir og ártöl úr íslands- sögunni eftir Jón R. Hjálmarsson, Stjórnarskrá Lýðveldisins íslands, Nýju fötin keisarans og fleiri ævin- týri eftir H.C. Andersen og Hvern dreymdi þig? Þýdd skáldverk Vaka-Helgafell gefur út fjölda þýddra bóka í ár. Frásögn úr fjöllum Niðurlanda eftir Holiendinginn Cee Nooteboom kemur út fyrir jólin en Nooteboom hlaut Evrópsku bók- menntaverðlaunin 1992 fyrir Sög- una sem hér fer á eftir en hún kom út í fyrra í tengslum við komu hans á bókmenntahátíð í Reykjavík. Sverrir Hólmarsson þýddi. Hann þýðir einnig skáldsöguna Svikinn veruleiki eftir Danann Michael Lars- en. Larsen hefur verið líkt við landa sinn Peter Höeg en Svikinn veruleiki kemur nú út í um tuttugu löndum. Kona Eldhúsguðsins eftir Amy Tan kemur út hjá Vöku- Helgafelli í_ár í þýðingu Sverris. Áður hefur komið út á íslensku bókin Leikur hlæjandi láns eftir hana. Erlendar bækur almenns efnis Súpa fyrir sálina er bandarísk bók sem setið hefur á metsölulistum þar í landi í tvö ár. Aðeins eitt barn er sönn saga sem fjallar um unga konu í Kína sem tekur þátt í að þvinga konur í fóstur- eyðingu allt fram á níunda mánuð því að þær mega að- eins eignast eitt barn. Arabíudætur er sjálfstætt fram- hald metsölubókarinnar / fjötrum sem kom út fyrir nokkru hjá Vöku- Helgafelli. Hér segir frá prinsessu í Sádi Arabíu og þeim hlekkjum sem hún býr við. Meðal haustbókanna er handbók- in Börn og skyndihjálp frá breska útgáfufyrirtækinu Dorling Kinders- ley. Þar er að finna Ieiðbeiningar um það hvernig bregðast skuli við þegar hættu ber að höndum og er bókin gefin út í samvinnu við Rauða kross Islands. Vaka-Helgafell gefur út framhald bókarinnar Konan sem man en hún kom út í fyrra og var meðal sölu- hæstu skáldsagna eins og í flestum nálgæum löndum. Nýja bókin nefn- ist Rödd arnarins og segir frá lífi indjána í Ameríku fyrir nokkur hundruð árum. Metsölubókin Hestahvíslarinn eft- ir Bretann Nicholas Evans var seld fyrir metfé um víða veröld áður en höfundurinn hafði lokið við að skrifa hana! Nú er verið að kvikmynda söguna með Robert Redford í aðai- hlutverki. Andlit óttans eftir Minette Walt- ers er sakamálasaga sem hlaut Gullrýtinginn í Bretlandi þegar hún kom þar út. Vaka-Helgafell gefur út nýja bók eftir höfund skáldsögunnar Brýrnar í Madisonsýslu, Robert James Wall- er, og nefnist hún Tónlist tveggja heima. Brúðuhúsið er önnur bók metsölu- höfundarins Evelyn Anthony sem út kemur á íslensku en hún er þekkt fyrir spennandi sögur þar sem konur eru í aðalhlutverki. Vaka-Helgafell gefur út nýja bók eftir Ken Follett, og nefnist hún Brotnir hlekkir. Þá kemur út ný bók eftir Victoriu Holt sem nefnist I skugga fortíðar. Þýddar barna- og unglingabækur Hjá Vöku-Helgafell koma einnig út þýddar barna- og unglingabækur. Þar má nefna tvær barnabækur um Hringjarann frá Notre Dame sem tengjast nýrri bíómynd frá Walt Disney fyrirtækinu sem frumsýnd verður hér á landi um næstu jól. Þá gefur bókaforlagið út tólf nýjar barnabækur í flokknum Ævintýra- heimurinn en það eru ýmis sígild ævintýri í búningi Disneys. Japönsk listaverkagjöf til Listasafns Islands LISTASAFN íslands hefur eign- azt verk eftir japanska myndlist- armanninn Atsuo Ishii. Á samsýningun íslenskra og japanskra myndlistarmanna í Norræna húsinu voru meðal ann- ars nokkrar höggmyndir eftir einn af þekktustu myndlistar- mönnum Japans, Atsuo Ishii. í framhaldi af sýningunni ákvað Ishii að afhenda Islensk-japanska félaginu á íslandi til varðveislu stóra höggmynd úr grásteini sem hann vann hjá Steinsmiðju Sig- urðar Helgasonar í Kópavogi, í þakklætisskyni fyrir þær ágætu viðtökur sem hann og verk hans hlutu meðan á dvöl hans stóð. Islensk-japanska félagið hefur nú afráðið að færa Listasafni ís- lands höggmyndina til eignar. Listamaðurinn bætti síðan um betur og afhenti Listasafni ís- lands að gjöf tvær höggmyndir úr travertínmarmara sem einnig voru á sýningunni í Norræna hús- inu. „Listasafn íslands er ákaflega þakklátt íslensk-japanska félag- inu og listamanninum Atsuo Ishii fyrir þessar höfðinglegu lista- verkagjafir sem eiga eftir að veita Islendingum ómetanlega innsýn í japanska nútímamyndlist og hug- arheim frábærs myndhöggvara," segir í kynningu safnsins. Höggmyndir Atsuo Ishiis, sem allar nefnast „Tími og rými“, verða til sýnis á neðri hæð Lista- safns íslands á næstu vikum. L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.