Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 23

Morgunblaðið - 02.10.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 23 LISTIR Morgunblaðið/Golli Danto um heimspekinginn Warhol FIJLLT var út úr dyrum á fyrir- lestri bandaríska heimspekings- ins Arthurs C. Danto, sem hann hélt á vegum Heimspekideildar Háskóla Islands og Listasafns Reykjavíkur í Lögbergi á fimmtudag. Fyrirlesturinn hét Warhol sem heimspekingur og fjallaði um þær spurningar um listina og stöðu hennar sem verk popplistamannsins Andys Warhols hafa vakið, til dæmis um það hvers vegna einn hlutur er listaverk en ekki annar, jafn- vel þótt hlutirnir tveir séu ná- kvæmlega eins. Danto fjallaði meðal annars um „Brillo box“ Warhol, sem einmitt kveikti þessa spurningu í huga margra þegar það var sýnt árið 1964 í New York, og komst að þeirri niðurstöðu að Warhol hefði allt- af reynt að storka hefðbundn- um skilgreiningum á listinni, að hann hefði alltaf dansað á landamærum listar og ekki list- ar, eða veruleika. Sagði Danto að Warhol hefði verið heim- spekingur í list sinni, verk hans gæfu kannski engin svör en þau vektu allar erfiðustu spurning- arnar. Vegna plássleysis í allt of lít- illi kennslustofunni í Lögbergi þurftu fjölmargir frá að hverfa á fimmtudaginn og misstu þar með af þessu eina tækifæri til að hlýða á erindi Dantos. Einnig vakti það athygli og gremju meðal áheyrenda að Danto var ekki búin nægilega góð aðstaða til að halda fyrir- lesturinn; þannig fóru skyggn- ur sem Danto sýndi með fyrir- lestrinum fyrir ofan garð og neðan að miklu leyti vegna vandræðagangs með ljósin í salnum. Góðar og slæmar fyrirmyndir Morgunblaðið/Jón Svavarsson MARGRÉT Kr. Pétursdóttir og Ólöf Sverrisdóttir í hlutverkum sínum. LEIKLIST Furðulcikhúsið MJALLHVÍT OG DVERGARNIR SJÖ Höfundar: Margrét Kr. Pétursdóttir og Ólöf Sverrisdóttir. Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson. Leikarar: Margrét Kr. Pétursdóttir og Ólöf Sverrisdóttir. Leikmynd: Aslaug Leifsdóttir. Tónlist úr ýmsum áttum en lokalag eftir Ingólf Steinsson. Aðstoð: Geir Magnússon. Sunnudagur 29. september. TOVE Jansson skrifaði eftirfar- andi skilgreiningu á leikhúsi í bók sinni Örlaganóttinni: Leikhús er þýðingarmest allra heimsins stofn- ána, því að þar er sýnt hvernig fólk ætti að vera, hvernig það gæti ver- ið ef það þyrði, og hvernig það er í raun og veru. Það er ekki nema von að múmínmamma drægi þá ályktun að þarna væri átt við betr- unarhús. Sýning furðuleikhússins á Mjallhvíti og dvergunum sjö fellur innan þessarar skilgreiningar. Þar er verið að kenna börnunum ákveð- in sannindi og verðmætamat sem á að búa þau betur undir lífið. Leikkonurnar tvær, sem einnig semja verkið, byggja á ýmsum út- gáfum af sögunni um Mjallhvíti, m.a. teiknimynd Disneys, og tekst mjög vel að koma sögunni á svið og að ná til barnanna í áhorfenda- hópnum. Þær héldu hugum áhorf- enda föngnum, sérstaklega í hlut- verkum Mjallhvítar og stjúpunnar. Börnin tóku þátt í sýningunni af öllu hjarta, réðu veiðimanninum heilt, sungu með Mjallhvíti og lögðu til leikhljóð, andmæltu stjúpunni hástöfum auk þess sem eitt þeirra sló til hennar eitt andartak þegar hún uggði ekki að sér. Margt er sniðuglega gert með einfalda leikmuni og búninga, t.d. eru leikkonurnar klæddar undra- pilsum sem koma að góðum notum við að skapa nýjar persónur. Verkið hefur mjög ákveðinn boðskap fram að færa; lögð er áhersla á mikil- vægi góðmennsku og kurteisi en dýrkun ytra útlits fordæmd. Einnig eru skýrð út erfið orð og hugtök í samvinnu við börnin og lögð áhersla á að orðið „stjúpa" þýðir alls ekki norn hejdur bara nýja konan hans pabba. í heild er þetta skemmtileg saga, fallega og spennandi fram færð af öryggi og útsjónarsemi. Börnin tóku þátt í þessu af lífi og sál, þau frökku kölluðu fram í svo glumdi í salnum en þau hægu og þægu sungu undurlágt með lög- unum. Foreldrarnir stóðu sig hins vegar ekki nógu vel: margir þeirra komu allt of seint á staðinn svo að sýningunni seinkaði og aðrir komu einir með hóp barna sem þeir gátu ekki eða reyndu ekki að hemja. Þetta olli því er líða tók á leikritið að fínlegri drættirnir í leiknum fóru fyrir ofan garð og neðan hjá flest- um. Það þýðir víst lítið að ala börn- in upp við góða siði ef foreldrarnir eru ákveðnir í að vera þeim sem verst fyrirmynd! Sveinn Haraldsson • NÝJASTA verk breska leik- skáldsins Harolds Pinters var frumsýnt fyrir skömmu í Lond- on, en það hef- ur hlotið frem- ur dræmar undirtektir, að því er segir í International Herald Tri- bune. Verkið kallast „Ashes to Ashes“. Leikdómari blaðsins fer hins vegar lofsamlegum orðum um það og segir spennuna í salnum, þær 60 mínútur sem verkið tekur í flutningi, magn- aða. Tvær persónur eru í sýning- unni, kona sem hefur verið beitt ofbeldi og karl sem hefur ef til vill verið kvalari konunnar og þjóðar hennar, í pólitískum og kynferðislegum skilningi. Pinter leikstýrir verkinu, en með hlutverkin tvö fara Lindsay Duncan og Stephen Rea. • í ÁRÓSUM fór fyrir skemmstu fram alþjóðleg keppni um besta söngleikinn. í keppnina, sem kostaði sem nem- ur um 200 milljónum ísl. kr., bárust um 300 söngleikir frá tuttugu löndum. Þau verk sem báru sigur úr býtum voru úr hinum enskumælandi heimi, tvö bandarísk og eitt breskt, og var um 30 mínútna hluti úr þeim settur á svið í Árósum. Um var að ræða verk eftir Bretann George Stiles; „Pétur Pan og „Skyttumar þijár". Þá var lífs- hlaup skoska skáldsins Robert Burns fært í söngleikjabúning undir heitinu „Rauð, rauð rós“ og að siðustu uppfærsla kanda- dísku hjónanna Craig Bohlmer og Marion Adler á „Varðmann- inum“ eftir Molnar. • BANDARÍSKA leikskáldið Edward Albee er einn þeirra sem fá heiðursverðlaun Kennedy-mið- stöðvarinnar þetta árið, fyr- ir framlag sitt til listsköpun- ar í Bandaríkj- unum. Bill Clinton Bandaríkja- forseti veitir verðlaunin 8. desember. Aðrir verðlaunahafar að þessu sinni eru leikarinn Jack Lemm- on, sveitasöngvarinn Johnny Cash, saxófónleikarinn Benny Carter og ballettdansarinn Maria Tallchief. • DAVID Bowie verður einn þeirra sem sýnir verk sín á Flór- ens-tvíæringnum sem er nýhaf- inn, en Bowie hefur hingað til fyrst og fremst höfðað til rokkunn- enda. Verk Bowie á sýn- ingunni nefn- ist„Hvaðan koma þau? Hvert fara David Bow.e þau?« og er um sex metra hátt. Tveir ljós- fræðilegir kassar hanga neðan úr loftinu og á milli þeirra nokk- urs konar mannsmynd. Hefur listamaðurinn lýst verkinu svo: „Tíminn flöktir um eilífðina eins og mynt sem snýst.“ Helgarferð London ,24.930 10. október HEIMSFERÐIR Lundúnaferðir Heimsferða njóta ótrúlegra vinsælda og fyrstu flugin okkar eru uppseld. Nú bjóðum við nýjan gististað, rétt hjá Oxford stræti, frábærlega vel staðsettur með góðum aðbúnaði. Öll herbergi með sjónvarpi, síma og baðherbergi. Síðustu sætin 10. október. Verð kr. 16.930 Flugsæti. Verð með flugvallarsköttum, mánudagur til fimmtudags í okt. 24.930 M.v. 2 í herbergi, Invemess Court með morgunverði, 10. okt., 4 nætur. Skattar innifaldir. Verð kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.