Morgunblaðið - 02.10.1996, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
plirr0íiwMal»ií
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÚTFLUTNIN GUR
HUGBÚNAÐAR
UTFLUTNINGUR á hugbúnaði hefur nær hundraðfald-
azt frá árinu 1990 til 1995 en á síðasta ári var flutt
út fyrir tæpan milljarð. Útflutningurinn nemur 27% að
meðaltali af veltu fyrirtækjanna innan Samtaka íslenzkra
hugbúnaðarfyrirtækja. Láta mun nærri að þar sé um að
ræða verðmæti, sem nemur um 800 milljónum króna. Þar
við bætast síðan sölur fyrirtækja á borð við Marel og
Kögun, sem selja hugbúnað með vélbúnaði eða þjónustu
og þegar dæmið er skoðað allt, er áætlað að heildarverð-
mæti útflutnings sé um 1 milljarður króna.
í blaðaukanum „Tölvur og tækni", sem fylgdi Morgun-
blaðinu um helgina, er rætt við íslenzka hugbúnaðarfram-
leiðendur, sem náð hafa langt í hugbúnaðargerð og sölu
erlendis og er þar velt upp þeirri spurningu, hvort unnt sé
að byggja framtíðarvelferð íslendinga að einhverju leyti á
þessari iðngrein, sem vaxið hefur svo mjög. Oddur Bene-
diktsson prófessor við tölvunarfræðiskor Háskóla íslands
segir þar m.a., að sitt mat sé að hugbúnaðargerð væri
fyrsta greinin, „þar sem íslendingar geta gert sig og hafa
gert sig gildandi alþjóðlega; skapandi starf sem selst og
skapar útflutning.“
Framleiðendurnir gagnrýna einnig afstöðu ríkisvaldsins,
sem geri allt of lítið til þess að styðja þennan arðbæra
iðnað, m.a. með því að ríkið kaupi lítið af þeim, en eyði
hins vegar fjármunum í að koma sér viða upp innan stofn-
ana tölvudeildum þar sem fram fari vinna sem auðveldlega
mætti kaupa af einkaaðilum.
Ein áhrifaríkasta aðferð ríkisvaldsins til þess að veita
innlendum hugbúnaði öflugan stuðning er sú að ríkið
hætti eigin umsvifum í hugbúnaðargerð, enda hefur aldrei
verið mörkuð sú stefna af ábyrgum aðilum, að íslenzka
ríkið ætti að hefja atvinnuumsvif á því sviði.
SÓKNÁ
ERLENDA MARKAÐI
VERÐBREFAFYRIRTÆ KIÐ Kaupþing hefur stofnað
dótturfyrirtæki í Lúxemborg í samstarfi við Roth-
schild-bankann þar í landi. Þetta er fyrsta fjármálafyrir-
tækið erlendis, sem að öllu leyti er í eigu íslendinga, og
hyggst Kaupþing reka tvo verðbréfasjóði í Lúxemborg til
að bytja með.
Það hefur sífellt færst í aukana að íslensk fyrirtæki
teygi anga sína til annarra landa. Fyrstu fyrirtækin til að
reka umsvifamikla atvinnustarfsemi erlendis voru fisksölu-
fyrirtækin, sem um áratuga skeið hafa verið með verk-
smiðjurekstur og sölustarfsemi vestanhafs, og Loftleiðir
hf. og Flugfélag íslands hf.
Á síðustu árum hefur dæmunum hins vegar fjölgað stöð-
ugt. SÍF rekur verksmiðju í Frakklandi og stofnaði nýlega
fyrirtæki í Barcelona. Flugleiðir sækja í sífellt auknum
mæli á erlenda markaði og flug með erlenda farþega milli
Evrópu og Bandaríkjanna, með viðkomu á íslandi, er
umsvifamikill þáttur í rekstri félagsins. Eimskip hefur
haslað sér völl erlendis, nú síðast með stofnun fyrirtækis
á vesturströnd Bandaríkjanna.
Með tilkomu samningsins um Evrópska efnahagssvæðið,
EES, opnaðist greið leið inn á Evrópumarkað fyrir íslensk
fyrirtæki. Þróun síðustu ára er hins vegar einnig til marks
um aukinn styrk og ekki síður sjálfstraust íslenskra fyrir-
tækja. Það má-stórlega draga í efa að íslenskt fjármálafyr-
irtæki hefði treyst sér í stofnun útibús í alþjóðlegri
fjármálamiðstöð á borð við Lúxemborg fyrir áratug. Nú
þykir það sjálfsagt og „eðlilegt skref“, líkt og Sigurður
Einarsson, starfandi forstjóri Kaupþings, orðaði það á
blaðamannafundi þar sem stofnun dótturfyrirtækisins var
kynnt.
Margir stjórnendur íslenskra fyrirtækja eru greinilega
farnir að líta á nágrannaríkin sem hluta af heimamarkaði
sínum. Islenski markaðurinn er lítill á alþjóðlegan mæli-
kvarða og því getur reynst hagstætt að færa út kvíarnar
til annarra ríkja og treysta þar með starfsgrundvöllinn.
Með starfsemi íslensks verðbréfafyrirtækis erlendis ættu
sömuleiðis að opnast nýir möguleikar fyrir íslenska fjárfesta.
Með auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja erlendis
verður afkoma þeirra háðari efnahagslegri þróun í ná-
grannaríkjunum. Þetta hefur bein áhrif á þjóðarbúskapinn
og kann til lengri tíma litið að draga úr þeim sveiflum sem
sviptingar í sjávarútvegi valda í íslensku efnahagslífi.
Morgunblaðið/RAX
TVEIR sigkatlar voru að myndast yfir sprungunni um miðjan dag. Fjærst o g til vinstri er
þriðji sigketillinn að myndast.
■
Þrír sigkatlar
að myndast
Eldgos hófst í 4 til 6 km langri sprungu
undir Vatnajökli á ellefta tímanum á
mánudagskvöld. Þrír sigkatlar voru að
myndast yfir sprungunni um miðjan dag í
gær. Ef gosið heldur áfram og veldur
Grímsvatnahlaupi gætu vegir og brýr á
Skeiðarársandi orðið í hættu.
ELDGOS hófst í 4 til 6 km
langri sprungu undir
Vatnajökli á milli Bárðar-
bungu og Grímsvatna um
kl. 22.30 á mánudagskvöld. Magnús
Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræð-
ingur á Raunvísindastofnun Háskól-
ans, segir að þrír sigkatlar hafi verið
að myndast yfir sprungunni um miðj-
an dag í gær.
Magnús flaug með flugvél Flug-
málastjómar ásamt fleirum yfir
svæðið í gær. „Við sáum greinilega
4 til 6 km langa sprungu í stefnunni
norðnorðaustur og suðsuðvestur frá
Grímsvötnum. Tveir sigkatlar, um 2
km í þvermál og um 100 m djúpir,
voru að myndast yfir sprungunni um
miðjan dag. Þriðji og ógreinilegasti
sigketillinn var að myndast við suð-
suðvesturenda sprungunnar. Grunn
sigdæld, um 4 km löng, var frá suður-
endanum niður í Grímsvötn," sagði
hann.
Hann sagði að frá sigkötlunum
rynni vatn í Grímsvötn. „Grímsvötn
höfðu því risið um 10 til 15 m um
miðjan dag. Sú hækkun samsvarar
því að um 0,2 til um 0,3 rúmkílómetr-
ar hafi komið í Grímsvötn frá því
gosið hófst eða frá því um hálfellefu
leytið á mánudagskvöld. Annars
standa Grímsvötn fremur lágt vegna
hlaupsins í vor. Ég býst við að þau
geti hækkað um allt að 50 metra.
Ef hins vegar gosið heldur áfram
getum við átt von á stærra Gríms-
vatnahlaupi en komið hefur síðustu
áratugi á næstu sólarhringum. Vegir
og brýr á Skeiðarársandi gætu í sliku
hlaupi orðið í hættu,“ sagði Magnús
Tumi.
Hann sagði að upplýsingar væru
um svipað gos árið 1938. „Það gos
hafði í för með sér eitt stærsta jökul-
hlaupið í Skeiðará á öldinni. Mestall-
ur Skeiðarársandur fór undir vatn í
flóðtoppnum. Við eigum ekki von á
jafnstóru hlaupi en viðbúið er að tölu-
vert stórt hlaup gæti orðið í Skeið-
ará,“ sagði hann.
30 til 50 milljónir rúmmetra af
gosefni komnar upp
Magnús Tumi sagði að áætlað
væri að 30 til 50 milljónir rúmmetra
af gosefni hefðu verið komnar upp
með gosinu á um 15 klukkutímum
um miðjan dag í gær. Hins vegar tók
hann fram að töluvert væri í að gos-
efni kæmist upp í gegnum jökulinn
enda væn jökullinn um 600 m að
þykkt. „Ég er ekki endilega viss um,
miðað við kraftinn núna, að gosið
fari í gegn. Gosið stóð í nokkra daga
árið 1938. Gosefnið varð 10 sinnum
meira en komið er í dag í þessu gosi.
Samt náði gosið ekki nema rétt und-
ir lokin uppúr jöklinum. Smáösku-
skvetta þakti pínulítið svæði á jöklin-
um.“
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur sagði að jarðskjálftarnir
hefðu farið upp í 3,5 á Richter frá
því í fyrrakvöld. Jarðskjálftunum
hefði fækkað eftir hádegi í gær. Hins
vegar hefði borið á reglulegum óróa-
kviðum. Oróakviðurnar væru ekki
ósvipaðar og í Grímsvötnum árið
1983.
Eins og Magnús Tumi tók hann
fram að bið gæti orðið á því að Gríms-
vatnahlaup kæmi fram í Skeiðará,
enda hefði orðið hlaup í Grímsvötnum
síðasta vor. „Vatnið gæti svo að ein-
hvetju leyti farið til vesturs í Skaftá
en katlar við upptök Skaftár tæmdu
sig líka fyrr á árinu. Þess vegna er
ekki víst að hlaup myndi fljótt koma
fram í vötnunum,“ sagði Ragnar.
Hjá honum kom fram að ef vatn fyndi
sér rás og hlypi fram myndi hlaupið
flýta fyrir gosi upp á yfirborðið.
Gos á milli megineldstöðva
Haukur Jóhannesson, jarðfræðing-
ur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði
gosið á milli megineldstöðvanna
Bárðarbungu og Grímsvatna. Bárð-
arbunga sæti á miðri sprungurein-
inni. Sprungureinin næði frá Torfa-
jökli, upp í Bárðarbungu, norður
Dyngjuháls og norður fyrir Trölla-
dyngju. „Við vitum að öðru hverju
hefur gosið í reininni. Hins vegar eru
heimildir óljósar og ekki vitað með
vissu nema um tvö gos fyrr á öldum.
Annað gosið hefur verið kallað Veiði-
vatnagos og varð árið 1477. Við gos-
ið varð til fjöldinn allur af gígunum
á Veiðivatnasvæðinu. Mikil aska kom
upp og barst til norðausturs. Hitt
gosið hefur verið nefnt Vatnaöldugos
og myndaði svokallað Landnámslag
um árið 871. Gosið varð á sprungu-
reininni suðvestan við sjálfa Bárðar-
bungu og óvíst hvort gosið hefur
verið í henni sjálfri á sama tíma.
Hins vegar er allt eins h'klegt að tölu-
verðar jarðhræringar hafi verið þar
á sama tíma eða svipað og gerðist í
Kröflu. Gosin hafa orðið inni í eld-
stöðinni og svo hafa sprungurnar
opnast norður- og suðurúr,11 segir
Ilaukur.
Hann segir að gríðarleg eldgos
hafi orðið í reininni snemma í nútím-
anum. „Við gosin runnu svokölluð
Þjórsárhraun og hið stærsta rann á
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 27
1 ' ■
'iSmjííiÉf:
Wm
■imms
■'ítJf.yS'pi
nwístoi
milli Ölfusár og Þjórsár alveg niður
í sjó. Hraunið er eitt hið stærsta sem
runnið hefur á jörðinni. Aftur og
aftur hafa orðið gos f reininni fytýr-
sunnan og norðan Bárðarbungu. Um
gos í sjálfu fjallinu vitum við hins
vegar sáralítið."
Grímsvötn virkasta eldstöð
landsins
Haukur sagði að gríðarlega stór
sigketill hefði myndast norður af
Grímsvötnum árið 1938. „Vatnið fór
inn í full eða nær full Grímsvötn og
auðvitað flóði út fyrir. Afleiðingin
varð gríðarlegt Skeiðarárhlaup enda
valda gos inn í jöklinum því að ísinn
bráðnar og vatnið leitar undan til að
fá útrás annars staðar," segir hann.
Núna gýs, að sögn Hauks, á svip-
uðum slóðum og árið 1938. „Gríms-
vötn eru megineldstöð eins og Bára1
arbunga og suðvestur úr henni er
sprungurein og er talið að Lakagígar
séu hluti af henni. Grímsvötn eru
vafalítið virkasta eldstöð landsins síð-
ustu þrjár til fjórar aldirnar. Þar
gaus að meðaltali á 10 ára fresti
framundir miðja þessa öld. Síðasta
stóra Grímsvatnagosið varð árið
1934 en síðast varð Grímsvatnagos
1983. í báðum gosunum náði eldgos-
ið að bijótast upp í gegnum ísinn.“
Minnti Haukur á að Grímsvötn
hefðu hlaupið með þeim afleiðingym
að Skeiðarárhlaup hefði orðið síðastá
sumar. „Grímsvatnalægðin tekur við
töluvert miklu eða þar til ákveðinni
stöðu er náð og Skeiðarárhlaup hefst.
Eftir fréttum að dæma hefur gosið
núna afrennsli til Grímsvatnalægðar-
innar,“ sagði hann og tók fram að
Grímsvatnalægðin væri askja eða sig-
ketill hálffull af vatni undir ísþekjunni.
■ •' ' VI •’ú:
-
GOS UIUPIR VATNAJÖKLI