Morgunblaðið - 02.10.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996 41
BREF TIL BLAÐSINS
Kópavogskirkja
Vetrarstarf
Kópavogskirkju
Frá sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni:
VETRARSTARF Kársnessóknar í
Kópavogi er hafið og verður það
fjölbreytt og líflegt í vetur eins og
undanfarin ár. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir helstu þáttum þess:
Guðsþjónustur
Guðsþjónustur eru í Kópavogs-
kirkju alla sunnudaga og að jafnaði
kl. 11.00. Kór kirkjunnar syngur
við guðsþjónusturnar en stjórnandi
hans og organisti er Örn Falkner.
Alla miðvikudaga eru kyrrðar- og
bænastundir í kirkjunni kl. 17.30.
Þar er lögð áhersla á helgi, kyrrð
og fyrirbæn. Fyrirbænaefnum má
koma til sóknarprests eða kirkju-
varðar í síma 554 1898 kl. 11.30-
17.00, þriðjudaga til föstudaga.
Barna- og unglingastarf
Barnastarf Kársnessóknar er í
Safnaðarheimilinu Borgum á
sunnudögum kl. 11.00 og eru for-
eldrar hvattir til þátttöku með börn-
um sínum. Þegar jólin nálgast verð-
ur m.a. boðið upp á jólaföndur.
Börnin í barnastarfinu taka þátt í
fjölskylduguðsþjónustum í Kópa-
vogskirkju sem eru mánaðarlega
yfir veturinn. Þar syngja þau og
setja sinn skemmtilega svip á guðs-
þjónusturnar. Börn úr skólakór
Kársness taka einnig þátt í fjöl-
skylduguðsþjónustunum en stjórn-
andi þeirra er Þórunn Björnsdóttir
kórstjóri. Umsjón með barnastarfí
hafa Vilborg Ólafsdóttir og Ólöf
Gerður Sigfúsdóttir en undirleik
annast Edda Borg.
í vetur verður boðið upp á sér-
stakt starf fyrir börn á aldrinum
8-9 ára. í fyrra var í fyrsta skipti
boðið upp á slíkt starf í sókninni
og mæltist það afar vel fyrir. Sam-
verur 8-9 ára barna verða í Safnað-
arheimilinu Borgum á miðvikudög-
um kl. 16.00-17.30. Umsjón: Vil-
borg Ólafsdóttir og Óskar Óskars-
son.
Hlúum að
börnum heims
-framtíðin
er þeirra
FRAMLAG ÞITT
ER MIKILS VIRÐI
<-7lT hjálparstofnun
r=Jr= # KIRKJUNNAR
- með þinni hjálp
Undanfarin ár hefur verið mjög
góð þátttaka í starfi 10-12 ára
(TTT) krakka og vona ég að svo
verði áfram. Samverur þeirra verða
í safnaðarheimilinu Borgum á mið-
vikudögum kl. 17.30-19.00. Um-
sjón: Olöf Gerður Sigfúsdóttir og
Oskar Óskarsson.
Æskulýðsfélag
Samvera æskulýðsfélagsins verð-
ur á sunnudögum kl. 20.00 í Safn-
aðarheimilinu Borgum. Þar eins og
í bamastarfinu verður lögð áhersla
á fjölbreytt, þroskandi og lifandi
starf. Umsjón með æskulýðsfélag-
inu hafa þau Óskar Óskarsson og
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.
Mömmumorgnar
Á þriðjudögum kl. 10.00-12.00
koma mæður saman í Borgum með
börn sín og eiga notalega stund sam-
an yfír kaffíbolla. Öðru hvetju koma
gestir í heimsókn, flytja erindi eða
miðla fróðleik á annan hátt. Þrátt
fyrir að nafnið mömmumorgnar
höfði fremur til mæðra en feðra eru
þeir að sjálfsögðu velkomnir. Um-
sjón: Vilborg Olafsdóttir.
Starf með eldri borgurum
Eins og undanfarin ár verður starf
með eldri borgurum í Safnaðarheim-
ilinu Borgum á fímmtudögum kl.
14.00-16.00. Boðið er upp á akstur
til og frá heimili. Umsjón: Margrét
Sigtryggsdóttir.
Vinafélag Kópavogskirkju var
stofnað á liðnum vetri og starfaði
af krafti. Félagið gengst m.a. fyrir
opnu húsi í Safnaðarheimliinu Borg-
um annan mánudag hvers mánaðar.
Vegna framkvæmda sem standa
yfir í kirkjunni og ráðgert er að ljúki
skömmu fyrir jól má búast við að
guðsþjónustur og kyrrðar- og bæna-
stundir falli öðru hverju niður á
framkvæmdatímanum.
ÆGIR FR. SIGURGEIRSSON,
sóknarprestur.
Samsæri
gegn mér?
Frá Þórdísi Björnsdóttur:
SÍFELLT færist ég nær grafarbakk-
anum. Ekki er nóg með að ellefan
sé hálfpartinn lögst í dvala heldur
er vagn nr. 111 jafnframt tekinn að
fara hamförum,
umbreytast í of-
urvaxinn og ógn-
vekjandi orm sem
ekki er samræðu-
hæft í og varla
líft vegna háværs
ískurs sem nístir
gegnum merg og
bein. Já, fyrr má
nú rota en dauð-
Þórdís rota. Hvar endar
Björnsdóttir þetta allt saman?
Hamskiptin hófust daginn eftir að ég
birti mína síðustu grein. Óttast ég
því samsæri gegn mér og veit hreint
ekki hvers ég á að vænta í komandi
framtíð - ef ég á mér þá framtíð!
Gjarnan mætti taka fram á strætó-
skiltum hvenær síðasti vagn leggur
af stað, líkt og áður var gert. Auk
þess þætti mér tilvalið að tekin væri
upp sú nýbreytni að leiðartafla hvers
vagns væri sett upp innan hans. Slíkt
væri gagnlegt undir ýmsum kring-
umstæðum.
ÞÓRDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
píslarvottur,
Brekkuseli 25, Reykjavík.
BIODROGA
snyrtivörur
z^iella
Bankastræti 3, sími 551 3635.
$
JtÞ'
Digital á íslandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
Vissir þú.,.
I I að til eru yfir 14 viðurkenndar miðilstegundir á meðal Iræfileikamanna
og kvenna í dag í veröldinni til að ná sambandi við fiamliðna og aðra heima,
s.s djúpsvefrimiðlar, segulbandsmiðlar, skyggnimiðlar, ljósmyndamiðlar,
spákonur, lækningamiðlar, ummyndunarmiðlar og líkanningamiðlar?
□ að í Sálarrannsóknarskólanum er kennt einu sinni í viku (eitt kvöld í viku
eða eitt laugardagssíðdegi í viku) allt um spíritisma, h'feftir dauðann og
hvemig miðlar starfa, sem og allar rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessum
afar mcrkilegu fyrirbærum og þær skýrðar út í máli og myndum og námsefhi
fýrir nemendum, og það fyrir hófleg skólagjöld?
Síðosti bekkur ársins byrjará morgun. Hringdu ogfáðu allar upplýsingar um
skólann og skemmtilega námið í honum nú á haustönninni. Svarað er í sima
skólans alla daga vikunnar
frákl. 14:00 úl 19:00.
Sálarrannsóknarskólinn
- mest spennandi skólinn í bænum -
Vegmúla 2,
sími 561 9015 og 588 6050.
Vió
aó hæfu
fólki...
.sem hefur áhuga á
aó ná forskoti
á vinnumarkaóinum
Skrifstofutækni
Bókhaldstækni
Tölvunám
£ Tölvuskóli
Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími: 561 6699, fax: 561 6696
ÍTAISKIR DAGRR
Miðvikudag - fimmtudag - föstudag - laugardag
20% staðgreiðsluafsláttur
1 5% afsláttur af kortum
Q €f þú vilt
QÓðon fc
góöon fcttnað
benellon
Laugavegi 97, sími 552 2555
£ i’l ATIIWniMÉMBBMHBBai