Morgunblaðið - 02.10.1996, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
U m s j 6 n
Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavíkur
MIÐVIKUDAGINN 25. september
var spilaður einskvölds Monrad
Barómeter með þátttöku 44 para.
Spilaðar voru 7 umferðir með 4
spilum á milli para. Meðalskor var
0 og efstu pör voru:
Helgi Sigurðsson - Sigurður B. Þorsteinsson +158
Hermann Lárusson - Olafur Lárusson +124
Ragnar Hermannsson - Einar Jónsson +88
Jakob Kristinsson - Eiríkur Hjaltason + 70
Friðrik Egilsson - Snorri Steinsson + 69
Matthías G. Þorvaldsson - Aðalsteinn Jörg. +68
Næstkomandi miðvikudaga
verða spilaðir 4 einskvölds Mitchell
tvímenningar og Monrad Barómet-
er til skiptis. Minnt er á að 4 bestu
kvöldin af 5 í hvorri keppni gilda
til sérstakra heildarverðlauna.
B.R. mun hefja bikarkeppni í
tvímenningskeppnunum bráðlega.
Mun hún fara þannig fram að pör
verða dregin á móti hvort öðru og
það par sem fær hærra skor það
kvöld kemst áfram í næstu umferð.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Fimmtudaginn 26. september var
spilaður einskvölds tölvureiknaður
Howell tvímenningur með forgefn-
um spilum. Meðalskor var 165 og
efstu pör voru:
Júlíus Siguijónsson - Tryggvi Ingason 193
AlbertÞorsteinsson-KristóferMagnússon 192
EinarJónsson-HlynurMagnússon 186
Ingibjörg Halldórsd. - Sigvaldi Þorsteinsson 172
Fimmtudaginn 3. október byijar
3ja kvölda Haust-Barómeter og er
tilvalið fyrir spilara að taka þátt í
fyrsta Barómeter ársins. Síðan byrj-
ar Aðalsveitakeppni félagsins 24.
október og verður hún spiluð með
forgefnum spilum og jafnframt
reiknaður út Butler með frammi-
stöðu paranna.
*
:iríum[ih
> T £ f-l N A T t (■> M At
iillréfe'
Stærðir: 70-85 A og B skál
4,
Buxur: 38-44
Litur: Koniak
IvmFiíi
Laugavegi 26, sími 551 3300* Kringlunni, s.ími 553 3600.
Bókaútgefendur
Skilafrestur vegna kynningar
og auglýsinga í
Bókatíðindum 1996
rennur út 14. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift á
öll heimili á íslandi.
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Suðurlandsbraut 4A;
sími 553-8020
Skilafrestur vegna tilnefninga til
íslensku bókmennta-
verðlaunanna 1996
rennur út 30. október nk.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Aðalbláber
eða aðalber?
SVEINN Rúnar Hauksson
skrifaði skemmtilega grein
um bláber í Morgunblaðið
um helgina. Þó virðist vera
um misskilning að ræða
hjá honum þegar hann tal-
ar um að aðalbláberin verði
alveg svört þegar þau
þroskast vel. Hið rétta er
að það eru svokölluð aðal-
ber sem eru svört og glans-
andi, ekki ólík krækibeij-
um að lit og áferð, á bragð-
ið minna þau á bláber, en
eru miklu sætari og betri.
Aðalberin vaxa óvíða og
hreint ekki allir sem þekkja
þau, en þau er helst að
finna fyrir norðan.
Halla Soffía
Jónasdóttir
Dalvík.
Dýrt að búa í
Sviss
VIÐTAL Guðrúnar Guð-
laugsdóttur við Baldur El-
íasson í Sviss í Morgun-
blaðinu 8. september sl.
vakti athygli mína. Þó eru
atriði í greininni sem mér
finnst ástæða til að gera
athugasemdir við. Baldur
segir m.a.: „Laun í Sviss
eru talsvert hærri en hér.
Dóttir mín, sem er leik-
skólakennari fær ...“
o.s.frv.
Baldur er vissulega
heppinn með sitt starf og
það er rétt að fóstrulaun
dóttur hans eru mun hærri
hér en fóstrulaun á ís-
landi. En hann minnist
ekki á hversu dýrt er að
leigja íbúð hér, hversu háir
skattamir eru né á dýra
heijsugæslu.
í Sviss er líka fátækt
fólk og margar fjölskyldur
þurfa að fara mjög spar-
lega með.
Mér finnst ekki rétt að
bera saman launin án þess
að taka tillit til þess hversu
dýrt er að lifa í hveiju landi
fyrir sig.
Ingrid Cesa,
Sviss.
Af hverju
lækkuðu
tryggingarnar?
KÆRU FÍB-félagar.
Gleymum ekki hveijir það
voru sem komu trygginga-
lækkuninni af stað. Kyss-
um ekki á vöndinn, styðj-
um heldur áfram FÍB.
Anna Guðlaug
Jóhannsdóttir,
Sognstúni 4, Dalvík.
Tapað/fundið
Frakki tapaðist
DRAPPLITAÐUR ryk-
frakki með brúnum kraga
tapaðist á Jómfrúnni,
smurbrauðsstofu í Lækjar-
götu, síðdegis sl. laugar-
dag. Hafi einhver fundið
frakkann er hann beðinn
að skila henni aftur á sama
stað.
Kápa
tapaðist
DÖKKBLÁ víð ullar/tere-
lynkápa tapaðist úr húsi
Stangveiðifélagsins, Flata-
hrauni 29, Hafnarfirði,
föstudaginn 20. september
sl. í vasa kápunnar var
rósótt slæða. Önnur kápa
var skilin eftir. Erfidrykkja
var í húsinu þegar þetta
gerðist. Kannist einhver
við þessa kápu er hann
beðinn að hringja í síma
554-1023.
Lyklakippa
tapaðist
KIPPA með sjö lyklum
tapaðist nýlega. Einn lykil-
hausinn er grænn og annar
gulur. Finnandi er vinsam-
lega beðinn að hringja í
síma 553-4853.
Úr
tapaðist
LÍTIÐ gyllt barnaúr með
hvítri skífu og brúnni ól
tapaðist á leiðinni úr Laug-
ardalslaug upp í strætis-
vagn, leið fimm, og þaðan
úr vagninum og niður
Holtaveg að Langholts-
vegi, sl. föstudag. A skífu
úrsins var mynd af Mikka
mús. Hafi einhver fundið
úrið er hann beðinn að
hringja í síma 581-4931.
Gæludýr
Bimbó
er týndur
BIMBÓ er grár með hvítt
trýni og dökkt hringja-
munstur á hliðum tapaðist
frá Breiðholti 15. þ.m.
Hann var ólarlaus, ómerkt-
ur og ógeltur. Hafi einhver
orðið hans var er hann
beðinn að hringja í síma
557-3603 eftir kl. 18.
Keyrt á kött
HJÓN urðu vitni að því að
ekið var á grábröndóttan
kött með hvíta bringu og
rauða hálsól fyrir framan
sjoppuna í Garðabæ við
Hafnarljarðarveg. Hafi
einhver tapað ketti má
hann hafa samband í síma
555-4111. Hildur.
Týndur
köttur
GRÁBRÖNDÓTTUR kött-
ur, sem gegnir nafninu
Orgill, með hvíta bringu
og loppur tapaðist frá
Garðhúsum 20. september
sl. Hafi einhver orðið ferða
hans var er hann beðinn
að hringja í síma 554-2888
eða 562-6901.
Með morgunkaffinu
COSPER
ÉG ætla að vinna
heima í nokkra daga.
Ast er..
að taka heyrnatólin af
meðan hún talar viðþig.
TM Reg. U.S. Pat. Off. — «11 rights roserved
(c) 1996 Los Angetes Timas Syndcato
ÞETTA er ekki „Réttarhöldin í Nurnberg" sem þú
sagðist ætla að bjóða mér á, fíflið þitt.
Víkveiji skrifar...
FREGNIR af stóriðjufram-
kvæmdum hér á landi og
áformum erlendra stórfyrirtækja í
þá veru hafa oftar en ekki á undan-
förnum árum reynst blaðamönnum
sýnd veiði en ekki gefin. Þannig
hafa fjölmiðlar hvað eftir annað
birt fréttir í þá veru að samningar
um byggingu nýs álvers á Keilis-
nesi, sem Atlantsál myndi reisa,
væru um það bil að takast. Frétta-
flutningur þessi hófst fyrir alvöru
í iðnaðarráðherratíð Jóns Sigurðs-
sonar og hefur haldið áfram reglu-
lega allar götur síðan, þótt vissu-
lega hafi dregið úr honum á undan-
förnum misserum. Enn hafa Atl-
antsálfyrirtækin Alumax, Hoogov-
ens og Gránges ekki kveðið upp
úr um það, hvort af byggingu slíks
álvers verður.
xxx
VÍ þótti mönnum sem það
tæki alls ekki svo langan tíma,
a.m.k. ekki á mælikvarða Atlants-
álhópsins, fyrir Alusuisse og ÍSAL
að ákveða stækkun álversins í
Straumsvík, sem á að vera lokið
eftir rúmt ár. Raunar má segja að
enn frekari undrun hafi vakið,
hversu skamman tíma það virðist
hafa tekið íslensk stjórnvöld og
bandaríska fyrirtækið Columbia
Ventures Corporation að fara lang-
leiðina með að ljúka samningum
um byggingu 60 þúsund tonna ál-
vers á Grundartanga, en nú eru
taldar yfirgnæfandi líkur á að þeim
samningum verði lokið innan tíðar
og fram hefur komið hér í Morgun-
blaðinu, að framkvæmdir ættu að
geta hafist á Grundartanga í byij-
un næsta árs.
xxx
YÍKVERJI er ekki alls kostar
sáttur við þá leynd sem jafn-
an hvílir yfir samningagerð ís-
lenskra stjórnvalda við erlend stór-
iðjufyrirtæki. Bæði fyrirtækin sjálf
og íslensk stjórnvöld virðast ávallt
leggja höfuðkapp á að halda því
leyndu, sem skiptir höfuðmáli við
samningagerð um stóriðju, en það
er að sjálfsögðu samningar um
raforkuverð til fyrirtækjanna. Er
það ekki í hæsta máta eðlilegt, að
eigendur raforkunnar, íslendingar,
fái a.m.k. upplýsingar í grófum
dráttum um innihald samninga?
Er það ásættanlegt að þeir sem
semja sín á milli um orkusölu og
orkukaup, gefi til kynna að aðilar
telji raforkusamning viðunandi, og
síðan ekki söguna meir? Víkveiji
hallast að því að þetta sé og hafi
um langt árabil verið óþarfa við-
kvæmni hjá stjórnvöldum og þeim
fyrirtækjum sem við hefur verið
samið, og gerir í rauninni lítið
annað en gefa grunsemdum í þá
veru að íslendingar hafi verið að
semja af sér, byr undir báða vængi.
Það eru í æ ríkara mæli gerðar
kröfur til stjórnvalda, um að þau
veiti upplýsingar um það sem þau
eru að sernja um, fyrir hönd lands
og þjóðar og því er þessi leynd
fyrir margt löngu orðin hallærisleg
tímaskekkja.