Morgunblaðið - 19.11.1996, Page 2

Morgunblaðið - 19.11.1996, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Pétur Blöndal styður ekki breytt á lífeyriskerfi ríkisstarfsmanna Nýja kerfið eykur kostnað ríkissjóðs Hjálmur bjargar manns- Skagaströnd. Morgunblaðið. MAÐUR datt niður í lest um borð í Lómi HF 177 sem var að koma inn til löndunar á Skagaströnd á sunnudag. Maðurinn skarst nokkuð á höfði en hjálmur sem hann bar kom í veg fyrir að verr færi. Lómurinn kom inn á sunnudags- morgun til að sækja tóm kör og ís því laus rækja var í móttökunni og öll kör orðin full um borð. Eftir að körin höfðu verið tekin um borð var þegar haldið úr höfn á ný. Til að koma tómu körunum niður á milli- dekk þurfti að opna lestarlúguna og slaka þeim niður. Svo slysalega vildi til að vír slóst í mann sem var að vinna við lúguna og steyptist hann á höfuðið niður í lest. Slóst höfuð mannsins í lúgukarminn í fallinu og hann endaði ofan á fullum Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson LJÓST er að þessi hjálmur verður ekki notaður aftur. körum í lestinni. Af því að Lóm- urinn var kominn með fulla lest varð fallið minna en ella eða um það bil 1,5 metrar. Strax var haft samband við neyð- arlínuna sem sá um að senda lækni og sjúkrabíl frá Blönduósi þangað sem maðurinn var fluttur til skoð- unar. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður en dvaldist þó á sjúkrahús- inu um nóttina til öryggis. Að sögn skipveija á Lómnum eru öryggismál í góðu lagi um borð og er t.d. aldrei unnið á dekkinu án þess að vera með hjálm. Hjálmurinn sem maðurinn var með er slysið varð verður þó greinilega ekki not- aður framar því hann brotnaði og er ónýtur. FRUMVARP um breytingar á líf- eyriskerfi opinberra starfsmanna var samþykkt í þingflokkum ríkis- stjórnarinnar í gær. Talverðar at- hugasemdir voru gerðar við frum- varpið í þingflokki sjálfstæðis- manna og segir Pétur H. Blöndal alþingismaður að hann muni ekki samþykkja frumvarpið óbreytt. Hann fullyrðir að nýja kerfið verði ríkissjóði dýrara en það gamla. „Þama er verið að negla niður réttindi, sem eru svo mikil að áunn- in réttindi svara núna til 800-900 þúsund króna á hvern vinnandi mann. Skuldbinding ríkissjóðs svar- ar til 3-4 milljóna á hvern ríkis- starfsmann. Þessi skuldbinding kemur til með að halda áfram að vaxa. Samkomulagið breytir því ekki. Málið snýst um skuld þeirra 80% þjóðannnar sem ekki eru opin- berir starfsmenn við opinbera starfsmenn. Enginn mun greiða þessa skuld fyrir þá,“ sagði Pétur. Vinnumarkaðurinn tvískiptur Frumvarpið gerir ráð fyrir að rík- isstarfsmenn geti valið um hvort þeir greiði í Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins eftir gamla eða nýja kerfinu. „Þeir sem eru með mikla yfirvinnu eða há nefndalaun hafa hingað til verið illa tryggðir vegna þess að einungis hefur verið greitt af dagvinnulaunum og þeir munu velja nýja kerfið sér til hagsbóta en ríkissjóði til skaða. Gengið er út frá því að nýja kerfíð verði jafn- dýrt og það gamla, en þetta atriði mun valda þvi að nýja kerfíð verður dýrara. Þetta nýja kerfí gerir ráð fyrir að iðgjaldið verði 15,5% og lífeyr- isaldurinn verði 65 ár. Réttindin verða 1,9% af heildarlaunum. Þetta gengur á skjön við þau lífeyrisrétt- indi sem hinn almenni launamaður í almennu lífeyrissjóðunum er að afla sér þar sem greitt er 10% ið- gjald og taka lífeyris hefst við 70 ára aldur. Réttindin hjá þeim eru 1,8% af heildarlaunum. Vinnumark- aðurinn verður því áfram tvískipt- ur, sem ég held að sé miður. Þetta kemur líka í veg fyrir að hægt verði að taka upp frjálst val á milli lífeyr- issjóða. Staða lífeyrissjóðanna verður ólík að því leyti að í þessu nýja kerfi eru réttindin fest niður en iðgjaldið ekki. Ríkissjóður á að borga breyti- legt iðgjald í samræmi við stöðu sjóðsins á meðan allir aðrir sjóðir hafa fast iðgjald og þurfa að breyta réttindum til að mæta áföllum sem sjóðurinn kann að verða fyrir,“ sagði Pétur. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Listræn tilþrif MIKILL áhugi er á skauta- konunglega á skautasvellinu í sína á rennisléttu svellinu, eins íþróttinni og má daglega sjá Laugardal, þjóta þar áfram, og þessar stúlkur sem þar unga sem eldri skemmta sér hringsnúast og sýna aðra færni renndu sér í gær. Dæmdur í 3 ¥2 árs fangelsi fyrir tvö vopnuð rán Upplýsingalög Gjöld tekin fyrir ljósrit FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur gefíð út gjaldskrá fyrir ljósrit eða afrit sem veitt verða á grundvelli upplýsingalaga, en þau taka gildi um næstu áramót. Gjaldskráin gerir ráð fyrir að stjórnvöld geti krafíst 5 kr. fyrir hveija blaðsíðu í stærðinni A-4 eða A-5, allt að 11 blaðsíðum, en 3 kr. fyrir hveija síðu umfram það. Gjaldskráin gerir ráð fyrir að heimilt verði að krefjast 100 kr. fyr- ir hverja blaðsíðu þegar skjalið er endurritað. Ef um er að ræða mynd- ir, teikningar, örfílmur, myndbönd og hljóðupptökur má heimta þann kostnað sem af afritun leiðir. Ef fjöl- földunaraðstaða er ekki fýrir hendi er heimilt að fela öðrum að annast ljósritun, afritun eða endurrit skjala og þá skal greitt fyrir skv. reikningi. ---------*—♦—«---- Lagði til ann- ars með skeið LÖGREGLA var kvödd að verslun- inni Rimavali í Grafarvogi í gær- kvöldi þar sem talið var að maður hefði orðið fyrir hnífstungu. Svo reyndist þó ekki vera en orðasenna hafði komið upp milli tveggja karl- manna í versluninni og rak annar mannanna silfurskeið í öxl hins og hvarf að því búnu út úr versiuninni. Var hann handtekinn skömmu síðar á heimili sínu og gisti fangageymslu lögreglunnar í nótt. Varð manninum sem fyrir laginu varð ekki meint af. BLAÐINU í dag fylgir fjögurra síðna auglýsingablað frá verslunum Bónuss. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tvítugan Reykvíking, Hákon Rúnar Jónsson, til 3'/2 árs fangelsis fyrir tvö rán. Fyrra ránið framdi hann í söluturninum Bónus- vídeó við Þönglabakka í júlí sl., en það síðara í versluninni Straumnesi við Vesturberg í október sl. Maðurinn dró upp hníf í söluturn- inum við Þönglabakka og neyddi afgreiðslustúlkuna til að afhenda um 45 þúsund krónur úr tveimur afgreiðslukössum. Áður en hann fór af vettvangi notaði hann hnífínn til að skera á símasnúru. Tók svefntöflur og LSD Maðurinn neitaði hvorki né játaði sakargiftum. Hann kvaðst hafa verið minnislaus eftir að hafa tekið 15-20 svefntöflur og tvo skammta af LSD og ekki vitað af sér fyrr en næsta kvöld, þegar hann vakn- aði úti í móa. Þá hefði hann hvorki verið með peninga né hníf á sér. Síðara ránið, sem maðurinn var ákærður fyrir, framdi hann 6. októ- ber sl. í Straumnesi. Maðurinn við- urkenndi að hafa komið þangað þeirra erinda að ræna peningum, en skömmu áður hafði hann keypt hníf. Hann rétti afgreiðslustúlku miða, sem á stóð „réttu mér pening- ana“, en þegar hún neitaði dró hann upp hnífinn. Þorðu hún og sam- starfsstúlka hennar ekki annað en að láta hann fá peninga úr kössum, samtals rúmar 140 þúsund krónur. Maðurinn kvaðst hafa verið smá- vegis undir áhrifum fíkniefna þegar hann framdi síðara ránið. Ráns- fengnum eyddi hann í föt, mat, drykki og fíkniefni á 4-5 dögum. Harður brotavHji Dómarinn, Sverrir Einarsson, vísar til þess að Hákon Rúnar hafí verið dæmdur tvisvar áður, í fyrra skiptið fyrir fímm innbrot og nytja- stuld, en hið síðara fýrir tvö rán, fímm þjófnaðarbrot og notkun á rúmlega 20 fölsuðum tékkum að fjárhæð rúmlega 80 þúsund krónur. 240 daga eftirstöðvar þess dóms voru felldar inn í dóminn nú. „Fyrra ránið framdi ákærði rúmum mánuði eftir að hann fékk reynslulausnina. Þykir þetta sýna harðan brotavilja ákærða,“ segir dómarinn, sem telur með hliðsjón af þessu öllu að hæfi- leg refsing sé 3*/2 árs fangelsi. Greiði um 700 þús. krónur Þá var Hákon Rúnar dæmdur til að greiða eiganda Bónusvideós 46.500 krónur í skaðabætur, af- greiðslustúlkunni í Bónusvideó 100 þúsund krónur í miskabætur, versl- uninni Straumnesi rúmar 141 þús- und krónur og tveimur afgreiðslu- stúlkum þar 125 þúsund krónur hvorri. Að auki var honum gert að greiða allan sakarkostnað, 1'40 þús- und krónur. Leitað vegna ljóss áhimni VEGFARANDI, sem taldi sig sjá neyðarblys upp af Hvalfírði á sunnu- dagskvöld, tilkynnti það lögreglunni í Borgamesi. Björgunarsveitarmenn svipuðust um á þessum slóðum, en fundu ekkert og er ekki vitað til að nokkurs sé saknað. Menn úr björgunarsveitunum Hjálp á Akranesi og Oki í Reyk- holti, ásamt hjálparsveit skáta á Akranesi, leituðu eftir að tilkynning- in barst. Trúlega stjörnuhrap Bjöm Björnsson, talsmaður Oks, sagði að björgunarsveitarmenn hefðu ekið upp Skorradal, að skýli á Kaldadal, en snúið aftur til byggða þegar ekkert fannst. í gærmorgun hafði enn engin tilkynning borist um að manna væri saknað, svo leit var hætt. „Þetta hefur trúlega aðeins verið stjörnuhrap," sagði Björn. ♦ ♦ ♦---- Gæslufangi í hungur- verkfalli 29 ÁRA gamall Hollendingur af als- írskum uppruna hefur, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, verið í hungurverkfalli í fangelsinu á Litla- Hrauni síðan hann var handtekinn á þriðjudag í vikunni sem leið. Maðurinn var handtekinn f Kópa- vogi skömmu eftir komu til landsins. í myndaramma sem hann hafði með- ferðis fundust 1.000 e-töflur og 60 grömm af kókaíni. Maðurinn var úrskurðaður í þriggja vikna gæslu- varðhald og þrír íslendingar eru einn- ig í haldi vegna málsins. Maðurinn hefur, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins, aðeins neytt vatns og kaffís síðan hann var handtekinn og hefur lýst því yfír að hann muni ekki leggja sér neitt til munns í fangelsinu. Hann var síðast yfírheyrður í fyrradag og hefur, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, ekki borið af sér sakir í málinu. Kristján Stefánsson, fram- kvæmdastjóri á Litla-Hrauni, vildi í samtali við blaðið í gærkvöldi ekki staðfesta að fanginn væri í hungur- verkfalli og vildi ekki upplýsa hvort læknir hefði verið kvaddur til að meta ástand hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.