Morgunblaðið - 19.11.1996, Side 19

Morgunblaðið - 19.11.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 19 Eistneska stjórnin riðar til falls FLEST benti til í gær, að eist- neska stjómin væri að falla vegna deilna stærstu ríkis- stjórnarflokkanna um sam- starfssamning, sem annar þeirra gerði við helsta stjóm- arandstöðuflokkinn. Gaf Um- bótaflokkurinn Sameiningar- flokknum frest til morguns til að rifta samningnum, sem hann gerði í síðustu viku við Miðflokkinn, og hótaði að fella stjómina ella. Er litið á samn- inginn sem beina móðgun við Umbótaflokkinn en ekki er búist við, að sameiningar- flokksmenn láti sér segjast. Hefur samkomulagið milli flokkanna verið stirt en sá fyrrnefndi vill ganga miklu lengra en hinn í markaðsum- bótum. Allt betra en Le Pen LEIÐTOGAR franskra sósíal- ista hafa hvatt sitt fólk til að kjósa hægrimenn í borginni Dreux í fyrri umferð sveitar- stjórnarkosninganna í Frakk- landi um næstu helgi. Gera þeir það til að koma í veg fyr- ir, að Marie-France Stirbois, frambjóðandi Þjóðfylkingar Le Pens, komist þar til valda en samkvæmt skoðanakönnunum nýtur hún mests fylgis eða 36,5%. Á hæla henni kemur síðan Gerard Hamel, fram- bjóðandi gaullista, með 34,7%. Sósíalistinn Maurice Ravanne er með 24,8%. Mannfall í Tyrklandi FJÖRUTÍU og einn kúrdískur uppreisnarmaður og fimm tyrkneskir hermenn hafa fallið í átökum í Tyrklandi síðustu þijá daga. Voru þau mest í Sirnak-héraði við írösku landamærin. Meira en 21.000 manns hafa fallið þau 12 ár, sem Kúrdar hafa barist fyrir sjálfstæði eða heimastjórn inn- an Tyrklands. Páfi er ekki skuldseigur PÁFAGARÐUR vísaði i gær á bug frétt í Sunday Telegraph en þar sagði, að Jóhannesi Páli páfa II lík- aði mætavel reyktur lax frá Skotlandi en væri ekki eins hrifinn af því að borga breska fyrir- tækinu, sem útvegaði hann. Sagði í tilkynn- ingu Páfa- garðs, að fréttin væri tilhæfu- laus. Að vísu hefði verið keypt- ur reyktur lax af ítölsku inn- flutningsfyrirtæki fram til júlí sl. en þá hefði samningum verið sagt upp vegna ágrein- ings um gæði vörunnar. Hefðu allir reikningar verið greiddir en blaðið hafði það eftir eig- endum fyrirtækisins Hebride- an Seafoods, að það að fá greiðslu frá páfanum væri jafn mikið kraftaverk og að metta fimm þúsundir. Jóhannes Páll Reuter Jeltsín í faðmi fjöl- skyldunnar BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, er á góðum batavegi eftir hjartauppskurð- inn fyrr í mánuðinum og um síðustu helgi settist hann að tedrykkju með fjölskyldu sinni á sjúkrahúsi í Moskvu. Honum á vinstri hönd á myndinni er Naína, kona hans, og til hægri handar er barnabarn hans, Masha. Er þetta fyrsta opinbera myndin, sem tekin er af Jeltsín eftir hjartaaðgerðina, og þykir eiga að sýna, að honum vaxi ásmegin með hverjum degi. Nú er um að gera að skella parketinu á gólfið jyrirjóll Engin útborgun, greiðsludreifing í allt að 36 mánuði á EURO eða VJSA raðgreiðslum. Fyrsta afborgun ífebrúar 1997. Káhrs parket Eik Natur 15 mm 1. fl. Káhrs parket Beyki Rustic 15 mm 1. fl. Verð kr. 2.976-per/m2 Verð kr. 2.976-per/m2 Nýjungfrá Káhrs: Linné samlímt 8mm tveggja stafa gólfefni á kynningarverði: Eik • Beyki • Hlynur • Kirsuberjaviður Verð kr. 2.656- per/m2 Yfir 40 tegundir afgegnheilu stafaparketi á jólatilboðsverði Eik • Hlynur • Jatoba • Cumaru • Rauð eik • Moral • Merbau • Billinga • Ybyraro Curupay • Askur • Lapacho. Þetta eru nokkrar af þeim viðartegundum sem við bjóðum af lager. Býður nokkur betur? Verðdæmi: Gegnheilt Eik Rustic lOmm stafaparket Verð: 1.598.- per/m2 StgT. Parket er okkar fag þér í hag1 Egill Arnason hf Ármúli 8 Pósthólf 740 108 Reýkjavík Slmi: 581 2111 Fax: 568 0311

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.