Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Jón Svavarsson VILBORG Dagbjartsdóttir, sem hlaut Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar, sést hér ásamt Birni Bjarnasyni menntamálaráð- herra og Einari B. Pálssyni prófessor og Gísla Júlíussyni yfirverk- fræðingi sem tóku við sérstökum viðurkenningum. málið sem við hefðum tiltækt á ein- hveijum tilteknum sviðum. Ég held hins vegar að fáir hafi áhyggjur af því að hér verði tvítyngd þjóð að því marki að hún geti skiigreint tilveru sína og sjálfsmynd sína nákvæmlega jafnt á tveimur tungumáium. Allt þetta tal um að bömin kunni svo mikið í ensku er að nokkru úr lausu lofti gripið, orðaforðinn sem notaður er í þessum bíómyndum sem ensku- þekkingin kemur úr er gríðarlega fátækur og þegar orðaforði bamanna er kannaður kemur í ljós að hann er milli eitt og tvö þúsund orð en menn þurfa á tuttugu til þijátíu þús- und orðum að halda til að geta tjáð sig um daglega hluti.“ Frá Friðriki Þór Friðrikssyni kvik- myndagerðarmanni kom skörp ádrepa um hvað kynni að gerast ef haldið yrði áfram að sýna hér 250 kvikmyndir á ári, 2 íslenskar og nán- ast allar hinar úr sömu áttinni. í ræðu sinni sagðist Friðrik óttast um íslenska æsku í þessu umhverfi. „Sagt er að þegar fólk hugsi á ensku kunni það tungumáiið. Hvernig eiga ungir þegnar þessa lands að hugsa á íslensku ef stór hluti umhverfís þeirra mótast af enskri tungu? Bandarískir kvikmyndaframleiðend- ur hafa gert undirmeðvitund okkar að nýlendum sínum og þurfa ekki að beita gömlum aðferðum við ný- lendukúgun sína. Nú nægir þeim að einoka þá auðlind sem frístundir fólks eru, það er að fá að drepa tím- ann fyrir fólki án þess að borga veiði- gjald í því andvaraleysi sem hér rík- ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 23 VIÐ afhendingu Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar lék Fífil- brekkuhópurinn tónlist Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar, þar á meðal var frumflutt lag við ljóðið Astu. I Iok athafnarinnar var Ásta flutt aftur og söng þá Gradualekór Langholtskirkju með. ir. Hér á landi fá sumir leyfi til að sjónvarpa efni án þess að greiða fyr- ir þann skaða sem þeir valda inn- lendri menningu. Sums staðar í Evr- ópu, eins og til dæmis í Frakklandi, greiða menn fyrir sjónvarpsrás eins og um afnot af auðlind væri að ræða. Þetta fé rennur síðan til innlendrar kvikmyndagerðar." Ennfremur sagði Friðrik: „Þó að ráðamenn segist vera allir af vilja gerðir til að efla hag íslenskrar tungu er ljóst að það verður ekki gert nema með þjóðarátaki. Tafarlausra að- gerða er þörf. Hér duga ekki töfra- lausnir markaðsspekinga sem eru þýddar upp úr ritum milljónaþjóða. Meðal annars vegna smæðar okkar getum við ekki vænst þess að fijáls samkeppni komi tungunni til bjarg- ar. Því miður hefur það sýnt sig að hinar fijálsu sjónvarpsstöðvar hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að auka hlut íslensks dagskrárefnis sem stendur undir nafni.“ Að sögn Heimis Pálssonar lýsti Björn Bjarnason menntamálaráð- herra áhyggjum sínum af einsleitni þess sjónvarpsefnis sem boðið væri upp á fyrir íslensk böm og gæti það haft miður góð áhrif á málkennd bama, sú heimsmynd sem blasti þar við væri einnig mjög einfölduð og fjarri íslenskum veruleika. „Menn höfðu greinilega nokkrar áhyggjur af stöðu íslenskrar tungu en það var hins vegar enginn uppgjafartónn í mönnum, það gætti miklu frekar bjartsýni um að þetta horfði allt til betri vegar. PANTAÐU VINSÆLU SKRAUTSKILTIN Á HÚSIÐ EÐA SUMAR- BÚSTAÐINN FYRIR 3. DESEMBER... ...0G ÞÚ FÆRÐ ÞAU AFHENT FYRIR JÓL! Málmsteypan HELLA hi. KAPLAHRAUNI 5 »220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI 565 1022 »FAX 565 1587 megnið af höfundarrétti verkanna og fái því ríflegar greiðslur af plötusölu og flutningi í ljósvaka- miðlum. Ted Perry nefnir ýmis dæmi um það sem hann telur óhóflegar kröfur flutningsréttarfyrirtækja, ekki síst vegna þess að hans mati séu fyrir- tækin ekki að sinna kynningu á verkunum eða gæta réttar höfunda á einn eða annan hátt. Hann tekur sem dæmi útgáfu Hyperion á verk- inu Briséis eftir Emmanuel Chabrier sem BBC hafí hljóðritað. Hann seg- ir að þegar diskurinn hefi verið kominn út hafi borist krafa um 300.000 króna greiðslu frá flutn- ingsréttarfyrirtækinu UMP, sem hafi enga þjónustu veitt vegna verksins. Þetta segir hann ekki síð- ur fáránlegt vegna þess að nokkrir áratugir eru síðan höfundarréttur á verkum Chabries hafi fallið úr gildi, en hann lést árið 1899. Hyperion hafí neitað að borga, en UMP hafí þá krafíð BBC um greiðslu og vegna stöðu sinnar hafí því ekki þótt stætt á öðru en borga fyrir, en áður hafði það greitt UMP fyrir upptökuleyfí og flutning í útvarpi. Að sögn Perrys hafa sumir út- gefendur ákveðið að hætta að gefa út seinni tíma tónlist eða draga verulega út því þar sem tónlistin hafí svo lítinn markhóp að ótækt sé að gefa út með það fyrir augum að þurfa að selja 1.500 til 2.000 eintök til þess að greiða flutnings- réttargjald og eiga síðan eftir að hafa fyrir öðrum kostnaði. Hann segir að iðulega komi fyrir að ekki séu til flutningshæfar útfgáfur af viðkomandi tónverkum. Flutnings- réttarfyrirtækin láti það sig þó engu varða, krefjist fullrar greiðslu fyrir engu að síður og krefjist þess síðan að fá þeim að kostnaðarlausu eintakið sem útgefandinn hefur látið útbúa fyrir upptökurnar. Þannig hafí Hyperion orðið fyrir verulegum búsifjum í miðju kafi þegar kom í ljós að í þriðju sinfón- íu Roberts Simpsons, en Hyperion hefur gefið út heildarverk hans, hafði höfundur hafi gert ýmsar verulegar breytingar á verkinu án þess að flutningsréttarfyrirtækið hafi hirt um að breyta þeim nótum sem það síðan leigði til flutnings. Perry segir að að meðaltali sé tæpra þriggja milljóna króna halli á síðustu þremur diskum Hyperion með verkum Simpsons. Gerhard Ortmann hjá CPO segir frá því að metsöluplata CPO sé óperan Hernám Mexíkó eftir Wolf- gang Rihm, en svo dýrt hafi verið að taka hana upp að halli á útgáf- unni sé hálf önnur milljón. Flutn- ingsréttarfyrirtækið Universal Ed- itions/Schott geti þó vel við unað, því það hafi fengið ríflega 400.000 kr. greiddar fyrir flutningsréttinn. Robert von Bahr nefnir sem dæmi að BIS hafi fyrir skemmstu gefið út upprunalega útgáfu, Carls Orffs á Carmina Burana og greitt fyrir 10% af söluverðmæti hvers disks. Þegar fyrirtækið hugðist prenta texta verksins með, sem er miðaldaljóð, hafi flutningsréttar- fyrirtækið, Schott & Co., krafist þess að fá að auki fjórðung sölu- verðs hvers disks, þó að textinn hafi í raun verið höfundaréttarrlaus í 600 ár. Undir lok bréfíns er sú herhvöt frá Robert von Barhr að lífsnauðsyn sé að flutningsréttar- .fyrirtæki og útgáfur vinni saman að viðgangi sígildrar tónlistar og taki höndum saman um að sem mest sé gefíð út af seinni tíma tón- list; flutningsréttarfyrirtækin og útgáfurnar séu á sama báti og ættu því að starfa saman en ekki glíma um flutningsréttargreiðslur. Þeir sem tryggdu ökutæki sín hjá 0Skandia Eftir 1. nóvember 1996 annast Tjónaskoðun VÍS skoðun ökutækja sem tryggð voru hjá Skandia. Skoðunarstöðvar VÍS er að finna um land allt. Nánari upplýsingar í símaskrá. VÍF vátrygging hf. Nú veistu hvert þú ferð þegar þú vilt fallegan húsbúnað Habitat í Kringlunni er með fulla verslun af húsgögnum og smávörum sem gera hús að hlýlegu heimili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.