Morgunblaðið - 19.11.1996, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.11.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 27 LISTIR 30 gerdir af sœtum sófum! Morgunblaðið/Arnór KIRKJUKÓRAR Útskála- og Hvalsneskirkju setti svip á samkomuna en kórarnir hafa tekið miklum framförum á undanförnum árum. Garði. Morgunblaðið. MENNIN G ARVEIZL A var haldin í Garðinum sl. sunnudag. Það voru vertarnir í samkomuhúsinu, hjónin Jóhann Þorsteinsson og Sigurbjörg Helga Bjarnadóttir, ásamt söngsveitinni Víkingunum sem stóðu að samkomunni en all- ur ágóðinn fer til kaupa á píanói í samkomuhúsið. Onnur hljómsveitanna í bæn- um, Sveitó, heilsaði gestunum en fyrsta tónlistaratriðið var ein- söngur Einars Arnar Einarsson- ar. Fleiri góðir gestir sungu fyrir heimamenn. Má þar nefna tvo unga söngvara, Davíð Ólafsson en hann er ættaður úr Garðinum og Stefán Stefánsson. Þá söng Steinn Erlingsson en hann er upp- alinn í Steinshúsi í Gerðum. í Menning- arveizla í Garðinum stuttu máli sagt voru þeir hver öðrum betri. Undirleikari var Ester Ólafsdóttir. Margir ungir og efnilegir tón- listarmenn tóku þátt í samkom- unni auk Víkinganna sem Einar Örn Einarsson stjórnar og kirkju- kór Útskála- og Hvalsneskirkju en sljórnandi kórsins er Ester Ólafsdóttir. Þorsteinn Eggertsson stjórnaði samkomunni af röggsemi en Þor- steinn er þekktur í tónlistargeir- anum fyrir marga þekkta dægur- lagatexta. Hann er upp alinn í Garðinum og rifjaði upp sín bernskubrek. Oddviti Gerða- hrepps Sigurður Ingvarsson þakkaði adstandendum veizlunn- ar fyrir framtakið en þar kom m.a. fram að téður Þorsteinn teiknaði merki hreppsins en hon- um er margt til lista lagt. Hann tók m.a. lagði með Sveitó, gamalt twistlag, af mikilli innlifun. Um 200 manns voru í samkomu- húsinu þegar mest var en sam- koman stóð í á þriðju klukku- stund. Tvísöngstónleikar TVÍSÖNGSTÓNLEIKAR verða haldnir í Fella- og hólakirkju þriðju- daginn 19. nóvember kl. 20.30. Flytjendur eru Björk Jónsdóttir og Signý Sæmundsdóttir, undirleikari Gerrit Schuil. Björk Jónsdóttir nam söng við Tónlistarskólann í Kópavogi, Tónlit- arskólann í Reykjavík og Söngskól- ann í Reykjavík og lauk þar námi vorið 1990. Björk hefur síðan sótt fjölda námskeiða og einkatíma. Hún hefur komið fram með Sinfóníu- hljómsveit íslands og sem einsöngv- ari með kórum og haldið íjölda ein- söngstónleika. Signý Sæmundsdóttir stundaði söngnám við Tónlistarskóla Kópa- vogs og Söngskólann í Reykjavík. Hún lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykkjavík árið 1982 og stundaði síðand fram- haldsnám í söng við Tónlistarskóla Vínarborgar. Hún hefur tekið þátt í óperuuppfærslum hér heima og erlendis og haldið fjölda einsöngs- tónleika, komið fram með Sinfóníu- hljómsveit Islands og sungið einsöng með kórum. Gerrit Schuil er fæddur í Hol- landi. Hann hóf píanóleik fimm ára gamall og vakti brátt athygli fyrir óvenjulegar tónlistargáfur. Hann hóf nám við Tónlistarskólann í Rotter- dam árið 1968 og þreytti ári síðar frumraum sína sem einleikari með Fílharmóníuhljómsveitinni í Rotterldam. Að loknu framhalds- námi bauðst honum tveggja ára styrkur hollenska ríkisins til fram- haldsnám erlendis, fyrst í London undir leiðsögn þeirra John Lill og Gerald Moore og síðan í París. Á fyrsta tónleikaferðalaginu um íslands haustið 1992 varð Gerrit Schuil fyrir svo sterkum áhrifum af landinu að hann ákvað að setjast hér að og er nú búsettur í Reykjavík. sœtir sófar HÚSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 EQK0 R TOHLEIK'AR í HÁSKÓLABÍÓI FIMMTUDAGINN 21 NÓVEMBER KL 20.00 Petri Sakari, Andrei Gavrilov, einleikari [fnisskró Dmitri Shostakovich: Raui óskriftar- korf gilda Sergei Prokofiev: Jean Sibelius: Hugleiðing um rússneskt og kirgískt þjóðlag Píanókonsert nr. I Sinfónía nr. 3 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 ' MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN „Íslendingar eru hamingjusamasta þjcð í heimi" - hluti hamingjunnar fiel&t náttúrlega í því að gera góð kaup BlllHIIBillll II GöcJ kaup þurþa ekki að þýða lœgsta 5 "69Ö58i "Tíi töö” verð. Oæðin ikipta líka mdli. Berðu alltat óaman verð og gœði. íilerukur iðnaður á heimsmœlikvarða SAMTÖK IÐNAÐARINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.