Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Upplýsingar í fullu gildi
MARGMIÐLUN
Geisladiskur
JARÐFRÆÐI ÍSLANDS
Jarðfræði íslands, margmiðlunar-
diskur sem Mál og menning gefur
út, en forritshöfundur er Sigurður
Daviðsson. Diskurinn gerir kröfur
tíl 80386 PC-samhæfðrar tölvu eða
Macintosh, krefst 8 Mb innra minnis,
tiljóðkorts og litaskjás. íslensk jarð-
fræði kostar 4.980 kr.
"SEGJA má að nánast hver tölva
sem selst hefur hér á landi á síð-
ustu misserum sé með innbyggðu
geisladrifi og hljóðkorti, enda slíkt
löngu orðið staðalbúnaður. Flestar
eru heimilistölvumar helst notaðar
sem leikjatölvur enn sem komið
er og ekki seinna vænna að menn
taki við sér og fari að gefa út ís-
lenskan hugbúnað til að nýta þessa
tækni; íslenska margmiðlunar-
diska sem miðlað geta fróðleik í
bland við skemmtun. Sitthvað hef-
ur komið út af fagupplýsingum á
slíkum diskum og almennari fróð-
leik; nægir að nefna íslandshand-
bókina sem kom út á diski í veg-
legri útgáfu fyrir ári,
en var reyndar allt of
dýr, og síðan hafa
fyrirtæki gefíð úr
vörulista og landakort
svo fátt eitt sé nefnt.
Jarðfræðidiskur sá
sem hér er til umijöll-
unar er aftur á móti
ætlaður til fræðslu
almenningi og ung-
mennum og nýtist
ekki síst sem fróðleik-
ur heima í stofu.
Höfundur disksins
hefur iðjað einn síns
liðs lengstum og vann
diskinn í Macintosh-
hugbúnaðinum Su-
perCard. Það sést og þegar og
forritið er ræst að viðmótið er
nokkuð gamaldags, enda eru allir
hættir að nota SuperCard fyrir
allnokkru, öflugri forrit hafa leyst
það af hólmi. Segja má að þetta
sé helsti galli útgáfunnar, því þótt
diskurinn hefði talist framúrskar-
andi fyrir þremur eða íjórum árum
er hann heldur gamaldags í dag.
Margt er þó vel úr garði gert og
fróðleikur aðgengilegur. Notandi
getur valið ýmsar leiðir
inn í diskinn, en best
er að lúta leiðsögn tölv-
unnar í gegnum hvem
kafla að minnsta kosti
einu sinni. Viðmótið er
ekki nægjanlega
gagnsætt, en lærist
fjótt að nota það.
Mikill kostur er að
hægt er að láta lesa
fyrir sig helstu
textaatriði, en það
verk leysir Margrét
Gunnarsdóttir prýði-
lega.
Myndefni á disknum
er sumt einkennilegt,
myndgæði fráleitt
nógu mikil og sumar myndir svo
grófar að erfítt er að greina hvað
verið er að sýna. Margar myndir
eru móskulegar og litir óeðlilegir,
nánast af VHS-gæðum, sem er
alls ekki nógu gott. Á geisladisk
sem rúmað getur 650 Mb af gögn-
um hlýtur að vera hægt að koma
fyrir stærri myndum og betri. Það
verður og að teljast ljóður að upp-
lýsingar vantar oft um það hvað
sé verið að sýna, þ.e. hvaðan við-
komandi mynd sé.
Kort eru fjölmörg og skemmti-
lega fram sett, en hreyfingar aftur
á móti frumstæðar, sjá til að
mynda skýringarmyndir um land-
rekskenningar Wegeners.
Prófarkalestur er ekki nægilega
vel af hendi leystur og þannig má
sjá Þingvelli ritaða með litlum staf,
„þmsum“ í stað ýmsum, aukinheld-
ur sem ekki fer á milli mála að
Macintosh-tölva hefur verið notuð
við textavinnslu þegar menn rek-
ast á villur eins og „hundru>um“
í stað hundruðum. „Er staðsett“
sést líka alloft, svo oft reyndar að
líklega er það vísvitandi notað.
íslensk jarðfræði Sigurðar Dav-
íðssonar er um margt vel heppnað
forrit en orðið nokkuð við aldur
þó nýkomið sé á markað. Upplýs-
ingamar í því eru þó í fullu gildi
og vissulega betra að ungmenni
séu að blaða í jarðfræði en að
skjóta mann og annan.
Árni Matthíasson
Sigurður
Davíðsson
lllg A« balvalmynd #!ib |
Uf 1 Landrek | s Eldsumbrot | Mótun landsins
Jaröskjálftar | $ Jarðhfti | ‘f Könnun j
Hjélpl j j Um forritið
Hostto
UPPHAFSSKJÁR íslenskrar jarðfræði.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
í undirbúningi
Aukin áhersla á
námsráðgjöf á
unglingastígi
VIÐ GERÐ fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar í skólamálum
verður lögð áhersla á að fá fjárveit-
ingu til að bæta við námsráðgjöfum
á unglingastigi og stuðningsfulltrú-
um fyrir yngstu nemenduma, að
sögn Arthurs Morthens, forstöðu-
• manns þjónustusviðs Fræðslumið-
stöðvar. Einnig verður lögð aukin
áhersla á fyrirbyggjandi starf í
yngstu bekkjum gmnnskólans. Um
þessar mundir er verið að setja á
stofn samstarfshóp til að sinna
málefnum dagvistarstofnana og
grunnskóla og samstarfí þeirra á
milli.
Námsráðgjöfum
fjölgað um sjö
Gert er ráð fyrir að fjölga náms-
ráðgjöfum um sjö á næsta skóla-
ári. Segir Arthur að fyrsta skrefíð
verði að útvega öllum grunnskólum
með unglingastig námsráðgjafa.
„Námsráðgjafar eru það sem skóla-
stjóramir hafa raðað í forgangsröð
númer eitt,“ sagði hann og bætti
við að fjárhagsáætlunin, a.m.k. á
þjónustusviðinu, hafí verið unnin
þannig að farið var fram á að hver
grunnskóii markaði sína þjónustu-
stefnu, sem síðan var unnið úr.
„Auk námsráðgjafanna óskuðu
(2jómtyndailofa
Qumtan tjugitnamonar
Suöurveri, sími 553 4852
skólastjórar meðal annars eftir fleiri
skiptitímum og fleiri uppeldisfull-
trúum,“ sagði Arthur.
Aðstoð við ofvirk börn
Arthur segir að aukin áhersla
verði á næstunni lögð á lestur í
grunnskólum og aðstoð við mis-
þroska og ofvirk börn við upphaf
skólagöngu, en talið er að um 8-9%
hvers árgangs eða um 100 böm
eigi við misþroska eða ofvirkni að
stríða. „Þessi böm hafa fengið að-
stoð í dagvistun þar sem þau em
vön fámennum hópum. Þegar þau
koma inn í 6 ára bekk, þar sem
einn kennari er með 18-20 böm,
þá er staðan allt önnur,“ sagði
hann.
Arthur segir að núna, þegar dag-
vistun sé alfarið í höndum sveitar-
stjórna, auðveldi það samstarf
gmnnskólans við þetta skólastig.
Hann segir vaxandi áhyggjuefni
fræðsluyfirvalda borgarinnar hvað
málþroska og tali barna sé ábóta-
vant hjá töluverðum hópi við upp-
haf skólagöngu. Því verði lögð auk-
in áhersla á markvissari vinnu með
málþroska, málskilning og málnotk-
un. „Við þurfum að leggja töluverða
vinnu í talkennslu fyrir yngstu nem-
endurna og mun meira en við þurft-
um áður,“ segir Arthur og vísar til
þess að reglur vom fyrir nokkmm
árum hertar varðandi niðurgreiðslu
frá Tryggingastofnun, sem leiddi
af sér að færri böm á forskólaaldri
fengu talkennslu.
Þá verður lögð meiri rækt við
lestrarkennslu eldri nemenda, sem
hefur ekki tíðkast innan grunnskól-
ans fram til þessa. „Við höfum hug
á að þróa markvissari hraðlestur í
11 og 12 ára bekkjum í samvinnu
við kennara. Sömuleiðis viljum við
prófa í eldri bekkjum grunnskólans
það lestrarform sem notast hefur
verið við í Iðnskólanum. Það felst
í markvissri kennslu þar sem nem-
endur mæla árangur sinn eftir
ákveðnu kerfí.“
Sjálfsmat er eðlileg
þróun hvers skóla
NÝ DEILD, mats- og
eftirlitsdeild var stofn-
uð í október i mennta-
málaráðuneytinu í kjöl-
far almennra skipu-
lagsbreytinga. Að sögn
Margrétar Harðardótt-
ur deildarstjóra má
rekja hugmyndina að
deildinni til nýrra laga
um grunnskóla, leik-
skóla og framhalds-
skóla. í þeim öllum sé
meðal annars í fyrsta
skipti ákvæði um sjálfs-
matsaðferðir skóla og
kvaðir á ráðuneytið um
að gera úttekt á mati á
skólastarfi.
Umbætur í skólastarfi
Margrét segir að í kjölfar nýju
laganna þurfí skólamir að setja sig
í nýjar stellingar og hugsa öðruvísi
en áður, þar sem engin hefð sé hvorki
fyrir sjálfsmati né markvissum út-
tektum á skólastarfi. „Þessi hugtök
hafa vakið neikvæðar tilfinningar en
vinna þarf bug á þeim og fara að
líta á sjálfsmat sem eðlilegan þátt í
skólastarfi eins og víða er. Sjálfsmat
er ekki gert í því skyni að bera sam-
an skóla heldur á það að stuðla að
umbótum í hveijum skóla fyrir sig.
Þess má geta að í stefnu Kennara-
sambands íslands er einnig komið inn
á mikilvægi þess að kennarar séu
stöðugt að endurskoða og meta
skólastefnu. Það passar því ágætlega
við okkar starf."
Margrét segir ákvæði í reglugerð-
um kveða skýrt á um hvaða upplýs-
ingum ráðuneytinu beri að safna frá
sveitarfélögum um leik- og grunn-
skóla, en verið sé að semja reglugerð-
ir um framhaldsskólastigið. „Sam-
kvæmt nýjum lögum þarf mennta-
málaráðherra einnig að gera Alþingi
grein fyrir framkvæmd skólahalds á
þriggja ára fresti og þá þarf hann
að hafa haldbærar upplýsingar og
góða yfírsýn yfír það starf sem unn-
ið er í skólum landsins."
Upplýsingar eingöngu frá
þeim sem veitir þjónustuna
Aðspurð hvort ráðuneytið telji nóg
að fá upplýsingar frá sveitarfélaginu,
þ.e. þeim sem veitir þjónustuna, um
hvort hún sé í lagi en telji sig ekki
þurfa að leita til nemenda eða for-
eldra, segir hún að ekki
sé gert ráð fyrir því í
lögum. „Ráðuneytið
hefur hins vegar átt
gott samstarf við sam-
tök eins og Heimili og
skóla, þannig að við
fáum miklar upplýs-
ingar frá foreldrum.
Einnig koma foreldr-
aráðin samkvæmt
grunnskólalögunum
sterkt inn í skólastarfíð
með umsögn sinni um
skólanámskrá. Skóla-
stjórum ber að veita
allar upplýsingar um
áætlanir skólans og
sveitarfélagsins og því
ættu foreldar að geta
haft mikil áhrif." Margrét tekur einn-
ig fram að foreldrar séu orðnir mun
meira áberandi en fyrir 5-6 árum.
Þeir séu meira meðvitaðir um rétt
sinn og beri sig eftir honum, sem sé
af hinu góða.
Aðspurð hvaða möguleika ráðu-
neytið hafi til að knýja á um fram-
kvæmd ef í ljós kemur að sveitarfé-
lög framfylgi ekki ákvæðum reglu-
gerða segir Margrét að ráðuneytið
muni óska eftir tillögum til úrbóta
frá viðkomandi sveitarfélagi. í þeim
tillögum verði að koma fram fram-
kvæmda- eða tímaáætlun. „í raun
getur ráðuneytið ekki beitt neinum
viðurlögum, en við getum fylgt þessu
eftir, skoðað skólann eftir ákveðinn
tíma og athugað hvort úrbætur hafi
verið gerðar. Einnig má hugsa sér
opinberar birtingar sem aðhalds- og
eftirlitstæki. Þetta gildir um leikskól-
ann og grunnskólann, en varðandi
framhaldsskólann sem ríkið rekur
áfram, munu væntanlega skólanefnd
eða skólameistari fá áminningu og
óskað verður eftir úrbótum. Þetta
er þó í athugun nú.“
Mat á stjórnmálafræði
Á háskólastigi felst hlutverk deild-
arinnar aðallega í að gera úttekt á
sjálfsmati. Mat á viðskipta- og bóka-
safnsfræði er í vinnslu og nú er að
hefjast mat á stjómmálafræði. „Á
leikskólastigi hefur öflugur hópur
kennara unnið markvisst að því að
þróa gæðastjómun. Þeir eru komnir
mjög langt, þótt ekki fari hátt um
það. Þá má geta þess að fímm grunn-
skólar á Norðurlandi eystra hafa tek-
ið þátt í gæðaverkefni sem nefnist
AGN og Kvennaskólinn í Reykjavík
er og hefur verið að þróa sjálfsmats-
aðferðir fyrir ráðuneytið. Það er hugs-
anlegt að þessi módel geti nýst öðram
skólum því það er ljóst að við munum
skoða hvað skólamir hafa verið að
gera. í athugun er að auglýsa eftir
metnaðarfullum skólum sem vildu
þróa sjálfsmatsaðferðir. Koma þarf á
fræðslufundum eða endurmenntun-
amámskeið í þessum tilgangi."
Hún segir megintilgang sjálfsmats
vera að þróa hæfileika starfsfólks til
að vinna að framgangi markmiða.
Þegar þeim hefur verið náð þurfí að
endurskoða þau með tilliti til umbóta.
Þannig sjálfsmatsaðferðir feli í sér
mikla gagnaöflun innan skólans.
í framhaldi af því nefnir hún þátt-
töku ráðuneytisins í Upplýsinganetum
menntamála í Evrópu (Eurydice) sem
eitt af áhugaverðum verkefnum deild-
arinnar. „Þetta er mikill evrópskur
gagnagrannur sem hefur samanburð-
arhæfar upplýsingar um öll lönd í
Evrópusambandinu (ESB) auk nokk-
urra landa sem standa utan ESB.
„íslendingar hafa verið með síðan
1994 en eru í fyrsta skipti að taka
þátt í útgáfu á gríðarmiklu tölfræði-
riti Key Data on education in the
European Union, sem út kemur á
næsta ári.“
Völva komin í gagnið
Margrét segir mikilvægt verkefni
í ráðuneytinu að skipuleggja upplýs-
ingaöflun og móta heildræna stefnu
í þeim málum á öllum skólastigum. í
haust var tekinn í notkun gagna-
grunnurinn Völva, sem mun halda
utan um allar upplýsingar frá grann-
skólum. Hún kveðst sjá fyrir sér að
ráðuneytið geti gefíð út einhvers kon-
ar ársskýrslu með öllum helstu upp-
lýsingum úr skólakerfínu ásamt sam-
anburði við önnur lönd, enda hafí
verið gefin út tölfræðirit í október
síðastliðnum sem er vísir að slíkri
skýrslu. „Skólamir era nú að byija
að senda okkur upplýsingar annað
hvort í gegnum Intemetið eða á dis-
kettu. Draumurinn er að í framtíðinni
komi þessar árlegu föstu upplýsingar,
t.d. um nemendafjölda, starfstíma,
fyölda nýbúa, fjölda nemenda í sér-
kennslu o.s.frv. beint inn, pappírs-
vinnan hverfi og flýti þannig fyrir að
ráðuneytið búi alltaf yfír nýjustu upp-
lýsingum."
Margrét
Harðardóttir