Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 47
FRÉTTIR
Sverrir Ólafsson í Hafnarfirði
Osk um rann-
sókn send til rík-
issaksóknara
Bindindis-
dagur og
blysför
BINDINDISDAGURINN 1996 verð-
ur haldinn föstudaginn 22. nóvember
nk. Kjörorð dagsins er: Bindindisdag-
ur - allra hagur. Bindindisdagurinn
er enn sem fyrr áskorun til allra lands-
manna um að gera daginn að áfengis-
lausum degi.
Bindindisdagurinn er dagur fjöl-
skyldna í landinu þar sem áfengis-
neysla er látin vílq'a fyrir fjölskyldu-
heill og dagurinn er einnig dagur
samúðar með þeim sem misst hafa
ástvini sína vegna áfengis og annarr-
ar fíkniefnaneyslu þæði í slysum og
með öðrum hætti. Ákveðið hefur ver-
ið að minnast með blysför þeirra sem
hafa látið lífið í slysum sem rekja
má til neyslu áfengis og annarra fíkni-
efna og votta aðstandendum þeirra
og vinum samúð. Blysfórin hefst á
Hlemmi kl. 17.30 og henni lýkur á
Ingólfstorgi. Lúðrasveit leikur fyrir
göngunni.
Helgi Seljan, fyrrverandi alþing-
ismaður, flytur stutt ávarp í göngu-
lok. Hópur fermingarbarna hefur þeg-
ar ákveðið að taka þátt í göngunni
með blys í hendi og kærleika í hjarta
og munu þau vafalaust setja sitt
mark á blysförina niður Laugaveginn,
segir í fréttatilkynningu.
Laugardaginn 23. nóvember verður
flölskylduskemmtun í Vinabæ í tilefni
bindindisdagsins. Skemmtunin hefst
kl. 14. Margt verður þar til gamans
gert. Kynnir verður Mókollur. Á dag-
skrá verður leikþáttur, söngur, töfra-
maður og fleira skemmtilegt. Að-
gangur er ókeypis.
Anna Halldórs-
dóttir með út-
gáfutónleika
ANNA Halldórsdóttir heldur útgáfu-
tónleika í Leikhúskjallaranum þriðju-
dagskvöldið 19. nóvember kl. 22 í
tilefni af nýútkominni geislaplötu
sinni, Villtir morgnar.
Anna hefur stofnað hljómsveit í
tilefni tónleikanna og hana skipa:
Ásgeir Óskarsson trommuleikari, Jón
Ingólfsson, bassa- og kontrabassa-
leikari, Orri Harðarson gítarleikari,
Davíð Þór Jónsson píanóleikari,
Ragnar Skúlason fiðluleikari og
Anna Sigríður sem syngur bakrödd.
Um hljóðblöndun sér Tómas M. Tóm-
asson og ljósamaður er Óli Öder.
Fyrir tónleikana mun Gunnar Sturla
Hervarsson leika á gítar og syngja.
Björn Arnbjörg
Bjarnason Sveinsdóttir
Stjórnmála-
fundur í
Valaskjálf
ALMENNUR stjórnmálafundur
verður haldinn í Valaskjálf þriðju-
daginn 19. nóvember kl. 20.30.
Á fundinum
verður einkum
fjallað um skóla-
mál. Málsheij-
endur verða al-
þingismennirnir
Bjöm Bjamason
menntamálaráð-
herra, Arnbjörg
Sveinsdóttir og
Egill Jónsson.
Afmæli Gauks
á Stöng
GAUKUR á Stöng, veitingahús,
verður 13 ára í dag og af þessu til-
efni verðuð boðið upp á hlaðborð á
1.490 kr. og er innifalinn afmælis-
drykkur.
Tónlistardagskrá hefur verið sett
saman þar sem fram koma SSSól,
Borgardætur, Stefán Hilmarsson og
Eyjólfur Kristjánsson. Þá mun
Rokkabilly Band Reykjavíkur koma
saman eftir nokkurra ára hlé og flýg-
ur Björn Vilhjálmsson, bassaleikari,
hingað til lands frá Svíþjóð af þessu
tilefni. Einnig má geta þess að ís-
landsvinirnir munu stilla saman
strengi sína.
Hlaðborðið er á boðstólum frá kl.
10-22 til 23. nóvember og byrjar
skemmtidagskrá upp úr kl. 22.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi afrit bréfs Sverris Ól-
afssonar til ríkissaksóknara.
„Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum nýverið og hvað
gleggst í Reykjavíkurbréfi Morg-
unblaðsins 17. nóvember sl. liggur
fyrir embætti yðar krafa blaðsins
um rannsókn á hver sé höfundur
greinarinnar „Hafnfirðingar krefj-
ast meirihluta jafnaðarmanna"
eftir Björn V. Ólason. Þar sem ég
undirritaður er þolandinn í þessu
máli, tek ég eindregið undir kröfu
Mbl. um rannsókn þessa. Þá fer
ég þess sérstaklega á leit við emb-
ætti yðar, að það mæli fyrir um
að Rannsóknarlögregla ríkisins
taki til rannsóknar og grafist fyrir
um höfund og ábyrgðarmann
seinna lesendabréfs Björns V. Óla-
sonar, sem birtist í Morgunblaðinu
28. ágúst sl. I bréfi þessu sem
birtist undir fyrirsögninni „Ellert
Borgar Þorvaldsson og Jóhann
Gunnar Bergþórsson beðnir afsök-
unar“, eru mér eignuð skrif þessa
sama Björns í Mbl. 21. ágúst sl.
Samkvæmt meðfylgjandi vitnis-
burði þriggja valinkunnra manna,
er augljóst að greinarskrif Björns
V. Ólasonar eru mér undirrituðum
með öllu óviðkomandi og hljóta að
öllu leyti að vera á ábyrgð eiganda
síns Björns V. Ólasonar. Sýnu al-
varlegri í þessu undarlega máli eru
ummæli Björns sjálfs, þar sem
hann í vitna viðurvist, fullyrðir að
hann hafi verið þvingaður til að
undirrita umrætt bréf, sem hann
hafi þó engan þátt átt í að semja.
Björn hefur borið, að háttsettir og
nafngreindir menn í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar hafi þvingað fram
undirritun hans, ýmist með hótun-
um um málsóknir eða loforðum
um fyrirgreiðsiu. Ég er með öllu
saklaus þolandi í þessum hrá-
skinnaleik, pólitískra öfgamanna,
sem með dyggri aðstoð Mbl. hafa
gripið til þeirra óyndisúrræða að
eigna mér umrædd skrif í þeim
tilgangi að koma höggi á mig
vegna stjórnmálaskoðana minna
og þekktrar afstöðu til núverandi
meirihluta bæjarstjórnar í Hafnar-
firði, og til að verja eigin hags-
muni og koma í veg fyrir umfjöllun
um ýmislegt sem illa þolir dags-
ljós. Með málatilbúnaði og athuga-
semdum, hafa höfundar fyrrnefnds
lesendabréfs undir nafni Björns og
ritstjórar Mbl. ráðist harkalega að
æru minni og við það get ég ekki
unað. Mér er enda miklu kærara
mannorð mitt, en umdeilanleg tiltrú
og hagsmunir Morgunblaðsins og
fyrrnefndra bæjarfulltrúa í Hafnar-
firði. Framganga Morgunblaðsins
í þessu máli er vægt til orða tekið
furðuleg og má til sanns vegar
færa, að umljöllun blaðsins megi
líkja við að stórskotaliði og eld-
flaugum sé beitt til veiða á haga-
músum. Állavega eru fá dæmi um
að venjulegir borgarar verði þess
vafasama heiðurs aðnjótandi, að
allt Reykjavíkurbréf Mbl. sé notað
til aðfarar gegn þeim. Slík aðför
hlýtur að vekja heiðarlegt fólk til
umhugsunar um það hvaða hags-
munir liggi þarna raunverulega að
baki. Hagsmunir sem eru svo mikl-
ir, að jafnvel siðanefnd stéttarfé-
lags ritstjóranna sjálfra, er ekki
treyst til að kveða upp úrskurð í
málinu! Því á ég ekki annarra kosta
völ en að fara þess á leit við yður,
að málið verði rannsakað til hlítar
svo sem að ofan greinir.
Virðingarfyllst,
Sverrir Ólafsson."
Dagbók Lögreglunnar í Reykjavík
Mörg umferðar-
óhöpp um helgina
15.-18. nóvember
í DAGBÓK helgarinnar ber mest
á umferðaróhöppum, en yfir 60
slík voru tilkynnt til lögreglunnar
um helgina. í 10 tilvikum urðu
meiðsl á fólki. Ekki eru öll umferð-
aróhöpp tiikynnt til lögreglu svo
ætla má að u.þ.b. 200 ökutæki
hafi skemmst meira og minna í
árekstrum eða öðrum óhöppum um
helgina. Ef öll þessi ökutæki hefðu
skemmst í einu yrði það án efa
fréttaefni ij'ölmiðla, en síður þegar
íjöldinn dreifist á lengri tíma, þó
ekki sé nema nokkra daga. Þá var
tilkynnt um 12 líkamsmeiðingar,
sem telst í hærra lagi. Auk þessa
var tilkynnt um 21 innbrot, 14
þjófnaði, 11 eignarspjöll og 30
sinnum var kvartað yfír hávaða og
ónæði. 27 af þeim tilkynningum
voru vegna hávaða frá ölvuðu fólki
innan dyra í sambýlishúsum. Af-
skipti þurfti að hafa af 25 einstakl-
ingum vegna ölvunar á almanna-
færi og vista þurfti 38 í fanga-
geymslunum um helgina.
Slys
Ökumaður var fluttur á slysa-
deild með minniháttar áverka eftir
árekstur tveggja bifreiða á gatna-
mótum Hofsvallagötu og Ægisíðu
á föstudag. Maður klemmdist á
fæti við affermingu vörubifreiðar
á Holtabakka. Barn féll af af-
greiðsluborði bankastofnunar og
var flutt á slysadeild. Eftir hádegi
á föstudag fóru ökumenn á slysa-
deild eftir árekstur bifreiða þeirra
á gatnamótum Miklubrautar og
Snorrabrautar. Farþegi var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild eftir
árekstur tveggja bifreiða á gatna-
mótum Suðurfells og Unufells.
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Vesturlandsvegar og Víkurveg-
ar. Flytja þurfti ökumann og far-
þega á slysadeild. Um kvöldið fór
ökumaður sjálfur á slysadeild eftir
harðan árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Miklubrautar og
Reykjanesbrautar við Elliðaárbrýr.
Aðfaranótt laugardags varð ungur
maður fyrir bifreið í Lækjargötu.
Hann kenndi til eymsla í mjöðm
og var því fluttur á slysadeild til
skoðunar. Ökumaður fór sjálfur á
slysadeild eftir að hafa ekið á ljósa-
staur á Vesturlandsvegi við Hlé-
garð og þá voru fjórir fluttir á
slysadeild með sjúkrabifreið með
minniháttar meiðsli eftir að bifreið
þeirra valt á Reykjanesbraut sunn-
an Bústaðavegar. Ökumaður og
tveir farþegar fóru á slysadeild
eftir árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Hringbrautar og
Snorrabrautar. Á laugardagsmorg-
Morgunblaðið/lngvar Guðmundsson
FJÖLDI umferðaróhappa varð um helgina. Á sunnudagskvöld
skullu fjórir bílar saman á Sæbraut, en meiðsli munu ekki
hafa verið alvarleg.
un var maður á reiðhjóli fyrir bif-
reið á Reykjanesbraut. Hann var
fluttur á slysadeild með sjúkrabif-
reið. Á laugardagskvöld voru tveir
ökumenn fluttur á slysadeild eftir
harðan árekstur á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar. Áðfaranótt sunnudags var
bifreið ekið út af við Suðurfell eft-
ir að ökumaður hafði reynt að kom-
ast undan lögreglumönnum, sem
vildu stöðva bifreið hans. Ökumað-
urinn slapp ómeiddur, en skemmd-
ir urðu á gróðri.
Líkamsmeiðingar
Líkamsmeiðing var kærð á Sel-
tjamarnesi á föstudag. Maður var
sleginn í andlitið á veitingastað við
Hallveigastíg. Um minniháttar
meiðsli var að ræða. Annar var
sleginn með stólí höfuðíð á veit-
ingahúsi við Ármúla. Hann var
fluttur á slysadeild. Til ryskinga
kom á milli tveggja manna í Lækj-
argötu. Flytja þurfti annan á slysa-
deild, en hinn í fangageymslu.
Innbrot
Á föstudag var brotist inn í versl-
un við Hverfísgötu, í bifreiðir við
Seljaveg, Birtingakvísl, Dvergholt
og Fróðengi. Farið var inn í vinn-
uskúr í Borgarhverfi. Á föstudags-
kvöld var maður handtekinn á
Laugavegi með ætlað þýfi innan
klæða. Aðfaranótt laugardags var
brotist inn í bifreiðir við Hverfís-
götu, Ármúla og í Skeifunni. Á
laugardagsmorgun var brotist inn
í fyrirtæki í Kringlunni, íþróttaað-
stöðu við Austurberg, verkstæði í
Kjós og bifreið við Hallveigarstíg.
Á sunnudagsmorgun var tilkynnt
um innbrot í sölutum við Seljabraut
og skóla í Grandahverfi. Farið var
inn um glugga húss við Möðrufell,
en engu stolið. Þýfí fannst úr inn-
broti í sölutum við Seljabraut á
sunnudagsmorgun. Farið var í bif-
reið við Fellsmúla. Loks vom tveir
menn handteknir eftir að þeir höfðu
brotist inn í fyrirtæki við Skipholt
aðfaranótt mánudags.
Foreldra-
rölt fær
síma
ÁFENGISVARNANEFND Kópa-
vogs afhenti um helgina foreldra-
rölti til afnota GSM-handsíma.
í fréttatilkynningu segir: „For-
eldrarölt hefur verið starfandi í
bænum undanfarin misseri og fer
það þannig fram að foreldrar í
skólahverfinu skipuleggja vaktir,
eða rölt, um helgar og fylgjast
þannig með börnum sínum og ná-
granna í hverfinu. Eftir samfundf
Áfengisvarnanefndar Kópavogs og
fulltrúa foreldrarölts var talið brýn-
ast að vinna bót á því sambands-
leysi sem foreldrar voru í meðan á
rölti þeirra stóð. Foreldrar þurfa
oft að ná sambandi með skjótum
hætti við aðila sem mál geta varð-
að, s.s. lögreglu, lækna, skólayfir-
völd og félagsmálayfirvöld. Þá eyk-
ur það öryggi foreldra að vera í
góðu sambandi. Því leitaði Áfengi-
svarnanefnd stuðnings Áfengi-
svarnaráðs ríksins og útibús Búnað-
arbanka íslands i Kópavogi með
kaup á GSM-handsímum. Styrkti
hvor aðili verkefnið um 50.000 kr.“
Clint Eastwood
Hreyfimynda-
félagið sýnir
spagetti-vestra
HREYFIMYNDAFÉLAG Háskóla-
bíós sýnir kvikmyndina „For a Few
Dollars More“ með Clint Eastwood
þriðjudaginn 19. nóvember kl. 19
og fimmtudaginn 21. nóvember ki.
23 í Háskólabíói. í kvöld, þriðju-
dagskvöld, verða veitt verðlaun í
hléi fyrir þann sem mætir í besta
kúrekabúningnum að mati dóm-
nefndar Hreyfimyndafélagsins..
Myndin, sem er ítölsk (en með
ensku tali), er frá árinu 1966. Hún
segir frá tveimur mannaveiðuruin
sem mynda bandalag um að ná
útlaga einum sem er eftirlýstur fyr-
ir morð og bankarán. Mannaveiðar-
arnir geta fengið fúlgur fjár ef þeir
ná útlaganum og mönnum hans.
Leikstjóri myndarinnar er Sergio
Leone og er þetta einn af spagetti-
vestrunum frægu og sjálfstætt
framhald „Fistful of Dollars". Með
aðalhlutverk fara Clint Eastwood,
Lee Van Cleef, Mara Krup, Gian
Maria Volonté og Klaus Kinski.
Tónlistin er eftir Ennio Morricone.
LEIÐRÉTT
Féll niður nafn höfundar
í viðtalí við dr. Michael Fell í
sunnudagsblaði féll niður annað höf-
undarnafn bókar um könnun á skoð-
unum íslendinga í trúarlegum efn-
um. Dr. Fell kvaðst hafa lesið bók
eftir Pétur Pétursson prófessor um
það efni. Hinn höfundur nefndrar
bókar er prófessor Björn Björnsson
og kvaðst dr. Fell biðjast afsökunar
á að nafn hans féll af vangá niður.
Stjórnarmaður en ekki
formaður
Mishermt var í frétt í laugardags-
blaðinu að Gissur Páll Gissurarson
væri formaður Félags framhalds-
skólanema. Hið rétta er að Gissur
Páll er einn stjórnarmanna Félags
framhaldsskólanema. Formaður fé-
lagsins heitir Snævar Sigurðsson.
Beðist er velvirðingar á þessu mis-
hermi.