Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 48

Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ /V\/\ULA.' AAAOU4 MAUlA AMUlA /\aaola Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand BREF TTL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang- lauga@mbl.is Askorun til alþingismanna Frá Margréti Thoroddsen: MARGT hefur verið ritað und- anfarið um allskonar skerðingu á tryggingabótum og auknar skattaálögur á aldraða, en það sorglega er að við virðumst tala fyrir daufum eyrum ráðamanna í þjóðfélaginu. Samt ætla ég enn einu sinni að minnast á þá skerðingu, sem mér finnst einna alvarlegust og það er aftenging tryggingabóta við al- menn laun í landinu. Að afnema þessi réttindi okkar í síðasta fjárlagafrumvarpi, finnst mér svo dæmalaus aðgerð, að allir hugsandi menn í þjóðfélaginu hljóta að sjá hvílíkri ósanngirni aldraðir og öryrkjar eru beittir. Við erum ekki að fara fram á aukin réttindi okkur til handa heldur að okkur verði skilað aftur þeim réttindum, sem við höfðum öðlast við endur- skoðun almannatryggingalaganna 1971, en hafa nú verið tekin af okkur aftur. Þetta eru okkar laun og við kreij- umst þess að fá að njóta sömu rétt- inda og aðrir launþegar. Þó fjár- málaráðherra segi að þetta mál verði skoðað, þegar búið verður að gera kjarasamninga, er það ekki nóg. Við viljum ekki ganga með betlistaf og búa við óvissu lengur eftir geðþótta- ákvörðunum ríkisstjórnarinnar held- ur viljum við fá réttindi okkar lög- fest á þessu ári í sambandi við fjár- lagafrumvarpið 1997. Við treystum ykkur, háttvirtir alþingismenn, hvaða flokki sem þið tilheyrið að standa vörð um réttindi okkar og ljá ekki fjárlagafrumvarp- inu brautargengi nema greiðslur almannatrygginga verði með lög- gjöf tengdar þróun launa og verð- lags í landinu. MARGRÉTTHORODDSEN, Sólheimum 25, Reykjavík. Tilgangur lífsins Frá Þorsteini Guðjónssyni: HINN frábæri námsmaður Armann Jakobsson var í sjónvarpsþætti 30.10. spurður tveggja spurninga; var önnur um það „hvernig fara megi að því“ að ná hinum frábæra árangri, en hin var um tilgang lífs- ins. Það er óefað mikið hæft í því sem Ármann svaraði, að ráðið sé það að hugsa sem minnst um síð- ari spurninguna, en einbeita sér síðan að „öllu hinu“. Heilabrot tefja fyrir skipulegu námi. Og þó er spurningin um eðli lífsins og tilgang sú, sem einna fastast leitar á og flestir spyija einhverntíma á ævi sinni. Til lengdar dugir ekki að loka fyrir áleitnustu spurningar, hversu „hagkvæmt" sem það kann að virð- ast í bili. Spurningunni um eðli lífsins má svara þannig, að það er fram kom- ið í efni jarðarinnar vegna áhrifa frá fyrirmyndum á öðrum jarð- stjörnum. Á þeim stjörnum var það til orðið fyrir áhrif frá enn eldra lífi, og þannig koli af kolli óendan- lega. Kenningu þessa má rekja allt til forngrískra heimspekinga, Pýþ- agórasar og Heraklítosar, en á vor- um dögum hefur hún sótt í sig veðr- ið, fyrir frumkvæði íslenskra heim- spekinga. Hin forna trúarkenning, að mað- urinn sé skapaður í mynd hins full- komnari, fær nokkurn stuðning af þessum skilningi, sem er náttúru- fræðilegs og þar með stjarnfræði- legs eðlis. Spurningunni um tilgang lífsins má svara þannig, að eftir dauðann tekur við líkamlegt líf, líf í nýjum efnislíkama. Tilgangurinn er að fegra og fullkomna þann líkama, og svo þá samsvörun hans sem nefnd er sál eða hugur. Eða hver getur í raun og sannieika hugsað sér líf án efnis? ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 14, Reykjavík. Hvað skal segja? 67 Væri rétt að segja: Honum vegnar betur en bróður sínum? Rétt væri: Honum vegnar betur en bróður hans. Hins vegar væri rétt að segja: Hann tekur bróður sínum fram. Munurinn er sá, að sögnin tekur hefur Hann sem frumlag; en sögnin vegnar er ópersónuleg (hefur ekkert tiltekið frumlag). Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.