Morgunblaðið - 19.11.1996, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Umbrot hjá Skógrækt-
arfélagi Reykjavíkur á
50 ára afmælisári
Frá Einari E. Sæmundsen:
Á ÞESSU ári eru 50 ár liðin frá
stofnun Skógræktarfélags Reykja-
víkur. Á þessum tímamótum er
ástæða til þess að gleðjast yfir far-
sælu starfi í áratugi og glæsilegum
árangri og líta yfir farinn veg. Nú
þegar síðustu laufblöðin eru fallin
af tijánum berst inn um bréfalúg-
una haustblað málgagns Skógrækt-
arfélags Reykjavíkur, Skógartíð-
indi.
í blaðinu eru fréttir af góðum
stundum á afmælisárinu með mynd-
um frá samkomu af því tilefni. Þar
á meðal er mynd af Vilhjálmi Sig-
tryggssyni framkvæmdastjóra og
Ingibjörgu Sólrúnu borgarstjóra að
opna göngustíg í gegnum gömlu
gróðrarstöðina í Fossvogi. Á ann-
arri mynd er formaður félagsins,
Þorvaldur S. Þorvaldsson, að heiðra
borgarstjórann með heiðursmerki
félagsins úr gulli og enn fleiri voru
heiðraðir þennan dag fyrir velvilja
og traust í garð félagsins á þessum
tímamótum.
Þegar Skógartíðindum er flett
áfram ber næst fyrir augu grein
sem ber yfirskriftina „Umbrot og
ný staða“. Þar má lesa að á hátíðar-
árinu hafi verið mikil umbrot og
óvissa ríkjandi um framtíð félags-
ins. Þegar spurt er af hveiju um-
brotin stöfuðu er fátt um svör.
Spyija mætti hvers vegna þessi mál
voru ekki til umfjöllunar á aðal-
fundi fyrr á árinu. í greininni er
„EES-væddu viðskiptaumhverfi"
kennt um þá stöðu sem félagið er
komið í. Hvað það þýðir er í raun
óljóst nema það að fyrir tveimur
árum var starfsemi gróðrarstöðvar-
innar í Fossvogi skilin frá starfsemi
skógræktarfélagsins.
Síðar í greininni rekur mann svo
í rogastans yfir orðalagi þar sem
stendur: „Hins vegar leiddu þessar
breytingar til þess að nokkrir
starfsmenn félagsins kusu að hætta
störfum hjá félaginu." Skýringum
er sleppt, engar staðreyndir eru
kynntar, öll umfjöllun höfundar eru
orðaflaumur.
Ummæli þau að starfsmenn hafi
kosið að hætta við þessar aðstæður
eru hinsvegar hreinar og beinar
rangfærslur þar sem sú staðreynd
liggur fyrir að öllum 14 starfsmönn-
um félagsins var sagt upp frá 1.
júlí með 3ja mánaða uppsagnar-
fresti og aðeins þrír þeirra voru
endurráðnir í september. Fyrrver-
andi starfsmönnum er í greininni
þakkað, „er þeir hverfa að öðrum
störfum", en engum heiðursmerkj-
um var tyllt á þá fyrir vel unnin
störf um leið og þeir „hættu“. Fæst-
ir fyrrum starfsmanna félagsins
hafa fengið vinnu að nýju.
Þó vekur það mesta athygli að
framkvæmdastjóri félagsins í tæp
30 ár og skógræktarmenntaður
starfsmaður félagsins í yfir 40 ár
hætti. Hinum skógræktarmenntaða
starfsmanni félagsins, með yfir 30
ára starfsferil hjá félaginu, var sagt
upp og ekki endurráðinn. Fagleg
stjórnun skógræktarfélagsins er nú
í höndum stjórnar og ráðsmanns.
Það er samdóma álit þeirra sem
best þekkja til sögu félagsins að
framgangur þess á liðnum 50 árum
sé fyrst og fremst að þakka góðu
starfsfólki sem ávallt hefur lagt sig
fram til að ná bestum árangri, ötul-
lega stutt af stjórn félagsins, fé-
lagsmönnum og borgaryfirvöldum.
Hvað veldur svo snöggum umskipt-
um núna?
Sem óbreyttur félagsmaður hvet
ég stjórn Skógræktarfélags Reykja-
víkur, sem skipuð er valinkunnum
mönnum, að koma út úr skóginum
og skýra opinberlega frá því hvað
gerst hefur hjá Skógræktarfélaginu
sem réttlætir þessar harkalegu að-
gerðir. Það hlýtur að þola dagsljós
og vera heilladrýgra en rangfærðar
skýringar, eins og lesa má í Skóg-
artíðindum.
Við sem greiðum félagsgjöld og
erum reiðubúin að koma til starfa
þegar til okkar er leitað eigum
heimtingu á að vita nánar um þessa
hluti svo hægt verði að blása „í
herlúðra undir ræktunarmerkjum
og sækja fram sem aldrei fyrr“ eins
og segir í niðurlagi greinarinnar í
Skógartíðindum.
EINAR E. SÆMUNDSEN,
landslagsarkitekt.
Fjármunum vel varið
Frá Sveini Indriðasyni:
LIONSKLÚBBAR um land allt hafa
í áratugi selt jóladagatöl til öflunar
fjár. Þessu fé hefur síðan verið út-
hlutað til líknarstarfsemi í heima-
héraði hvers klúbbs.
Lionsklúbburinn Freyr í Reykja-
vík átti frumkvæðið og hefur alla
tíð séð um innflutninginn og þjón-
ustu við aðra klúbba. Allt starf við
þetta er unnið í sjálfboðavinnu og
hver króna, sem aflast til viðbótar
við innkaupsverð, gengur til líknar-
mála. Svo strangar eru reglur
klúbbanna, að félagar verða að
greiða úr eigin vasa aksturskostnað
og annan kostnað við ferðalög. Til
að gefa einhveija hugmynd um
hvernig þessu fé er varið fer hér á
eftir sundurliðun á ráðstöfun íjár
hjá Lionsklúbbnum Frey, frá stofn-
un 1968.
Líknarfélög 33%. Þar má tilnefna
Blindrafélag, Gigtarfélag, íþrótta-
félag fatlaðra, SÍBS, Reykjalund,
Styrktarfélag vangefinna o.fl. Til
sjúkrahúsa, einkum lækningatæki
22%. Til húsnæðis aldraðra á
Hrafnistu, Hafnarfirði 15%. Til
landgræðslu og uppsetningar um
900 vegpresta 15%. Til einstakl-
inga, einkum vegna hjálpartækja
og ferða til aðgerða erlendis 8%.
Til vímuvarna, slysavarna og hjálp-
arstarfa erlendis, svo sem augn-
lækninga, 8%.
Lionsklúbburinn Freyr hefur frá
upphafi fylgt þeirri stefnu að
styrkja einkum þá starfsemi, sem
kemur sem flestum landsmönnum
að gagni. Við erum þakklátir þjóð-
inni að hafa trúað okkur fyrir þess-
um ljármunum og vonum að svo
verði framvegis.
Það er gott að geta aðstoðað
fólk að lifa með reisn, þótt eitthvað
bjáti á.
SVEINN INDRIÐASON,
Árskógum 8, Reykjavík.
^twÉy^k. - Gœðavam
Gjafavara - matar oq kaffistell.
[ Allir verðflokkar. ^
VERSLUNIN
— Líiugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfræcjir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 49
Heimilisfang__________
Póstnr._______Póststöð
Sími__________________
I I Merrild jólalög:
Ég óska eftir að fá send Merrild jólalög á Q geisladiski Q snældu og ég sendi
með 10 toppa ásamt ávísun að fjárhæð 300 kr. eða gírókvittun.
Greiðsla með Q ávísun [^] gíró
Ég óska eftir að fá reiðufé og sendi
. toppa en verðgildi hvers þcirra er 20 kr. Óskir þú eftir
að fá reiðufé í skiptum fyrir toppa getur þú skipt minnst 5 og mest 10 toppum en verðgildi hvers er
20 kr. Fjárhæðin verður lögð inn á bankareikning þinn. Mundu því að gefa upp bankanúmer, reiknings-
númer (og kennitölu).
Bankanr.
Reikn.nr.
Athugaðu vinsamlegast að ekki er hægt að senda fleiri en 10 toppa hvort sem
keyptur er geisladiskur eða snælda eða skipt fyrir reiðufé. Því fæst ekkert fyrir
toppa sem eru umfram 10 og við endursendum þá ekki. Aðeins er gert ráð fyrir
að hvert heimili kaupi einn geisladisk eða eina snældu. í boði meðan birgðir
endast.
MmiM
Tilboðin gilda aðeins um toppa af Rauðum Merrild 500 g (brennsluafbrigðin 103, 104, 304) og Merrild Light 500 g.
Þú getur hlakkað til þess
að Merrild-maðurinn komi
í heimsókn þæst.
Merrild setur hrag á sérhvern dag
Klipptu toppa til þess að vinna disk
Þannig skiptir þú pokatoppum fyrir jólatónlist eða peninga
Ef þú vilt fá Merrild jólatónlist eða reiðufé þarftu að fylla út þennan miða og setja
hann í umslag ásamt pokatoppunum.
Þegar þú hefur safhað pokatoppum fyrir jólageisladiski eða snældu getur
þú annaðhvort sent ávísun með eða greitt fjárhæðina inn á gíróreikning Merrild.
Póstgíróreikningurinn er 56 86 86 og senda þarf frumrit kvittunar ásamt útfylltum
miðanum og pokatoppunum í umslagi til:
Merrild Kaffi
Pósthólf 4132
124 Reykjavík
Tilgreina þarf sendanda á bréfið og frímerkja rétt. Lokafrestur til að senda inn
pöntun með þessum hætti er til 9. desember 1996. Eigi síðar en 2 vikum eftir að
okkur hafa borist topparnir sendum við þér svar.
Vinsamlegast ritaðu greinilega
Nafn_______________________________________________________!___________
Tbppurinn af
og lagið á
SBfeÍÍH