Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 1
72 SÍÐUR B/C
7. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
ÍSRAELSKIR sjúkraliðar flytja slasaða konu á sjúkrahús. Talið er víst, að einhver arabískur skæru-
liðahópur hafi komið sprengjunum fyrir en þær sprungu með 10 mínútna millibili.
Tyrkir una ekki flugskeytum á Kýpur
Sagðir íhuga
loftárásir
Ankara. Reuter.
TYRKIR hafa til athugunar að
gera loftárásir á gríska hluta
Kýpur ef staðið verður við áætlan-
ir um að koma þar upp rússnesk-
um flugskeytum. Skýrði Anatol-
ian, hin opinbera fréttastofa
Tyrklands, frá því í gær. Banda-
ríkjastjórn hefur varað Tyrk-
landsstjórn við vangaveltum af
þessu tagi.
Stjórnin í Ankara hefur sakað
Kýpurstjórn um að ætla að breyta
valdahlutföllum á eyjunni með
kaupum á rússneskum S-300-flug-
skeytum en með þeim væri unnt
að draga verulega úr yfirburðum
Tyrkja á eyjunni hvað varðar her-
flugvélar.
Varaðir við
ævintýramennsku
Aleeos Michaelides, utanríkis-
ráðherra Kýpur, sagði í gær, að
hótanir Tyrkja væru ekki nýjar
af nálinni og gríska stjórnin gerði
líka lítið úr þeim. Nicholas Burns,
talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, sagði í gær, að það
væri illa til fundið hjá Tyrkjum
að vera með vangaveltur um loft-
árásir á Kýpur og varaði þá við
ævintýramennsku.
Jeltsín
sagður
fær um að
stjórna
Moskvu, London. Reuter.
EMBÆTTISMENN í Kreml
reyndu í gær að kveða niður
vangaveltur um að Borís
Jeltsín Rússlandsforseti væri
ekki fær um að stjórna land-
inu vegna heilsubrests.
Forsetinn var lagður inn á
sjúkrahús á miðvikudag með
byijunareinkenni lungna-
bólgu, aðeins tveimur mánuð-
um eftir að hafa gengist und-
ir hjartaskurðaðgerð. Læknar
hans sögðu að honum hefðu
verið gefin sýklalyf og líkams-
hitinn væri eðlilegur.
Renat Aktsjúrín, sem skar
Jeltsín upp, hafði eftir lækn-
um forsetans að ástand hans
væri „skaplegt", lungnabólg-
an tengdist ekki skurðaðgerð-
inni og forsetinn gæti gegnt
skyldustörfum sínum áfram.
Nokkrir hjartasérfræðing-
ar á Vesturlöndum sögðu þó
hugsanlegt að Jeltsín væri
veikari en embættismennirnir
vildu viðurkenna. Hann kynni
að hafa orðið fyrir einhvers
konar hjartabilun sem hefði
valdið lungnabólgueinkenn-
um. „Liklegt virðist að hann
hafi orðið fyrir blöndu af
bijóstholssmiti og hjartabil-
un, “ sagði Brian Pentecost,
prófessor og yfirmaður
læknadeildar Bresku hjarta-
stofnunarinnar.
Bandaríski skurðlæknirinn
Michael DeBakey, sem var
Aktsjúrín til ráðgjafar við
uppskurðinn, sagði hins vegar
að Jeltsín hefði náð sér eftir
uppskurðinn fyrir mánuði og
hjartastarfsemin væri „orðin
nánast eðlileg".
■ Hættaá valdabaráttu/18
Þrjátíu
fórust í
flugslysi
Þrettán manns slasast í tveimur sprengingum í Tel Aviv
Ovissa um framhald
á friðarviðræðunum
Jerúsalem. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 13 manns
slösuðust þegar tvær sprengjur
sprungu rétt við strætisvagnamið-
stöð í Tel Aviv í ísrael í gær. Eru
arabískir skæruliðar grunaðir um
verknaðinn en hann er framinn á
sama tíma og svo virðist sem við-
ræður ísraela og Palestínumanna
um frið og brottflutning ísraelsks
herliðs frá Hebron séu að fara út
um þúfur.
Assaf Hefetz, yfirmaður ísra-
elsku lögreglunnar, sagði að í
sprengjunum, sem sprungu í rusla-
tunnum við aðalstrætisvagnastöð-
ina, hefði verið mikið af nöglum
og benti það til þess að arabískir
skæruliðar hefðu verið að verki.
Engir höfðu þó lýst ábyrgðinni á
hendur sér en ýmis múslímsk sam-
tök hafa hótað að hefna skotárás-
ar ísraelsks hermanns á fólk á
markaðstorgi í Hebron í síðustu
viku.
Talsmaður Benjamins Netan-
yahus vildi ekkert segja um hvaða
áhrif sprengjutilræðin hefðu á
viðræður ísraela og Palestínu-
manna en talið er, að Dennis
Ross, sáttasemjari Bandaríkja-
stjórnar, muni snúa heim í dag
ef einkafundir hans með Benjam-
in Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, og Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, bera engan
árangur.
Krefst trygginga fyrir
áframhaldandi brottflutningi
Meðalganga hans hefur engu
skilað til þessa en Arafat, sem
treystir ekki Netanyahu,_ krefst
trygginga fyrir því, að ísraelar
fari ekki aðeins frá Hebron, held-
ur einnig frá öðrum hlutum Vest-
urbakkans á ákveðnum tíma.
Palestínumenn hafa hafnað til-
lögu ísraela um að þeir verði farn-
ir frá Vesturbakkanum fyrir árslok
1999 og þeir höfnuðu einnig til-
lögu Ross um, að miðað yrði við
mitt ár 1998. Segjast þeir ekki
geta gefið meira eftir, enda séu
tillögurnar brot á samningum ísra-
ela og Palestínumanna, sem Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hafi
sjálfur undirritað.
Andstaða
í Israelsstjórn
Allt að sjö ráðherrar af 18 í
ríkisstjórn Israels hóta Netanya-
hu hörðu verði borgin Hebron lát-
in af hendi en hann vill fresta
brottflutningnum til að styrkja
stöðu sína í lokaviðræðunum um
frið við Palestínumenn. Arafat
krefst þess aftur á móti, að þá
verði 90% Vesturbakkans í hönd-
um heimastjórnar Palestínu-
manna eins og kveðið sé á í Ósló-
arsamningunum.
Washingfton. Reuter.
ÞRJÁTÍU manns fórust þegar
áætlunarflugvél frá bandaríska
flugfélaginu ComAir hrapaði til
jarðar skömmu fyrir lendingu í
Detroit í gær.
Vélin, sem var tveggja hreyfla
af gerðinni Embraer-120, kom nið-
ur í skóglendi skammt frá
bóndabæ, um 40 km fyrir sunnan
Detroit. Fórust allir, sem um borð
voru, 25 farþegar, tveir flugmenn
og þrír flugliðar.
Ömurleg aðkoma
ComAir-flugfélagið er með aðal-
stöðvar sínar í Cincinnati og flýgur
á stuttum flugleiðum fyrir flugfé-
lagið Delta Airlines.
Roger Weber, talsmaður flug-
hafnarinnar í Detroit, sagði, að
aðkoman á slysstað hefði verið
skelfileg og strax augljóst, að eng-
inn hefði átt sér lífsvon. Maður,
sem býr skammt frá slysstaðnum,
segir, að gífurleg sprenging hafi
orðið þegar vélin kom niður.
Rússar hóta
þvingunum
Moskvu. Reuter.
JEVGENÍ Prímakov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, sagði í gær,
að Rússar ættu að beita þau ríki
efnahagslegum refsiaðgerðum,
sem træðu á rétti fólks af rúss-
neskum uppruna. Að sögn Itar-
Tass-fréttastofunnar nefndi hann
sérstaklega Eistland.
Prímakov lýsti yfir þessu á
ríkisstjórnarfundi í gær og hvatti
til að beitt yrði efnahagslegum
þvingunum gagnvart Eistlandi.
„Við höfum lagt hart að Eist-
lendingum í þessu efni og gerum
þá lágmarkskröfu, að þeir fari að
tillögum ÖSE, Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu, um
mannréttindi rússneskumælandi
fólks í Eistlandi," sagði Prím-
akov.
Reuter
*
I snjónum
á Spáni
MIKIÐ vetrarríki er nú á Norð-
ur-Spáni og allt að 250 þorp og
bæir eru einangruð, ýmist vegna
fannfergis eða flóða. Hafa þau
valdið miklum skaða á uppskeru
í suðurhluta landsins og er hann
metinn á rúmlega 73 milljarða
ísl. kr. Þessi öldungur í bænum
Castrillo de Polvaranes átti í
erfiðleikum með að komast leið-
ar sinnar í ófærðinni í gær en
veðurfræðingar spá ögn skárra
veðri á næstunni.