Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ I FRETTIR Breytingar hjá Eimskip á Austurlandi UMBOÐ Eimskips hf. á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði hættu starfsemi um síðustu áramót og heyrir þjónusta við viðskiptavini á þessum stöðum nú undir skrifstofu Eimskips á Austurlandi. í frétt frá Eimskip kemur fram að skrifstofa Eimskips á Austurlandi hafi verið sett á laggirnar fyrir tæpu ári og Karl Gunnarsson sé þjónustu- stjóri félagsins í íjórðungnum. Á Seyðisfirði hefur Sigurður Þor- geirsson verið ráðinn starfsmaður Eimskips en Fjörður hf. hefur hætt umboðsmennsku fyrir félagið. Sig- urður er fyrrverandi umboðsmaður Eimskips á Fáskrúðsfirði. Á Fá- skrúðsfirði er gert ráð fyrir að Sól- borg ehf. muni samkvæmt vertaka- samningi annast framkvæmd þeirrar þjónustu sem nauðsynleg er á staðn- um. Á Eskifirði mun Kristinn Aðal- steinsson annast um framkvæmd þjónustu félagsins. Kaupa heilbrigðis- þjónustu frá Islandi INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra og Marianne Jensen, heil- brigðisfulltrúi grænlensku lands- stjórnarinnar undirrituðu í gær rammasamning um að styrkja og þróa enn frekar samvinnu á sviði heilbrigðismála á milli íslands og Grænlands. í rammasamningnum er meðal annars gert ráð fyrir að sér- stök fjögurra manna samstarfsnefnd gangi frá frekari samningum á þessu sviði, þar á meðal um kaup Græn- lendinga á heilbrigðisþjónustu frá Islandi. Ingibjörg Pálmadóttir sagði meðal annars við þetta tækifæri að Græn- lendingar hefðu á undanförnum árum notið þjónustu íslenska heil- brigðiskerfisins, en aðallega þegar um bráðatilfelli hefði verið að ræða. „Með rammasamningnum erum við hins vegar að bæta við þá þjónustu og undirbúa að Grænlendingar kaupi einnig af okkur skurðstofu-, rann- sóknar- og forvamarþjónustu. Auk þess hafa þeir áhuga á að sækja hingað starfsþjálfun og endurmennt- un í heilbrigðisgeiranum," sagði hún. Þá sagði Ingibjörg að fyrrnefndri samstarfsnefnd væri einnig ætlað að koma með nákvæman verðlista næsta sumar yfir þá heilbrigðisþjón- ustu sem íslendingar kæmu til með að veita Grænlendingum. „Ætlunin er að þeir greiði raunverulegt verð fyrir þjónustuna og því verði ekki lagt neitt aukagjald á hana. “ Morgunblaðið/Knstinn VIÐ undirritun rammasamningsins. Við borðið sitja Marianne Jensen, heilbrigðisfulitrúi grænlensku landsstjórnarinnar, og Ingi- björg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra. Á milli þeirra stendur Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri. Grænlendingar hafa tekið við stjórn heilbrigðismála Marianne Jensen sagði við undir- skrift samningsins að fimm ár væru síðan Grænlendingar hefðu tekið við yfirstjórn eigin heilbrigðismála af Dönum, en síðan þá hefðu þeir verið opnari fyrir samstarfi við önnur lönd. „Rammasamningurinn er eðlilegt framhald af því samstarfi sem við höfum átt við íslensk stjómvöld í heilbrigðismálum og á öðrum svið- um,“ sagði hún. „Hann á örugglega eftir að koma okkur til góða, enda má ýmislegt betur fara í heilbrigðis- þjónustu Grænlendinga. Til dæmis mætti bæta menntun starfsfólks, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Marianne en bætti því við að Grænlendingar hefðu nýverið sett á stofn hjúkrunar- háskóla og hefðu fyrstu græniensku hjúkrunárfræðingamir útskrifast þaðan síðastliðið vor. Fulltrúar íslands í samstarfs- nefndinnl em Kristján Erlendsson, skrifstofústjóri heilbrigðisráðuneyt- isins og Davíð Á. Gunnarsson ráðu- neytisstjóri, en fulltrúar Grænlend- inga eru Martha Abelsen, fram- kvæmdastjóri og Hans Christian Fiorián'Sðrensen, yfirlæknir. Verð bóka og blaða hefur hækkað vegna virðisaukaskatts Búist við lægra verði HLUTFALLSLEGT verð bóka, blaða og tímarita hefur hækkað mikið á íslandi á árunum 1990-1994 miðað við meðaltal 15 landa Evrópusam- bandsins. Árið 1990 var verð í þess- um vöruflokki 105% yfir meðaltali ESB-landa en 1994 161% hærra. Skýrist þessi hækkun nær eingöngu með álagningu virðisaukaskatts á bækur á tímabilinu. Samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofu íslands má á hinn bóginn bú- ast við því að verðlag í þessum flokki lækki á íslandi í hlutfalli við lönd Evrópusambandsins þegar verðsam- anburður ársins 1995 verður birtur. Hrafnhildur Arnkelsdóttir, starfs- maður á vísitöludeild Hagstofunnar, segir að við undirbúning nýrrar verð- könnunar sem gildi fyrir árið 1995 hafi verið gert átak í því að endur- bæta forsendur í verðsamanburði bóka, blaða og tímarita. Fyrirvari við tölur 1994 í verðkönnuninni er stuðst við vörulista, sem á að vera dæmigerður fyrir hvert land. Þannig eru blöð og bækur, sem ekki fást hér á landi, ekki á listanum. Hrafnhildur kveðst eiga von á enn traustari tölum í þess- um flokki. Ákveðinn fyrirvara verði því að setja við þær tölur sem leiða í ljós að bækur, blöð og tímarit séu 161% dýrari hér á landi en í löndum ESB. Ekki reyndist unnt að fá upplýs- ingar um verð bóka, blaða og tíma- rita hverra í sínu lagi. Segir Hrafn- hildur að verðsamanburður sé ekki unninn nákvæmar en þetta. Skýring- in væri sú að verðsamanburður yrði jafnan ónákvæmari eftir því sem sundurliðun væri fínni. Morgunblaðið/Kristinn Boeing á Reykjavíkur- flugvelli BOEING 737-þota danska flugfélagsins Maersk Air lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær. Vélin kom með 60 sjóliða og fór með jafnmarga vegna áhafnarskipta á dönsku varð- skipi. f umræðum um öryggi Reykjavíkurflugvallar hefur komið fram að sjaldgæft sé orðið að svo stórar vélar lendi á vellinum. Dönsku flugmenn- irnir fengu skilaboð um þessar umræður en vildu eigi að síður lenda í Reykjavík fremur en Keflavík. Ósóttir vinmngar rúmar 12 milljónir ÓSOTTIR Lottóvinningar frá árinu 1996 nema rúmum 12 milljónum króna, en fólk hefur eitt ár til að sækja vinninga. Að sögn Vilhjálms Vil- hjálmssonar framkvæmda- stjóra íslenskrar getspár er ekki um háar vinningsupp- hæðir að ræða. Þessir vinn- ingar eru samtals um nítján þúsund og því er meðalupp- hæð hvers vinnings rúmar 600 krónur. „Það virðist vera nokkuð algengt að lágar vinn- ingsupphæðir séu ekki sóttar og gæti ein ástæðan verið sú að margir taki ekki eftir því að þeir hafi unnið,“ segir Vil- hjálmur. 3 milljónir ósóttar í Víkingalottói Ósóttir lottóvinningar í Víkingalottóinu á síðasta ári eru rúmar þijár milljónir króna hér á landi, en það eru einnig mjög lágar upphæðir að sögn Vilhjálms. Fyrsti vinningurinn í Víkingalottó- inu féll síðast í skaut íslend- inga á árinu 1995. Sá vinning- ur var um 39,5 milljónir króna og voru þau heppnu ungt par í Reykjavík. I gær höfðu íslendingar fengið til baka um 62% af framlagi sínu til fyrsta vinn- ings í Víkingalottóinu. Að sögn Vilhjálms er það ekkert óeðlilegt hlutfall, ekki síst ef haft er í huga að þátttaka íslendinga er einungis um 1% í þessu lottói. FÍB mótfallið breytingu á vörugjöldum FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda telur það sýna furðuleg sinna- skipti af hálfu stjórnvalda ef verið er að hugleiða að breyta vörugjöld- um á bíla í þá veru að gjaldið verði miðað við þyngd bíls, vélar- stærð og vélarafl. Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri FÍB, segir að hinn mikli innflutningur á not- uðum bílum á síðasta ári hafi staf- að af uppsafnaðri þörf á markaðn- um fyrir dýrari gerðir bíla. Runólfur segir að það sé mat manna að ákveðnu hámarki hafi verið náð á síðasta ári í innflutn- ingi á notuðum bílum. arstærð og vélarafl tekur úr tengslum hvata sem menn sjá í því að ná sem bestum innkaupum því innkaupsverðið hefur nánast engin áhrif á vörugjöldin,“ segir Runólfur. Þvert á hugmyndir sem ráðherra hefur reifað Dregur úr hvata til góðra innkaupa „Það er alrangt að koma í veg fyrir meinsemd í tengslum við þennan innflutning, sem felst í því að óprúttnir aðilar hafa komið sér hjá því að greiða eðlileg gjöld, með því að leggja klafa á alla aðra sem vilja flytja inn notaða bíla. Við höfum bent á að það ætti að fækka gjaldflokkum úr þremur niður í tvo. Miðað verði við 30% og 40% vörugjald og mörkin þar á milli væru vélarstærð 2.000 rúmsenti- metrar og stærri. Að miða gjöldin við þyngd, vél- Hann segir að enginn viti um undanskotsleiðir sem kunna að leynast í þeim hugmyndum sem nú eru uppi í fjármálaráðuneyt- inu. „Þetta er þvert á þær hug- myndir sem fjármálaráðherra hefur reifað og spurning er hvort embættismenn í ráðuneytinu geri þetta með vitneskju hans. Okkur kemur þetta þannig fyrir sjónir að ráðherrann hafi ekki verið hafður með í ráðum. Hann hefur talað fyrir því að dregið verði úr neyslustýringu á þessu sviði,“ segir Runólfur. Hann segir að verði farin sú leið sem nú er verið að skoða í ráðuneytinu leiði það til innflutn- ings á minni og léttari bifreiðum með aflminni vélum sem uppfyH' ekki kröfur um nútímaöryggi og beini bílkaupendum með stórar fjölskyldur frá kaupum á bílum sem henti þeirra þörfum. í « «

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.