Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Halldór
ARSALIR hf.
Lágmúla 5, 7. hæð
Fasteignasala
(f sími 533 4200 if
I smíðum
Galtalind Kóp. Nýjar 3ja og 4ra
herb. íbúðir á mjög hagst. verði. Teikn-
ingar og allar nánari uppl. á skrifstof-
unni. Sími 533 4200
Hringbraut Hafnarf. Nýtt tvíbýi-
ishús í smíðum á frábæaim útsýnisstað.
Hægt að taka við íbúðunum fokheldum
eða lengra komnum eftir nánara samkl.
Stærri íbúðin er 233 fm m/bílskúr kr. 9,7
m. Minni ibúð 116fm kr. 7,5 m.
Hrísrimi. Vönduð ný parhús á
tveimur hæðum ásamt innb. bilskúr.
Tilb. til innr. Verð 10,5 m.
Selásbraut. Raðhús á tveimur
hæðum ásamt bílskúr til afh. tilb. til
innr. eða lengra komið eftir nánara
samkl. Verð 10,8 m.
Einbýli
Smáíbúðarhverfi. Faiiegt ein-
býli á tveimur hæðum, mögul. á sér-
íbúð á jaröhæð. Innb. bílskúr. Skipti
mögul. á minni eign. Verð 17,9 m.
Hjallabrekka Kóp. Mikið end-
urnýjað einbýli ásamt bílskúr. Laust
strax. Verð 11,8 m.
Hlíðarhjalii Kóp. Mjög vandað
einbýli á tveimur hæðum með innb.
bílskúr á skjólsælum stað.
Arnarnes. Eitt vandaðasta hús
landsins til sölu. Ýmis eignaskipti
koma til greina. Allar nánari uppl. á
skrifstofunni. Sími 533 4200
Rað- og parhús
Alagrandi Mjög vandað raðhús
ásamt bílskúr í vesturbæ. 4 sv.herb.,
stofa m. arni og parketi á gólfum. Verð
tilboð.
Seljabraut Mjög vandað 237 fm
raðhús ásamt stæði i bílskýli. Mögul. á
séríbúð í kjallara. Ath. skipti á minni
eign.
4ra til 7 herb.
Ásbraut Kóp. Mjög falleg 4ra
herb. ibúð ásamt bílskúr á frábærum
útsýnisstað rétt við miðbæ Kópavogs.
fbúðin er laus strax. Verð 7,9 m.
Eskihlíð. Stór og rúmgóð 4ra herb.
íbúð á 4. h. ásamt aukaherb. í risi.
Verð tilboð.
Melgerði Kóp. Mjög rúmgóð
sérhæð, 4 sv.herb og mögul. á þvi 5.
Parket á gólfum. Sér suður-verönd.
Verð 9,2 m.
3ja herb.
Alftamýri Mikið endurnýjuð íbúð.
Húsið er nýviðgert og málað. Verð 6,5
m. Áhv. Bygg.sj. 3,4 m.
Bragagata. Mikið endurnýjuð og
falleg íbúð á 1 -hæð. Vill gjarnan skipti
á stærri íbúð miðsvæðis í Reykjavík.
Gullsmári KÓp. Gullfalleg íbúð á
4-hæð í lyftuhúsi. Ibúðin er mjög
vandlega innréttuð. Til afh. strax. Lóð
og sameign fullfrágengin.
Hraunbær. Ágæt íbúð á 3. hæð.
Góð sameign og aðstaða fyrir börn.
Verð 6,2 m.
Hrísmóar Gb. Skemmtileg ibúð
á 3-hæð. Stutt í alla þjónustu og
heilsurækt. Tilboð óskast.
Hrísrimi. Rúmgóð 88 fm íbúð ásamt
stæði í bilskýli. Lækkað verð 7,5 m.
Jörfabakki. Ansi hreint góð íbúð
á 2. hæð. Góð sameign. Verð 6,2 m.
Atvinnuhúsnæði
Höfum á skrá ýmsar gerð-
ir af atvinnhúnæði Sími
533 4200
Islenski bjórkjallarinn
opnaður í kvöld
HINN íslenski bjórkjallari er nafn
á nýjum veitinga- og bjórstað sem
formlega mun verða opnaður í
kvöld en hann er til húsa í kjall-
ara Kringlunnar þar sem áður var
skemmtistaðurinn Amraa Lú.
Að sögn Benedikts Olafssonar
framkvæmdastjóra Bjórkjallar-
ans, sem hér stendur við einn
bjórgáminn sem keyptur hefur
verið, er ætlunin að þar verði
boðið upp á heimalagaðan bjór,
en einnig verður boðið upp á allt
að 200 aðrar bjórtegundir í flösk-
um frá yfir 40 þjóðlöndum. „Þá
leggjum við áherslu á ódýran,
góðan og fjölbreyttan mat, en
Haukur Víðisson, matreiðslu-
meistari mun hafa yfirumsjón
með eldhúsinu," segir Benedikt.
Hann segir ennfremur að
markmiðið sé að skapa notalegt
og rólegt andrúmsloft á daginn
með snöggri og góðri þjónustu,
en á kvöldin verði stemmningin
meira í anda bjórkráa. Eldhúsið
verður opið frá kl. 12 til 23.30,
en um helgar verðu iiægt að fá
pizzur til kl. 1.
Islenski bjórkjallarinn er i eigu
Tómasar Tómassonar. Staðurinn
er rétt neðan við kaffihúsið
Tommakaffi í Kringlunni, þaðan
sem einnig er innangengt í hann.
Bjórkjallarinn verður opinn virka
daga frá kl. 12 til 1 en um helgar
frá kl. 12 til 3. Þar er leyfi fyrir
samtals 288 manns i sæti, en alls
mega vera 560 manns inni á
staðnum.
Magnafsláttarkerfi á mjólkurvörum
Afslátturinn
á kostnað
neytenda
GUÐMUNDUR Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, segir að til-
laga liggi fyrir fimmmannanefnd
um hækkun á verði mjólkurafurða
til að fjármagna afsláttarkerfi í
viðskiptum með mjólkurafurðir.
Ákvörðun um þetta verði ekki tek-
in fyrr en nýr fulltrúi neytenda
hafi verið skipaður.
„Hugmynd mjólkuriðnaðarins
var sú að þetta afsláttarkerfi leiddi
ekki til tekjulækkunar hjá iðnaðin-
um. Til þess að það mætti verða
þyrfti að koma til einhverrar
hækkunar. Umfjöllun í fimm-
mannanefnd um þetta var hins
vegar ekki iokið þegar fulltrúi ASÍ
hætti í nefndinni," sagði Guð-
mundur.
' Guðmundur var spurður hvort
ekki væri eðlilegt að mjólkuriðnað-
urinn bæri að einhveiju leyti
kostnað af þessu afsláttarkerfi.
Hann svaraði því til að þar með
væri verið taka sjálfstæða ákvörð-
un um að lækka verð á mjólkuraf-
urðum. Þetta mál snerist ekki um
almenna verðlækkun á mjólk held-
ur um upptöku á einhvers konar
magnafsláttarkerfi.
Guðmundur sagðist telja það
misskilning sem haft er eftir Ára
Stjórnandi flugumferðarþjónustu segir nám í samræmi við fé
Endurþjálfunin er
ekki til málamynda
ÁSGEIR Pálsson, fram-
kvæmdastjóri flugumferð-
arþjónustu Flugmála-
stjórnar, segir ekki rétt
að það eina sem gert er í
þjálfunarmálum flugum-
ferðarstjóra sé „til mála-
mynda“ og „þjóni engum
tilgangi", svo sem heim-
sókn í varðskip og flug til
Egilsstaða. Eða að breyt-
ingar og nýmæli er varða
flugumferðarstjórnina séu
,tilla kynntar". Ummæli
Ásgeirs eru í framhaldi af
yfirlýsingum Lofts Jóhannssonar
í Morgunblaðinu 4. janúar síðast-
liðinn um endurþjálfun flugum-
ferðarstjóra.
Ásgeir segir hafa verið unnið
að uppbyggingu náms í flugum-
ferðarstjórn eftir því sem fjár-
munir og mannafli leyfi. „Það
yrði of langt mál að rekja öll störf
skólans en Loftur tók tvö dæmi
um tilgangslaust starf. Hvað
varðar heimsókn í varðskip var
hún endir námskeiðs í sem haldið
var til þess að skerpa á kunnáttu
flugumferðarstjóra vegna leitar
og björgunar. Flugstjórnarmið-
stöðin hefur mikilvægu hlutverki
að gegna sem leitar- og björgun-
armiðstöð á Norður-Atlantshafi
og innanlands og var heimsóknin
til þess að flugumferðarstjórar
gætu kynnt sér búnað og vinnu-
umhverfi Landhelgisgæslunnar,
sem er einn nánasti samstarfs-
aðili Flugmálastjórnar á þessu
sviði.“
Þá segir Ásgeir að ferð til Egils-
staða sem Loftur nefndi einnig
sem dæmi um endurþjálfun á veg-
um stofnunarinnar sé hluti af sam-
starfi flugrekstrardeildar Flug-
leiða og skóla Flugmálastjórnar
til að auka skilning milli flug-
manna og flugumferðarstjóra á
starfsaðferðum og vinnu hvors
annars.
Loftur gagnrýndi jafnframt í
Morgunblaðinu hvernig staðið
væri að breytingum á vinnureglum
og segir Ásgeir að í vinnuskyldu
flugumferðarstjóra felist tvær
klukkustundir á viku til þess að
kynna sér ný vinnugögn.
1.250 lendingar erlendra véla
í millilandaflugi 1996
„Núverandi fyrirkomulag á
kynningu á breytingum var tekið
Skúlasyni, framkvæmdastjóra
ASÍ, í Morgunblaðinu í gær, að
það skipti engu máli hvort fulltrúi
neytenda sæti í nefndinni eða ekki
þar sem svo virtist að búið væri
að ákveða að taka upp þetta af-
sláttarkerfi þrátt fyrir athuga-
semdir fulltrúa ASI og BSRB.
Guðmundur sagði að Samkeppnis-
ráð hefði tekið um það ákvörðun
að Osta- og smjörsalan ætti að
veita ákveðinn magnafslátt af sölu
þeirra mjólkurafurða sem eru utan
verðlagsákvæða. Ákvörðunin hefði
því verið tekin þar en ekki í nefnd-
inni. Mjólkuriðnaðurinn hefði talið
eðlilegt að magnafslátturinn næði
til allra mjólkurafurða. Það væri
verkefni fimmmannanefndar að
koma með tillögu um afsláttar-
kerfi á þeim mjólkurvörum sem
fimmmannanefnd hefur verðlagt.
Guðmundur sagði að það væru
fyrir því fullgild rök að sú verslun
sem keypti vörur í heildsölu í miklu
magni ætti að njóti þess í verði.
Þannig fyrirkomulag væri í við-
skiptum með flestar matvöruteg-
undir, a.m.k. þegar því fylgdi hag-
ræði hjá heildsölum og væri ekki
óeðlilegt að sambærilegu kerfi
yrði komið á í viðskiptum með
mjólkurafurðir.
upp í nýju flugstjórnarmið-
stöðina í júlí samkvæmt
tillögum frá aðalvarðstjór-
um. Þegar flugumferðar-
stjóri mætir á vakt ber
honum að lesa kynningar-
blað sem í gildi er. Á því
koma fram helstu atriði
varðandi vinnufyrirkomu-
lag dagsins ásamt upplýs-
ingum um breytingar, nýj-
ungar, ástand tækjabúnað-
ar og annað sem varðar
starfsemina. Að loknum
lestri skal starfsmaður
staðfesta með undirskrit að hann
hafi skilið upplýsingar sem þar
eru. Velkist flugumferðarstjóri í
vafa um túlkun á nýmælum ber
honum að leita skýringa hjá varð-
stjóra. Því lít ég mjög alvarlegum
augum þá yfirlýsingu Lofts, að
hann sem starfandi flugumferðar-
stjóri skuli ekki leita réttrar túlk-
unar á nýmælum og breytingum
ef hann er í vafa,“ segir Ásgeir
Pálsson.
Ónákvæmni gætti í Morgun-
blaðinu í gær í frétt um tilmæli
öryggisnefndar Félags íslenskra
atvinnuflugmanna í þá veru að
loka Reykjavíkurflugvelli fyrir
stærri þotum vegna slæms
ástands vallarins. Þar sagði að
1.250 vélar hafi lent á flugvellin-
um í fyrra. Hið rétta er hins veg-
ar að 1.250 erlendar flugvélar í
millilandaflugi lentu á vellinum
árið 1996.
Akureyri
Lítið um
snjó-
mokstur
SNJÓMOKSTUR og hálkur
varnir kostuðu bæjarsjóð Ak-
ureyrar 12,5 milljónir króna á
nýliðnu ári sem er meira en
helmingi minni fjárhæð en
nota þurfi árið 1995 í að moka
snjó af götum bæjarins og
sandbera þær. Alls fóru þá
rúmlega 28 milljónir króna í
snjómokstur og hálkueyðingu.
Guðmundur Guðlaugsson,
yfirverkfræðingur Akur-
eyrarbæjar, segir að áætlað
hafi verið að veija um 15
milljónum króna í þessi verk-
efni á liðnu ári, en þar sem
fyrri hluti ársins hafi verið
hagstæður var upphæðin
lækkuð nokkuð við endur-
skoðun síðla sumars. Snjó-
moksturinn kostaði bæinn 9,2
milljónir króna og þykir vel
sloppið, en árið á undan nam
upphæðin tæpum 27 milljón-
um króna.
Hálkueyðing
Aftur á móti var óvenju-
hárri upphæð varið til hálku-
varna og þá einkum síðari
hluta ársins. Alls fóru 3,3
milljónir { hálkuvarnir, sem
einkum felast í því að sand-
bera götur og gangstéttar.
Árið á undan kostaði hálku-
eyðingin 1,3 milljónir króna.
Það sem af er þessu ári
hefur áfram verið unnið að
hálkueyðingu en enn sem
komið er hefur ekki þurft að
hreyfa snjómoksturstæki.