Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sameinast Fóð-
urvörudeild
KE A og Laxá?
Morgunblaðið/Kristján
JAKOB Björnsson, Pálína Austfjörð Gunnarsdóttir og Sigurður Rúnar Sigþórsson með Bjarka.
Tveggja mánaða drengur 15 þúsundasti borgarinn
FIMMTÁN þúsundasti borgari
Akureyrarbæjar er tæplega
tveggja mánaða gamall dreng-
ur, Einar Sigurðsson. Hann
fæddist á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 19. nóvember
síðastliðinn og býr með foreldr-
um sínum, Pálínu Austfjörð
Gunnarsdóttur og Sigurði Rún-
ari Sigþórssyni og Bjarka bróð-
ur sínum sem er fjögurra ára í
Vættargili 5.
I tilefni af því að þessum
áfanga var náð bauð bæjarráð
hinum nýja borgara og fjöl-
skyidu hans til hófs í gær.
Jakob Björnsson bæjarstjóri
færði Einari í heiðursskyni
áletraðan silfurskjöld frá bæj-
arstjórn Akureyrar ásamt
*
Anægju-
legur
áfangi
bankabók með 50 þúsund króna
innstæðu. Foreldrarnir voru
einnig leystir út með gjöfum og
stóri bróðir, Bjarki, var ekki
skilinn eftir útundan, hann fékk
forláta brunabíl sem umsvifa-
laust var reynsluekið um bæjar-
sljórnarsalinn.
„Það er ánægjulegt að við
höfum náð þeim áfanga að fara
yfir 15 þúsund íbúa markið,"
sagði Jakob Björnsson bæjar-
stjóri. Einkum í Ijósi þess að
fólksfækkun væri úti á lands-
byggðinni, en Akureyringum
hefði þó heldur fjölgað á liðnu
ári.
Bæjarstjóri nefndi að 15 þús-
undasti borgarinn hefði í raun
getað verið hver sem er og á
hvaða aldri sem er, en það væri
einkar ánægjulegt að foreldrar
þess sem reyndist vera númer
15 þúsund væru ungir Akur-
eyringar sem ákveðið hefðu að
byggja upp sína framtíð í bæn-
um.
KAUPFÉLAG Eyfirðinga eignað-
ist meirihluta í fóðurverksmiðjunni
Laxá undir lok síðasta árs í kjölfar
hiutafjárútboðs fyrirtækisins. í
framhaldinu hefur komið til um-
ræðu innan KEA hvort fýsilegt
væri að sameina Laxá og Fóður-
vörudeild KEA og flytja starfsemi
Fóðurvörudeildar út í Krossanes,
þar sem Laxá er með sína starf-
semi.
Magnús Gauti Gautason, kaup-
félagsstjóri KEA, segir þetta mál
hafa komið til umræðu og tengist
athugun á að færa starfsemi Fóð-
urvörudeildar af vöruhafnarsvæð-
inu og út í Krossanes. Hann segir
málið í skoðun en engar ákvarðan-
ir liggi fyrir á þessari stundu. Fóð-
ui-vörudeild KEA framleiðir
skepnufóður og er ársframleiðslan
um 10-11.000 tonn. Árið 1995
seldi fyrirtækið fóður fyrir tæpar
360 milljónir króna. Hjá Laxá er
aðallega framleitt fiskafóður.
Rétt að skoða möguleika
á sameiningu
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Laxár, telur rétt að
skoða. möguleika á sameiningu fyr-
irtækjanna, komi til þess að Fóður-
vörudeildin þurfi að flytja starf-
semi sína. „Starfsemi þessara fyr-
irtækja er náskyld og hráefnin sem
þau nota í framleiðsluna eru þau
sömu þótt vinnsluaðferðirnar séu
talsvert mismunandi. Árstíðasvei-
flan er alltaf að minnka en er þó
enn fyrir hendi. Það er mest að
gera hjá okkur á sumrin en mest
að gera á veturna hjá þeim, þann-
ig að álagið myndi jafnast yfir
árið. Hins vegar þyrfti að breyta
hér og bæta ýmislegt en sá kostn-
aður yrði aðeins brot af kostnaði
við að byggja upp nýja verk-
smiðju."
Stendur á miðju
vöruhafnarsvæðinu
Einar Sveinn Olafsson, formað-
ur hafnarstjórnar, segir að Fóður-
vörudeild KEA standi inni á miðju
vöruhafnarsvæðinu. Nú sé unnið
við deiliskipulag svæðisins, þar
sem m.a. er verið að reyna leysa
lóðamál. „Við höfum keypt eignir
á vöruhafnarsvæðinu til niðurrifs
en mál Fóðurvörudeildarinnar er
það erfiðasta sem þarf að leysa.
Þetta er fyrirtæki í fullum rekstri
og í tiltölulega nýju húsnæði. Hins
vegar hefur verið horft til þess við
skipulag og uppbyggingu Krossa-
nessvæðisins að þar hafi fóðuriðn-
aður olnbogarými til að þrífast."
Einar Sveinn segir að unnið sé
að því að meta kostnað við flutning
Fóðurvörudeildar af svæðinu,
þannig að hægt sé að taka afstöðu
til framhalds málsins. Hann vonast
til að niðurstaða þeirrar athugunar
liggi fyrir í lok næsta mánaðar.
Galloway-holdanautastofninn í Hrísey orðinn einn sá verðmætasti í heiminum
Fyrstu lifandi
kálfamir
fluttir í land
Arnarneshreppur. Morgfunblaðið.
Morgunblaðið/Kristján
FYRSTU lifandi Galloway-kálfarnir voru fluttir úr Hrísey í
gær, þeir voru fjórir og fara á tvo bæi í Skagafirði. Hér er
einn þeirra á bryggjunni á Árskógssandi áður en haldið var til
Skagafjarðar.
Grenivík
Vilja samvinnu í
öldrunarmálum
LANDSSAMBAND kúabænda
flutti í gær fjóra kálfa úr Einangr-
unarstöðinni í Hrísey. Þetta eru
fyrstu lifandi gripirnir af
Galloway-holdakyninu sem seldir
eru úr Gailoway-hjörðinni. Um er
að ræða þrjú naut og eina kvígu
á aldrinum eins til þriggja mánaða
og fara þau á tvo bæi í Skagafirði.
Einangrunarstöðin hóf starf-
semi sína árið 1976 með flutningi
á íslenskum kvígum þangað.
Fyrstu Galioway-blendingarnir
fæddust 1977 og dreifing á djúp-
frystu sæði úr fyrstu nautunum
hófst 1979. Síðan hefur framrækt-
un á stofninum leitt til þess að
þar eru nú „hreinir" Galloway-
gripir eftir að ailar kýr hafa verið
sæddar með innfluttu sæði koll
af kolli og eru nú að minnsta kosti
að sjöunda ættlið sem kallað er.
Búið að panta
20-30 kálfa
Af stofnun bús í landi til fram-
ræktunar hefur aldrei orðið eins
og til stóð. Nokkuð margir bændur
hafa áhuga á að rækta Galloway-
kynið og hafa þeir pantað milli
20 og 30 iifandi kálfa frá Hrísey.
Það var ekki fyrr en á síðastliðnu
ári að leyfi fékkst til að flytja
káifa í land. Skilyrði er að foreldr-
arnir séu fæddir í Hrísey. Áður
höfðu verið teknir fósturvísar úr
kúm í Hrísey og fæddust nokkrir
kálfar í landi í kjölfarið. Svín og
gæludýr úr einangrun í Hrísey
hafa farið í land í nokkur ár.
Verðmætasti Galloway-
stofninn
Landssamband kúabænda, LK,
leigir einangrunaraðstöðuna af
ríkinu en hefur ekki á stefnuskrá
sinni að viðhalda Galloway-stofn-
inum í Hrísey sem slíkum, þess
vegna er mikilvægt að koma grip-
um í land. Eins og sakir standa
er Galloway-stofninn hér á landi
einn sá verðmætasti í heiminum
eftir að tók fyrir allan útflutning
á Galloway-erfðaefni frá Bret-
landseyjum í kjölfar kúariðunnar
þar. Fyrirspurnir þar að lútandi
hafa borist LK en það er háð mikl-
um erfiðleikum að ná fósturvísum
úr þessu kyni og hefur aðeins einu
sinni áður tekist eins og að framan
er getið. Aldrei hafa komið upp
neinir smitsjúkdómar í hjörðinni í
Hrísey.
Galloway-kynið þykir með af-
brigðum duglegt að bjarga sér,
bæði á beit og í nýtingu á mis-
jöfnu fóðri, en er ekki eins bráð-
þroska og sagt er um Aberdeen
Angus- og Limousin-kynin, sem
nú er byrjað að nota hér á iandi.
FORSVARSMENN Grýtubakka-
hrepps hafa farið þess á leit við
bæjarráð Akureyrar að fyrirhugað
sambýli aldraðra á Grenivík verði
rekið sem hluti af öldrunarþjón-
ustu Akureyrar og að vistunar-
pláss á Grenivík verði hluti af þeim
plássum sem eru á Eyjafjarðar-
svæðinu.
Bæjarráð Akureyrar tók málið
fyrir á fundi í gær, en sá sér ekki
fært að verða við þessu erindi.
Meirihluti bæjarráðs samþykkti
einnig á fundinum í gær að ekki
yrði orðið við erindi frá atvinnu-
málaskrifstofu bæjarins þar sem
spurst var fyrir um hvort vænta
mætti styrks úr bæjarsjóði til
greiðslu á mismun launa og at-
vinnuleysisbóta við átaksverkefni
Gilfélagsins við ketilhúsið í Gróf-
argili, en hann er áætlaður um
800 þúsund krónur.
Ráðgjafi við atvinnudeild
Samþykkt var á fundi bæjarráðs
að heimila félagsmálastjóra að
ráða fagmenntaðan ráðgjafa til
starfa á atvinnudeild Akureyrar-
bæjar. Félagsmálastjóri óskaði
eftir að nýta fjárveitingu til átaks-
verkefna í þessu skyni, að upphæð
1.750. Bæjarráð heimilaði að ailt
að 1.200 þúsund af fjárveitingu
til átaksverkefna færi í þetta verk-
efni.
Brynju-
ísmótið í
íshokkíi
BRYNJU-ísmótið í íshokkíi
verður haldið á skautasvellinu
á Akureyri um helgina 11. og
12. janúar og verður keppt í
öllum unglingaflokkum.
Þetta er í fjórða sinn sem
Skautafélag Akureyrar heldur
þetta mót í samvinnu við versl-
unina Brynju, þar sem hægt
er að fá hinn landsþekkta
Brynjuís.
Þátttakendur í mótinu verða
frá öllum þeim félögum sem
stunda íþróttina og verður
fjöldi keppenda um 140.
Nýtt íþrótta-
hus vígt
NÝTT og glæsilegt íþróttahús
verður vígt í Skútustaðahreppi
á morgun laugardag kl. 14.
Byggingarframkvæmdir
hófust 10. mars á síðasta á
ári og var húsið afhent full-
búið þann 20. desember sl.,
220 dögum eftir að fram-
kvæmdir hófust. Húsið er 763
m2 og 5.433 m3 að stærð og
sá heimafyrirtækið Sniðill hf.
um byggingu hússins.
Hugsun
manns
SÝNING Jóns Laxdal í Gall-
erí+, Brekkugötu 35 á Akur-
eyri, er opin um helgina frá
kl. 14 til 19. Hún ber titilinn
Hugsun manns og byggist á
heimspekiritum Þjóðveijans
Kant. Sýningunni lýkur 19.
janúar næstkomandi.