Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 15

Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 15 Dagbók ■ Þrjár vörusýningar verða haldnar í París í janúar- og febrúarmánuði. Húsgagna- sýning verður haldin á Porte de Versaille svæðinu dagana 9.-13. janúar. Sýningin tekur mið af daglegum þörfum fólks í nútímasamfélagi og til að gera hana aðgengilegri er henni skipt í nokkra hluta. Sýningin SEHM 97 verður sýnd dagana 24.-27. janúar næstkomandi, en þar er um að ræða íjórar sýningar á drengja- og herrafatnaði á um sextíu þúsund fermetra sýningarsvæði. Þarna er sýndur fatnaður frá yfir 1.700 vörumerkjum á vor- og hausttískunni 1997. Þá verður alþjóðleg land- búnaðarsýning haldin í París dagana 23. febrúar til 2. mars. Sýningunni er skipt í §óra hluta og tekur bæði til landbúnaðarvara, landbún- aðartækja, tækja og tækni til svína- og fuglaeldis og erfðafræði, heilsu og fóðurs fyrir nautgripi, sauðfé og geitur. Þeir sem hafa áhuga á að afla sér frekari upplýsinga um sýningarnar geta snúið sér til verslunardeildar franska sendiráðsins í Aust- urstræti 14. -Þýskt eöalmerki Bílheimar ehf. ■0- Sœvarhöföa 2a Sími:525 9000 VIÐSKIPTI Stjórnunarfélagið í sam- starf við Berkeley-háskóla STJÓRNUNARFÉLAG íslands hefur tekið upp samstarf við Uni- versity of California, Berkeley, um miðlun fræðslu fyrir stjórn- endur í íslensku viðskiptalífi. Samstarfið er í því fólgið að pró- fessorar frá Berkeley koma hing- að til lands og halda námskeið fyrir íslenska stjórnendur. Sam- kvæmt upplýsingum Árna Sigfús- sonar, framkvæmdastjóra félags- ins skapar þetta samstarf einnig virkari tengsl við aðrar fræðslu- stofnanir, sem U.C. Berkeley er í samstarfi við og auðveldar stjórnendum aðgang að sértæku og vönduðu fræðsluefni sem ekki er grundvöllur fyrir að bjóða hér á landi. Einn viðurkenndasti viðskiptaháskólinn U.C. Berkeley er einn af viður- kenndustu viðskiptaháskólum heims. Háskólinn hefur í auknum mæli á undanförnum árum leitað samstarfs við viðurkennda fræðsluaðila, og stuðlað að auknu samstarfi á milli þeirra. U.C. Ber- keley er t.d. í samstarfi við New York Institute of Finance, sem Stjórnunarfélagið hefur einnig starfað með. Með samstarfinu við Berkeley er gert ráð fyrir að enn sterkari sambönd náist t.d. við þessa þekktu fræðslustofnun í New York. Þá hóf Stjórnunarfélagið á síð- asta ári samvinnu við Manage- ment Center Europe um nám- skeiðahald. MCE er einn stærsti endurmenntunaraðili fyrir stjórn- endur í Evrópu, heldur námstefn- ur sínar aðallega í London, Bruss- el og París. Þetta samstarf verður enn eflt á þessu ári og þann 14. janúar kemur Geoffrey A. Christ- iansen hingað til lands á vegum MCE. Hann leiðbeinir á nám- stefnu sem miðar að því að kenna stjórnendum að virkja hópinn - sem einu leiðina til að auka sam- keppnishæfnina. Stjórnunarfélagið hefur lagt kapp á að bjóða þessar námstefn- ur á mun lægra verði, en þær kosta í Evrópu eða Bandaríkjun- um. Þannig hefur tekist að bjóða hvern námstefnudag á um fjórð- ungi þess verðs sem það kostar fyrir íslenska stjórnendur að sækja námstefnurnar í Evrópu, að frátöldum kostnaði við ferðir, gistingu, uppihald og vinnutap. Utlit er fyrir að þetta hagstæða verð geti einnig boðist vegna námstefna frá Berkeley, þótt pró- fessorarnir komi langt að til að flylja íslendingum fróðleik sinn. A þessu ári er unnið að undir- búningi námskeiða fyrir stjórn- endur sem prófessorar frá U.C. Berkeley munu halda á vegum Stjórnunarfélagsins hér á Iandi. Þegar hefur verið ákveðið að halda hér fjórar námstefnur n.k. haust. Opel Corsa auöveldar attt Helmingur Finna and- vígur aðild aðEMU Helsinki. Reuter. TÆPLEGA helmingur Finna er andvígur aðild að efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) samkvæmt skoðanakönnun. Könnunin sýndi að 45% voru andvígir EMU, en 36% studdu finnska aðild. Um fimmti hver var óákveðinn samkvæmt könnuninni, sem rannsóknarstofnunin Talo- ustutkimus Oy gerði fyrir Euro- oppalainen Suomi, samtök stuðn- ingsmanna ESB. íbúar í sunnanverðu Finnlandi eru hlynntari EMU en þeir sem búa norðar í landinu. Helmingur kaupsýslumanna styður EMU, en 32% eru á móti, 42% skrifstofu- fólks eru hlynntir en 39% andvígir og 51% verkamanna eru andvígir en 29% hlynntir. Karlar eru hlynntari aðild en konur: 42% karla eru hlynntir að- ild en 41% andvígir og 48% kvenna eru andvígar andvígar en 29% hlynntar. • Finna stÆ - hún er SVO UCtt • Kcmpa hensín - hún eyðir SVO litlu • Koma öllufynr - hún er svo rúmfjód • Tulu samun - hún er SVO hljóðlát Komdu og keyr'ðana Opið um heljyinafrú kl. 14 til 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.