Morgunblaðið - 10.01.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 17
ERLENT
Njósnur-
um boðin
sýkna
SADDAM Hussein, leiðtogi
Iraks, sagðist í gær myndu
sýkna njósnara sem gæfu sig
fram í Ramadan-mánuðinum,
en þá fasta múslimar frá sólar-
uppkomu til sólarlags. Þá yrði
njósnurunum einnig leyft að
halda því fé sem þeim hefði
áskotnast fyrir njósnir. Dag-
blöð í írak sögðu ástæðu yfir-
lýsingar Saddam vera játning-
ar félaga í tveimur njósna-
hringjum í sjónvarpi þar sem
þeir sögðust hafa starfað fyrir
bandarísku og ísraelsku leyni-
þjónustuna.
Hermaður
hugðist frelsa
Hebron
ÍSRAELSKUR hermaður, sem
kom í gær fyrir rétt vegna
skotárásar á sjö Palestínu-
menn á markaði í Hebron,
sagðist hafa skotið á fólkið til
að frelsa borgina. Hermaður-
inn skaut á fólkið í síðustu
viku og sagði að ætlunin hefði
verið að myrða sem flesta.
Zhírínovskí
ber lof á
Gaddafi
RÚSSNEKSI þjóðernissinninn
Vladimír Zhírínovskí Iýsti því
yfir eftir fund sem hann átti
með leiðtoga Líbýu, Muammar
Gaddafí, að sá síðarnefndi
væri hið nýja átrúnaðargoð
fólks eftir fall kommúnismans,
að því er sagði í frétt JANA.
Ennfremur sagði að Zhír-
ínovskí hefði látið þessi orð
falla eftir að Gaddafí spáði því
að Rússland, Kína og lönd
arabaheimsins myndu samein-
ast gegn Vesturlöndum.
Forsætisráð-
herra í yfirlið
POUL Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Dana, var flutt-
ur á sjúkrahús í fyrrakvöld
eftir að
hann féll í
yfírlið í leik-
fímisal.
Ráðherrann
var yfir nótt
á spítalan-
um en lækn-
ar sögðu
ástæðuna
ofþomun,
hann hefði
reynt of
mikið á sig án þess að drekka
nægilegt vatn.
Leikarar ráð-
ast gegn Kohl
Á ÞRIÐJA tug þekktra banda-
rískra kvikmyndaleikara og
rithöfunda hafa sent Helmut
Kohl, kanslara Þýskalands,
opið bréf, þar sem þeir saka
hann um ofsóknir á hendur
Vísindakirkjunni en taka það
fram að þeir séu ekki meðlim-
ir hennar. Á meðal þeirra sem
undirrita bréfíð eru Dustin
Hoffmann, Goldie Hawn, Oli-
ver Stone, Mario Puzo og Gore
Vidal, en það var birt sem
heilsíðuauglýsing í Internat-
ional Herald Tribune.
Nyrup
Rasmussen.
Major í
Kalkútta
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands,
tekur í hendur verkamanna í borginni Kalk-
útta i austurhluta Indlands í gær. Major er
í tveggja daga ferð um Indland en með í
för er um fimmtíu manna hópur frammá-
manna i iðnaði og kaupsýslu. Heimsóknin
er á sama tíma og Indverjar minnast þess
að hálf öld er liðin frá þvi að landið hlaut
sjálfstæði frá Bretum.
Frá Indlandi heldur hópurinn til Pakistan
og Bangladesh en ætlunin með ferðinni er
að ýta undir viðskipti við bresk fyrirtæki.
Þetta er síðasta stóra utanlandsferð forsæt-
isráðherrans áður en gengið verður til kosn-
inga í Bretlandi.
(fo/í/ie
HAWN
ífrasie
KEATON
tíöe&e
MIDLER
Komið og reynsluakið VW Polo eða
Golf hjá Heklu í dag eða á morgun.
100 fyrstu sem reynsluaka fá
miða fyrir tvo á gamanmyndina
The First Wives Club, sem frumsýnd
er í Sambíóunum, Snorrabraut í dag.
MVJiKMifflTl verður
á Skuggabarnum á
Hótel Borg í kvöld.
Boðið verður upp á
drykk. Frítt inn fýrir
allar konur til kl. 1.30
Kvennaball
RÚNA