Morgunblaðið - 10.01.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 21
Leikfélag Reykjavíkur
hundrað ára á morgun
Hátíðardagskrá
allt afmælisárið
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
verður hundrað ára á morgun, 11.
janúar, en afmælið verður haldið
hátíðlegt allt þetta ár með ýmsum
hætti. Leikfélag Reykjavíkur er eitt
eista starfandi menningarfélag á
Islandi, stofnað er tveir hópar
áhugamanna um leiklist sameinuð-
ust í eitt félag. Helsti hvatinn að
stofnun félagsins var bygging Iðn-
aðarmannahússins við Tjörnina.
Félaginu var falin varðveisla eigna
Kúlissusjóðsins svonefnda, sem var
myndaður af aðgangseyri hinna
fyrstu opinberu leiksýninga í
Reykjavík 1854. Leikfélag Reykja-
víkur starfaði síðan óslitið í Iðnó
þar til í maí 1989 er öll starfsemi
félagsins fluttist loks í nýtt leikhús,
Borgarleikhúsið, sem Reykjavíkur-
borg byggði í samvinnu og samráði
við Leikfélag Reykjavíkur.
A blaðamannafundi sem haldin
var vegna afmælisins sagði Vigdís
Finnbogadóttir, formaður afmælis-
nefndarinnar, að Leikfélag Reykja-
víkur væri undirstaðan undir ís-
lenska leikmenningu. „Leikfélagið
var fyrsta íslenska atvinnuleikhúsið
og má segja að það sé einsdæmi í
veröldinni að það skuli hafa verið
hægt að reisa atvinnuleikhús á einni
nóttu eins og hér var gert. Leikfé-
lagið var undirstaðan undir stofnun
Þjóðleikhússins og undir leikmenn-
ingu í landinu yfirleitt og á þessum
tímamótum horfum við björtum
augum til framtíðarinnar."
Islensk verk, afmælisrit
og fleira
Fyrsti liðurinn í afmæiisdag-
skránni var frumsýning á uppfærslu
Kristínar Jóhannesdóttur á leikrit-
inu Dómíitó eftir Jökul Jakobsson í
gærkvöld. Á afmælisdaginn verður
nýr söngleikur eftir Karl Ágúst
Úlfsson og Gunnar Reyni Sveinsson
frumsýndur en hann byggist á ljóð-
um Tómasar Guðmundssonar skálds
og heitir eftir bók hans, Fögru ver-
öld. Á sunnudaginn verður svo efnt
til hátíðardagskrár í Borgarleikhús-
inu sem Vigdís Finnbogadóttir, for-
maður afmælisnefndar, mun stýra.
Þar verður tilkynnt um úrslit í leik-
verkasamkeppni sem leikfélagið
efndi til í tilefni af afmælinu, en í
hana bárust 24 handrit.
Meðal annarra viðburða sem
tengjast afmælinu er útgáfa afmæl-
isrits þar sem skráð verður saga
leikfélagsins. Ritið kemur út í lok
ársins, en höfundar eru Eggert Þór
Bernharðsson og Þórunn Valdi-
marsdóttir, sagnfræðingar. í tilefni
af aldarafmælinu verða eingöngu
frumsýnd íslensk leikverk á þessu
ári, öll ný nema fyrrnefnt verk Jök-
uls Jakobssonar sem var frumsýnt
í Iðnó árið 1972. Auk Fögru verald-
ar má nefna leikritið Völundarhús
eftir Sigurð Pálsson og Ástarsaga
3 eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Þótt leikfélagið hafi verið stofnað
11. janúar árið 1897 var fyrsta sýn-
ingin ekki fyrr en 18. desember það
ár í Iðnó. í tiiefni af því hefur leikfé-
lagið sent borgarstjórn bréf um að
það fái leyfi til að haida eina sýn-
ingu í Iðnó 18. desember næstkom-
andi. Þar mun verða leikið eitt af
þeim leikritum sem voru hvað vin-
sæjust á fyrstu árum félagsins.
í kjallara leikhússins hefur verið
sett upp sýning sem sýna á brot af
hundrað ára sögu leikfélagsins. Bún-
ingum, leikmunum og leikmyndum
hefur verið komið fyrir í krókum og
kimum kjallarans svo að skoðun sýn-
ingarinnar gæti orðið mikil ævintýra:
ganga, eins og segir í kynningu. í
bílakjallara Borgarleikhússins getur
maður síðan gleymt sér í völundar-
húsi minninganna; Iðnóbrandarar,
hnallþórur og leikhússkran í miklum
mæli og ieikhúsgetraun að auki.
Sýningin verður opnuð 11. janúar
og hægt verður að skoða hana und-
ir leiðsögn. Inngangur er úr miða-
sölu og aðgangur ókeypis.
Gefið verður út frímerki með
mynd af Stefaníu Guðmundsdóttur
leikkonu á árinu og íslandsbanki
hefur gefið út dagatal í samvinnu
við Leikfélagið með myndum af
ýmsum brautryðjendum íslenskrar
leiklistar.
Morgunblaðið/Kristinn
HALLDOR Gunnlaugsson hengir upp ljósmyndir fyrir sýninguna.
Bestu blaðaljósmyndirnar
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands
og Blaðaljósmyndarafélags Is-
lands standa fyrir sýningu á bestu
blaðaljósmyndum nýliðins árs í
Gerðarsafni í Kópavogi. Sýningin
verður opnuð formlega laugar-
daginn 11. janúar kl. 14 ogþá
verða veitt verðlaun fyrir bestu
myndir í hverjum efnisflokki og
jafnframt útnefnd „Blaðaljós-
mynd ársins 1996“.
í tilefni af 100 ára afmæli
Blaðamannafélags íslands á þessu
ári er ljósmyndasýningin veglegri
en áður, því auk bestu blaðaljós-
mynda liðins árs verður á sýning-
unni úrval þekktra fréttaljós-
mynda frá liðnum árum og ára-
tugum. Má þar nefna m.a. myndir
margra af helstu blaðaljósmynd-
urum landsins frá fyrri árum.
Alls er á þriðja hundrað ljós-
myndir á sýningunni, þar af um
120 í samkeppninni um bestu
myndir nýliðins árs. Á fimmta
hundrað myndir bárust í keppn-
ina að þessu sinni en efnisflokkar
á sýningunni eru: Fréttamyndir,
íþróttir, skop, portrett, daglegt líf
og myndraðir.
Sýningin í Gerðarsafni verður
opnuð almenningi kl. 15 á laugar-
dag og opin daglega nema á
mánudögum fram til 2. febrúar.
Loftbólstraður sóli
frá tábergi að hæl
Fæturnir eru grunnur aö vellíöan okkar!
arav Fítness
heilsuskór stuðla
að heilbrigðu
og óþreyttu baki
Táj>rip sem
örvar blóðrásina
Laut fyrir hæl
sem veitir stuðning
Stamur
innsóli
Microcellu sóli, sem dregur úr
þreytu og virkar dempandi.
Ilstuðningur
sem hvílir
Ekta korkblanda
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
nniuins MFninA * kriwri iinmi
Ionpskórinn
r r INGÓLESTORGI
5% staðgreiðsluafsláttur • Póstsendum samdœgurs!
Steinar Waage, Domus medica, sími 551 8519 • Steinar Waage, Kringlunni, sími 568 9212
Toppskórinn, við Ingólfstorg, sími 552 1212
0 R I G I N A L
Levrs
STOR E
ÚTSALAN
HEFST I DAG KL. 10.00
MIKILL AFSLÁTTUR
- í nokkra daga -
LEVI’S BÚÐIN - LAUGAVEGI 37 - REYKJAVÍK - S. 561 8777 - RÁÐHÚSTORGI 9 - AKUREYRI - S. 461 1858