Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 27
AÐSENDAR GREINAR
Um efnahagsfor-
sendur fjárlaga
Á AÐFANGADAG
birtist í Morgunblaðinu
athugasemd frá
Kristni H. Gunnars-
syni, alþingismanni,
þar sem meðal annars
er komið inn á almenn-
ar forsendur fjárlaga,
einkum hvað varðar
tekjur ríkissjóðs á ár-
inu 1997 sem hann
telur vanáætlaðar. At-
hugasemdir Kristins
gefa tilefni til nánari
umfjöllunar um stefn-
una í ríkisfjármálum
og efnahagsforsendur
fjárlaga fyrir árið
1997.
1. Stefnan í
ríkisfjármálum
Eins og fram hefur komið voru
fjárlög fyrir árið 1997 afgreidd
með afgangi, í fyrsta sinn um
margra ára skeið. Þetta er mikils-
verður árangur eftir langvarandi
hallarekstur undanfarinna ára,
jafnt í góðæri sem hallæri. Sem
betur fer hefur almennur skilning-
ur farið vaxandi á nauðsyn þess
ekki einungis að stöðva skulda-
söfnun ríkisins heldur beinlínis að
greiða skuldirnar niður, enda virð-
ist býsna almenn samstaða um
þetta markmið á Alþingi, sama
hvar í flokki menn standa.
Á árunum 1988-1993 gekk ís-
lenski þjóðarbúskapurinn í gegnum
einhveija mestu efnahagslægð sem
gengið hefur yfir á þessari öld. Á
þessu árabili varð alls enginn hag-
vöxtur enda hrikti mjög í stoðum
atvinnulífsins sem leiddi til aukins
atvinnuleysis og
minnkandi kaupmátt-
ar heimilanna, einkum
á árunum 1988-1990
þegar verðbólga var
um og yfir 20% á ári.
Við þessum erfiðu að-
stæðum brugðust
stjómvöld með marg-
víslegum aðgerðum,
einkum í ríkisfjármál-
um með skattalækk-
unum og auknum út-
gjöldum. Aðgerðirnar
tengdust yfirleitt gerð
kjarasamninga og var
ætlað að treysta stöð-
ugleika í efnahagsmál-
um. Á gjaldahlið vom
framlög til vegamála stóraukin til
þess að vega á móti minnkandi
framkvæmdum á vegum einkaaðila
og hamla þannig gegn vaxandi at-
vinnuleysi. Á ámnum 1993-1994
var síðan virðisaukaskattur af mat-
vælum lækkaður og aðstöðugjald
fellt niður, en hvort tveggja kom
fram í lægra vöruverði til neyt-
enda. Á árunum 1995-1996 vom
lífeyrisiðgjöld launþega undanþegin
tekjuskatti, en það jafngildir allt
að 1,5-1,7% lækkun á tekjuskatts-
hlutfalli einstaklinga. Jafnframt var
dregið úr tekjuskerðingu við út-
reikning barnabóta á árinu 1996.
Þótt þessar aðgerðir hafi kostað
aukinn halla og skuldasöfnun hjá
ríkissjóði vora þær taldar réttlætan-
legar við þessar erfiðu efnahagsað-
stæður, enda ríkti almenn sátt um
þær milli stjómvalda og aðila vinnu-
markaðarins.
Upp á síðkastið hefur verulega
rofað til í íslensku efnahagslífi.
Hagvöxtur hefur tekið við sér og
er nú orðinn meiri en í flestum
ríkjum Evrópu. Fjárfesting hefur
tekið kipp, ekki einungis vegna
framkvæmda við stækkun álvers
heldur einnig vegna aukinnar
bjartsýni í atvinnulífinu og lægri
vaxta. Á sama tíma hefur verðlag
haldist stöðugt, atvinnuleysi
minnkað og kaupmáttur launafólks
aukist sem aftur hefur leitt til veru-
Við teljum það tekju-
mat, segir Bolli Þór
Bollason, sem liggur að
baki fjárlaga raunhæft.
legrar aukningar í neysluútgjöld-
um_ heimilanna.
Á sama hátt og leitað var til
ríkissjóðs um fjárframlög þegar
erfiðleikar steðjuðu að efnahags-
lífinu þarf nú að nýta efnahags-
batann til þess að ná jafnvægi í
ríkisfjármálum og skila ríkissjóði
með afgangi hið fyrsta. Það er
öruggasta leiðin til að tryggja
áframhaldandi stöðugleika í efna-
hagsmálum. Það er því ekki að
ósekju að forsætisráðherra, Davíð
Oddsson, hafi í áramótaávarpi
sínu talið bætta stöðu ríkissjóðs
og lækkun skatta meginverkefni
stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á
næstu árum.
2. Efnahagshorfur og
forsendur fjárlaga
Þessi meginsjónarmið voru höfð
að leiðarljósi við afgreiðslu fjárlaga
nú fyrir áramótin. Óhjákvæmilegt
Bolli Þór
Bollason
reyndist að hækka útgjöld nokkuð
frá fjárlagafrumvarpi, meðal ann-
ars vegna nýrra laga um Lífeyris-
sjóð starfsmanna ríkisins, aukinna
framlaga í Lánasjóð íslenskra
námsmanna og til sjúkrahúsa, brú-
ar- og vegaframkvæmda vegna
Skeiðarárhlaups o.fl. Á móti vegur
nokkur hækkun tekna, ekki vegna
breyttra þjóðhagsforsendna fyrir
árið 1997 því þær eru taldar
svipaðar og gert var ráð fyrir í
fjárlagafrumvarpinu. Hækkun
tekjuáætlunar fyrir árið 1997 má
fyrst og fremst rekja til aukinna
tekna á árinu 1996, einkum tekju-
skatts einstaklinga sem endur-
speglar meiri tekjubreytingar á síð-
asta ári en áður var reiknað með.
Jafnframt hækkaði tryggingagjald
af sömu ástæðum, auk þess sem
ýmis innflutningsgjöld hækkuðu
umfram fyrri áætianir. Aftur á
móti var talin ástæða til að lækka
tekjuáætlun virðisaukaskatts þar
sem hann reyndist skila minni tekj-
um á árinu 1996 en gert hafði
verið ráð fyrir. Meginskýringin á
þessari þróun er að fjárfestingar
fyrirtækja hafa aukist verulega,
en það skilar sér ekki í virðisauka-
skatti fyrr en að nokkrum tíma
liðnum.
Sérstök athygli er vakin á því
að í forsendum fjárlaga er ekki
gert ráð fyrir aukinni veltu og
umsvifum vegna nýrra stóriðju-
framkvæmda á Grundartanga,
enda liggja á þessari stundu ekki
fyrir endanlegar ákvarðanir um
þær framkvæmdir. Verði hins veg-
ar af þeim er talið að þær geti
skilað 1-1'/2 milljarðs króna við-
bótartekjum í ríkissjóð á heilu ári
vegna aukinnar veltu og tekna í
efnahagslífinu.
3. Eru tekjur ríkissjóðs
stórlega vanáætlaðar?
I fyrrnefndri athugasemd frá
Kristni H. Gunnarssyni kemur
fram það mat að tekjur ríkissjóðs
árið 1997 „... séu vantaldar um
allt að 1,2 milljörðum króna miðað
við forsendur fjárlaganna." Verði
af stóriðjuframkvæmdum við
Grundartanga telur hann að tekj-
urnar „... gætu numið allt að 5
milljörðum króna samkvæmt mati
okkar sérfræðinga. Samtals gætu
því vanáætlaðar tekjur ríkissjóðs
numið ríflega 6 milljörðum.“
Það er nauðsynlegt að gera
nokkrar athugasemdir við þessa
útreikninga. I fyrsta lagi er rétt
að benda á að tekjuáhrif hugsan-
legra stóriðjuframkvæmda eru
stórlega ofmetin hjá Kristni, að
mati sérfræðinga fjármálaráðu-
neytisins. Við okkar mat er byggt
á upplýsingum Þjóðhagsstofnunar
um efnahagsleg áhrif þessara
framkvæmda. Enda þótt alltaf
gæti óvissu í slíkum útreikningum
teljum við útilokað að hún geti
þre- til fjórfaldað tekjuáhrifin á
einu ári.
í öðru lagi teljum við það tekju-
mat sem liggur til gmndvallar ijár-
lögunum raunhæft, miðað við for-
sendur ijárlaganna eins og þær
voru metnar í Iok síðasta árs. Hitt
er augljóst að efnahagsforsendur
geta alltaf breyst og þarf ekki að
fara lengra en aftur til síðasta árs
til að finna glöggt dæmi um slíkt.
Þá breyttust efnahagsforsendur
það mikið að hagvöxtur er talinn
hafa orðið að minnsta kosti 5‘/2%
í stað 3% eins og gert var ráð fyrir
í forsendum ijárlaga. Þetta frávik
kom fram í meiri tekjum ríkissjóðs
en áætlað hafði verið á fjárlögum.
Hér verður reynslan einfaldlega
að skera úr um hvort matið er
réttara.
Að gefnu tilefni er hins vegar
rétt að taka sérstaklega fram að
ekki er gert ráð fyrir að sú ákvörð-
un Alþingis að hækka ekki per-
sónuafslátt um áramótin komi
fram í auknum tekjum ríkissjóðs á
árinu, enda er þegar ákveðið að
þessir fjármunir verði nýttir til
lækkunar skatta á einn eða annan
hátt.
Höfundur er skrifstofustjóri
efnahagsskrifstofu
fjármálaráðuneytis.
Faraldur í
uppsiglingu
FARALDUR af
lungnakrabbameini er
framundan hjá konum
á Islandi, ungum kon-
um. Aðdraganda
þessa faraldurs er að
leita fyrir um 20 til
25 árum þegar reyk-
ingar kvenna tóku
stökk upp á við. Þá
var lungnakrabbi svo
til óþekktur hjá kon-
um. Nú er lungna-
krabbi í Danmörku
tíðari hjá konum held-
ur en körlum. Það
stefnir í sömu átt
núna hér á landi, og
það sem skelfilegt er,
við fáum þennan faraldur yfir okk-
ur þó konur hætti strax reykingum
Mannauður okkar,
segir Þorsteinn
Njálsson, fer
forgörðum.
því aðdragandi krabbans er 15-20
ár. Konur, takið ykkur á, hættið
reykingum, gerið tóbaksbindindi
að mannréttinda- og
kvennabaráttu.
Nú stöndum við
frammi fyrir nýjum
faraldri og aðdrag-
anda hans. Reykingar
ungs fólks og ungl-
inga aukast hraðfara.
Þetta unga fólk kemur
til með að fá sjúkdóma
á fertugsaldri, sem
aðrir sem ekki reykja
fá á sjötugsaldri.
Margt af þessu unga
fólki kemur til með að
deyja úr krabbameini.
Mannauður okkar og
menntun fer forgörð-
um, börn þessa unga
fólks horfa á bak foreldrum sínum
fyrir aldur fram.
Unga fólkið leitar fyrirmyndar
víða i þjóðfélaginu, hjá foreldrum,
hljómlistarfólki, tískufólki, í kvik-
myndum, auglýsingum, sjónvarpi
og víðar svo eitthvað sé nefnt.
Allir sem tilheyra þessum hópum
bera ábyrgð, látið til ykkar taka.
Trúðu að þú sért fyrirmyndin.
Höfundur er keknir og formadur
tóbaksvarnanefndar.
Þorsteinn
Njálsson
Barnaskóútsala
Inniskór frá 490 cmácVAr 1 bláu húsi
kuldaskór frá 1990 DluablS.UL v/Fákaten
UTSALA
herra-
GARÐURINN
Kringlunni