Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 41

Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 41 MINNINGAR SIGURJON JÚNÍUSSON + Sigurjón Jún- iusson fæddist í Sandgerði 23. sept- ember 1964. Hann lést á heimili sinu i Sandgerði hinn 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Júníus Guðnason, f. 13. júni 1943, og Regína Ragnars- dóttir, f. 24. mai 1945. Sigurjón átti þijú systkini, tvo bræður, Ragnar Geir, f. 9. júlí 1963, og Tryggva Rúnar, f. 5. október 1969, og eina syst- ur, Önnu Mariu, f. 22. desember 1974. Siguijón átti einn son, Stefán Henning, f. 23. febrúar 1989. Barnsmóðir Siguijóns er Ásta Rán Sigurðardóttir. Stefán og Ásta Rán búa erlendis. Eftirlif- andi sambýliskona Siguijóns er Bára Magnúsdóttir, f. 9. apríl 1958. Siguijón vann hjá Skipaaf- greiðslu Suðurnesja síðastliðin átta ár. Útför Sigurjóns fer fram frá Hvalsneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar með fáum orðum að minnast hans Sigga mágs míns. Við fengum þær sorglegu fréttir 1. janúar að Siggi væri dáinn. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, því ég, Tryggvi og Sandra, dóttir okkar, vorum hjá Sigga og Báru kvöldið áður og áttum þar góðar stundir og biðum spennt eft- ir nýju ári. En það byrjaði hjá okk- ur með þessum hræðilegu fréttum. Ég vil minnast þessa góðhjartaða manns með því að rita niður nokkr- ar línur um hann. Siggi var mjög barngóður og öll börnin í fjölskyld- unni voru mjög hænd að honum. Hann talaði mjög mikið um son sinn, hann Stefán sem býr ásamt móður sinni erlendis, og hann beið alltaf spenntur eftir að fá hann á sumrin, því sonurinn var honum allt. Alltaf var stutt í brosið hjá þessum lífsglaða manni og alltaf gat hann gert gott úr öllu. Elsku Siggi, þín verður sárt sakn- að og við munum sjá til þess að Sandra muni alltaf eftir þér, og eins hann Stefán þinn. Ég bið góð- an Guð að geyma þig og um leið að styrkja okkur öll hin. Meðan veðrið er stætt berðu höfuðið hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans Ijóð upp við ljóshvolfin björt og heið. Þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð þá stattu fast og vit fyrir víst: Þú ert aldrei einn á ferð. (Höf. ók.) Vertu sæll að sinni, elsku Siggi minn. Þín mágkona, Sigrún Lína Ingólfsdóttir. Nú er elskulegur bróðir minn farinn og hans verður sárt saknað. Ég minnist þess ætíð hvað hann var yndislegur við mig og son minn og hvað var alltaf stutt í fallega brosið hans. Ég vil fá að þakka fyrir þann tíma sem við fengum að hafa hann og hvað við vorum sam- rýnd síðustu árin. Það leið varia sá dagur að við hittumst ekki eða töluðum saman í síma. Og öll kvöld- in sem við spiluðum saman eru ógleymanleg, því þú varst alltaf svo hress og skemmtilegur að manni leið alltaf vel nálægt þér. Elsku Siggi minn, nú kveð ég þig að sinni. Þín systir í þennan helga Herrans sal vort hjarta leitar griða skal, því úti heijar heift og stríð, en hér er eilíf blíðutíð í þennan helga Herrans sal úr heimsins glaumi bera skal vor böm að skærri skírnarlind, að skapist þau í nýrri mynd. (M. Joch.) Mig langar að minn- ast mágs míns með fáeinum orðum. Þegar mér var tilkynnt um lát hans, varð ég sem löm- uð. Hver gat tekið líf þessa yndislega drengs? Sem öllum vildi vel og allir etskuðu. Siggi var alltaf hrókur alls fagnaðar og alltaf var gaman að vera þar sem hann var. Siggi minn, alltaf birti í eldhúsinu hjá okkur Ragga þegar þú komst í hádeginu, þá var glatt á hjalla. Það verður ekki oftar sem þú bankar á eldhús- gluggann og segir: Eruð þið ekki glöð að sjá mig? og fórst að hlæja. Og ef Agnes og Regína, frænkur þínar voru heima, hafðir þú gaman af því að segja: Á ekki að koma og kyssa Sigga frænda? með stríðn- isglampa í augum. Margs er að minnast úr sumarbú- staðaferðum okkar og mætti skrifa um það heila bók, en nú höfum við aðeins minningarnar eftir sem munu ylja okkur um ókomin ár. Elsku Siggi minn ég, þakka fyrir að hafa fengið að þekkja þig í sex- tán ár og bið góðan guð að taka vel á móti þér. Láttu, Guð, vakna lífs á trú, léttu sorg af barmi, ástvini hans hugga þú þerraðu tár af hvarmi. _ (Ásta Hansdóttir) Blessuð sé minning þín. Þín mág- kona Andrea. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Siggi frændi, blessuð sé minning þín. Við þökkum þér allt. Þínar frænkur, Agnes Ósk og Regína. Nýarsdagur 1997 var runninn upp. í Sandgerði var veðrið óvenju- fallegt, stillt og bjart. Undir hádeg- ið sást til sólar, sem kryddaði feg- urð þessa fyrsta dags ársins. En skyndilega þyrmdi yfir. Voðafregn barst á öldum ljósvak- ans. Ungur maður í Sandgerði hafði verið stunginn til bana þennan morgun. Fregnin barst eins og eldur í sinu, hann Sigurjón Júníusson var dáinn. Hann var fórnarlamb óskiljanlegs harmleiks. Hvað er að gerast í okk- ar fámenna landi, þar sem grimmi- legt ofbeldi vex frá ári til árs? Er ekki mál að linni? Undanfarin tíu ár var Siguijón starfsmaður minn hjá Skipaaf- greiðslu Suðurnesja, brosmildur gæðadrengur sem lífgaði umhverfið með glettni sinni og góðu skapi. í raun hafa leiðir okkar Siguijóns legið saman mun lengur. Hann var jafnaldri og skólabróðir dóttur minnar, Jóhönnu, og við faðir hans, Júníus, vorum nánir samstarfsmenn til margra ára í slökkviliði Sand- gerðis. Þannig tengjast vináttubönd í litlu bæjarfélagi og íbúarnir verða nákomnari hver öðrum. Nú þegar ungur maður í blóma lífsins er kvaddur á braut svo óvænt, samein- umst við í sorginni. Fyrir hönd fjölskyldu minnar og samstarfsmanna Siguijóns hjá Skipaafgreiðslunni, sendi ég ykkur, Bára, Regína, Júníus, Stefán litli og aðrir aðstandendur, innilegar samúðarkveðjur, og bið um styrk og Guðs blessun ykkur til handa. Blessuð sé minning Siguijóns Júníussonar. Jón Norðfjörð. Elsku Siggi okkar. Að vakna á nýársmorgun við þessi hörmulegu tíðindi var mjög sárt. Við áttum margar góðar stundir með þér. Við munum alltaf minnast stundanna sem þú áttir með Brynjari okkar. Hann hélt allt- af mikið upp á þig. Stundimar sem við áttum með þér og Báru fyrir jólin mun alltaf ylja okkur um hjart- arætur. Þú varst alltaf svo hress og kátur og það var gott að tala við þig. Söknuður okkar er mikill. Elsku Bára, Stefán, Baddi, Reg- ína, Ragnar, Tryggvi, Anna María og aðrir ættingjar, megi Guð styrkja ykkur og varðveita í þessari miklu sorg. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Anna, Bjarki og Brynjar Örn. t Eiginmaöur minn, SVANÞÓR JÓNSSON múrarameistari, Hraunbæ 103, Reykjavik, lést 8. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Sigrföur Þorsteinsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, BERGUR ÖRN EYJÓLFS, Norður-Vík, Vík i Mýrdal, sem lést 30. desember sl., verður jarð- sunginn frá Skeiðflatarkirkju laugardag- inn 11. janúar nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Guðlaug M. Guðlaugsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SIGFÚSSON húsasmíðameistari frá Gröf á Höfðaströnd, til heimilis i Safamýri 50, Reykjavik, lést miðvikudaginn 8. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Bára Sigrún Björnsdóttir, Birna Sigurðardóttir, Sigurður Birkir Sigurðsson, Pétur Þór Sigurðsson, Freyr Baldvin Sigurðsson, Una Sigurðardóttir, Sigfús Jón Sigurðsson, Ása S. Þrastardóttir, Jónína Bjartmarz, Steinunn Jónsdóttir, Ólafur Gislason, Ragnheiður Einarsdóttir, Zophanías Þorkell Sigurðsson, Guðrún ívars, Alma Sigurðardóttir, Magnús Æ. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, áður Meðalholti 15, sem lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð þann 1. janúar, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 13. janúar kl. 13.30. Guðmundur Jensson, Skúli Jensson, Ólafur Jensson Brynja Rannveig Guðmundsdóttir, Elfn Guðmundsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ari Ólafsson, Björg Ólafsdóttir Sigríður Þorkelsdóttir, Hafsteinn Skúlason, Magnús Jóhannsson, Böðvar Magnússon, Karitas Ólafsdóttir, og aðrir œttingjar. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTRÚN SÆMUNDSDÓTTIR frá Brautarhóli, Biskupstungum, sem andaðist 4. janúar, verður jarð- sungin frá Skálholtskirkju laugardaginn 11. janúar kl. 14.00. Jarðsett verður að Torfastöðum. Rútuferð verður frá BSÍ kl. 12.00 sama dag og frá Fossnesi, Selfossi, kl. 13.00. Ragnar Ragnarsson, Steinunn Jóhannsdóttir, Alfreð Jónsson, Kristbjörg Sigurjónsdóttir, Kjartan Runólfsson, Eiríkur Sigurjónsson, Jón Sœmundur Kristinsson, Bjarni Kristinsson, Oddný K. Jósefsdóttir, Berglind Sigurðardóttir, Jóhann B. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sigurjón Kristinsson, Margrét Kristinsdóttir, Hrefna Kristinsdóttir, Kærar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og frænku okkar, LÁRU STEFANÍU JÚLÍUSDÓTTUR, Austurbraut 5, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíð- ar, Grindavík. Guð blessi ykkur öll. Helgi Jónsson, Sigriður Elentfnusdóttir, Sigurður Sverrir Witt og aðrir ástvinir. Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RANNVEIGAR GUÐJÓNSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, Sérstakar þakkir sendum við starfsfólk- inu í Seljahlíð. Pálína Júlfusdóttir, Andrés K. Guðlaugsson, Þórunn J. Júlfusdóttir, Kristján Örn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Anna María.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.