Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 45
AFMÆLI
Grímur Gíslason,
fréttamaður Ríkisút-
varpsins og veðurat-
; hugunarmaður á
5 Blönduósi, fyrrum
| bóndi í Saurbæ í
Vatnsdal, er 85 ára í
dag, 10. janúar 1997.
Þykir mér hlýða að
minna ^ölmennan ætt-
boga, vini hans víðs
vegar og samhetja á
ýmsum vettvangi fyrr
og síðar, á merkisaf-
k mæii hinnar ernu
sem til hans þekkja
I munu útvarpshlustendur taka
undir heillaóskir með þökk fyrir
áheyrilegan flutning vel saminna
fréttapistla hans frá Blönduósi.
Starfsdagur Gríms er ærið lang-
ur orðinn. Vakandi auga hefur
hann enn með fréttnæmum at-
burðum í héraði sínu. Dag hvern
á nokkurra stunda fresti nema um
blánóttina fylgist hann með veðri
j og vindum veðurþjónstu og lands-
k mönnum til gagns og gamans. Það
* er ekki öllum treystandi að sinna
veðurathugunum af árvekni, þolin-
mæði og nákvæmni, en athugun-
um á Blönduósi hefur Grímur innt
af hendi með heiðri
og sóma í hartnær tvo
áratugi.
Grímur Gíslason
fæddist í Þórormst-
ungu í Vatnsdal í
Austur- Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans
voru Gísli Jónsson
bóndi þar, síðar í
Saurbæ í Vatnsdal,
og kona hans, Katrín
Grímsdóttir frá Syðri-
Reykjum í Biskups-
tungum. Eiginkona
Gríms er Sesselja
Svavars- dóttir frá
Akranesi, dóttir Svavars Þjóð-
björnssonar og konu hans, Guð-
rúnar Finnsdóttir. Börn þeirra
Gríms og Sesselju eru fjögur, Sig-
rún í Saurbæ, Katrín á Steiná í
Svartárdal, Sæunn Freydís í
Reykjavík og Gísli Jóhannes á
Efri-Mýrum í Engihlíðarhreppi,
tápmikið dugnaðarfólk.
Grímur Gíslason stundaði á
unga aldri nám í Héraðsskólanum
á Laugarvatni og Bændaskólanum
á Hvanneyri, en að því loknu vann
hann að búi foreldra sinna uns
hann hóf búskap þar á móti þeim
árið 1942. Tveimur árum síðar tók
hann við allri jörðinni og bjó þar
til 1969, tvö síðustu árin í félags-
búi við dóttur og tengdason, Sig-
rúnu og Guðmund Guðbrandsson.
Árið 1967 urðu einnig þau þátta-
skil í lífi Gríms og Sesselju að þau
fluttu til Blönduóss og hafa því
senn átt þar heima í 20 ár. Hóf
Grímur störf hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga, fyrst fulltrúi, síðar gjald-
keri.
Fátt eitt verður talið í stuttu
afmælisávarpi af því, sem Grímur
tók sér fyrir hendur og tók að sér
samtímis önnum við búskap um
áratuga skeið. Hann var í stjórn-
um ungmennafélaga og sam-
banda í sýslunni, gjaldkeri og
stjórnarformaður Sjúkrasamlags
Áshrepps, formaður Búnaðarfé-
lags Ashrepps í rúm tuttugu ár,
í stjórn Búnaðarsambands Aust-
ur-Húnvetninga, hreppsnefnd Ás-
hrepps og oddviti. Þá starfaði
Grímur að skólamálum, í skóla-
nefndum og byggingarnefndum.
Þjóðmálaáhugi hans og baráttu-
þróttur nýttist í stjórn Fram-
sóknarfélags Austur-Húnvetn-
inga um áratuga skeið og var þá
Grímur formaður lengst af. Þá
nýttust starfskraftar hans bóka-
safnsmálum í héraði. Hann var í
stjórnum hestamannafélagsins
Neista þar í sýslunni, Hrossa-
ræktarsambands sýslunnar og
Hagsmunafélags hrossabænda.
En hestamaður hefur Grímur ver-
ið um sína daga, fjölfróður og
vísast ráðsnjall í félagsmálum
hestamanna sem annars staðar.
Á Blönduósi hefur Grímur einn-
ig tekið þátt í félagsmálum, t.d.
verið í sóknarnefnd Blönduós-
kirkju og formaður kirkjukórsins,
en afmælisbarnið var frá fyrstu
tíð söngmaður góður og mikill
áhugamaður um eflingu sönglífs
heima fyrir og annars staðar.
Fleira mætti telja, en hér verð-
ur látið staðar numið. í Húna-
vöku, riti Húnvetninga, birtist
sumarið 1995 skemmtilegt og
fróðlegt 20 blaðsíðna viðtal við
Grím Gíslason eftir Unnar Agn-
arsson á Blönduósi. Grímur grein-
ir þar frá æskuárum, skólagöngu,
félagslífi í Vatnsdal og Húna-
vatnssýslu, sveitarstjórnarstarfi,
þrætugjörnum Vatnsdælingum,
sinni ágætu íjölskyldu, skógrækt
og búnaðarfélagi, sönglífi,
Blönduósi, samvinnumálum og
stjórnmálum.
Síðustu orð Gríms í viðtalinu
eru sem hér segir: „En ég er
fæddur til þess að nota kraftana
og njóta lífsins og ég ætla að
halda því áfram eftir því sem
auðnan ræður.“ Megi svo verða,
en héðan að sunnan sendum við
Jóhanna kona mín, systurdóttir
Gríms, hjartanlegar afmælisóskir
með þökk fyrir dýrmæt kynni um
langan tíma, ég þriðjung aldar,
en hún ævilöng. Munu margir
samfagna þeim Sesselju í dag og
samheldnum afkomendum þeirra.
Þór Jakobsson
veðurfræðingur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Siglufjarðar
PARAMÓT Norðurlands vestra í
tvímenningi var haldið á Hótel Læk (
á Siglufirði 5. janúar sl. Þátt tóku
15 pör, þar af fjögur gestapör frá
nágrönnum okkar á Akureyri. Spil-
aður var Barómeter, íjögur spil á
milli para, allir við alla. Mótið fór
vel fram og varð þátttakendum
bæði til ánægju og skemmtunar.
Hlutskörpust urðu Olafía Þorvalds-
dóttir og Sigurður Jón Gunnarsson
frá Bridsfélagi Siglufjarðar, en þau
ieiddu mótið nær allan tímann og
sigi-uðu örugglega.
Lokastaða efstu para:
ÓlafíaÞorvaldsd. - Sigurður J. Gunnarsson 58 n
Soffía Guðmundsd. - Stefán Ragnarsson 41 '■
Ragnhildur Gunnarsd. - Gissur Jónasson 39
Sólborg Þórarinsdóttir - Bjöm Friðriksson 33
Stefanía Sigurbjörnsd. - Ásgr. Sigurbjöms. 28
Bridsfélag Sigluljarðar þakkar
starfsfólki og eigendum Hótel
Lækjar á Siglufirði fyrir veittan
stuðning við mótshaldið, svo og
gestum fyrir þátttökuna. Er það von
manna að mót þetta verði betur
sótt á komandi ári af hálfu spilara
á Norðurlandi vestra.
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
Þriðjudagskvöldið 7. janúar var
spilaður tvímenningur og urðu úr-
slit þessi:
Svala Vignisdóttir - Ragna Hreinsdóttir 197
Jónas Jónsson - Guðmundur Magnússon 191
Aðalsteinn Jónsson - Gísli Stefánsson 190
Kristján Kristjánss. - Ásgeir Metúsalemss. 185
GRÍMUR
GÍSLASON
p
i
p
i
9
9
9
9
9
4
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins f Hafnarstræti 1,
ísafirði, þriðjudaginn 14. janúar 1997 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum:
Fjarðargata 14, efri hæð, Þingeyri, þingl. eig. Sólveig S. Guðnadótt-
ir og Viktor Pálsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Fjarðarstræti 32, 0101, a.e., Isafirði, þingl. eig. Heiðrún Rafnsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingársjóður ríkisins.
Mánagata 6A, 0201, isafiröi, þingl. eig. Ólafur Ásberg Árnason,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins húsbréfadeild.
Mjallargata 6A, 0101, Isafirði, þingl. eig. Þórir G. Hinriksson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Bæjarsjóður Isafjarðar.
Planhús (vélsmiðja), Suðureyri, þingl. eig. Gunnhildur Hálfdánardótt-
ir og Guömundur Karvel Pálsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á
ísafirði og Þróunarsjóður, atvinnutryggingadeild.
Pollgata 4, 0304, isafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðar, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Pollgata 4, 0401, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðar, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Skálavík ytri, Reykjafjarðarhreppi, N-ís., þingl. eig. Geir Baldursson,
Herdís Rósa Reynisdóttir og Kristján Garðarsson, gerðarbeiöendur
Byggingarsjóður ríkisins húsbréfadeild og Stofnlánadeild landbúnað-
arins.
Túngata 15, 2. h. t.h., Suðureyri, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarð-
arbæjar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Sýslumaðurinn á Isafirði,
9. janúar 1997.
Uppboð á lausafé
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hafnar-
götu 9, Stokkseyri, þriðjudaginn 21. janúar
1997 k. 14.00:
Flæðilína framleidd af Eðalstáli, Kópavogi,
og Sjöteck loðnuflokkari.
Bifreiðin VT-769, Ford Cargo 0711, árgerð
1985.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
9. janúar 1997.
Stangaveiðimenn ath.
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst nk. sunnu-
dag í Laugardalshöllinni kl. 10.20 árdegis.
Nýjar SAGE II stangir. Kennt verður 12. og
26. janúar og 2. febrúar.
Þetta verður aðeins þriggja daga námskeið.
K.K.R. og kastnefndirnar.
Málverk -
gömlu meistararnir
Fyrir fjársterka aðila leitum við að góðum
verkum gömlu meistaranna, t.d. Kjarvals,
Jóns Stefánssonar, Gunnlaugs Scheving,
Kristínar Jónsdóttur og Jóhanns Briem.
Höfum einnig kaupanda að góðri hafnarmynd
eftir Gunnlaug Blöndal, t.d. frá Reykjavíkur-
höfn eða Siglufirði.
Vinsamlegast hafi samband við Gallerí Borg
í síma 552 4211. Opið virka daga kl. 12-18.
BORG
sími 552 4211.
Kópavogsbúar - opið hús
Opið hús er á hverj-
um laugardegi milli
kl. 10-12 í Hamra-
borg 1, 3. hæð.
Bæjarfulltrúarnir
Bragi Mikaelsson og
Guðni Stefánsson
verða gestir í opnu
húsi á morgun, laug-
ardaginn 11. janúar.
Allir bæjarbúar vel-
komnir.
Heitt kaffi á könnunni.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Nú geta allir lært
að syngja,
laglausir sem lagvísir
Hóptfmar/einkatímar
Byrjenda-
og framhaldsnámskeið:
Námskeið fyrir unga sem aldna,
laglausa sem lagvísa. Söng-
kennsla í hóp. Þátttakendur fá
grunnþjálfun í raddbeitingu,
réttri öndun og ýmsu fleiru sem
hjálpar þeim að ná tökum á
söngröddinni.
Söngsmiðja fyrir hressa
krakka:
Söngur, tónlist, leikræn tjáning.
Aldursskipt námskeið frá 5 ára
aldri.
Einsöngur:
Klassík og dægurtónlist.
Kvennakórinn Kyrjurnar:
Stjórnendur: Sigurbjörg Hv.
Magnúsdóttir og Sigrún Grendal.
Rokk/jass/blues
I vetur kennir kanadíska söng-
konanTena Palmervið skólann.
Frábær söngkona, sem unnið
hefur til fjölda verðlauna fyrir
söng sinn.
Sönghópur Móður Jarðar:
Stjórnandi: Esther Helga Guð-
mundsdóttir. Kórhópur, sem
flytur „Gospel“-tónlist og ýmsa
létta tónlist, heldur sjálfstæða
tónleika og syngur viö ýmis tæki-
færi. Óskum eftir fólki með
reynslu í söng og nótnalestri.
Kennsla hefst 20. janúar.
Innritun er hafin í síma 561 2455
virka daga frá kl. 13-18.
Söngsmiðjan ehf.,
Hverfisgötu 76,
Reykjavík.
I.O.O.F. 12= 1781018ASÁ.R.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Frá Guðspeki-
félaginu
l.ngólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
Föstudaginn 10. janúar
1997:
í kvöld kl. 21.00 flytur Birgir
Bjarnason erindi: „Hver er ég“,
í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá kl.
15-17 með fræðslu kl. 15.30.
í félaginu fer fram fjölbreytt og
fordómalaus fræðsla og iðkun
með sjálfsrækt að markmiði.
Erindi, umræður, hugleiðing,
hópnám, hugræktarnámskeið
og bókaþjónusta eru opin
almenningi endurgjaldslaust i
allan veturinn.
- kjarni málsins!