Morgunblaðið - 10.01.1997, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
\
Martin
Landau
Jönathan
aylorÍThomas
ihdrfangant
Fallfé.ójpöi^
r • i
HÁSKÓLABÍÓ
PORUPILTAR
. -
•V-k
Háskólabíó Gott
SLEEPERS
BRAD PITT
DUSTIN HOFFMAN
ROBERT DENIRO
KEVIN BACON
JASON PATRIC
Umtöluð stórmynd með heitustu stjörnunum dagsins í dag í
aðalhlutverkum. Þetta er mögnuð mynd sem þú gleymir
seint. Leikstjóri er Óskarsverðlaunahafinn Barry Levinson
(Rain IVIan, Good Morning Vietnam).
Fjórir vinir lenda á upptökuheimili eftir að hafa, fyrir slysni,
orðið manni að bana. Á upptökuheimilinu eru þeir ofsóttir
af fangavörðum og beittir miklu ofbeldi.
Mörgum árum síðar rennur stund hefndarinnar upp.
Myndin er sögð byggja á sönnum atburðum.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
MIÐAVERÐ KR. 600. B.l. 16 ÁRA.
DENNIS
QU
BRIMBROT
„Brimbrot er omissandi
★ GBDV
★ ★★’;, SVMBL
AS Bylgian
SYND KL. 9.
ATH. BORN FJOGURRA ARA
OG YNGRI FÁ FRÍTT INN.
Gosi talar
íslensku
Dragonheart er bráðfyndin’ævintýramynd með
toppleikurum um sígilda baráttu góðs og ills.
Spenna og frábærar tæknibrellur.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. B. i. 12 ára
I EKKI MISSA AF ÞESSARI I
Splúnkuný og bráðskemmtileg leikin mynd með ísl. tali fyrir alla fjöl-
■ skylduna um ævintýri Gosa. Myndin er byggð á ævintýrinu sigilda.
Leikstjórn Ágúst Guðmundsson
Sýnd kl. 5 og 7.
Storkostlegt kvikmyndaverk um einn merkasta rithöfund sögunnar
Viö innrás Þjóöverja í Noreg hvatti Knut Hamsun landa sína til aö
leggja niður vopn og síðar hélt hann á fund Hitlers. Miklifengleg
sviðssetning eins umdeildasta tímabils í lífi Hamsuns.Aðalhlutverk
Max von Sydow og Ghita Norby
Sýnd kl. 6 og 9.
HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Dreggjar dag-
skrárinnar
ENGIN, ekki ein einasta kvikmynd,
skarar svo fram úr í dagskrá sjónvarps-
stöðvanna þessa helgina að hún kalli
á sérstaka viðurkenningu og gilti það
sama um síðustu helgi. Trúlega stafar
þessi hógværð af tillitssemi við upp-
safnaðan jólabókavanda þjóðarinnar.
Þeir sem eru þegar búnir að lesa Köku-
bók Hagkaups þrisvar sinnum geta
hins vegar glápt á eftirfarandi:
FOSTUDAGUR
Sjónvarpið ►21.10 Skólastrákur
villir á sér heimildir í hagnýtum og
rómantískum tilgangi með því að
klæða sig eins og skólastelpa í ungl-
ingagamanmyndinni Ein úr hópnum
(Just One ofthe Girls, 1993). Frumleg
hugmynd, frábær kvikmyndagerð,
framúrskarandi leikur? Gettu betur.
Leikstjóri Michael Keusch. ★
Sjónvarpið ►23.35 Spennumyndin
Asíusambandið: Leiðin til Mand-
alay (The Asian Connection: The Road
to Mandalay, 1995) er áströlsk-banda-
rísk og gæti verið hluti af syrpu.
Umsagnir liggja ekki fyrir en John
Waters leikur föður sem hyggur á
hefndir eftir morð á dóttur og barna-
bami. Meðal annarra leíkara eru Pat
Morita og kanadíski illmennafræðing-
urinn Michael Ironside.
Stöð 2 ►13.00 og 00.20 Robert
Townsend leikstýrir sjálfum sér
sem ósköp aumum kennara í róstu-
sömu blökkumannahverfi sem
breytist i yfirnáttúrlegan harðjaxl
þegar hann fær loftstein í hausinn
í Loftsteinamanninum (Meteor Man,
1993). Maltin þykir þessi bandaríska
delluhugmynd fá heldur hallærislega
úrvinnslu og gefur ★ 'A, Martin og
Potter gefa hins vegar ★ ★ ★ (af
fimm mögulegum) og Blockbuster
Video ★ ★ ‘A.
Stöð 2 ^21 .00 Bandarísku gaman-
þættirnir Saturday Night Live hafa
um árabil getið af sér kvikmyndir og
kvikmyndastjömur. Ein af persónum
þessara þátta heitir Pat og er kynferð-
ið á reiki. Um þessa persónu hefur
verið gerð bíómyndin Svona er Pat
(It’s Pat: The Movie, 1994). Myndin
er 78 mínútna löng og segja Martin
og Potter hana vera 60 mínútum of
langa. Þau gefa ★★, Maltin gefur
Kona kemurúrfelum
0, en Blockbuster Video ★ ★ ‘A. Leik-
stjóri Adam Bernstein og í titilhlut-
verkinu er Julia Sweeney.
Stöð 2 ►22.20 Sönn ást (True Ro-
mance, 1993) er enn einn ofbeldis-
o g blóðsúthellingahyllingurinn „úr
JOHN Sayles er dæmi um amerískan kvikmyndagerðarmann sem tekst
að nýta sér þrönga stöðu formúluiðnaðarins í Hollywood til að skapa
sjálfum sér listrænt svigrúm. Sem handritshöfundur B-mynda fyrir
Roger Corman og fleiri aflaði hann sér flár, orðstírs, sambanda og reynslu
sem gerðu honum kleift að semja og leikstýra eigin myndum um venju-
legt fólk sem ekki lýtur formúlum iðnaðar heldur flóknum leikreglum
lífsins sjálfs. Sayles, sem nú er 46 ára, hóf feril sinn sem höfundur
skáldsagna og smásagna og myndir hans njóta innsæis, persónusköp-
smiðju Quentins Tarantino". Christian
Slater og Patricia Arquette gera sitt
besta sem utangarðspar á villigötum
en í seinni hluta myndarinnar fer öll
glóra út í veður, vind og heilaslettur.
Tony Scott leikstýrir með glansandi
handbragði, meðal leikara eru Gary
Oldman, Dennis Hopper, Brad Pitt og
Christopher Walken og eru hlutverk
þeirra meira og minna óunnin af hálfu
Tarantinos handritshöfundar. ★ ★
Stöð 3 ►21.05 og 22.35 Engar
umsagnir og litlar upplýsingar liggja
fyrir um myndirnar Landamæra-
kaffihúsið (Bordertown Café) og
Laumufarþeginn (The Coid Equati-
ons), sem gerist um borð í geimfari.
Stöð 3 ►00.05 Victoria Principal
ætti sem Pamela í Dallas að vera vön
hjónabandsvandræðum enda er hún
hundelt af fyrrum eiginmanni í sjón-
varpsmyndinni Brottnám (The
Abduction). Engar umsagnir.
Sýn ►21.00 Skarkárinn (The Ent-
ity, 1981) er nokkuð öflug og óhugn-
anleg hrollvekja um unga konu sem
ítrekað sætir grófum kynferðislegum
árásum ills anda. Barbara Hershey
leikur sannfærandi en samt trúir um-
hverfið henni mátulega. Sidney J.
Furie leikstjóri svífst einskis í sjokk-
brögðum. Ekki fyrir börn. ★ ★ ‘A
Sýn ►23.35 Sandra Bullock er trú-
lega ekki mikið að flagga þátttöku
sinni í Ástarlyfi nr. 9 (Love Potion
No. 9,1992)enþessidellugamanmynd
er þó ekki algalin. Tate Donovan leik-
ur gleraugnaglám sem á engan sjans
uns hann fær frygðarlyf hjá sígauna-
kellingunni Anne Bancroft og þá fellur
Linda Griffith og Jane Hallaren
sem elskendur í Lianna.
unar og samtalastíls sem er fágætur í amerískum myndum. Fyrsta sjálf-
stæða mynd hans var The Return of the Secaucus Seven (1980), gegnum-
lýsing á kynslóð höfundar og gerð fyrir skiptimynt. Sjónvarpið sýnir
á sunnudagskvöld aðra mynd hans, Lianna (1982), næmlega frásögn
af eiginkonu og móður sem uppgötvar að hún er lesbía. Eins og flestar
myndir Sayles er Lianna heiðarleg og vel samin, en skortir herslumun
tii að ná eftirminnilegu dramatísku risi. Nýjasta mynd Sayles, Einstirni
(Lone Star) hefur að undanförnu verið sýnd í Regnboganum. Lianna
★ ★ ★
Bullock fyrir honum. Leikstjóri Dale
Launer. ★ ★
LAUGARDAGUR
Sjónvarpið ►21.15 Rótlaus lista-
maður snýr heim á íjölskyldubúgarð-
inn, væntanlega í leit að rótum í banda-
rísku sjónvarpsmyndinni Heim í heið-
ardalinn (Keep The Change, 1992),
sem byggð er á sögu Thomas McGu-
ane. Maltin segir myndina yfir meðal-
lagi og vel mannaða - William L. Pet-
ersen, Lolita Davidovich, Jack Palance
m.a. Leikstjóri Andy Tennant. Martin
og Potter gefa ★ ★ ★ 7z.
Sjónvarpið ►22.55 Austurríski leik-
arinn svipsterki Klaus Maria Brandau-
er leikstýrir Maríó og töframannin-
um (Mario und der Zauherer, 1995),
sem byggð er á sögu Thomas Manns
og gerist á fasistatímum um 1930.
Brandauer leikur sjálfur aðalhlutverk-
ið ásamt Julian Sands og Önnu Gali-
enu. Engar umsagnir en lofar góðu.
Stöð 2 ►21.05 Hörkutól úr hernum
tekur að sér að tuska til baldna nýliða
í misheppnaðri gamanmynd, Payne
majór (Major Paync, 1995). Aðalhlut-
verk Damon Wayans og leikstjóri Nick
Castle og hefði þurft hörkutól til að
tuska þá til. ★
Stöð 2 ►22.45 Sá trausti breski leik-
ari Edward Woodward (The Equaliz-
er) leikur einkaspæjara í sjónvarps-
myndinni Harrison - Neyðarópið
(Harrison: Cry of the City, 1995).
Engar umsagnir.
Stöð 2 ►00.20 Spennumyndin í
kjölfar morðingja (Striking Distance,
1993) er frambærileg afþreying, þar
sem Bruce Willis leikur fljótabátslöggu
í Pittsburgh á slóð morðingja sem virð-
ist eiga eitthvað óuppgert við hann
sjálfan. Leikstjórinn, Rowdy Herring-
ton, nær upp góðum hraða á köflum.
★ ★ '/2
Stöð 3 ►21.20 Engar umsagnir
liggja fyrir um sakamálamyndina
Dularfullt morð (The Midsummer
Murders) en hún mun byggð á met-
söiubók eftir Caroline Graham um
Barnaby lögreglufulltrúa að rannsaka
- ja, skyldi ekki vera - dularfullt
morð. Leikara og leikstjóra ógetið.
Stöð 3 ►23.20 Og þá fáum við vort
vikulega framhjáhaldsdrama þar sem
er Úr viðjum hjónabands (Silence
Of Adultery). Kate Jackson vinnur
með einhverf börn og fellur fyrir föður
eins skjólstæðinga sinna. Og vel á
minnst - hún er gift öðrum.
Sýn ►21.00 Enskur titill vestrans
Morðingi gengur laus (The Fiend
Who Walked the West, 1958) er lunk-
inn. Sagan - um tugthúslim sem fer
að angra fólk úr fortíðinni þegar hann
sleppur út - er ekki eins lunkin að
sögn Maltins, sem þó segir myndina
forvitnilega og gefur ★ ★ ‘A. Meðal
leikara Hugh O’Brian, Robert Evans
(síðar framleiðandi) og Linda Crystal.
Leikstjóri Gordon Douglas.
SUNNUDAGUR
Sjónvarpið ► 15.05 Engar umsagnir
liggja fyrir um sjónvarpsmyndina
Góði konungurinn (The Good King,
1994) um prins sem vill frelsa tékk-
neska konungsríkið undan harðstjórn.
Leikstjóri Michael Tuchner en aðal-
leikarar Stephanie Powers, Perry King
og Joan Fontaine.
Sjónvarpið ►22.30 - Sjá umfjöllun
í ramma.
Stöð 2 ►20.00 Breska leikkonan
Patsy Kensit fer með hlutverk starfs-
systur sinnar Mia Farrow í tveggja
hluta sjónvarpsmynd um ijölskrúðuga
ævi hennar og ástir, Saga Miu Farrow
(Love And Betrayal: The Mia Farrow
Story, 1995). Umsagnir liggja ekki
fyrir en margir hafa gaman af slúðurn-
iðursuðu af þessu tagi og leikstjórinn
Karen Arthur er yfirleitt frekar vand-
virk. Seinni hlutinn annað kvöld.
Stöð 2 ►23.30 Bandaríski hasar-
myndaleikstjórinn Walter Hill átti að
baki einn prýðilegan vestra - The
Long Riders (1980) - þegar hann
gerði Geronimo (Geronimo: An Am-
erican Legend, 1994) um hinn sögu-
fræga höfðingja Apacheindíánanna og
baráttu hans við hersveitir hvítu
mannanna. A margan hátt glæsileg
mynd með góðum leik Wes Studi í
titilhlutverkinu, dyggilega studdum af
Gene Hackman og Robert Duvall, en
handrit Johns Milius er í heildina
dramatískt veikbyggt. ★ ★ 'A
Sýn ►23.40 Handritshöfundurinn
George Gallo (Midnight Run) leik-
stýrði sinni fyrstu mynd þar sem er
29. stræti (29th Street, 1991), vel
leikin og manneskjuleg - og sann-
söguleg - lýsing á því sem gerist í
lífi manns sem vinnur stóra vinning-
inn. Danny Aiello og Anthony LaPagl-
ia leika við hvurn sinn fingur. ★ ★ ‘A
Árni Þórarinsson