Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 60

Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 60
MewU£d -setur brag á sérhvern dag! X7Í. gnœnm grein > munAMaarr @Bl)NAÐARBANKI ÍSLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Vestfirðir Mokveiði á þorski MIKIL þorskgengd er á grunnslóð undan Vestfjörðum um þessar mundir og aflabrögð með eindæm- um góð. Þykir heimamönnum þorskurinn vænni en gengur og gerist á þessum árstíma. Mjög góð veiði hefur verið hjá línubátum fyrir vestan frá því að veiðarnar hófust að nýju eftir ára- mótin. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarvoginni á Patreksfirði lönd- uðu 10 bátar um 219 tonnum á tímabilinu 2.-8. janúar. Togarar hafa einnig fengið mjög góðan þorskafla á Vestfjarðamið- ■ um. Að sögn Páls Halldórssonar, —" skipstjóra á Páli Pálssyni ÍS, eru þeir flestir farnir að forðast þorsk- inn því þeir mega ekki við að veiða hann vegna kvótaskorts. ■ Mikil þorskgengd/16 Morgunblaðið/Jón Svavarsson Afmælis- hátíð LR hafin LEIKFÉLAG Reykjavíkur verð- ur 100 ára á morgun, 11. janúar, en félagið er elsta starfandi menningarfélag á íslandi. Af- mælið verður haldið hátíðlegt allt þetta ár með margvíslegum hætti. Segja má að afmælishátíð- in hafi byrjað í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þegar frumsýnt var leikritið Dómínó eftir Jökul Jak- obsson undir leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Hér má sjá frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrver- andi forseta íslands, formann afmælisnefndar LR, bjóða for- setahjónin, hr. Ólaf Ragnar Grímsson og frú Guðrúnu Katr- ínu Þorbergsdóttur, velkomin á sýninguna í gærkvöldi. ■ íleitað/20 Engin ákvörðun um stækkun járnblendiverksmiðjunnar »Þrjú hundruð millj- ónir til endurbóta ÁKVEÐIÐ var á stjómarfundi Járn- blendifélagsins sem haldinn var í Reykjavík í gærkvöldi að veija 300 milljónum króna til nýframkvæmda og endurbóta á tækjabúnaði verk- smiðjunnar, meðal annars á meng- unarvamabúnaði. Engar ákvarðanir vom teknar um stækkun verksmiðj- unnar. Staðfestur var tuttugu ára orkusamningur við Landsvirkjun m, sem tekur gildi 1999. Jón Sveinsson, formaður stjórn- ar félagsins, segir að ekki sé ná- kvæmlega hægt að segja til um hversu stór hluti 300 milljónanna renni til mengunarvarna, en sá hluti sé verulegur. I fyrra var 260 milljónum króna varið til endur- bóta á verksmiðjunni. Þar af fór talsvert á annað hundrað milljóna til mengunarvarna. „Mengun á svæðinu kringum verksmiðjuna er ekki mikil miðað við það sem þekk- ist víða erlendis og langt undir eðlilegum mörkum. En verksmiðj- an er orðin tuttugu ára gömul og búnað sem gengur úr sér þarf að bæta.“ Mismunandi áherslur eigenda varðandi stækkun Stækkun verksmiðjunnar var tekin til umræðu á fundinum. „Það var ákveðið að eigendurnir ræddu málið áfram og reyndu að komast að endanlegri niðurstöðu, án þess að hún væri tímasett,“ segir Jón. „Þessar viðræður munu halda áfram á næstu mánuðum. Þetta eru þrír ólíkir eigendur með mis- munandi hagsmuni og það tekur töluverðan tíma að ná öllum sjón- armiðum saman. Það eru skiptar skoðanir um einstaka þætti en það eru flestir, ef ekki allir inni á því að hagkvæmni af stækkuninni sé mikil. Það er alltaf spurning um hvort menn vilji taka afkomuna út í auknum arði eða leggja í innri fjárfestingu." í fréttum hefur komið fram að Elkem, sem er einn eiganda verk- smiðjunnar, hefði lýst áhuga á að kaupa eignarhluta ríkisins. Jón vildi hvorki játa né neita þeim fregnum. „Það hefur ýmislegt komið upp í þessum umræðum, enda hafa þær staðið lengi, en það er ekki gengið út frá slíku eins og staðan er í dag.“ Á fundinum var samþykktur nýr orkusamningur við Landsvirkjun og segist Jón búast við að endan- lega verði gengið frá honum á næstu vikum. I samningnum er gert ráð fyrir möguleika á viðbótar- orku á svipuðu verði, komi til stækkunar verksmiðjunnar, en ákvörðun um það verður að liggja fyrir á fyrri hluta þessa árs. Starfslok framkvæmdastjóra fé- lagsins, Jóns Sigurðssonar, voru ákveðin á fundinum að hans eigin ósk og er búist við að nýr maður taki við með vorinu. * Akureyring- ur númer 15 þúsund BÆ JARYFIRV ÖLD á Akureyri héldu í gær hóf til heiðurs fimmtánþúsundasta borgara Akureyrar. Sá sem varð heið- ursins aðnjótandi er tæplega tveggja mánaða gamall dreng- ur, Einar Sigurðsson, sem fæddist 19. nóvember sl. Jakob Björnsson bæjarstjóri færði Einari áletraðan silfurskjöld frá bæjarstjórn ásamt banka- bók með 50 þúsund króna inn- stæðu. ■ Ánægjulegur áfangi/12 Á þriðja hundrað manns á kynningar- fundi um álver á Grundartanga Áhyggjur vegna áhrífa á annað atvinnulíf Á ÞRIÐJA hundrað manns var á opnum kynningarfundi sem heil- brigðisnefnd Akranessvæðisins stóð fyrir í gærkvöldi að Heiðarborg í Leirársveit, þar sem kynntar voru tillögur að starfsleyfi fyrir fyrirhugað álver á Grundartanga. Á fundinum voru auk heimamanna meðal annars fulltrúar Hollustu- verndar, Náttúruverndarráðs, iðnað- ar- og viðskiptaráðuneytisins og bændasamtaka auk þingmanna kjör- dæmisins. Aðstoðarframkvæmda- stjóri Columbia Ventures var einnig á fundinum. Ýmsir lýstu miklum áhyggjum sín- um af sjónmengun af verksmiðjunni og mögulegum áhrifum á landbúnað og ferðamennsku. Þá höfðu margir áhyggjur af mengun frá verksmiðj- unni. Ólafur Pétursson frá Hollustu- vernd gerði grein fyrir tillögum að starfsleyfi en skila má athugasemd- um fyrir 13. janúar næstkomandi. Hollustuvernd gerir ráð fyrir að af- greiða endanlega^ tillögu til ráðherra í næsta mánuði. í starfsleyfinu segir meðal annars að álverið verði byggt í samræmi við bestu tækni sem völ er á í kerskálum. Útblástur mengun- arefna verður í samræmi við ýtrustu kröfur sem gerðar eru. Náttúruverndarráð gerir athugasemdir Fram kom í máli Trausta Baldurs- sonar frá Náttúruvemdarráði að ráðið gerir fjölmargar athugasemdir við starfsleyfið. Náttúruvemdarráð gagniýnir meðal annars að ekki skuli vera gert ráð fyrir vothreinsibúnaði í álverinu og telur að setja eigi mun strangari takmörk í mörgum tilvikum. Fulltrúar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins upplýstu á fundin- um að ekki hefði verið óskað eftir því að aflað yrði sérstakra upplýs- inga um búfé á svæðinu við undir- búning að starfsemi álversins og var það harðlega gagnrýnt af fundar- mönnum. Galloway-kálfar fluttir í land FYRSTU lifandi gripirnir af Galloway-holdanautakyninu voru fluttir úr Hrísey í gær. Eru þetta fjórir kálfar sem seldir hafa verið á tvo bæi í Skagafirði. Ræktun Galloway-stofnsins hér á landi hófst með stofnun Einangr- unarstöðvarinnar í Hrísey fyrir 20 áram. Islenskar kýr vora sæddar með innfluttu sæði úr Galloway- nautum. Dreifing á djúpfrystu sæði hófst nokkram árum síðar. Síðan hefur framræktun stofnsins leitt til þess að í Hrísey eru nú „hreinir" Galloway-gripir. Eins og sakir standa er Galloway-stofninn á íslandi einn sá verðmætasti í heiminum, eftir að tók fyrir allan útflutning á Galloway-erfðaefni frá Bretlandi vegna kúariðunnar. Landssam- band kúabænda sem rekur stöð- ina hefur fengið fyrirspurnir að utan um erfðaefni úr stofninum. ■ Fyrstu lifandi/12 Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.